Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 62
ÍÞRÓTTIR
62 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EKKERT varð úr för Ólafs Stígssonar knattspyrnu-
manns til þýska 2. deildarliðsins Union Berlín, en
Morgunblaðið greindi frá því í gær að Ólafur væri
staddur í Þýskalandi til reynslu hjá Berlínarliðinu.
„Það var inni í myndinni að ég færi til Union Berlín
en niðurstaðan var sú að það var ákveðið að ég sendi
félaginu spólur úr leikjum þar sem ég hef komið við
sögu,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær. Eins og
fram hefur komið er hann laus allra mála hjá norska
úrvalsdeildarliðinu Molde eftir að hafa sagt upp samn-
ingi sínum við liðið.
„Framhaldið er óljóst hjá mér og ég ætla bara að
skoða málin í rólegheitum. Það er einhver áhugi af
hendi Union Berlín en það verður bara að koma í ljós
hvort einhver alvara sé þar að baki. Ég er opinn fyrir
öllu og helst vil ég leika áfram erlendis en ef ekkert
gerist á þeim vettvangi þá spila ég hér heima. Ég
reikna þá með að Fylkir verði fyrir valinu en ég hef
rætt lítillega við Fylkismenn,“ sagði Ólafur.
Ólafur fór ekki til
Union Berlín
DÓMARANEFND evrópska knattspyrnusambands-
ins, UEFA, hefur valið þá tólf dómara sem dæma í
úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í Portúgal í
sumar. Í þessum hópi eru dómarar sem af mörgum
eru taldir meðal þeirra bestu í faginu, til að mynda
Ítalinn Pierlugi Collina sem dæmdi úrslitaleik Bras-
ilíu og Þýskalands á HM í fyrra og Þjóðverjinn
Markus Merk sem dæmdi úrslitaleik AC Milan og og
Juventus í Meistaradeild Evrópu síðastliðið vor.
Dómararnir tólf eru:
Kim Milton Nielsen, Danmörku, Mike Riley, Eng-
landi, Gilles Veissière, Frakklandi, Markus Merk,
Þýskalandi, Pierluigi Collina, Ítalíu, Terie Hauge,
Noregi, Lucílio Cardoso, Portúgal, Valentin Ivanov,
Rússlandi, Lubos Michel, Slóvakíu, Manuel González,
Spáni, Anders Frisk, Svíþjóð, og Urs Meier, Sviss.
Aðstoðardómarar eru 24 talsins en dómaratríóið á
leikjunum á Evrópumótinu verður frá sama landi og
varadómarinn að auki.
Dómaralistinn
á EM klár
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Íslandsmót karla, RE/MAX-deildin, suð-
urriðill:
Austurberg: ÍR - Stjarnan....................19.15
Hella: Selfoss - Haukar.........................19.15
Norðurriðill:
Seltjarn.: Grótta/KR -Afturelding.......19.15
Víkin: Víkingur - KA .............................19.15
Íslandsmót kvenna, RE/MAX-deildin:
Framhús: Fram - Víkingur .......................18
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Keflavík: Keflavík - KR ........................19.15
Smárinn: Breiðablik - KFÍ ...................19.15
BLAK
1. deild kvenna:
Neskaups.: Þróttur N. - HK.................20.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hamar – Grindavík 79:87
Íþróttahúsið í Hveragerði, úrvalsdeild
karla, Intersport-deildin, fimmtudaginn 4.
desember 2003.
Gangur leiksins: 2:8, 9:16, 15:21, 15:31,
26:31, 28:42, 32:44, 38:46, 46:54, 52:58,
64:60, 65:62, 72:72, 77:82, 79:87.
Stig Hamars: Chris Dade 16, Lárus Jóns-
son 15, Marvin Valdimarsson 14, Faheem
Nelson 12, Svavar Pálsson 12, Hallgrímur
Brynjólfsson 4, Óskar Freyr Pétursson 3.
Fráköst: 19 í vörn - 11 í sókn.
Stig Grindavíkur: Darrell Lewis 21, Guð-
mundur Bragason 16, Dan Trammel 16,
Páll Axel Vilbergsson 16, Helgi Jónas Guð-
finnsson 11.
Fráköst: 19 í vörn - 13 í sókn.
Villur: Hamar 19 - Grindavík 21.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Einar
Einarsson, fínir. Áhorfendur: Um 250.
Njarðvík – Snæfell 105:68
Njarðvík:
Gangur leiksins: 2:9, 20:16, 22:18, 27:22,
37:26, 41:33, 52:43, 75:51, 87:59, 96:59,
105:68.
Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 29,
Brandon Woudstra 21, Páll Kristinsson 14,
Friðrik Stefánsson 14, Guðmundur Jóns-
son 9, Egill Jónasson 8, Halldór Karlsson 6,
Ólafur Aron Ingvason 2, Helgi Már Guð-
bjartsson 2.
Fráköst: 22 í vörn - 9 í sókn.
Stig Snæfells: Dondrel Witmore 16, Corey
Dickerson 14, Sigurður Þorvaldsson 13,
Hlynur Bæringsson 10, Hafþór I. Gunn-
arsson 10, Lýður Vignisson 3, Daniel Kaz-
ami 2.
Fráköst: 20 í vörn - 11 í sókn.
Villur: Njarðvík 12 - Snæfell 22.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og
Eggert Aðalsteinsson. Stjórnuðu leiknum
mjög vel. Áhorfendur: Um 70.
ÍR – Tindastóll 96:102
Seljaskóli, Reykjavík:
Gangur leiksins: 2:0, 15:4, 18:16, 18:16,
20:16, 20:22, 25:20, 28:25, 35:25, 39:33,
42:36, 48:36, 48:40, 53:40, 58:47, 60:53,
62:57, 66:57, 66:63, 68:63, 70:69, 74:69,
74:76, 80:82, 88:85, 89:88, 90:88, 90:90,
95:90, 96:92, 102:96.
Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 23, Eugene
Christopher 21, Ólafur J. Sigurðsson 14,
Ómar Ö. Sævarsson 13, Ásgeir Ö. Hlöð-
versson 10, Kevin Grandberg 9, Ryan Leier
4, Ólafur Þórisson 2.
Fráköst: 20 í vörn - 11 í sókn.
Stig Tindastóls: Nick Boyd 43, Clifton Co-
ok 37, Helgi R. Viggósson 9, Óli S. Barðdal
Reynisson 5, Axel Kárason 4, Adrian Parks
4.
Fráköst: 11 í vörn - 19 í sókn.
Villur: ÍR 25 - Tindastóll 21.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Guð-
mundur Stefán Maríasson.
Áhorfendur: Um 85.
Þór Þ. – Haukar 48:70
Þorlákshöfn:
Gangur leiksins: 3:2, 3:10, 7:14, 10:14,
12:20, 12:24, 17:30, 22:32, 30:35, 32:41,
37:46, 40:48, 42:52, 44:53, 47:64, 48:70.
Stig Þórs: Svavar Atli Birgisson 14 , Ray
Robins 13, Leon Brisport 9, Rúnar Pálma-
son 5, Grétar Ingi Erlendsson 4, Magnús
Sigurðsson 3.
Fráköst: 28 í vörn - í sókn.
Stig Hauka: Michael Manciel 20, Halldór
Kristmannsson 12, Sævar I Haraldsson 10,
Sigurður Þ Einarsson 7, Ingvar Þ Guðjóns-
son 7, Kristinn Jónasson 5, Marel Ö Guð-
laugsson 5, Þórður Gunnþórsson 2, Pedrag
Bojovic 2.
Fráköst: 28 í vörn - 11 í sókn.
Villur: Þór 24 - Haukar 23.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og
Helgi Bragason, mjög góðir
Áhorfendur: 130.
Staðan:
Grindavík 9 9 0 793:735 18
Njarðvík 9 7 2 840:743 14
Snæfell 9 6 3 732:713 12
Keflavík 8 5 3 785:697 10
KR 8 5 3 757:698 10
Haukar 9 5 4 711:718 10
Hamar 9 5 4 731:757 10
Tindastóll 9 4 5 863:831 8
KFÍ 8 2 6 742:809 4
Þór Þorl. 9 2 7 777:874 4
Breiðablik 8 1 7 658:721 2
ÍR 9 1 8 757:850 2
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Toronto – Boston................................ 105:95
New Jersey – Memphis ....................... 93:96
Detroit – Miami .................................... 87:73
New Orleans – Orlando ..................... 106:91
Houston – Utah ................................ 107:101
Eftir framlengingu.
San Antonio – LA Lakers.................... 86:90
Phoenix – Minnesota............................ 79:92
Portland – Indiana ............................... 97:95
Eftir framlengingu.
Seattle – New York .............................. 95:87
LA Clippers – Cleveland ..................... 90:80
Golden State – Denver..................... 109:117
KNATTSPYRNA
HM U20 í Sádi-Arabíu
A-riðill:
Sameinuðu furstad. - Burkina Faso ....... 0:0
Slóvakía – Panama ................................... 1:0
Burkina Faso 7 stig, Slóvakía 6, Samein-
uðu furstadæmin 4, Panama 0.
B-riðill:
Argentína – Malí....................................... 3:1
Spánn – Úsbekistan ................................. 1:0
Argentína 9 stig, Spánn 6, Malí 3, Úsbek-
istan 0.
C-riðill:
Brasilía – Ástralía..................................... 2:3
Kanada – Tékkland .................................. 1:0
Ástralía 7 stig, Brasilía 4, Kanada 3,
Tékkland 2.
Ítalía
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit, fyrri leikir:
Chievo – Perugia .......................................2:1
Roma – Palermo........................................1:0
Inter Mílanó – Reggina ............................2:1
Spánn
Racing Santander – Sevilla .................... 0:4
- Baptista 13., 45., Darío Silva 22, Reyes 46.
Zaragoza – Athletic Bilbao .................... 2:2
Villa 24., 46. - Yeste 12., Roberto Tiko 22.
Skotland
Deildabikarinn, 8-liða úrslit:
Partick Thistle – Celtic.............................0:2
HANDKNATTLEIKUR
Bikarkeppni karla
SS-bikarinn, 8-liða úrslit:
Valur – ÍBV .......................................... 37:24
Mörk Vals: Markús Máni Michaelsson 6,
Baldvin Þorsteinsson 6, Brendan Þorvalds-
son 5, Sigurður Eggertsson 5, Heimir
Árnason 4, Kristján Karlsson 3, Atli Rúnar
Steinþórsson 3, Hjalti Þór Pálmason 2,
Bjarki Sigurðsson 1, Freyr Bjarnason 1,
Hjatli Gylfason 1.
Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 5, Björg-
vin Rúnarsson 5, Sigurður Ari Stefánsson
4, Michael Lauritzen 2, Robert Bognar 2,
Zoltán Belányí 2, Ríkharð B. Guðmundsson
1, Josef Böse 1, Sigurður Bragason 1, Kári
Kristjánsson 1.
HM kvenna í Króatíu
A-RIÐILL:
Frakkland – Ástralía.............................33:13
Serbía-Svartfjallaland – Króatía .........28:24
Spánn – Brasilía ....................................27:25
Staðan:
Frakkland 3 3 0 0 94:53 6
Króatía 3 2 0 1 94:65 4
Serbía/Svart. 3 2 0 1 86:65 4
Spánn 3 2 0 1 85:80 4
Brasilía 3 0 0 3 65:92 0
Ástralía 3 0 0 3 43:112 0
B-RIÐILL:
Rússland – Uruguay .............................38:15
Tékkland – Austurríki ..........................22:29
Suður-Kórea – Angóla ..........................27:21
Staðan:
Austurríki 3 3 0 0 105:61 6
Rússland 3 3 0 0 92:64 6
Suður-Kórea 3 2 0 1 85:67 4
Tékkland 3 1 0 2 86:75 2
Angóla 3 0 0 3 62:82 0
Uruguay 2 0 0 2 36:93 0
C-RIÐILL:
Noregur – Argentína ............................45:13
Rúmenía – Japan...................................41:30
Úkraína – Túnis.....................................33:15
Staðan:
Rúmenía 3 2 1 0 112:71 5
Úkraína 3 2 1 0 91:72 5
Noregur 3 2 0 1 101:68 4
Japan 3 2 0 1 84:81 4
Túnis 3 0 0 3 64:90 0
Argentína 3 0 0 3 42:112 0
D-RIÐILL:
Danmörk – Fílabeinsströndin..............24:21
Ungverjaland – Slóvenía ......................38:25
Þýskaland – Kína ..................................30:28
Staðan:
Danmörk 3 2 1 0 73:61 5
Þýskaland 3 2 1 0 80:75 5
Ungverjaland 3 2 0 1 108:80 4
Slóvenía 3 2 0 1 91:92 4
Kína 3 0 0 3 74:93 0
Fílabeinsstr. 3 0 0 3 74:99 0
BLAK
1. deild karla
Stjarnan – Þróttur R.................................3:0
Leiðrétting
Nafn Arnórs Braga Elvarssonar, KR, mis-
ritaðist í myndatexta á bls. 44 miðvikudag-
inn 3. desember. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Í KVÖLD
Grindvíkingar unnu níunda leik-inn í röð en þrátt fyrir sigur-
gönguna á liðið mikið inni sé miðað
við leik liðsins í gær.
Hamarsmenn virt-
ust með bakið upp
við vegg undir lok
fyrri hálfleiks er
staðan var 26:42, en að venju var
seiglan mikil í liðinu á lokasprettin-
um. Þegar skammt var til leiksloka
var jafnt á komið með liðunum,
72:72, en segja má að gestirnir hafi
gert færri mistök en heimamenn á
lokakaflanum þar sem Helgi Jónas
Guðfinnsson lét ljós sitt skína.
Í upphafi annars leikhluta skor-
uðu gestirnir tíu stig í röð. Það fór
um áhorfendur en þeir sáu til sólar á
ný er heimamenn svöruðu með tíu
stiga skorpu. Dan Trammel miðherji
Grindvíkinga átti körfu kvöldsins er
hann tróð með tilþrifum. Hann tók
við sendingu Lewis af körfuspjaldinu
og þrumaði knettinum í körfuna.
Lagleg karfa. Staðan í hálfleik var
32:44 og allt útlit fyrir öruggan sigur
Grindvíkinga.
Það er þekkt að Hamarsmenn bíta
frá sér þegar á móti blæs og í gær
var engin breyting þar á. Marvin
Valdimarsson og Chris Dade fundu
leiðina að körfunni en ekkert gekk
hjá Grindvíkingum. Ekki nema hjá
Guðmundi Bragasyni sem var í því
hlutverki að ná sóknarfráköstum og
skora einfaldar körfur. Það kom
smáglóð í Pál Axel Vilbergsson um
tíma, tveir þristar af löngu færi í röð.
En síðan kólnaði fyrirliðinn líkt og
liðið í heild. Á lokakaflanum tók Lár-
us Jónsson, fyrirliði Hamars, upp
keflið og skoraði grimmt, eða 13 stig,
og fór fyrir sínum mönnum. Mikið
var um tæknileg mistök hjá báðum
liðum og var sem allur vindur væri
úr gestunum. En Helgi Jónas og
Guðmundur sáu að mestu um að
draga hlassið á lokakaflanum. Loka-
tölur, 79:87, og fyrsti tapleikur Ham-
ars á heimavelli staðreynd.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, sagði að liðið hefði sett
sér ákveðin markmið fyrir veturinn
en í raun ætti liðið mikið inni. „Við
erum ekki að spá mikið í það að hafa
ekki tapað enn sem komið er í deild-
inni. Það er sama tuggan, einn leikur
í einu. Við látum þetta ekki trufla
okkur en auðvitað viljum við vinna
sem flesta leiki. Það er óraunhæft að
ætla liðinu að fara í gegnum tímabil-
ið án þess að tapa. Í sumum leikjum
okkar til þessa höfum við hreint ekki
leikið vel og til að mynda vorum við
stálheppnir gegn Breiðabliki í bik-
arkeppninni, lékum illa í þeim leik.
En í þeim næsta gegn Keflavík náð-
um við að sýna hvað í okkur býr. Það
er alltaf erfitt að leika hér í Hvera-
gerði og við töpuðum báðum leikjum
okkar hér í fyrra. Þannig að við vor-
um með það á hreinu að hlutir eins
og sóknarfráköst og almenn barátta
verða að vera til staðar.“ Darrell
Lewis, Guðmundur, Trammel, Páll
Axel og Helgi Jónas skiptu stigunum
á milli sín að þessu sinni og léku best
í liði gestanna en í liði Hamars var
Lárus ákveðinn undir lok leiksins.
Faheem var ágætur á köflum auk
þess sem Svavar barðist að venju
vel. Chris Dade virðist enn eiga langt
í land með að vera ógnandi í sókn-
arleiknum og lið sem skorar aðeins
eina þriggja stiga körfu á erfitt upp-
dráttar gegn hvaða liði sem er.
Bragðdauft í Þorlákshöfn
Haukar unnu Þór frá Þorlákshöfní fremur bragðdaufum leik í
gærkvöldi og þetta var leikur sem
Þórsarar vilja
örugglega gleyma
sem fyrst. Haukar
sýndu baráttu allan
leikinn og verðskuld-
uðu sigur, þeir tóku forystuna
snemma í leiknum og létu hana aldr-
ei af hendi þar til 48:70 sigri var náð.
Það var eins og búið væri að setja
lok á körfurnar því hvorugt liðið hitti
nokkurn skapaðan hlut. Leikmenn
Þórs skoruðu aðeins eina þriggja
stiga körfu fyrstu sex og hálfa mín-
útu leiksins. Það var sama hvort leik-
menn voru í dauðafæri undir körf-
unni eða tækju langskot, ekkert vildi
ofaní. Barátta beggja liða var mikil
og sýnir stigaskorið best að varnirn-
ar stóðu sig.
Reynir Kristjánsson, þjálfari
Hauka, sagði eftir leikinn að þetta
hefði verið skrítinn leikur sem færi
ekki á spjöld sögunnar hvað gæði
snerti. „Það var greinilegt að leik-
urinn var mikilvægur fyrir bæði liðin
en þeim hefur ekki gengið vel í síð-
ustu leikjum og þurftu mjög á stig-
unum að halda. Það munaði mikið
um að þjálfari Þórs, William Dreher,
var ekki með og Gunnlaugur Er-
lendsson var á bekknum þar til í síð-
asta leikhluta og sýndi ekki mikið
þann stutta tíma sem hann fékk þá
en hann hefur oft verið okkur Hauk-
um erfiður, bæði þegar hann var
með Hamri og líka með Þórsliðinu.
Það getur verið gott að sýna aga og
hegna mönnum fyrir að mæta illa á
æfingar en við verðum að muna að
við erum með áhugamenn sem fá
ekki borgað fyrir þetta,“ sagði Reyn-
ir og var ánægður með sigurinn.
Dreher, þjálfari Þórs, vildi ekki
segja mikið um leikinn. „Þetta var
ekki mjög slæmur leikur, vörnin
vann vel og skilaði sínu. Haukarnir
náðu forskoti í upphafi sem við náð-
um að minnka smátt og smátt og
undir lok þriðja leikhluta munaði að-
eins sex stigum og leikurinn í jafn-
vægi en skotnýting okkar var ekki
góð,“ sagði þjálfarinn.
Njarðvík heldur sínu striki
Gestirnir úr Snæfelli mættuákveðnir til leiks í Njarðvík og
eftir aðeins þriggja mínútna leik
voru þeir komnir
með sjö stiga for-
ystu, 2:9, en þá tóku
heimamenn í Njarð-
vík syrpu og jöfnuðu
12:12. Leikurinn var jafn framan af
og virtist allt stefna í jafnan og
hörkuspennandi leik þegar staðan
var 20:16 eftir fyrsta fjórðung. Þegar
fimm mínútur voru eftir af fyrri hálf-
leik tóku Njarðvíkingar sig til og
spiluðu pressuvörn á Corey Dicker-
son, leikstjórnanda Snæfells, sem
hafði stjórnað leik þeirra Snæfell-
inga af stakri prýði. Sú vörn virkaði
fínt og skoruðu Njarðvíkingar tíu
stig í röð og fóru til leikhlés með átta
stiga forystu, 41:33.
Seinni hálfleikurinn hófst með
miklum hraða og góðri vörn Njarð-
víkinga. Brenton Birmingham spil-
aði mjög vel og skoraði 18 stig, þaraf
fjórar þriggja stiga körfur í þriðja
leikhluta. Njarðvíkingar áttu aftur
góðan kafla í þriðja leikhluta og
skoruðu tíu stig í röð. Á þeim tíma-
punkti fékk Snæfell á sig tvær
tæknivillur og var þá staðan orðin
75:51 og er það of mikill munur á
móti eins sterku liði sem Njarðvík
er. Í fjórða leikhluta fékk Hlynur
Bæringsson sína aðra tæknivillu og
jafnframt brottrekstrarvillu. Eftir
það skoruðu Njarðvíkingar þrettán
stig í röð og var þar með öruggum
sigri landað í Njarðvík.
Bestu menn Njarðvíkur voru
Brenton Birmingham sem skoraði
29 stig, þar af sjö þriggja stiga körf-
ur í átta tilraunum. Brandon
Woudstra skoraði 22 stig, tók tólf
fráköst og var með fimm stolna
bolta. Friðrik Stefánsson skoraði 14
stig og tók tíu fráköst. Páll Krist-
insson átti einnig góða spretti í leikn-
um og skoraði 14 stig.
Hjá Snæfelli voru Corey Dicker-
son og Dondrel Witmore bestir með
14 stig hvor. „Þetta var fyrst og
fremst liðssigur hér í kvöld,“ sagði
Friðrik Erlendur Stefánsson, fyrir-
liði Njarðvíkur, í leikslok. „Það var
gaman að sjá Brenton Birmingham
vera kominn í sitt gamla form aftur.
Það var líka gaman að sjá ungu
strákana, hvað þeir komu sterkir inn
á lokakaflanum. Ég bjóst við hörku-
leik en sú varð ekki raunin og þetta
var aldrei í hættu.“
Hamar nærri því að
stöðva Grindvíkinga
GRINDVÍKINGAR halda áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild karla í
körfuknattleik, Intersportdeildinni, lögðu Hamar í Hveragerði 87:79
í gærkvöldi, en Hamar hafði ekki tapað á heimavelli þar til í gær-
kvöldi. Haukar gerðu góða ferð í Þorlákshöfn og leyfðu heimamönn-
um aðeins að gera 48 stig en gerðu sjálfir 70 og í Njarðvík unnu
heimamenn lið Snæfells 105:68 en bæði lið halda sætum sínum.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
Jón H.
Sigurmundsson
skrifar
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar