Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.       FRIÐARHREYFINGAR stóðu sameiginlega að blysför niður Laugaveginn í gærkvöld. Gangan hófst á Hlemmi klukkan 18 og lauk á Ingólfstorgi þar sem Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður flutti ávarp samstarfshóps friðarhreyfinga. Talið er að allt að því fimm þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni en það er aðeins færra en var í fyrra. Þetta er 24. árið sem friðarganga er farin niður Laugaveg á Þorláksmessu. Ekki viðraði sem best á göngumenn í gærkvöldi þar sem gekk á með hvössum éljum. Íslenskir friðarsinnar stóðu einnig fyrir friðar- göngum á Þorláksmessu á Ísafirði og á Akureyri. Á Ísafirði var lagt af stað frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18 og gengið niður á Silfurtorg. Var þetta sjötta árið sem gangan er haldin á Ísafirði. Á Akureyri var blysför gegn stríði og hófst hún við Menntaskólann á Akureyri kl. 20. Gengið var niður á Ráðhústorg og þar haldin stutt samkoma. Ávarp flutti Edward H. Huijbens doktorsnemi í landfræðum og Þórhildur Örvarsdóttir söng. Morgunblaðið/Jim Smart Fjölmenni í friðargöngum Þúsundir manna í miðborg Reykjavíkur á Þorláksmessukvöldi GENGI hlutabréfa Pharmaco hf. hef- ur nærri þrefaldast á árinu. Markaðs- virði þeirra er mun hærra en mat greiningardeilda bankanna. Fjárfest- ar hafa meiri væntingar til rekstrar- árangurs Pharmaco en greiningar- deildirnar og kemur það fram í hærra verði. Sérfræðingar bankanna telja að í núverandi verði séu innifaldar væntingar um að félagið skili afkomu á næsta ári umfram markmið sín. Pharmaco stefnir að skráningu í Kauphöllina í London. „Hætt er við að fjárfestum í Kauphöllinni í London muni finnast núverandi verð bréfa Pharmaco hátt og því nái félagið ekki þeirri hylli sem vænst er á erlendum markaði,“ segir Stefán Broddi Guð- jónsson hjá Íslandsbanka en tekur fram að margt geti breyst þangað til. Fjárfestar bjartsýnni en bankar  Markaðsvirðið/14 SAMNINGAR sérfræðilækna við Tryggingastofnun ríkisins renna út um áramót og ekki hefur tekist sam- komulag um nýja. Meðal annars er tekist á um ákvæði sem fjallað var um í dómi Hæstaréttar í máli bæklunar- lækna. Einn af samningamönnum lækna telur ólíklegt að samningar ná- ist fyrir áramót og verði sjúklingar því að greiða sjálfir kostnað við viðtöl, skoðun og aðgerðir á einkastofum lækna. Formaður samninganefndar ríkisins er vonbetri. Samninganefndir Læknafélags Reykjavíkur og heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytisins hafa rætt saman um nýjan samning við sér- fræðilækna undanfarnar vikur. Magnús Páll Albertsson bæklunar- læknir sem sæti á í samninganefnd lækna sagðist hafa fengið það snemma á tilfinninguna að samninga- nefnd ríkisins væri að tefja málið og bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar í máli bæklunarlækna og Trygginga- stofnunar. Þegar síðan dómurinn hafi fallið læknum í vil ætlist samninga- menn ríkisins til þess að samið verði þvert á niðurstöðu dómsins. Magnús segir að læknar hafi gefið margt eftir án þess að gagnaðilinn kæmi til móts við þá. „Við setjum tvennt á oddinn. Við gefum aldrei frá okkur atvinnufrelsið sem staðfest var með dómi Héraðsdóms og Hæstarétt- ar,“ sagði hann og sagði lækna líka vilja leiðréttingar á einingaverði til samræmis við hækkun á kostnaði undanfarin ár. Garðar Garðarsson hæstaréttar- lögmaður, formaður samninganefnd- ar heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins, segir að samningalotan hafi staðið lengi og búið sé að ganga frá flestum málum enda lending sjáan- leg. Enn sé tekist á um nokkur atriði. Meðal þeirra séu mál bæklunar- lækna, enn sé verið að reyna að finna orðalag um þau. Hann neitar því að samninganefndin vinni að því í samn- ingum að ómerkja niðurstöðu Hæsta- réttar og bendir á að dómurinn fjalli um túlkun á ákvæðum samnings sem falli úr gildi um áramót. Samningar sérfræðilækna við TR renna út um áramót Ósætti vegna bækl- unarlæknadóms JÓLAFAGNAÐUR Verndar og Hjálpræðishersins verður haldinn í dag, aðfangadag, í Herkastal- anum, Kirkjustræti 2 í Reykjavík, og hefst hann með borðhaldi klukkan 18. Allir þeir sem ekki hafa tök á að dveljast hjá vinum og vanda- mönnum á aðfangadagskvöld eru hjartanlega velkomnir á jólafagn- aðinn. Jólafagnaður Verndar og Hjálpræð- ishersins „VIÐ reynum að hafa þetta eins jólalegt og hægt er,“ segir Helgi Sveinbjörnsson kokkur á virkjana- svæðinu við Kárahnjúka. Hann er að vinna um jól og áramót, meðal annars við að elda hátíðamat fyrir hátt í 300 manns af fimmtán til tutt- ugu þjóðernum. Helgi var að sjóða skötuna þegar hringt var í hann fyrir kvöldmatinn í gær. Hann bjóst ekki við að er- lendu samstarfsmennirnir myndu smakka á henni og hafði áhyggjur af viðbrögðum einhverra vegna skötulyktarinnar. „En við fengum leyfi til að panta skötuna og svo sjáum við til,“ sagði Helgi. Kokkarnir verða með hefðbund- inn íslenskan jólamat í kvöld, að- fangadagskvöld, hangikjöt, reykt svínakjöt og reyktan og grafinn lax og svo brúnaðar kartöflur, rauðkál og annað tilheyrandi. Stærstu hóp- ar erlendra starfsmanna verktak- ans hafa pantað sinn hefðbundna hátíðarmat. Þannig gera Ítalirnir og Portúgalarnir sér mestan daga- mun á jóladag. Þá verður kalkúnn fyrir þá ítölsku og saltfiskur fyrir Portúgalana. Í kvöld, þegar Íslend- ingarnir borða hangikjöt og ham- borgarhrygg, borða Ítalirnir las- agna og ítalskt salat, að eigin ósk. Helgi segir að ekki sé viðlit að elda sérstakan hátíðarmat fyrir alla út- lendingana, þeir séu af of mörgum þjóðernum til þess að það sé unnt, en reynt sé að hafa matinn það fjöl- breyttan að allir fái eitthvað við sitt hæfi. Misjafnt er hvenær menn hætta vinnu í dag. Helgi og samstarfsfólk hans í eldhúsi og þrifum er að vinna til tíu í kvöld og taldi hann að það síðasta af útivinnandi samstarfs- fólkinu myndi hætta um svipað leyti. Flestir tækju sér frí á jóladag og sumir einnig annan í jólum en starfsfólkið í mötuneytinu fengi ekkert frí, það væri starfsemi sem menn gætu ekki verið án hvort sem þeir væru að vinna eður ei. Íslensk guðsþjónusta verður í klúbbhúsinu í kvöld og katólsk messa á morgun. Ítalirnir borða lasagna í kvöld MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út þriðja í jólum, laugar- daginn 27. desember. Um jólin verður fréttaþjónusta á Frétta- vef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á netfangið netfrett- @mbl.is eða hringja í síma 861- 7970. Fréttavakt á mbl.is yfir jólin ÍSLENSKAR bækur raða sér í sjö efstu sætin á lista Félagsvísinda- stofnunar um bóksölu 16.–21. des- ember, sem gerður er fyrir Morg- unblaðið og Félag íslenskra bókaútgefenda. Í 1. sæti er Bettý eftir Arnald Indriðason, sem jafn- framt er söluhæsta skáldsagan, í 2. sæti Einhvers konar ég eftir Þráin Bertelsson, sem einnig er efst í flokki ævisagna, í 3. sæti er Ósköpin öll eftir Flosa Ólafsson og í 4. sæti Öxin og jörðin eftir Ólaf Gunnars- son. Í flokki ljóðabóka er Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum í 1. sæti. Fræðslubókin Hvað er málið? er í 1. sæti í flokki barna- og unglingabóka. Útkall – árás á Goðafoss eftir Óttar Sveinsson er í 1. sæti í flokki bóka al- menns eðlis. Átta af tíu mest seldu bókunum íslenskar  Bóksala/31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.