Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 63

Morgunblaðið - 05.12.2003, Síða 63
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2003 63 RICH Beem, fyrrverandi PGA- meistari í golfi, og Steve Elkington segja við breska ríkistútvarpið að þeir kylfingar sem leiki á PGA- mótaröðinni í Bandaríkjunum séu of góðu vanir og mótaröðin vest- anhafs muni hindra framgang móta sem fram fara í öðrum heims- hlutum. Beem segir m.a. að verð- launaféð á PGA-mótaröðinni sé nú þegar mikið og eigi eftir að aukast í nánustu framtíð, en það muni gera skipuleggjendum á öðrum mótum erfitt um vik. „Það verður að grípa í taumana því að bandaríska mótaröðin er að eyðileggja íþróttina á heimsvísu,“ segir Elkington og bætir því við að lausnin sé sú að færa mót af PGA til landa á borð við Ástralíu eða til landa í Evrópu. „Það er ekki langt þar til heild- arverðlaun á einu PGA-móti verði allt að 450 millj. kr. og þá eiga mót í Ástralíu litla möguleika í þeirri samkeppni. Ég tel litlar líkur á því að bestu kylfingar heims fari til Ástralíu til þess að keppa um „smá- aura“ ef stóri fiskurinn er í tjörn í Bandaríkjunum,“ segir Elkington. Beem segir að of mörg mót fari fram í Bandaríkjunum og það skaði unga kylfinga að leika ekki víðar. „Það eina sem þeir gera er að slá langt og hátt. Það gera þeir ekki á opna breska meistaramótinu þar sem hvert högg þarf að vera sér- stakt, enda allt aðrar aðstæður.“ Bandaríkjamenn of góðu vanir úr vítaskotum tæpum þremur mínút- um fyrir leikslok og þrátt fyrir mik- inn darraðadans voru stigin ekki fleiri svo að framlengja varð leikinn. Þá fór Eiríkur Önundarson á kostum með fimm stig í röð en þegar ein mínúta og 40 sekúndur voru eftir héldu Cook og Boyd tíu stiga sýningu. „Við stjórnuðum leiknum lengst af en þeir komust inn í hann í lokin og hirtu af okkur,“ sagði Eggert Garð- arsson, þjálfari ÍR, dapur í bragði eft- ir leikinn. „Við erum að skríða saman eftir erfiða byrjun og fá til dæmis Eirík til baka úr veikindum svo það er sérstaklega sárt að tapa þessu. Mót- herjar virðast alltaf eiga sínar bestu stundir gegn okkur og við verðum að stöðva það – ef við gerum það ekki vinnum við ekki leik.“ Kevin Grandberg og Ómar Sæv- arsson, með 8 fráköst hvor, voru sterkir þar til þeir fengu sína fimmtu villu. Eiríkur var einnig drjúgur en hitti aðeins úr einu af 9 þriggja stiga skotum sínum og munar um minna. Frá byrjun var lögð áhersla á góðarvarnir, sérstaklega reyndu gest- irnir að koma í veg fyrir að þriggja stiga skyttur ÍR fengju að njóta sín. Heimamenn hins- vegar reyndu að hemja Cook og Boyd. ÍR náði fljótlega forystu en liðsmenn höfðu sig síðan lítið í frammi á meðan Tindastólsmenn komust yfir, 22:20. Það dugði til að hrista upp í Breið- hyltingum, sem tóku leikinn aftur í sínar hendur og á fyrstu mínútu þriðja leikhluta varð forystan mest, 53:40 fyrir ÍR. Tindastólsmenn skelltu sér þá í svæðisvörn, að sögn þjálfara þeirra til að brjóta upp leik- inn og rugla taktinn hjá mótherjun- um. Það virtist duga því hægt og bít- andi hófu gestirnir að saxa á forskotið uns þeir voru yfir, 76:74, í miðjum fjórða leikhluta, þá löngu hættir að spila svæðisvörn. Leikurinn var í járnum eftir það en ÍR tveimur stig- um á undan þar til gestirnir jöfnuðu Tindastólsmenn sýndu góða bar- áttu með því að hætta aldrei þrátt fyrir að eiga greinilega undir högg að sækja. „Nú þegar ég get talað sem sig- urvegari þá var þetta hörkuskemmti- legur leikur, mikil snerting og mikill hraði á mönnum sem geta hlaupið með boltann endanna á milli og skotið langan veg að körfunni,“ sagði Kári Axelsson, aðstoðarþjálfari Tinda- stólsmanna, sem stjórnaði af bekkn- um þegar Kristinn Friðriksson slas- aðist eftir nokkrar mínútur og varð frá að hverfa. „Við ætluðum að hleypa upp hraðanum en þar sem þeir lifa eða deyja á skotunum fyrir utan ætl- uðum við að spila þétta vörn og stöðva skotin. Við vorum alltaf skrefinu á eftir þeim allan leikinn, allt þar til menn tóku sig duglega á og Clifton Cook tók að sýna stórleik hjá okkur á hárréttu augnabliki. Rétt fyrir fram- lengingu voru ÍR-ingar með leikinn í sínum höndum og við undir það búnir að sætta okkur við tap ef þeir færu að hitta í körfuna frá miðju. Við gáfum hinsvegar aldrei eftir og það er sér- staklega gaman að vinna svona leik. Við þurftum líka á því að halda eftir ömurlegan leik við Hamar.“ Boyd tók 12 af 30 fráköstum liðsins og Clifton 4. Morgunblaðið/Þorkell Adrian Parks skorar hér yfir ÍR-inginn Ásgeir Hlöðversson en varnartröllið Kevin Grandberg ligg- ur og fylgist með ásamt Ólafi J. Sigurðssyni og Eiríki Önundarsyni. Cook og Boyd skutu ÍR í kaf ÁTTATÍU stig frá Clifton Cook og Nick Boyd var meira en ÍR-ingar réðu við þegar Skagfirðingar sóttu þá heim í Breiðholtið í gærkvöld. ÍR náði undirtökunum en lét sér það nægja og varð lítið um svör þegar fóstbræðurnir úr Tindastóli tóku við sér. Það þurfti samt framlengingu til að knýja fram úrslit, þá skoraði ÍR fimm stig í röð en Cook og Boyd svöruðu með næstu tíu í 102:96 sigri. Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.