Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.12.2003, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I ATVINNA ÓSKAST Framtíðarstarf 37 ára fjölskyldumaður óskar eftir framtíðar- starfi á höfuðborgarsvæðinu. Er með verslun- arpróf og víðtæka reynslu úr atvinnulífinu. Góð tölvu- og tungumálakunnátta. Sendið svör til augldeildar Mbl. eða á box@mbl.is, merkt: „Framtíðarstarf — 14644“, fyrir 15. desember. Sölufólk óskast Duglegt og ábyggilegt sölufólk óskast til að selja jólakort fyrir Blindrafélagið. Góð sölulaun í boði. Upplýsingar veittar á skrifstofu Blindrafélags- ins, Hamrahlíð 17, sími 525 0000, tölvupóstur blind@blind.is.                                              Hellissandur Umboðsmaður og/eða blaðberar óskast Umboðsmaður og/eða blaðberar óskast sem fyrst. Leitað er að ábyrgðarfullum einstaklingi til að sjá um dreifingu og aðra þjónustu við áskrifendur á svæðinu. Umsóknareyðublöð fást hjá núverandi umboðsmanni, Láru Hallveigu Lárusdóttur, Háarifi 15, efri hæð, Hellissandi, og sendist til Bergdísar Eggertsdóttir, skrifstofu Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 12. desember 2003. Hjá Morgunblaðinu starfa rúmlega 350 starfsmenn. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík en einnig er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. R A Ð A U G L Ý S I N G A R NAUÐUNGARSALA Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Askalind 2A, þingl. kaupsamningshafi K.S.-verktakar hf., gerðarbeið- andi Tollstjóraskrifstofa, þriðjudaginn 9. desember 2003 kl. 13:30. Hamraborg 16, 03-0101, þingl. eig. Claudia Sigurbjörnsdóttir, gerð- arbeiðendur Hamraborg 16, húsfélag og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 9. desember 2003 kl. 14:30. Sýslumaðurinn í Kópavogi, 4. desember 2003. Ragnhildur Sophusdóttir, ftr. Nauðungarsala Að kröfu Tollgæslunnar í Keflavík og sýslumannsins í Keflavík fer fram nauðungarsala föstudaginn 12. desember kl. 14.00 við Skipaafgreiðslu Suðurnesja, Iðjustíg 1, Njarðvík: Beðið hefur verið um sölu á ótollafgreiddum glugga og dyrabúnaði svo og kassa á vöruflutningabifreið. Að kröfu Gunnars Sólnes hrl. hefur jafnframt verið óskað eftir að eignarhluti Jóhannesar Helga Einarssonar í einkahlutafélögunum Sæ efh., kt. 520292-2179, Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði og eignar- hluta gerðarþola í Ljónynjunni ehf., kt. 601000-2610, verði seldur nauðungarsölu. Þá verða jafnframt seldar bifreiðarnar RI-342 Man vörubifreið og TS-450 Nissan Almera. Geiðsla verði innt af hendi við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Keflavík. Meistarafélag húsasmiða Styrktarsjóður Meistarafélag húsasmiða auglýsir eftir umsóknum til úthlutunar úr styrktarsjóði félagsins. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsins í Skipholti 70 og þurfa að hafa borist fyrir 18. desember nk. TILKYNNINGAR Virkjun á Hellisheiði Rafstöð allt að 120 MW og varmastöð allt að 400 MW Mat á umhverfisáhrifum — athugun Skipulagsstofnunar Orkuveita Reykjavíkur hefur tilkynnt til athug- unar Skipulagsstofnunar matsskýrslu um virkj- un á Hellisheiði. Rafstöð allt að 120 MW og varmastöð allt að 400 MW í Sveitarfélaginu Ölfusi, Mosfellsbæ og Reykjavík. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. desember 2003 til 16. janúar 2004 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, skrifstofu Mosfellsbæjar, bókasafninu í Þorlákshöfn, Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðum Orkuveitu Reykjavíkur: www.or.is og VGK verk- fræðistofu: www.vgk.is . Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 16. janúar 2004 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn- fremur nánari upplýsingar um mat á umhverf- isáhrifum. Vakin er athygli á að opið hús verður miðviku- daginn 10. desember milli kl. 16-20 í húsi Orku- veitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi 1 í Reykjavík og fimmtudaginn 11. desember milli kl. 17-19 í Ráðhúsi Ölfus í Þorlákshöfn, þar sem öllum gefst kostur á að kynna sér framkvæmdina. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisá- hrifum nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. Deiliskipulag Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Grímsnes- og Grafningshreppi. Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við breytingu á deiliskipulagi orkuvinnslusvæðis Orkuveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum í Grafningi. Í breytingunni felst stækkun verndarsvæðis vegna hvera sunnan vegslóða, breyting á bor- svæði vestan Nesjalaugargils, nýtt svæði fyrir viðbótarniðurrennslisholur norðan stöðvar- húss, niðurfellling áhrifa- og athafnasvæðis vegna niðurrennslisveitu, stækkun bygginga- og framkvæmdasvæðis til norðurs frá stöðvar- húsi vegna niðurgrafins fjölliðunargeymis fyrir skiljuvatn og nýr byggingarreitur vegna kæli- turns austan heimreiðar við stöðvarhús. Skipulagstillagan liggur frammi á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps, Félagsheimil- inu Borg og hjá embætti skipulagsfulltrúa upp- sveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni, á skrifstofutíma frá 5. desember 2003 til 2. janúar 2004. Athugasemdir við skipulagstil- löguna skulu berast til skipulagsfulltrúa upp- sveita Árnessýslu í síðasta lagi föstudaginn 16. janúar 2004 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá, sem ekki gerir athugasemdir við tillög- una innan tilskilins frests, telst vera samþykkur henni. Laugarvatni, 28. nóvember 2003. F.h. sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps, Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 og breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík. Í samræmi við 2. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024. Vesturhöfnin. Um er að ræða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur sem varðar Vestur- höfnina. Í tillögunni felst að heimilt verði að reka verslun og þjónustu, þ.m.t. matvöru- verslun, sem getur ekki talist til hafnsækinnar starfssemi, á hluta hafnarsvæðis HA2, sbr. afmörkun á skýringaruppdrætti og lýsingu á afmörkun svæðisins í greinargerð. Breytingin tekur til svæðis norð-vestan Grandagarðs sem tekur til lóðanna 1-13 (oddatölur) við Grandagarð og nr. 1, 2-8, 3, 10, 17, 19, 21, 23, 45, 47 og 49-51 við Fiskislóð. Nánar vísast í kynningargögn. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í Reykjavík: Hálsahverfi. Um er að ræða tillögu að breytingu á deili- skipulagi Hálshverfis. Í tillögunni eru m.a. gert ráð fyrir að mörk deiliskipulags verði færð út fyrir lóðir að Hesthálsi 14 og 15, Krókhálsi 7, Lynghálsi 12 og 13 og Tunguháls 8 og 10, að aðkoma að Krókhálsi 7 verði frá Krókhálsi, um nýja innkeyrslu austan við núverandi götu- stæði, einnig aðkoma frá Hesthálsi, að nú- verandi götustæði komi til stækkunar fyrir lóðina Hestháls 14 og Krókháls 7 og jafn umferðarréttur gildi fyrir báðar þessar lóðir á umræddri stækkun. Nánar vísast í kynningargögn. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8.20 – 16.15, frá 5. desember 2003 til 16. janúar 2004. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athuga- semdum við þær skal skila skriflega til Skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu- lagsfulltrúa) eigi síðar en 16. janúar 2004. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 5. desember 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.