Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 37
PENINGAMARKAÐURINN/ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 37 LANDSPÍTALI - HÁSKÓLA- SJÚKRAHÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitj- anabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólar- hringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhátíðir. Símsvari 575 0505. APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af depurð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Full- um trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjaf- ar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og aðstandendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross- .is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrifstofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sól- arhringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112 LOKAGILDI HELSTU HLUTABRÉFAVÍSITALNA Evrópa Lokagildi breyt.% Úrvalsvísitala aðallista .......................................... 2.112,20 0,11 FTSE 100 ................................................................ 4.440,90 0,38 DAX í Frankfurt ....................................................... 3.903,34 0,68 CAC 40 í París ........................................................ 3.500,09 0,12 KFX Kaupmannahöfn ............................................. 244,35 0,50 OMX í Stokkhólmi .................................................. 628,11 1,57 Bandaríkin Dow Jones .............................................................. 10.341,25 0,03 Nasdaq ................................................................... 1.974,78 0,97 S&P 500 ................................................................. 1.095,75 0,26 Asía Nikkei 225 í Tókýó ................................................. 10.372,51 0,86 Hang Seng í Hong Kong ......................................... 12.420,51 -0,54 Viðskipti með hlutabréf deCODE á Nasdaq ................................................. 7,99 1,14 Big Food Group í Kauphöllinni í London ............... 156,0 2,00 House of Fraser í Kauphöllinni í London .............. 93,50 0,00 STJÓRNENDUR Össurar hf. gera ráð fyrir að 1 til 2 milljóna dala tap verði á starfsemi félagsins á fjórða ársfjórðungi 2003. Óreglulegur kostnaður á fjórða fjórðungi er áætlaður um 2,7 milljónir dala. Hann skýrist einkum af kostnaði vegna skipulagsbreytinga í kjölfar kaupa félagsins á Generation II, skipulagsbreytinga hjá Össur North America, Inc. og málaferla félagsins gegn Freedom Innovations, Inc. Á fjórða ársfjórðungi hefur verið lögð áhersla á að hraða samræmingu Generation II, sem félagið keypti í október sl., við samstæðu Össurar hf. Það er gert til að ná samlegð- aráhrifum. Ákveðið hefur verið að starfsstöðvar Generation II í Van- couver og Seattle heyri undir Össur North America, Inc. í Kaliforníu. Markaðsstarfi í Norður-Ameríku verður stýrt frá Kaliforníu en allt þróunarstarf verður flutt til Seattle og Reykjavíkur. Vegna þessa hefur nokkrum lykilstarfsmönnum verið sagt upp störfum. Kostnaður vegna skipulagsbreytinganna er áætlaður 400.000 Bandaríkjadalir og kostn- aður við flutning þróunarsviðs frá Kaliforníu er áætlaður um 150.000 dalir. Allur kostnaðurinn verður gjaldfærður fyrir árslok. Nýr fram- kvæmdastjóri í Kanada verður Steve Eastmann, áður fjármála- stjóri Generation II í Kanada. Í fréttatilkynningu kemur fram að kostnaður vegna málaferla og lokafrágang samninga við Freedom Inoovations sé áætlaður 1,2 millj- ónir dala á fjórða ársfjórðungi og verður hann allur gjaldfærður á þessum fjórðungi. Ekki er gert ráð fyrir að tekjur falli til vegna samn- ingsins á fjórðungnum. Stjórnendur gera ráð fyrir að hagnaður félagsins árið 2003 verði á bilinu 3,6–4,6 milljónir dala. Afkomuviðvörun frá Össuri Útlit fyrir tap á fjórða ársfjórðungi NORRÆNA ráðherranefndin kynnti á dögunum nýtt fyrirkomu- lag NORDPLUS samstarfsverkefn- isins, sem hingað til hefur mest- megnis snúist um skipti á háskólanemum og kennurum. Með nýrri áætlun voru fleiri verkefni tekin undir regnhlíf NORDPLUS verkefnisins og tækifærið um leið nýtt til að einfalda og gera aðgengi- legri umsóknarferli og leiðir að styrkjum. Norræna ráðherranefnd- in mun setja rétt tæpan milljarð ís- lenskra króna í NORDPLUS sam- starfið árið 2004 og er það um eða yfir þeim fjármunum sem áður var veitt í öll hin mismunandi verkefni sem hafa nú komið undir hatt áætl- unarinnar. Hin nýja NORDPLUS áætlun gerir ráð fyrir fimm meginsviðum, Nordplus, Nordplus junior, Nord- plus voksen, Nordplus nabo og Nordplus sprog.  Nordplus fyrir háskóla byggist á hinu upprunalega Nordplus verkefni og styrkir það mótun og þróun samskiptaneta skóla á há- skólastigi. Starf netanna felst í stúdenta- og kennaraskiptum, sameiginlegu námskeiðahaldi og almennu samstarfi háskólanna til að stuðla að auknum samskiptum námsfólks og kennara við æðri menntastofnanir ásamt nám- skeiðum.  Nordplus junior hefur það að markmiði að vekja áhuga og auka þekkingu og skilning á öðr- um norrænum menningarsvæð- um, tungumálum og lífsháttum með norrænu skólasamstarfi. Þannig er stutt við norrænu víddina í grunnskólum og ung- lingafræðslu í norrænu ríkjunum og á sjálfstjórnarsvæðunum þar sem viðmiðið er sameiginlegt norrænt gildismat með sömu við- horfin til mannkyns og lýðræðis. Sú leið er farin að styrkja ferðir nemenda og kennara á milli Norðurlanda.  Nordplus voksen snýst um nám og símenntun fullorðinna og styrkir verkefni og starfsemi sem tengjast þróun og samstarfi stofnana innan þessa geira.  Nordplus nabo snýr að samskipt- um við Eystrasaltslöndin og Norðvestur-Rússland. Nordplus nabo er ætlað að þróa samstarfs- net til lengri tíma litið innan menntasviðsins alls, það er að segja um alla menntun frá grunnskólastigi til háskólastigs. Í því felst einnig stuðningur við samstarfsnet um nám og sí- menntun fullorðinna.  Nordplus Sprog styður við mál- skilning og framgang hinna sam- norrænu mála og einnig skandin- avískra mála. Áætlunin styður einnig við samstarfsverkefni um þýðingar og fleira um leið og stutt er við norræn mál á al- þjóðavísu. Karítas Kvaran, forstöðumaður Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, sem hefur umsjón með öllum Nor- dplus samskiptum á Íslandi, segir að nú séu öll umsóknar- og samskipta- ferli orðin einfaldari og aðgengilegri og auðveldara að sækja um styrki. Hins vegar hafi margt breyst og fara þurfi í nýjan farveg til að fá styrki fyrir suma hluti, því sé þeim sem voru orðnir vanir gamla nor- ræna kerfinu þörf á að læra á nýju áætlunina. Hún telur þó að með því að draga saman áætlunina sé mikið starf unnið í þá átt að gera öll nor- ræn samskipti einfaldari. Nordplus-áætlanir endurskoðaðar Morgunblaðið/Kristinn Norskir nemendur heimsóttu Háteigsskóla á dögunum. Þetta samstarf fellur nú undir Nordplus Junior. LÝÐHÁSKÓLAR hafa verið nokkuð framandi hluti af íslensku skóla- starfi og hefur enginn lýðskóli hing- að til verið starfræktur lengur en nokkur ár í senn hér á landi. Í lýðhá- skólum er ekki hefðbundið náms- kerfi, skólinn lagar sig að nem- endum fremur en að nemendur lagi sig að skólunum og er námsframboð og fræðslustarf í lýðháskólum jafn- an mjög fjölbreytt. Guðný Marta Guðlaugsdóttir sótti um styrk til náms í lýðháskóla í Dan- mörku í nóvember og fékk þau svör hjá Norræna félaginu að hætt væri að styrkja nám í lýðháskólum á Norðurlöndum. „Ég ætlaði að læra myndlist og bæta bæði sjálfa mig og dönskukunnáttuna til áframhald- andi náms. Það er frábært að fara í lýðháskóla til að læra dönskuna. Álagið er allt öðruvísi svo fólk hefur meiri sveigjanleika í lífi og námi. Fólkið hjá Norræna félaginu sagði mér að þessir styrkir væru hættir og gátu ekki bent mér á neina aðra leið til að styðja mig í gegnum þetta nám. Íslendingar eru einnig, að mér skilst, eina þjóðin á Norðurlönd- unum sem getur ekki sótt styrk til sveitarfélaga vegna námsferða.“ Karítas Kvaran, forstöðumaður Al- þjóðaskrifstofu háskólastigsins, seg- ir Nordplus-áætlunina taka tillit til lýðháskóla og rúmist þeir að öllum líkindum innan Nordplus junior. Hins vegar leggist gamla styrkja- kerfið af þegar nýja áætlunin kemur í gagnið, þess vegna þurfi fólk að finna nýja farvegi til að leita að styrkjum og sá farvegur sé nú hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. Karítas bendir þeim sem hyggja á nám í lýðháskólum að setja sig í sam- band við Alþjóðaskrifstofuna. Lýðháskólar inni í nýrri Nord- plus-áætlun KAUPHÖLL Íslands og Mens Mentis hf. hafa gengið frá samning- um um notkun á Genius-upplýsinga- og greiningarkerfinu hjá Kauphöll- inni. Kauphöllin hyggst nýta Genius til þess að dreifa upplýsingum úr við- skiptakerfum sínum til starfsmanna, upplýsingaveitna innanlands og ut- an, fjölmiðla og til samstarfsaðila í NOREX-samstarfi norrænna kaup- halla. Upplýsingarnar eru m.a. um viðskipti og tilboð, vísitölur, árs- reikninga og fréttir. Áður hafði Mens Mentis gert hliðstæða samn- inga við aðra á fjármálamarkaði. Kauphöllin með Genius ÍSLANDSBANKI hefur opnað nýja útgáfu Netbankans. Netbanki Íslandsbanka skiptist í sérstök svæði fyrir einstaklinga, fyrirtæki, félög og unglinga og eru sérsniðin að þeirra þörfum. Til að tengjast Netbank- anum er hægt að fara á slóð- ina: http://www.isb.is/netbanki Nýr Net- banki Ís- landsbanka O F =, - F C  F P,  B  F   / / /   0!(1234)5667 *%2+ $ 2(  56 86 6 6 6 6 6 6 76 46 56 86 6 6 6 6   !  " !  #$    #    O F B  F =, - F C  F P,  8   9   4Q 8  8  78 7 48 4 58 5 88 8 8 %&&
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.