Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 58

Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 58
DAGBÓK 58 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Skógarfoss kemur og fer í dag. Mánafoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Salles kemur í dag. Polar Siglir, Thirza, Ernir, Florinda fóru í gær. Fréttir Bókatíðindi 2003. Númer föstudagsins 5. desember er 046388. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, bað og jóga. Hársnyrting, fótaaðgerð. Bingó fell- ur niður í dag vegna jólahlaðborðs í kvöld. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16,30 smíðar. Bingó spilað 2. og 4. föstudag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9– 12 vefnaður, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 13–16 vefnaður og spilað í sal, kl. 13.30 félags- vist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað og hárgreiðslustofan opin, kl. 14 söngstund. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 handavinnustofan op- in, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 vinnustofa, myndlist o.fl., kl. 9.30 göngu- hópur, kl. 14 spilað. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11 leikfimi, kl. 13 opið hús, spilað á spil. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Jólagleði í Kirkjuhvoli kl. 19. Rútuferðir frá Hlein- um og Holtsbúð. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Tréútskurður kl. 9 og 13, leikfimi í Bjarkar- húsi kl. 11.30, brids kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Útvarp Saga 99,4 í dag kl. 12.20. Þáttur um málefni eldri borgara. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gleðin léttir lim- ina, létt ganga, Herdís Jónsdótir hjúkrunar- fræðingur kemur í heimsókn, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 13.30 kóræfing, s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.05 myndvefn- aður, kl. 9.30 málm- og silfursmíði, kl. 13 bók- band. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, kl. 14–15 afmælis- og aðventu- fagnaður í dag, Gleði- gjafarnir syngja undir gítarleik Guðrúnar Lilju Guðmundsdótt- ur, óvænt uppákoma, Ingibjörg Aldís Ólafs- dóttir syngur nokkur einsöngslög við undir- leik Ólafs Ólafssonar sem leiðir söng og leikur á harmóniku og píanó. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, útskurð- ur, baðþjónusta, fóta- aðgerð og hárgreiðsla, kl. 11 spurt og spjall- að, kl. 14 bingó. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9–12 postulínsmáln- ing, kl. 14.30 spænska, framh. Fótaaðgerðir virka daga, hársnyrt- ing þriðju- og föstu- daga. Norðurbrún 1. Kl. 9– 17 hárgreiðsla, kl. 10– 11 boccia, kl. 14 leik- fimi. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–14.30 handavinna, kl. 10–11 kántrídans. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla og myndlist, kl. 9.30 bókband og morgun- stund, kl. 10 fótaað- gerðir og leikfimi, kl. 12.30 leir, kl. 13.30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 10–14. Félag eldri borgara í Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, kl. 10. Gott fólk, gott rölt. Gengið frá Gullsmára 13, kl. 10 á laugar- dögum. Minningarspjöld Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíróþjónusta). Minningarkort ABC hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í s. 561 6117. Minning- argjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslu- korti. Allur ágóði fer til hjálpar nauð- stöddum börnum. Í dag er föstudagur 5. desember, 339. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: En nú varir trú, von og kær- leikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13.)     Torfi Kristjánsson gagn-rýnir hugmyndir um hækkun lánshlutfalls og hámarkslána frá Íbúða- lánasjóði í pistli á vefrit- inu Deiglunni.     Torfi rifjar upp að ýms-ar fjármálastofnanir hafi talið þessar tillögur varhugaverðar, þar á meðal Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn, Seðlabankinn og Hagfræðistofnun HÍ. Útlánaauking Íbúðalána- sjóðs gæti grafið undan lausafjárstýringu Seðla- bankans, valdið hærri raunvöxtum og raun- gengi og hækkað íbúða- verð. „Það liggur nú þeg- ar fyrir að ríkisstjórnin muni halda sig við 90% lánin en líklegt þykir að félagsmálaráðherra hafi bakkað með tillögur sínar um 18 milljóna króna há- markslán sem hann til- kynnti síðastliðið vor.     Samkvæmt útreikn-ingum Greiningar- deildar Landsbankans mun fasteignaverð hækka um 10–15% ef há- markslán verða 18 millj- ónir og um 8–10% ef há- markslán verða 12 milljónir. Þessir útreikn- ingar miðast við það að aðlögun markaðarins fari að öllu leyti fram í gegn- um fasteignaverð þar sem framboð fasteigna er tregbreytanlegt. Það er því ljóst að áhrif þessara aðgerða félagsmálaráð- herra munu að öllum lík- indum verða umtalsverð á fasteignamarkaðnum þó að hámarkslánin verði töluvert lægri en upphaf- legar yfirlýsingar gerðu ráð fyrir. Fasteignaverð mun þó með tíð og tíma leita jafnvægis á ný með auknu framboði og í riti Landsbankans er bent á nauðsyn þess að fram- kvæma þessar breytingar í áföngum til að draga úr hækkunum á fasteigna- verði.     Áætlanir félagsmála-ráðherra um að keyra í gegn þessar þenslu- hvetjandi breytingar á húsnæðislánakerfinu verða að teljast nokkurt glapræði af hans hálfu, þar sem löngu er ljóst að íslenska þjóðin stefnir inn í þenslutímabil vegna stóriðjuframkvæmda, sem munu leiða til hækk- unar vaxta og gengis. Einnig ganga þessar að- gerðir þvert á þá stefnu ríkisstjórnarinnar að minnka umsvif ríkisins á fjármálamarkaði sem framfylgt hefur verið á síðustu árum.     En eitt er þó víst að hátt-virtur félagsmálaráð- herra þarf að fara að kynna áætlanir sínar því að sú óvissa sem ríkir á húsbréfamarkaðnum hef- ur mjög slæm áhrif á ís- lenskan skuldabréfa- markað. Það kemur alltaf niður á einstaklingum en yfirverð húsbréfa er nú nánast á núlli. Best væri þó að hann myndi falla al- veg frá þessum breyt- ingatillögum sínum,“ seg- ir Torfi á Deiglunni. STAKSTEINAR Glapræði félagsmálaráðherra Víkverji skrifar... Grein blaðakonunnar Sus-an De Muth um Kárahnjúkavirkjun, sem birtist í brezka blaðinu The Guardian í síðustu viku, hef- ur verið talsvert til umræðu manna á meðal. Víkverji las greinina á vef The Guardian og þótti hún áhugaverð, en varla fréttnæm. Greinin er ágæt samantekt á góðum og gildum röksemdum and- stæðinga Kárahnjúkavirkj- unar, sem fram hafa komið í umræðum hér heima. Vík- verji var hins vegar dálítið hissa á því að blaðamaður þessa vandaða blaðs virtist í raun aðeins hafa áhuga á annarri hlið málsins; a.m.k. er í greininni nánast eingöngu rætt við andstæðinga virkjunarinnar. De Muth hefur reyndar einnig rætt við Friðrik Sophusson, forstjóra Landsvirkjunar, en gerir aðallega grín að röksemdum hans eða lítið úr þeim. Víkverja þótti það draga úr gildi greinarinnar að niðurstaða höf- undarins – að Kárahnjúkavirkjun sé glapræði – virtist hafa verið gefin fyr- irfram, en væri ekki byggð á álykt- unum blaðamannsins eftir að hann hefði kynnt sér báðar hliðar málsins vandlega. x x x Þá fannst Víkverja nánast óskiljan-legur sá menntahroki, sem fram kemur í greininni, þar sem það er út- skýrt að Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra flaggi engri menntun nema enskunámi, sem hafi lokið 1972, og að Siv Friðleifsdóttir umhverf- isráðherra sé sjúkraþjálfari að mennt. Blaðamaðurinn telur starfs- ferilslýsingu ráðherranna að þessu leyti „ekki hughreystandi“. Ætli allir blaðamenn, sem fjalla um umhverfismál, séu sér- menntaðir í þeim fræðum? x x x Víkverji hefur heyrt gagn-rýni á að ýmsir fjöl- miðlar, þar á meðal Morg- unblaðið, hafi ekki tekið upp grein De Muth og gert að fréttaefni. Víkverja finnst að lítil ástæða hefði verið til að segja frá grein, sem er aðallega samantekt á sjón- armiðum, sem öllum hafa verið gerð ýtarleg skil í Morgunblaðinu, enda hafa skoðanir flestra eða allra viðmælenda De Muth komið fram hér í blaðinu. Eru þær orðnar fréttnæmari af því að þær birtast í útlendu blaði? Eru sjón- armið Íslendinga merkilegri en ella ef útlendingar segja frá þeim? Víkverji tekur eftir því að mörgum finnst að ef sagt er frá sjónarmiðum eða afrekum Íslendinga í erlendum fjölmiðlum, eigi nánast sjálfkrafa að birta um það fréttir á Íslandi. Stund- um er þó aðeins verið að endurtaka það, sem löngu er komið fram í ís- lenzkum fjölmiðlum. Íslenzk náttúra sprengd við Kárahnjúka. Morgunblaðið/RAX MÉR blöskraði svo þegar ég fór á tónleika með Kiri Te Kanawa um daginn að ég get vart orða bundist. Þegar við hjónin vorum búin að eyða 29.800 krón- um í tónleikamiða finnst mér ekkert annað en sjálf- sagt að tónleikahaldarar byðu okkur fría dagskrá. Nei, ekki á Íslandi. Við þurftum að kaupa dagskrá á ensku sem er prentuð fyrir alla tónleikaröðina á heilar 800 krónur. 800 krónur segi ég! Mér finnst þetta alveg fyrir neðan all- ar hellur og finnst að Einar Bárðar mætti aðeins hugsa sig um þegar hann heldur næstu stórtónleika þar sem áhorfendur borga næstum 1,2 milljónir. Eftir að hafa eytt þess- ari formúgu í miðana bjóst ég alveg eins við að ég fengi kampavín og jarðar- ber í anddyrinu en nei, þetta var eins og bíósýning og við þurftum að borga fyrir dagskrá. Ein pirruð. Fréttablaðið og DV ÞESSI blöð eru auglýst dag eftir dag en eru svo ekki borin út. Þeir sem auglýsa gera sér ekki grein fyrir að þúsundir lands- manna fá ekki blaðið. Eng- in aukablöð koma þannig að það virðist komið í sama farið og var. Enginn til að bera blaðið út. Bara talað um hvað ritstjórarnir eru klárir. Oft sér maður blöðin í hrúgu á gangstéttum og enginn hirðir um þau. Best er bara að fá Morgunblaðið sitt. Þar eru góðir blaðber- ar. Óánægður lesandi. Að brýna fyrir börnum sínum ÉG var að lesa pistil eftir Laufeyju í Velvakanda um að sonur hennar hefði sett fæturna upp á sætið í strætó og var fyrir vikið rekinn út. Ég hef séð mikið af þessu hjá unglingum í strætó og svo kemur fólk í ágætis fötum og þarf að setjast í þetta. Bílstjórinn hefur um annað að hugsa en að vera að ala ung- lingana upp og ættu for- eldrar að brýna fyrir börn- um sínum að gera ekki svona. Sigrún. Ósmekklegar fernur MIG langar að benda fólki á að veita athygli mynd- skreytingum á jólamjólk- urfernunum en þær eru einstaklega ósmekklegar. Mig langar að beina þeirri spurningu til Mjólk- ursamsölunnar hvernig í ósköpunum þeim dettur í hug að setja svona skreyt- ingar á fernur sem koma fyrir augu barna. Húsmóðir í Vesturbænum. Tapað/fundið Kápa tekin í misgripum BRÚN kápa, kasmír, var tekin í misgripum og önnur skilin eftir sl. laugardags- kvöld í Iðnó. Sá sem tók kápuna vinsamlega hafi samband í síma 867 8074. Systa – afmæliskort SYSTA! Þú varst að versla í Smáralindinni 6. septem- ber sl. og gleymdir afmæl- iskortinu þínu með verð- mætum. Hringdu í síma 898 9554 eða 660 8203. Rúmdýna týndist í Garðabæ RÚMDÝNA í plastpoka fauk af pallbíl á Hafnar- fjarðarveginum í Garðabæ á móts við Bitabæ síðdegis sl. mánudag. Þeir sem vita um dýnuna hafi vinsam- lega samband í síma 693 2304 eða 565 4623. Barnagleraugu í óskilum BARNAGLERAUGU fundust fyrir utan Borgar- leikhúsið laugardaginn 22. nóvember sl. Upplýsingar í síma 421 3694. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Kiri Te Kanawa – okur Morgunblaðið/Ómar LÁRÉTT 1 ný, 4 vinna, 7 þýða, 8 minnugur misgerða, 9 snæfok, 11 bragð, 13 næði, 14 óhamingja, 15 rakt, 17 sterk, 20 mjög æsta, 22 einskærar, 23 sárs, 24 tröll, 25 tekur. LÓÐRÉTT 1 snauð, 2 geng, 3 út- ungun, 4 viðlag, 5 árás, 6 einföld, 10 órói, 12 and- spænis, 13 skip, 15 horsk- ur, 16 mannsnafn, 18 ver- um, 19 lofar, 20 hugar- burður, 21 eyðimörk. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 bakhjarls, 8 umtal, 9 díkið, 10 jór, 11 sakka, 13 áfram, 15 björg, 18 saggi, 21 rík, 22 rudda, 23 raupa, 24 framvinda. Lóðrétt: 2 aftek, 3 helja, 4 andrá, 5 líkar, 6 gums, 7 óð- um, 12 kór, 14 fáa, 15 bert, 16 öldur, 17 gramm, 18 skrái, 19 grund, 20 iðan. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.