Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 2
FULLTRÚAR fjármálaráðherra og Kennarasambands Íslands hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að gildistími kjarasamnings framhaldsskólakennara verður framlengdur til 30. nóvember 2004. Að óbreyttu hefði kjara- samningurinn frá 7. janúar 2001 fallið úr gildi 30. apríl 2004. Samkvæmt samkomulaginu hækka laun um 3% 1. janúar í stað 1,5%. Gildistími og launatöflu- hækkun í kjarasamningi fram- haldsskólans eru nú eins og hjá aðildarfélögum BHM. Í sameigin- legri bókun sem fylgir samkomu- laginu lýsa samningsaðilar yfir að þeir séu þrátt fyrir frestunina sammála um að hefja strax í byrj- un nýs árs undirbúning nýs kjara- samnings. Samningur framhalds- skólakennara framlengdur FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÝJAR AÐ ÞJÓÐNÝTINGU Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í gær alrangt að Moskvu- stjórnin hygðist snúa af vegi umbóta í efnahagsmálum. Hins vegar virtist hann ýja að því að til greina kæmi að þjóðnýta aftur fyrirtæki og eignir sem menn hefðu komist yfir með ólöglegum aðferðum fyrstu árin eftir hrun Sovétríkjanna. Dómari í Moskvu úrskurðaði í gær að auðkýf- ingurinn Mikhaíl Khodorkovskí skyldi sitja í varðhaldi í þrjá mánuði í viðbót eða fram í mars og ekki lát- inn laus gegn tryggingu. Skulda skýringu Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist telja að forsvarsmenn SPRON skuldi þing- mönnum skýringu á samkomulagi sínu við Kaupþing Búnaðarbanka um að bankinn eignist sparisjóðinn. Einar segir samkomulagið mikið högg fyrir sparisjóðasamstarfið. Óttast hryðjuverk vestra Embættismenn í Bandaríkjunum óttast nú mjög að hryðjuverkamenn al-Qaeda láti til skarar skríða um há- tíðarnar og er sjónum einkum beint að flugvélum í því sambandi. Hafa mönnum borist fjölmargar vísbend- ingar um að eitthvað sé í aðsigi en ekki er vitað neitt um stað eða ná- kvæma tímasetningu hugsanlegrar árásar. Mikill viðbúnaður er við flug- velli og aðra staði sem taldir eru geta orðið skotmörk, þ.á m. íþrótta- leikvanga. Samningar að renna út Samningar sérfræðilækna við TR renna út um áramót og ekki hefur tekist samkomulag um nýja. M.a. er tekist á um ákvæði sem fjallað var um í dómi Hæstaréttar í máli bækl- unarlækna. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Umræðan 45/47 Viðskipti 14 Minningar 40/41 Erlent 16/19 Staksteinar 52 Höfuðborgin 21 Bréf 50 Akureyri 22 Kirkjustarf 41 Suðurnes 23 Dagbók 52/53 Landið 24/25 Fólk 60/65 Listir 30/39 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Viðhorf 38 Veður 67 * * * Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs- ingablaðið Lord of the Rings. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m- bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SLYSUM í álveri ÍSAL hefur fækkað mikið á undanförnu ári. Hafa þau aldrei verið færri á einu ári og eru nú með því minnsta sem gerist innan Alcan-samsteypunnar. Tíðni slysa á árinu var 1,42 slys á hverjar 200.000 vinnustundir, og tíðni slysa sem voru svo alvarleg að starfsmaður var óvinnufær á eftir var 0,51 á hverja 200.000 vinnu- stundir. Þetta eru um helmingi færri slys en árið 2002 að því er kemur fram í grein Halldórs Hall- dórssonar í ÍSAL-tíðindum. Í samtali við Morgunblaðið segir Halldór að þennan árangur megi eflaust þakka miklum áróðri fyrir bættu öryggi, og segir hann að mik- ið hafi verið minnt á öryggismál, sérstaklega í ágúst þegar slys eru algengust. „Þetta er rosalega góður árang- ur. Það sem við gerðum í ágúst var að við vorum með alls konar óvenjulega hluti í gangi til þess að starfsmenn færu að tala um örygg- ismál. Við breyttum allri borðaröð- un í mötuneytinu og sögðum að það væri af öryggisástæðum, og settum alls konar pésa á borðin,“ segir Halldór. Halldór segir að erfitt verði að bæta þennan árangur á næsta ári, en hann segir að nýtt öryggis- stjórnunarkerfi muni hjálpa til við það. Kerfið er vottað samkvæmt ör- yggis- og vinnuumhverfisstaðlinum OHSAS 18001, og er ÍSAL fyrsta íslenska fyrirtækið sem fær þá vottun. Slys hjá ÍSAL aldrei færri Morgunblaðið/Golli ÁBERANDI færra fólk var á ferð í miðborg Reykjavíkur framan af kvöldi í gær en venjulega á Þor- láksmessukvöld. Ekki er ólíklegt að slæm veðurspá hafi fælt fólk frá. Umferðin um götur borg- arinnar var einnig tiltölulega róleg. Þótt nokkuð blési varð veðrið ekki eins slæmt og margir höfðu lesið út úr veðurspám og upp úr klukkan níu í gærkvöldi var töluverð hreyfing á fólki, samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar, og stefndi í ágætis Þorláksmessukvöld. Góður andi var í fólki á Laugaveginum, sam- kvæmt upplýsingum lögregl- unnar. Sem dæmi um það má nefna að nokkrar stúlkur tóku upp á því að dansa við undirleik jólasveinsins. Morgunblaðið/Þorkell Góður andi í miðborginni HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær Stein Stefánsson af ákæru fyrir að hafa orðið manni að bana í íbúð við Klapparstíg í sept- ember í fyrra. Dómurinn féllst á hinn bóginn á þá niðurstöðu dómkvaddra matsmanna að ákærði væri ósakhæf- ur þar sem flestar líkur bentu til þess að hann ætti við að stríða geðklofa með ofsóknarkennd. Sakhæfi hans hefði verið skert á þeirri stundu þeg- ar hann varð mannsbani. Ákærði var dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun. Dómurinn taldi sannað að ákærði hefði orðið mann- inum að bana og sakfelldi hann jafn- framt fyrir árás á gæslumann á rétt- argeðdeildinni á Sogni. Ákærði var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir líkamsárás á samfanga sinn á Litla- Hrauni. Dómurinn taldi að fallast bæri á niðurstöðu dómkvaddra matsmanna um að ákærði væri ósakhæfur og að sýkna bæri hann af kröfu ákæru- valdsins um refsingu. Einnig var fall- ist á það álit matsmanna að ákærði væri hættulegur. Réttaröryggis vegna skyldi því gera ráðstafanir til að varna því að hann ylli skaða. Málið dæmdu Hjördís Hákonar- dóttir, héraðsdómari og dómsfor- maður, og héraðsdómararnir Jón Finnbjörnsson og Sigurður H. Stef- ánsson. Verjandi ákærða var Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl. Sækjandi var Ragnheiður Harðardóttir, sak- sóknari hjá ríkissaksóknara. Í öryggis- gæsluvist fyrir manndráp HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hafnaði í gær kröfu lögreglunnar í Kópavogi um áframhaldandi gæslu- varðhald yfir tveimur 19 ára piltum fyrir ránið í verslun Bónuss á Smiðjuvegi 8. desember sl. Héraðs- dómur taldi ekki þörf á að sakborn- ingarnir sættu áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli al- mannahagsmuna. Játning liggur fyr- ir á ráninu og sætir málið áframhald- andi rannsókn hjá lögreglunni. Bónusræn- ingjar úr gæsluvarð- haldi ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ LÖGREGLAN á Seyðisfirði hand- tók karlmann á miðjum aldri í fyrri- nótt fyrir tilraun til mannráns er hann nam á brott fjögurra ára barn af heimili sínu. Samkvæmt upplýs- ingum Lárusar Bjarnasonar, sýslu- manns á Seyðisfirði, verður ekki krafist gæsluvarðhalds yfir mann- inum en hann á að baki afbrotaferil og bjóst sýslumaður við að hann færi í afplánun í fangelsi vegna annarra mála. Maðurinn er ekki búsettur á Seyðisfirði og munu málsatvik vera þau að hann fór inn á heimili í bæn- um um miðja nótt og nam barnið á brott. Faðir barnsins heyrði til ræningjans og tókst að stöðva hann og endurheimta barn sitt. Hinn grunaði var handtekinn í framhald- inu og málið tekið til rannsóknar hjá lögreglunni. Tekið var blóðsýni úr hinum grunaða til að kanna hvort hann hefði verið undir áhrif- um áfengis og/eða annarra vímu- efna. Samkvæmt starfsreglu lögregl- unnar býðst foreldrum og barninu áfallahjálp vegna atviksins. Samkvæmt almennum hegning- arlögum varðar það fjögurra ára fangelsi að svipta fólk frelsi. Lang- varandi frelsissvipting getur varðað allt að ævilöngu fangelsi. Faðir bjarg- aði barni sínu Grunaður um tilraun til mannráns BJÖRGUNARSVEITIR voru í viðbragðsstöðu í gærkvöldi vegna stormviðvörunar sam- fara því að stórstreymt er í dag, aðfangadag. Almannavarna- deild ríkislögreglustjóra hafði samband við lögregluna í Reykjavík og gaf út viðvörun. Aðalvarðstjóri hafði í framhald- inu samband við svæðisstjórnir björgunarsveita Slysavarna- félagsins Landsbjargar í Reykjavík og voru björgunar- sveitir kallaðar að miðstöðvum sínum til að gera klárt. Þá voru sveitir víða á Suðurlandi í við- bragðsstöðu vegna hugsan- legra flóða með morgninum. Björgun- arsveitir í viðbragðs- stöðu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.