Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 49 Finnbogi Hilmarsson Rósa M. Sigtryggsdóttir Einar Guðmundsson Magnús Einarsson Hafdís H. Björnsdóttir Bestu jóla- og nýjárskveðjur. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða. Starfsfólk Heimilis. RAÐAUGLÝSINGAR TILKYNNINGAR Mat á umhverfisáhrifum — athugun Skipulags- stofnunar Bjarnarflagsvirkjun 90 MWe og 132 kV Bjarnarflagslína 1 í Skútustaðahreppi Landsvirkjun hefur tilkynnt til athugunar Skipu- lagsstofnunar matsskýrslu um Bjarnarflags- virkjun 90 MWe og 132 kV Bjarnarflagslínu 1 í Skútustaðahreppi. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 24. desember 2003 til 4. febrúar 2004 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu Skútustaðahrepps, versluninni Seli á Skútustöðum og í íþróttahúsi Skútustaða- hrepps. Einnig í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Matsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Landsvirkjunar: www.lv.is . Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 4. febrúar 2004 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn- fremur nánari upplýsingar um mat á umhverf- isáhrifum. Vakin er athygli á að opið hús verður haldið miðvikudaginn 14. janúar 2004 í Hótel Reyni- hlíð frá kl. 14.00 til 18.00, þar sem öllum gefst kostur á að kynna sér framkvæmdina. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum, nr. 106/2000. Skipulagsstofnun. Jóladagur kl. 14.00 Hátíðar- samkoma. Anne Marie og Har- old Reinholtsen stjórna og tala. Laugard. 27. des. kl. 15.00 Jólafagnaður fyrir eldri borgara. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund jóladag kl. 14.00. Hátíðarsamkoma kl. 17:00, komum og fögnum saman. Allir hjartanlega velkomnir. Aðfangadagur: Kl. 18.00 Hátíðarguðsþjónusta við jötu Krists. Oddur Carl Thorarensen syngur einsöng. Friðrik Schram predikar. Annar í jólum: Kl. 20.00. Sam- koma í nærveru Frelsarans, þar sem hann verður lofaður og til- beðinn. Hvers virði eru jólin? Hverju svarar fólk? 28. des. Kl. 11.00 Jólahátíð fjöl- skyldunnar með fjölbreyttri dag- skrá. Aðfangadagur Hátíðarsamkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 16:00. Hugleiðing Heiðar Guðnason. Allir eru hjartanlega velkomnir. Samhjálp óskar vinum nær og fjær, gleðilegra jóla og farsæld- ar á nýju ári. Föstudagur 26. des. 2003 Opinn AA-fundur kl. 20:00. www.samhjalp.is 24. desember kl. 16:30 Hátíð- asamkoma. Gospelkór Fíladelfíu sér um lofgjörðina. 25. desember kl. 16:30 Jólas- amkoma. Ræðumaður Guðni Einarsson. Gospelkór Fíladelfíu sér um lofgjörðina. 27. desember kl. 14-16 Jóla- trésskemmtun barnakirkjunnar verður laugardaginn 28. des- ember kl. 16:30. Almenn sam- koma. Niðurdýfingarskírn. Ræð- umaður Jón Þór Eyjólfsson. Gospelkór Fíladelfíu sér um lof- gjörðina. 31. desember kl. 23:00 Bæna- stund og nýju ári fagnað. Allir hjartanlega velkomnir. filadelfia@gospel.is www.gospel.is FJÖLBRAUTASKÓLINN í Breið- holti útskrifaði 19. desember sl. 146 nemendur, þar af 106 stúdentar. Dúx skólans að þessu sinni var Guð- björg Hlín Guðmundsdóttir, nem- andi á listnámsbraut. Í frétt frá skólanum segir að nokkur þróunarverkefni séu í gangi innan skólans. Lokið er til- raun með Upplýsinga- og tækni- braut, í samvinnu við mennta- málaráðuneytið og ákveðið að brautin verði starfrækt áfram við skólann. Þá er verið að undirbúa kennslu í nýsköpunar- og frum- kvöðlafræðum. Haldin var hug- myndasamkeppni meðal nemenda á haustönn og á vorönn verður til- raunakennsla í frumkvöðlafræðum. Þá hefur verið hugað að erlend- um samskiptum og m.a. unnið verk- efni sem tengdist vatni, í víðasta skilningi orðsins, með kennurum og nemendum frá hinum ýmsu Evr- ópulöndum. Í tengslum við verk- efnið heimsóttu FB kennarar og nemendur frá Ungverjalandi og Þýskalandi. Skólanum hafa borist góðar gjaf- ir frá velunnurum og vinum. Þar má nefna Samtök iðnaðarins, Sor- optomistaklúbb Hóla og Fella og Rotaryklúbb Breiðholts. Þá barst rafiðnadeild skólans höfðingleg gjöf frá Volta ehf. fyrir tilstilli Hjartar Gíslasonar. Brautskráning frá FB ALÞÝÐUSAMBAND Vest- fjarða hefur sent frá sér til- kynningu þar sem áformum fjármálaráðherra um afnám sjómannaafsláttar við skatt- lagningu er harðlega mót- mælt. „Skattfríðindi þessi hafa verið við lýði í áratugi og eru fyrir löngu orðin hluti af kjör- um sjómanna. Í kjarasamning- um hefur alla tíð verið tekið mið af þessu sem hluta af launum og samningsniðurstöð- ur og kröfugerð ávallt við þessa staðreynd miðuð. Með tillögum sínum um skerðingu á kjörum sjómanna nú setja stjórnvöld samninga- mál þeirra í algjört uppnám. Ekkert samkomulag verður um nýja kjarasamninga nema skattaafsláttur haldist eða eitthvað sambærilegt verði til útgerðarinnar sótt,“ segir í til- kynningu Alþýðsambands Vestfjarða. Mótmæla afnámi sjómanna- afsláttar AÐALÚTIBÚ Kaupþings Bún- aðarbanka í Austurstræti afhenti nýverið tvennum samtökum, Ein- stökum börnum og Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, tvo flugmiða hvorum frá Icelandair. Miðarnir gilda til áfangastaða Icelandair í Evrópu. Einstök börn er félagsskapur barna með sjaldgæfa sjúkdóma. Þau þurfa því oft að sækja lækn- ingu til annarra landa. Skjólstæð- ingar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra eiga margir erfitt með að ferðast án þess að njóta aðstoðar samferðamanns. Fulltrúar félag- anna sögðu gjafirnar því örugglega eiga eftir að koma að góðum not- um. Jóhann Steinar Ingimundarson, aðstoðarútibússtjóri Kaupþings Búnaðarbanka í Austurstræti, af- henti miðana á fjölskyldufagnaði í útibúinu. Skyrgámur brá á leik með börnunum en fjölskyldufagnaður var haldinn við þetta tækifæri. Gaf hann þeim skyr úr fötu. Kaupþing Búnaðar- banki afhendir styrki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.