Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 05.12.2003, Qupperneq 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 51 spariklæddir enda er sunnudagur og þá klæðast menn sínum bestu fötum. Labba niður á bryggju þar sem kallarnir rabba saman um landsins gagn og nauðsynjar. En drengurinn hefur meiri áhuga á bátunum sem liggja letilegir við bryggjuna eða marhnútunum sem eiga að leynast einhvers staðar niðri í spegilsléttum sjónum. Yfir öllu þessi algera kyrrð og heiðríkja sem getur bara orðið á vorin. Þau eru seint á ferðinni eftir spilakvöld hjá vinafólki. Það stirnir á hjarnið í stjörnubjartri nóttinni, þar sem norðurljósin dansa æð- isgenginn dans um himininn og skjótast svo nálægt alhvítri jörð- inni að stundum er eins og þau ætli að keyra beint í hausinn á litlum manni. En hann er ekkert hræddur því að hann er vafinn inn í hlýtt teppi og pabbi heldur á honum og mamma gengur við hliðina á þeim og það er svo ótrúlega notalegt að vagga svona og horfa upp í dýrð- ina. Pabbi er að beita og mamma hellir kaffi á brúsa og smyr brauð- sneiðar og setur líka með svolítið af heimabökuðu sætabrauði og stráksi fer með þetta í grænu trékaffitösk- unni sem er með upphafsstöfunum hans pabba á, letraða í svörtu: Ó.St.St. Í beitingaskúrnum standa karl- arnir við bjóðin og á miðju gólfinu stendur olíuofn og rembist við að hita upp hráslagalegt húsnæðið. Pabbi tekur við kaffitöskunni og langir og grannir fingur hans eru ekki grannir lengur heldur þrútnir, rauðglansandi og sprungnir og dugar ekkert þótt hann beri á sig Atrixið úr grænu dollunni. Þegar hann er háttaður í borð- stofunni er svo notalegt að heyra óminn af röddum þeirra innan úr svefnherberginu; þau skiptast á um að lesa hvort fyrir annað þegar þau eru komin í rúmið og stundum læð- ist hann fram með sængina og sest á gólfið við dyrnar til að heyra bet- ur. Svo þegar lestrinum lýkur og hann heyrir þau bjóða hvort öðru góða nótt þá laumast hann aftur inn í rúmið sitt. Mörgum árum seinna heldur hann enn í höndina á pabba sínum og dáist að þessum fallegu, grönnu fingrum. Úti er snjókoma og fjallið er orð- ið hvítt. Allt klárt fyrir skíðamanninn að renna sér sína síðustu ferð. Með glæsibrag og stríðnisglampa í augum. Gæjalegur. Enda er hann að fara að hitta kærustuna sína eftir langan að- skilnað. Þegar ég nú kveð pabba minn vil ég þakka bræðrum mínum og mág- konum fyrir alla þá ástúð og um- hyggju sem þau sýndu honum. Fyrir þann sem var í burtu var gott að vita af honum í öruggu skjóli þeirra. Guðmundur Ólafsson. Það er gæfa að eiga samleið með góðu fólki. Í dag kveðjum við með söknuði einn af nánustu samferða- mönnum okkar í lífinu, Ólaf Stef- ánsson tengdaföður okkar, sem sannarlega fyllti þann flokk. Ljúf- mennska og góðvild einkenndu alla framkomu hans og gerðu hann að aufúsugesti hvar sem hann kom. Okkur tengdadætrunum var hann hlýr og einlægur vinur, börnunum okkar kærleiksríkur, áhugasamur og stoltur afi sem aldrei hallaði orði á hópinn sinn. Að leiðarlokum viljum við þakka elsku Óla tengda- pabba fyrir allt það góða sem hann gaf fjölskyldu sinni, fyrir allar in- dælu samverustundirnar á liðnum árum og síðast en ekki síst fyrir að hafa lagt til svo vænan efnivið í strákana sína þrjá, sem við erum svo lánsamar að hafa í húsi. Margrét Toft, Hulda Þiðrandadóttir og Olga Guðrún Árnadóttir. Elsku afi. Við eigum erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur. Þegar við sáum þig síðast datt okkur ekki í hug að við myndum aldrei hitta þig aftur. Þú ert búinn að vera hluti af lífi okkar alla okkar ævi svo að það er erfitt að ímynda sér að þú sért allt í einu ekki til staðar. Það var líka erfitt að sum okkar gátu ekki verið við hlið þér þegar við vissum í hvað stefndi. Við vitum að þér leið ekki vel uppá síð- kastið og því reynum við að hugga okkur við það að nú líði þér betur. Þegar við systkinin minnumst þín kemur helst upp í huga okkar hvað þú varst yndislegur afi. Þú hafðir alltaf tíma fyrir barnabörnin þín og leyfðir okkur að þvælast með þér út um allan bæ og við töl- um nú ekki um hversu gaman það var að fá að gista í afahúsi. Við héldum öll mikið uppá þig og vitum líka að þú varst mjög stoltur af öllum barnabörnunum þínum. Við munum líka vel eftir því hvað þér þótti vænt um Röstina þína og hvað þér leið vel á sjónum. Það var alltaf gaman að standa á bryggj- unni og taka á móti þér og pabba og sjá hversu mikið hafði aflast þennan og þennan daginn. Ósjaldan stóðstu og hvattir okk- ur á skíðamótum og varst ómiss- andi á öllum stökkmótum heima, þar sem þú stóðst og gafst merki þegar næsti mátti koma. Svo komstu í kvöldmat til okkar á Hlíðarveg næstum því á hverjum degi og alltaf varstu blístrandi ein- hvern lagstúf sem enginn nema þú kunnir. Að lokum getur maður ekki ann- að en minnst tóbakspontunnar sem þú aldrei skildir við þig. Elsku afi, við eigum eftir að sakna þín mikið en við munum aldrei gleyma þér, þú verður alltaf hjá okkur. Kveðja til þín, Ólafur, Kristinn og Íris. Elsku afi Óli, er ég rita þessar línur til þín sit ég við eldhúsborðið nýbúin að kveikja á aðventuljósinu og minnist þín. Ég og synir mínir tveir, Stefán Gunnar og Grétar Áki, eigum svo margar góðar minn- ingar um þig. Er ég horfi út um gluggann snjóar og snjóar, þá sér maður þig fyrir sér á gönguskíðum sem voru þitt líf og yndi, enda gamall skíðamaður. Þú varst búinn að keppa á mörgum skíðamótum og vinna til margra verðlauna. Snjór- inn mun ávallt minna mig á þig. Þú varst líka duglegur að fara í sund á hverjum degi og hafðir gaman af að ræða við hina karlana í pott- inum um daginn og veginn. Ógleymanlegar eru líka sjóferð- irnar á Röstinni út fjörðinn þar sem fjölskyldan fór að dorga og þó svo ekkert veiddist skipti það engu máli því það var svo skemmtilegt. Ein sjóferð er þó minnisstæðari en önnur, þá varst þú að kenna Stef- áni mínum að dorga og var hann þá aðeins þriggja ára gamall. Þú varst alla tíð barngóður og hændust mörg börn að þér, ekki síst barnabörnin og barnabarna- börnin. Þú varst alveg einstakur afi og eigum við svo margar minn- ingar um þig sem við geymum í hjarta okkar. Þar sem aðventan er gengin í garð rifjast margt upp í kringum jólin og er þá ekki hægt annað en að minnast á laufabrauðsgerðina þar sem þú varst alveg ómissandi. Mikið eigum við eftir að sakna þín þessi jól og um ókomin ár. Þú varst algjör snillingur í að skera út í laufabrauðið og vandvirkur varstu. Grétar Áki sagði alltaf við mig að afi Óli gerði alltaf langflottasta laufabrauðið og er það alveg rétt hjá honum. Við gleymum heldur aldrei öllum jólunum heima hjá þér á Brimnesvegi 10 þar sem ætt- ingjar þínir komu saman og gerðu sér glaðan dag. Þar vorum við frá morgni til kvölds. Þar var borðað, spilað, lesið, gamlar myndir skoð- aðar og mikið sofið því að einhvern veginn færðist mikil ró yfir alla í afahúsi. Meðan eldra fólkið fór til kirkju spilaði unga fólkið í eldhús- inu og var þá oft mikið fjör og allt- af passaðir þú upp á að nóg væri af gosi og konfekti handa okkur. Ég gæti setið hér og skrifað endalaust um þig því minningarnar eru svo margar en ég ætla bara að hafa þær fyrir sjálfa mig. Daginn áður en þú kvaddir þenn- an heim sat ég hjá þér við rúmið þitt og hélt í hönd þína. Þú leist á mig og spurðir mig hvort ég ætlaði að vaka yfir þér og ég játti því. Þú sagðir að við værum búin að hafa allt of mikið fyrir þér. En ætli þú hafir ekki verið búinn að gera ým- islegt fyrir mig. En nú er svo kom- ið að nú vakir þú yfir okkur ásamt ömmu Fjólu og ég veit að hún hef- ur tekið vel á móti þér ásamt Þuru litlu og Þorfinnu systur þinni, sem kvaddi okkur fyrir svo stuttu. Mik- ið eigum við eftir að sakna þín. Þetta er afar sárt en við vitum að þú ert í góðum höndum hjá ömmu Fjólu. Við mánaskinsins milda aftanljóma ég mætti þér. Því sástu ekki harmatárin hrynja af hvörmum mér. Ég horfði til þín hlýjum vonaraugum og hló við þér. Því heyrirðu ekki hjartað brotna byltast í brjósti mér Svo kvaddi ég þig hlýju handabandi með heitri mund. Þú skildir ei þá hryggð, sem hjartað þjáði þá horfnu stund. (Guðrún Auðunsdóttir.) Elsku afi Óli, hvíl í friði. Fjóla Bláfeld. Elsku afi, nú ert þú farinn frá okkur og kominn í góðar hendur. Ég veit að amma Fjóla og Þura litla hafa tekið vel á móti þér og nú eruð þið öll saman á ný. Allar mínar minningar um þig eru góðar og gott er að geta brosað yfir öllum þeim stundum sem við áttum saman, elsku afi minn. Nú rifjast upp fyrir mér sjóferðin sem ég fór á Röstinni þinni og Kiddi frændi var einnig með, það var bú- ið að hlakka til þessarar sjóferðar og nú var stundin runnin upp. Veðrið var ekki eins gott og ég hafði vonast til og þegar út fjörðinn var komið fór sjóveikin að segja til sín. Þú tókst strax þá ákvörðun að sigla í land með hetjurnar, en þó sjóferðin hafi verið stutt mun þessi minning lifa lengi með mér. Svo ég tali nú ekki um hátíðina á heimili þínu á jóladag ár hvert. Ég og fjölskyldan mín vorum svo lánsöm að eiga með þér yndislegt aðfangadagskvöld, þegar Jónína „spónína“ eins og þú kallaðir hana alltaf, var á sínu öðru ári og þér fannst sko ekki leiðinlegt að sjá æsinginn í henni að taka upp pakk- ana. Þér fannst alltaf gaman að barnabörnunum þínum og ekki síst að barnabarnabörnunum, alltaf varst þú tilbúin að leika við þau og gantast. Þegar þú fluttist á dval- arheimilið Hornbrekku vorum við mikið saman og það var gott að geta fylgst svona vel með þér. Það var alltaf gott að koma í vinnuna á morgnana og geta gefið þér „negrakoss“ á kinnina og boðið þér góðan daginn. Á þessum tíma kynntist ég hlið á þér sem ég mun aldrei gleyma, þú varst svo innilega góður við mig og starfsfólkið, það met ég mikils. Það lifnaði alltaf yfir þér þegar Jónína og Tinna komu í heimsókna til þín og þeim fannst alltaf gaman að fara í heimsókn til afa Óla, Tinna mun aldrei gleyma söngnum þínum um hana „Tinna, Tinna, Tinna, hahaha, ha, ha“ það var alltaf gaman að heyra þig segja þetta. Elsku afi, það er alltaf sárt að kveðja ástvin en minningarnar sem ég og fjölskylda mín eigum um þig, munu lifa í hjörtum okkar. Við kveðjum þig með söknuði. Þín „Gella“ Helga.  Fleiri minningargreinar um Ólaf Steingrím Stefánsson bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson Útfararstjóri Sími 5679110, 8938638 Heimasíða okkar er www.utfarir.is Þar eru upplýsingar um allt er lýtur að útför: - Söngfólk og kórar - Erfidrykkja - Aðstoð við skrif minningargreina - Panta kross og frágang á leiði Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, LÁRUSAR BJÖRNSSONAR frá Ósi, Höfðagrund 27, Akranesi. Sérstakar þakkir sendum við öllu starfsfólki hjúkrunardeildar dvalarheimilisins Höfða. Júlíanna Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS BERGS KRISTJÁNSSONAR, Birkihvammi, Kópavogi, áður Smárahvammi. Sérstakar þakkir til Karitasar heimahjúkrunar, deildar 11E á Landspítala Hringbraut og Braga Skúlasonar sjúkrahúss- prests. Þórunn Garðarsdóttir, Edda Rúna Kristjánsdóttir, Rósant Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Egill Þórarinsson, Enea Rósantsdóttir. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR JÓNSSON, Hrafnistu, Reykjavík, er látinn. Kristinn Pétursson, Björk Þórarinsdóttir, Sunneva Pétursdóttir, Steinunn Pétursdóttir, Friðrik V. Guðmundsson, Pétur Már Sveinsson, Kári Friðriksson, Bára Friðriksdóttir, Alexander Kristinsson, Þröstur Kristinsson. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, JÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR, Borgarhrauni 19, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnu- daginn 30. nóvember. Útförin fer fram frá Grindarvíkurkirkju laugar- daginn 6. desember kl. 11.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á slysavarnadeild Þórkötlu, reikningsnúmer 0143 05 2521 í Landsbanka Grindavíkur. Ólafur Jóhannesson, Jón Ægir Pétursson, Björg Helga Atladóttir, Arnar Ólafsson, Bjarný Sigmarsdóttir, Ómar Ólafsson og barnabörn. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.