Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 61

Morgunblaðið - 05.12.2003, Side 61
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 61 LEIKUR Selfoss og Hauka á Ís- landsmóti karla í handknattleik, sem fram fer í kvöld, verður leik- inn í íþróttahúsinu á Hellu á Rangárvöllum. Þetta er í fyrsta skipti sem leikur í efstu deild í einhverri íþróttagrein fer fram þar í bæ. Bergur Guðmundsson, formað- ur handknattleiksdeildar Selfoss, sagði við Morgunblaðið að með því að spila á Hellu væru þeir Selfyssingar að endurgjalda heimamönnum þar. „Vegna þrengsla í íþróttahús- inu á Selfossi hefur meist- araflokkurinn okkar æft einu sinni í viku á Hellu og í fram- haldi af því var ákveðið að leika einn deildaleik þar fyrir áramótin og annan síðar í vetur. Um leið er þetta viðleitni af okkar hálfu til að auka útbreiðslu handbolt- ans. Ég á von á góðri aðsókn á leikinn en við kynntum hann í skólanum á Hellu og fengum góð viðbrögð. Auk þess er einn leik- manna okkar, Guðmundur Ingi Guðmundsson, búsettur á Hellu,“ sagði Bergur. Leikur liðanna hefst kl. 19.15 en vinni Haukar leikinn gull- tryggja þeir sér sæti í úrvals- deildinni eftir áramótin. Ljóst er að Selfyssingar leika í 1. deild seinni hluta vetrar. Aðrir leikir í kvöld eru ÍR - Stjarnan, Víkingur - KA og Grótta/KR - Afturelding. Selfyssingar og Haukar mætast á Hellu ÍSLENSKIR knattspyrnuáhugamenn bíða eins og aðrir með öndina í hálsinum eftir því að komast að því síðdegis í dag hverjir mótherjarnir í undankeppni HM 2006 verða. Möguleikarnir eru margir og hér koma dæmi um það besta og það versta sem gæti hent Ísland í drætt- inum. Draumariðill Íslands, með tilliti til aðdráttarafls and- stæðinga og stuttra ferðalaga, gæti litið þannig út: Eng- land, Holland, Skotland, Ísland, Norður-Írland og Fær- eyjar (sex þjóða riðill). Það yrði hins vegar hálfgerð martröð að lenda í riðli sem liti þannig út: Tyrkland, Rússland, Rúmenía, Ísland, Georgía, Armenía og Kasakstan (sjö þjóða riðill). Ef mótherjar eru metnir eftir möguleika Íslands á að blanda sér í baráttuna um HM-sæti gæti þessi riðill gefið einhverjar vonir: Svíþjóð, Pólland, Skotland, Ísland, Hvíta-Rússland, San Marino og Andorra. (sjö þjóðir). Líklegast er þó að niðurstaðan verði einhvers konar meðaltal af því besta og því versta. David Beckham, fyrirliði Englands, fagnar. Kemur hann til með að leika á Laugardals- vellinum í undankeppni HM 2006? HM-draumur og martröð  HRAFNHILDUR Skúladóttir, landsliðskona í handknattleik, skor- aði 10 mörk fyrir Tvis/Holstebro á mánudagskvöldið þegar lið hennar vann Mönsted, 33:24, í dönsku 1. deildinni. Hanna G. Stefánsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Tvis/Holstebro og Inga Fríða Tryggvadóttir eitt.  FORRÁÐAMENN NBA-liðsins Portland Trail Blazers sendu fram- herjann Bonzi Wells til Memphis Grizzlies í skiptum fyrir skotbak- vörðinn Wesley Person og fyrsta valrétt í nýliðavali NBA. Wells hefur átt erfitt uppdráttar hjá Portland undanfarnar vikur en hann var m.a. settur í leikbann af forsvarsmönnum liðsins á dögunum eftir að hann sendi Maurice Cheeks, þjálfara liðs- ins, tóninn er honum var skipt útaf í leik með liðinu.  EIGENDUR Portland hafa átt í erfiðleikum með leikmenn sína utan vallar undanfarin ár og hefur ímynd liðsins skaðast mikið.  LEIKMENN NBA-liðsins Toronto Raptors hafa heldur betur hrokkið í gang eftir að hafa fengið þrjá leik- menn til liðsins í leikmannaskiptum á dögunum. Gegn Boston setti kan- adíska liðið met með því að skora 17 þriggja stiga körfur úr aðeins 24 til- raunum en það er félagsmet. Atlanta Hawks á hinsvegar NBA-metið á þessu svið en liðið skoraði 19 slíkar körfur gegn Dallas 17. desember ár- ið 1996.  SIR Alex Ferguson knattspyrnu- stjóri Manchester United ætlar að reyna að frá ástralska framherjann Mark Viduka frá Leeds í raðir ensku meistaranna í næsta mánuði að sögn enskra fjölmiðla. Ferguson er sagð- ur reiðubúinn að punga út 5 millj- ónum punda fyrir Viduka.  SÆNSKI tenniskappinn Thomas Johansson verður á meðal þátttak- enda á atvinnumannamóti sem fram fer í Ástralíu í janúar en Johansson hefur ekkert keppt í rúmt ár vegna meiðsla. Johansson hefur verið meiddur á öxl og hné en hann lék síð- ast í nóvember fyrir ári. Johansson sigraði á opna ástralska meistara- mótinu árið 2002 og er helsta von Svía um árangur á alþjóðavettvangi.  ALEX Ferguson knattspyrnu- stjóri Manchester United segir við enska fjölmiðla í gær að það hafi ver- ið rétt ákvörðun að láta yngri leik- menn liðsins leika gegn WBA í deildabikarkeppninni í gærkvöld þar sem að Manchester United tapaði 2:0.  KNUT Torbjörn Eggen, þjálfari Fredrikstad, hefur framlengt samn- ing sinn við norska félagið til ársins 2006 en undir hans stjórn vann það sér sæti í úrvalsdeildinni eftir 19 ára hlé. Ríkharður Daðason lék með Fredrikstad síðari hlutann af tíma- bilinu og skoraði 5 mörk í þeim níu leikjum sem hann lék með því. FÓLK Ásgeir sagði eftir tap gegn Þýska-landi í Hamborg 11. október sl., að það væri draumur sinn og tak- mark að mæta aftur til leiks í Þýska- landi – þá sem þátttakandi á HM sumarið 2006. „Já, það er takmarkið hjá okkur Loga og öllum öðrum sem vilja knattspyrnunni vel á Íslandi. Við bíðum því spenntir eftir að sjá hvaða mótherja við fáum,“ sagði Ás- geir. Keppt um 13 sæti í Evrópu Leikið verður í átta riðlum í Evr- ópu – þrír riðlar með sjö liðum og fimm riðlar með sex liðum. Sigur- vegarar hvers riðils og tvö bestu lið- in í öðru sæti í riðlunum átta fara beint í úrslitakeppnina í Þýskalandi, en hin sex liðin í öðru sæti leika um þrjú síðustu sæti Evrópu í umspili. „Róðurinn verður erfiður, en spennandi. Það er ekki hægt að ræða um auðveldar þjóðir í tveimur efstu styrkleikaflokkunum og ekki heldur þeim þriðja. Það er aftur á móti hægt að láta sig dreyma um keppinauta í þessum þremur flokkum. Þegar ég horfi á fyrsta styrkleika- flokkinn óska ég þess að draumur ís- lenskra knattspyrnuunnenda rætist með því að við lendum í riðli með Englendingum. Það yrði mikil gleði- stund fyrir íslenska knattspyrnu- unnendur að fá að sjá landslið Eng- lands leika á Laugardalsvellinum. Það væri einnig skemmtilegt að geta boðið upp á stjörnulið Evrópumeist- ara Frakklands, leikna leikmenn Spánar og klóka leikmenn Ítalíu. Ís- lenskir knattspyrnuunnendur þekkja alla bestu leikmenn þessara þjóða mjög vel. Ég vildi þó helst vera laus við að mæta Spánverjum af þessum þjóð- um. Einnig landsliði Portúgals, en það hentar ekki okkur Íslendingum að leika gegn þessum tveimur þjóð- um, sem hafa yfir að ráða hröðum og léttleikandi liðum. Þá eru þrjár þjóðir ónefndar í fyrsta styrkleikaflokknum sem ekki eru eins spennandi kostur – Tyrk- land, Tékkland og Svíþjóð,“ sagði Ásgeir. Þegar rætt var um annan styrk- leikaflokkinn sagði Ásgeir að fyrir íslenska knattspyrnuunnendur væri draumurinn að leika gegn Írlandi, Hollandi, Belgíu og Danmörku. „Við viljum sleppa við að fara í austurveg og leika í Rússlandi, Kró- atíu, Póllandi eða Slóveníu.“ Þá barst talið að þriðja styrkleika- flokki og um þjóðirnar í honum sagði Ásgeir: „Ég myndi velja Skota, Svisslendinga, Austurríkismenn eða Slóvaka sem mótherja – sleppa því að þurfa að fara til Grikklands, Búlg- aríu, Rúmeníu og Serbíu-Svartfjalla- lands. Eins og ég sagði er alltaf erfitt að sækja þjóðir í Austur-Evrópu heim. Maður veit aldrei fyrirfram hvað okkur er boðið upp á utan sem innan vallar,“ sagði Ásgeir. Þegar rætt var um þjóðirnar í fimmta styrkleikaflokknum, sem er flokkur fyrir aftan þann sem Ísland er í, sagði Ásgeir: „Þar eru allt við- ráðanlegar þjóðir, eins og Norður- Írland, Litháen, Eistland og Kýpur, ásamt Ungverjalandi, Georgíu, Makedóníu og Hvíta-Rússlandi. Eins og ég sagði vil ég sleppa við að fara í austurveg og það á einnig við um fjórar þjóðir í sjötta styrkleika- flokki – Albaníu, Armeníu, Aserbaid- sjan og Moldavíu. Mætti ég frekar byðja um að fara til Liechtenstein, San Marínó, Möltu eða Færeyja.“ Ásgeir segist frekar vilja lenda í riðli með sex þjóðum og leika tíu leiki en að leika í riðli með sjö þjóðum og leika tólf leiki. Ásgeir sagði með því að leika í sex þjóða riðli væri möguleiki að fá Eng- land, Frakkland, Ítalíu og Spán, sem fyrirfram hefur verið ákveðið að leiki í sex þjóða riðlum. Ástæðan fyrir því er að Alþjóðaknattspyrnusamband- ið, FIFA, telur að álagið sé of mikið á leikmönnum þessara þjóða vegna þátttöku í Meistaradeild Evrópu. Það var mikið um dýrðir í Frank- furt í gærkvöldi hjá landsliðsþjálfur- um og forráðamönnum liða sem mættir voru til að vera viðstaddir dráttinn. FIFA bauð upp á mikla veislu, en síðan hefst alvaran í dag þegar dregið verður í riðlana. Eftir það koma forráðamenn og landsliðs- þjálfarar þjóðanna, sem dragast saman í riðla – og þá hefjast umræð- ur um leikdaga. EFTIR að hafa rætt við Ásgeir Sigurvinsson um hugsanlega mótherja Íslands í und- ankeppni HM, þá virðist draumariðill hans og Loga Ólafssonar vera þannig – sex þjóða riðill, raðað niður eftir styrkleikaflokkum: England Írland Skotland Ísland Norður-Írland Liechtenstein Með þessum þjóðum, fyrir utan Liechtenstein, leika leik- menn sem íslenskir knatt- spyrnuunnendur þekkja vel frá enska boltanum og þá væri stutt fyrir Íslendinga að fara til að styðja við bakið á lands- liðinu. Drauma- riðillinn Ásgeir Sigurvinsson vill bjóða Íslendingum upp á það besta og draumurinn er farseðillinn á HM í Þýskalandi 2006 Gaman væri að fá Eng- lendinga sem mótherja „ÞAÐ er alltaf gaman að koma til Þýskalands, þar sem ég þekki mig vel – en það er nýr heimur fyrir mig að vera kominn hingað til Frank- furt og vera viðstaddur þegar dregið er í riðla í undankeppni heims- meistarakeppninnar, sem er mesti íþróttaviðburður heims,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, sem mætti í gær til Frankfurt ásamt félaga sínum Loga Ólafssyni og Egg- erti Magnússyni, formanni Knattspyrnusambands Íslands, og Geir Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra sambandsins. Þeir eru mættir á staðinn til að vera viðstaddir er dregið verður í riðla í undankeppni heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi, sem hefst í München 9. júlí 2006 og lýkur með úrslitaleik í Berlín 9. júlí. Athöfnin hefst kl. 16.05 og lýkur kl. 17.45, en síðast verður dregið í riðlana í Evrópu. Morgunblaðið/Einar Falur Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson landsliðsþjálfarar slá á létta strengi á æfingu í Hamborg á dögunum. Staffan með vetraræfingu STAFFAN Johansson, landsliðsþjálfari Íslands í golfi, mun dvelja hér á landi næstu vikuna en í gær var Svíinn með fyrstu æfinguna hjá afrekshóp Golfsambands Íslands og fór sú æfing fram í Reið- höllinni í Reykjavík. Staffan mun eyða tveimur dögum á Akureyri þar sem hann mun hitta kylfinga sem búa á þeim slóðum. Um næstu helgi mun Staffan hitta alla úr afrekshópnum og munu þær æfing- ar fara fram í Sporthúsinu. Í janúar er fyrirhuguð æfingaferð til Orlando í Bandaríkjunum, líkt og gert var í upphafi þessa árs og þótti sú ferð hafa tekist sérstaklega vel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.