Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 65
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 4, 8 og 12 á miðnætti.
Frá framleiðendum Four Weddings,
Bridget Jones & Notting Hill
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
Veistu hvað gerðist í húsi þínu,
áður en þú fluttir inn ??
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
„Drepfyndinn hryllingur!“
Þ.Þ. Fréttablaðið
AKUREYRI
Sýnd kl. 6. Ísl. tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10.10. Enskt. tal.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal.
„ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“
AKUREYRI
Sýnd kl. 4. Ísl. tal
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 2. Ísl. tal.
Kalli Kanína og félagar eru mættir í
splunkunýju bráðfyndnu ævintýri.
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
„Jólamyndin 2003“
„Snilld! Frábær!“
Peter Jackson, leikstjóri
Lord of the Rings
Vinsælasta myndin á Íslandi
3 vikur í röð!
KRINGLAN
Sýnd kl. 1, 3, 5 og 7. Ísl. tal.
Frumsýning
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.45, 3.50 og 5.55. Ísl. tal.
Sýnd kl. 1. 45, 3.50, 5.55, 8, 10.10. Enskt. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12.45, 2.50 og 4.55.. Ísl. tal.
KRINGLAN
Sýnd kl. 9.30 og 11.30. B.i. 16 ára.
KEISARAKLÚBBURINN
Frábær mynd með Óskarsverðlaunahafanum Kevin Kline
en hann fer hreinlega á kostum í myndinni.
MYNDIN HEFUR FENGIÐ FRÁBÆRA DÓMA.
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
Sýningatímar gilda
26. desember.
Annan í jólum
KEFLAVÍK
Kl. 4, 8 og 10.30.
„ATH!SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI“
inni og DJ’s Balli & Tommi á
neðri hæðinni föstudag. Surprise
kvöld laugardag.
SJALLINN, Akureyri: Í Svört-
um fötum föstudag kl. 01. DJ
Leibbi á Dátanum. Papar spila
laugardag kl. 00. DJ Lilja á Dát-
anum.
SPORTBARINN, Sauðárkróki:
Írafár föstudag.
SÚLNASALUR, Hótel Sögu:
Jóladansleikur Milljónamæring-
anna föstudag. Söngvarar sem
fram koma eru Bogomil Font,
Bjarni Arason, Páll Óskar Hjálm-
týsson og Ragnar Bjarnason.
Gestur Milljónamæringanna að
þessu sinni er söngkonan Ragn-
heiður Gröndal.
ÚTLAGINN, Flúðum: Gunnar
Óla og Einar Ágúst úr Skímó,
ásamt hljómsveit föstudag.
VERSALIR, Þorlákshöfn,
Dansleikur á vegum íþróttafélags-
ins Ægis laugardagskvöld.
skilst þó að hún sé ung kona sem
lengi hafi langað til að gefa út
plötu. Gott er að hún lét verða af
því og enn betra
að hún skuli hafa
valið þá leið að
gefa út plötu með
nýrri tónlist í stað
þess að fara út í
karaókíútgáfu að
hætti ýmissa
söngvara sem ekki verða nefndir
hér.
Útsetningar á Pictures and
Drawings eru allar til fyrirmyndar,
líflegar og smekklega unnar og
undirspil gott. Lögin eru líka prýði-
leg, nútímalegt grípandi áferðarfal-
legt popp. Jóna Palla syngur líka
víða vel, en röddin liggur ekki vel
þegar hún syngur á lágum nótum,
heyr til að mynda í fyrsta lagi plöt-
unnar, „Better Days“, þar sem lag-
ið lifnar ekki fyrr en hún fer að
syngja í stað þess að raula. Annað
EKKI HEF ég áður heyrt getið
Jónu Pöllu sem tónlistarmanns, en
lag sem geldur nokkuð fyrir raul-
stílinn er „Happy Song“ sem er
sömuleiðis sungið fullrólega fyrir
brothætta röddina.
Lipurt gítarspil og einkar vel
spiluð hljómborð ásamt skemmti-
legu slagverki gera lagið „Only
You“ afbragð og ekki spillir fyrir að
Jóna Palla syngur það mjög vel.
„Today Is My Day“ er líka mjög
gott lag, gaman hve teygt er á því
svo það nær að ljúkast upp smám
saman með góðri stígandi í útsetn-
ingunni. Gítarar eru mjög vel not-
aðir og hljómborð ekki síður, auk-
inheldur sem trommur og bassi eru
óhemju traust. Sama má segja um
lagið „My World“, sem skreytt er
afskaplega lipru slagverki, fyrir-
taks gítar- og hljómborðsleik og
mátulega óstyrkri munnhörpu. Af-
bragðs lag sem hefði orðið enn
sterkara með kraftmeiri söng.
Jóna Palla á plús skilinn fyrir
þessa prýðilegu plötu sína, hún er
ágætis söngkona og gæti náð
lengra með meiri reynslu og æf-
ingu. Orri Harðarson hefur enn
sýnt að fáir standa honum á sporði í
hljóðverinu og Gunnar Sturla Her-
varsson fær hrós fyrir vel samin
lög. Textarnir eru ágætir til síns
brúks þó að sumir séu slakir, til að
mynda textinn við titillagið.
Þó vitanlega skipti ekki megin-
máli á hvaða tungumáli er sungið ef
vel er gert vekur það ævinlega
spurningar hvers vegna sungið er á
ensku fyrir íslenskan markað. Sag-
an hefur sannað að það er ekki
vænlegt til vinsælda eða velgengni,
ekki gleyma þeirri einföldu stað-
reynd að fólk vill heyra sungið á
máli sem það skilur. Eins ágæt og
þessi plata er hefði Jónu Pöllu
gengið mun betur að ná til fólks
hefði hún sungið á íslensku, en það
er annað mál.
Tónlist
Prýðileg
plata
Tónlist
Jóna Palla
Pictures and Drawings
Pictures and Drawings, breiðskífa Jónu
Pöllu, Jónheiðar Pálmeyjar Halldórsdóttur.
Jóna Palla syngur en plötuna vinna með
henni Orri Harðarson, sem leikur á ýmis
hljóðfæri, annast útsetningar og stýrir
upptökum, Birgir Baldursson leikur á
trommur, Jón Ólafsson á flygil og hljóm-
borð, og Ragnar Örn Emilsson á rafgítar í
einu lagi. Öll lög og textar eftir Gunnar
Sturlu Hervarsson. Jóna Palla gefur út.
Árni Matthíasson