Morgunblaðið - 17.12.2003, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 55
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert jarðbundin/n og vilt
hafa röð og reglu á hlut-
unum. Komandi ár
getur orðið eitt af bestu
árum ævi þinnar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gerðu ráð fyrir töfum í útgáfu-
starfsemi, lögfræði, framhalds-
menntun og milliríkja-
samskiptum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Næsta mánuðinn hefurðu gott
tækifæri til að ganga frá deilum
um sameiginlegar eignir. Þú
gætir þurft að standa skil á
gömlum skuldum og gömlum
loforðum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt líklega heyra frá göml-
um kærasta/gamalli kærustu
eða fyrrverandi maka á næstu
vikum. Reyndu að líta sem best
út þannig að sjálfsálitið verði í
lagi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gerðu ráð fyrir misskilningi,
bilunum og töfum í vinnunni
næsta mánuðinn. Það er lítil
sem engin skilvirkni í stjörn-
unum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gamlar ástir ættu að setja svip
sinn á líf þitt næstu vikurnar.
Láttu ekki telja þig á eitthvað
sem þú veist að getur ekki
gengið upp.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er líklegt að stórfjölskyldan
komi saman á næsta mánuði.
Þú gætir einnig heyrt frá ein-
hverjum sem þú hefur ekki ver-
ið í sambandi við lengi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt sennilega þurfa að
sinna bílaviðgerðum af ein-
hverju tagi næsta mánuðinn.
Þú getur sparað þér óþarfa
fyrirhöfn með því að gera við
hlutina í tíma.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tækifæri, sem þú hefur þegar
hafnað í vinnunni, munu líklega
koma upp að nýju. Láttu þetta
ekki setja þig út af laginu.
Hamingjan felst í því að hafa
valmöguleika.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sýndu þolinmæði næsta mán-
uðinn. Það er hætt við að þú
þurfir að taka eitt skref aftur á
bak fyrir hver tvö skref sem þú
tekur fram á við.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Efasemdir um eigið ágæti eru
Akkillesarhæll þinn á þessum
tíma í lífinu. Það er einnig hætt
við að þú vinnir gegn þínum eig-
in hagsmunum eins og af göml-
um vana.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Búðu þig undir að gamlir vinir
banki upp á hjá þér. Þú munt
njóta þess að hitta þá og tala
um gömlu góðu dagana – nema
þú skuldir þeim peninga.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gamlar deilur á milli þín og
yfirmanna þinna eða foreldra
koma upp á yfirborðið að nýju.
Þú hélst að þetta væri grafið og
gleymt en sú er greinilega ekki
raunin.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VETURINN
Hver ríður svo geyst
á gullinbrúvu
hávan of hifin
hesti snjálitum,
hnálega hristanda
hrígan makka,
eldi hreyfanda
undan stálsköflum?
Glóir á gunnsnörpum
grásteind brynja,
hangir ísskjöldur
hal á öxlum.
Vindur stendur svalur
af veifan skálmar,
norðljósa brúskur
bylgjar á hjálmi.
- - -
Bjarni Thorarensen.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 17.
desember, er áttræð Aðal-
björg Magnúsdóttir,
Frostafold 24, Reykjavík.
Hún og eiginmaður hennar,
Þorsteinn Sigurðsson,
verða að heiman á afmæl-
isdaginn.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 17.
desember, er fimmtugur
Þórður Guðni Sigur-
vinsson, Fjarðarási 9,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Hildur Þuríður Sæ-
mundsdóttir.
„EDDI er atvinnuspilari,“
hefur Zia frásögn sína.
„Eins og sönnum atvinnu-
manni sæmir er hann kurt-
eisin uppmáluð við spila-
borðið, hrósar makker
sínum og mótherjum fyrir
vel unnið verk ef svíning
heppnast, og heldur still-
ingu sinni þegar ólánið eltir
hann á röndum. Einstaka
sinnum þarf hann öxl til að
gráta uppi við og hann valdi
mig í þetta sinn.“
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 95
♥ 98642
♦ 873
♣K62
Vestur Austur
♠ G10432 ♠ Á76
♥ K ♥ 1053
♦ 109642 ♦ KD
♣98 ♣ÁD1054
Suður
♠ KD8
♥ ÁDG7
♦ ÁG5
♣G73
Einhvern veginn þannig
hefur Zia frásögn sína af
spilinu að ofan í bók sinni
„Umhverfis heiminn á 80
spilum“. Eddi var í austur.
Vestur var gjafari, en suður
var eitthvað utan við sig og
vakti í vitlausri hendi á einu
grandi. Keppnisstjóri var til
kvaddur og hann las upp úr
lögbókinni: „Ef sögnin er
ekki samþykkt, má suður
segja það sem hann vill þeg-
ar að honum kemur, en
makker hans verður að
passa.“
Vestur og norður sögðu
pass og þegar að Edda kom
ákvað hann að opna á einu
laufi: „Venjulega hefði ég
byrjað á grandi, en það leit
út fyrir að suður myndi taka
stóra ákvörðun og ég vildi
benda makker á besta út-
spilið.“ Eddi mat stöðuna
rétt – suður stökk í þrjú
grönd:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 lauf 3 grönd
Pass Pass Pass
Útspilið var spaðagosi, og
Eddi sá eftir að hafa ekki
opnað á spaða! – þá hefði
hann kannski fengið út lauf.
En hann tók á spaðaás og
spilaði meiri spaða. Sagn-
hafi átti ekki margra kosta
völ. Hann lagði niður hjarta-
ás og fangaði kónginn. Tók
svo alla hjartaslagina og
þriðja spaðann. Síðan kom
tígulás og tígull til austurs,
og Eddi varð að gefa slag á
laukónginn. Í leiðinni hafði
tígulgosinn fríast, svo sagn-
hafi fékk 10 slagi.
Zia var fullur samúðar,
dró upp vasaklút til að þerra
tárin og klappaði Edda létt
á bakið. „Þetta gengur bet-
ur næst, Eddi minn.“
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
RÚBÍNBRÚÐKAUP. Í dag, miðvikudaginn 17. desember,
eiga 40 ára hjúskaparafmæli hjónin Sigríður Jónsdóttir og
Arnór Lúðvík Hansson, Hátúni 8, Reykjavík. Þau eru að
heiman í dag.
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5
4. c4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Rf3
Bb4 7. Bd3 dxc4 8. Bxc4 0–0
9. 0–0 a6 10. a3 Bxc3 11.
bxc3 b5 12. Bd3 Bb7 13. a4
Dc7 14. Bd2 Rbd7
15. De2 bxa4 16.
Hxa4 Rb6 17. Ha3 a5
18. Hfa1 a4 19. Re5
Rfd7 20. Bf4 Rxe5
21. Bxe5 Dc6 22. f3
f6 23. Bb5 Dc8 24.
Bd6 Hf7 25. c4 Bc6
26. c5 Rd5 27. Bxc6
Dxc6 28. Dxe6 g6 29.
He1 Kg7
Staðan kom upp í
opnu alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir
skömmu í Dómíníska
lýðveldinu. Undra-
barnið frá Kosta
Ríka, Alejandro Ramires
(2.483) hafði hvítt gegn Igor
Khenkin (2.627). 30. Bf8+!
og svartur gafst upp enda er
hann að tapa drottningu
sinni. Með árangri sínum á
mótinu náði Ramires sínum
þriðja og síðasta áfanga að
stórmeistaratitli, einungis
15 ára gamall.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Í FRÉTT frá Tölvutæknifélagi Ís-
lands (TTFÍ) segir að félagið hafi
kosið sér nýja stjórn. Í henni sitja:
Ragnar Hauksson hjá Almennu
verkfræðistofunni hf., Bjarni Þór
Ólafsson, Íslenskum aðalverktökum
hf., Vilhjálmur Árni Ásgeirsson,
VSÓ Ráðgjöf, Brynjar Einarsson,
Teiknistofu Ingimundar Sveinsson-
ar, og Þórður Sigfússon hjá Snertli.
Ný stjórn TTFÍ
FRÉTTIR
Jólastemmning
í miðborginni
Opið til
kl. 22
í kvöld
Laugavegi 54, sími 552 5201
Stuttar
ullarkápur
áður 12.990
nú 8.990