Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 44
BÍLAR 44 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ NÝ kynslóð Audi A4 kom á markað í ársbyrjun 2001 og var mun meiri bíll en fyrirrennarinn og tilbúnari í sam- keppnina við helstu keppinautana; BMW 3 og Mercedes-Benz C. Í Þýskalandi selst bíllinn mest í lang- baksgerðinni sem kallast Avant. Síð- astliðið vor prófuðum við Avant með 2ja lítra vélinni og var niðurstaðan sú að með þeirri vél væri fullmikið í lagt að segja að bíllinn væri sprækur en millihröðunin þó sögð meira en ásættanleg. Á dögunum var síðan bíllinn prófaður með hinni rómuðu 1,8 lítra forþjöppuvél sem gefur 163 hestöfl og þar með er kominn annar karakter í þennan bíl. Audi A4 Avant er með sportlegri langbökum á markaðnum. Hliðarlín- an er há og afturglugginn smár og í 1,8 T-gerðinni er hann á glæsilegum 17 tommu álfelgum og verður fyrir vikið einkar eftirtektarverður. Þak bogarnir eru með áláferð og króm- listar eru á hliðum og á afturhlera. Hönnunin er ekki djörf eða róttæk heldur í anda þýskrar nákvæmni og samsvörunar. Þetta er vel smíðaður bíll og verð- ur þess strax vart þegar sest er inn í hann. Hurðirnar lokast með demp- uðum hljóm og einangrun frá vegi og vél er með því besta. Mælaborðið er einfalt en vandað er til frágangs. Staðalbúnaður er tvívirk og alsjálf- virk miðstöð með loftkælingu og þarna er auðvitað einnig að finna góð hljómtæki með geislaspilara en engin er þó fjarstýringin í stýrinu eins og komið er í svo marga bíla. Sætin styðja vel við og eru þægileg og hægt er að stilla hæðina með þar til gerðri sveif. Eitt minnsta farangursrýmið Prófunarbíllinn var með rafknú- inni sóllúgu en þrátt fyrir það er höf- uðrýmið alls staðar í góðu lagi í bíln- um. Milli framsætanna er armpúði með geymsluhirslu. Vart verður þrengsla í aftursætunum þar sem drifstokkurinn gengur talsvert á fótarýmið. Af þeim völdum fer ekki vel um þrjá fullorðna í aftursætum en tveir geta þar ferðast í góðri sátt. Það eru ekki sömu áherslurnar á farangursrými í A4 Avant og öðrum langbökum í millistærðarflokki. Fyr- ir það fyrsta er farangursrýmið eitt hið minnsta í þessum flokki bíla en það er snoturlega frá öllu gengið. Galdurinn er tvö gólf í farangurs- rýminu. Í grunnum kjallaranum er hægt að geyma smáhluti sem annars væri hætta á að væru á fullri ferð í farangursrýminu. Og þar undir er líka varadekk í fullri stærð. Án kjall- arans er farangursrýmið 377 lítrar en 442 lítrar með kjallara. Farang- ursrými Ford Mondeo er til saman- burðar 98 lítrum meira og Passat langbaksins 53 lítrum meira, en þess verður að geta að Avant-gerðin er jafnlangur stallbaksgerðinni af A4. Sportlegur umfram annað Það er því meira lagt upp úr sport- legum eiginleikum þessa bíls en flutningsgetu. Með 1,8 lítra for- þjöppuvélinni er Audi A4 Avant kom- inn í hóp skemmtilegustu millistærð- arbílanna. Vélin, sem skilar að hámarki 163 hestöflum, er tengd við þreplausa Multitronic-skiptingu, en Audi er einn fárra bílaframleiðenda sem bjóða upp á reimskiptingu af því tagi. Hún er með sex þrepa hand- skiptivali. Hægt er að velja um S- stillingu sem býður upp á að hægt sé að koma vélinni upp á hærri snúning. Allt virkar þetta á þann hátt að bíll- inn gefur gott viðbragð og þegar saman fer frábær undirvagn með fjölliðafjöðrun að aftan er ekki annað hægt en að dást að bílnum. Fjöðrunin er stinn og veggripið aðdáunarvert. Staðalbúnaður er ESP-kerfi sem í hálkunni í borginni er stöðugt að grípa inn í og aðstoða ökumanninn við að fara sér ekki að voða. Það er feikilegt öryggisatriði að hafa þenn- an búnað í bílum því hann virkar svo sannarlega þegar þörf er á honum. Minnsta mál er svo að aftengja bún- aðinn ef menn kjósa svo. Frá 2.860.000 kr. til 5.250.000 kr. A4 Avant 1,8 T er vandaður fólks- bíll með meiri sporteiginleika en vant er um bíla í þessum flokki. Audi A4 er til með fjórum vélargerðum. Ódýr- asti kosturinn er með 1,6 l, 102 hest- afla vél og kostar 2.860.000 kr. bein- skiptur. Með 2ja lítra, 130 hestafla vélinni kostar hann 3.110.000 kr., 3.490.000 kr. með 1,8 l, 163 hestafla vélinni og 3.690.000 kr. með Multitro- nic-skiptingunni. Síðan er hann fáan- legur með þriggja lítra, V6 vél, 220 hestafla, og kostar 4.850.000 kr. en dýrasti kosturinn er með sömu vél og quattro aldrifi og kostar með Tiptro- nic-sjálfskiptingu 5.250.000 kr. Fyrir Avant-gerðina bætast við 160.000 kr. Aflið líka til staðar í Audi A4 Avant 1.8 T Há hliðarlína og litlir afturgluggar setja sportlegan svip á bílinn. Vandað efnisval og frágangur einkennir Audi A4. Morgunblaðið/Jim Smart Audi A4 Avant með 1,8 l forþjöppuvél kostar um 3,8 milljónir kr. gugu@mbl.is REYNSLUAKSTUR Audi A4 Avant 1.8 T Guðjón Guðmundsson Gle›ilega hátí› Borgartúni 30 • 105 Reykjavík • sími 510 5000 Starfsfólk Sameinaða lífeyrissjóðsins. Sameinaði lífeyrissjóðurinn óskar viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Vél: Fjórir strokkar, 1.781 rúmsentimetri, 20 ventlar, forþjappa og millikælir. Afl: 163 hestöfl. Tog: 240 Nm við 1.980- 5.400 snúninga á mínútu. Skipting: Multitronic með handskiptivali. Lengd: 4.545 mm. Breidd: 1.526 mm. Hæð: 1.428 mm (með þakbogum). Hjólhaf: 2.650 mm. Eigin þyngd: 1.485 kg. Dekk og felgur: 7J x 16 álfelgur. Hemlar: Kældir diskar að framan og aftan, ABS, EBD. Farangursrými: 442 lítrar. Verð: 3.850.000 kr. Umboð: Hekla hf. Audi A4 Avant 1.8 T Multitronic Á forsíðu kynningarpakkans sem BMW gefur út fyrir alþjóðlegu bílasýninguna í Detroit í janúar næstkomandi má sjá hinn glænýja X3 jeppa þeysast um vegi í Hvalfirði. BMW hyggst kynna Banda- ríkjamönnum X3 jeppann á sýningunni í Detroit og hafa blaðamenn í 250 lönd- um nú fengið kynningarpakkann með myndunum frá Íslandi sendan. Í ljós- myndabæklingi sem gefinn er út vegna sýningarinnar má meðal annars sjá þennan nýja sportjeppa frá BMW með Perluna í Öskjuhlíð í baksýn, í skrið- unum í Dómadal og í kvöldsólinni við Esjuna. BMW X3 kemur í kjölfar mikilla vin- sælda X5 jeppans um allan heim. Ákvörðun BMW um að taka allar kynn- ingarmyndir af jeppanum á Íslandi er nátengd þeirri ímyndarsköpun að X3 verði öflugasti sportjeppi sem komið hafi á markað. Telja BMW-menn að X3 muni skipa sér í sinn eigin flokk. Full- yrða þeir að hér sé kominn bíll sem sameini afl og öryggi X5 jeppans og þægindin og aksturseiginleikana sem fólksbílalína BMW er þekkt fyrir. Yf- irmenn BMW töldu að Ísland, með sitt óhefta landslag og miklu víðáttur, túlk- aði vel það frelsi sem þeir vilja að X3 standi fyrir. Fáanlegur hér á landi snemma á næsta ári X3 jeppinn verður líklega fáanlegur í almennri sölu á Íslandi snemma á næsta ári. B&L er þegar byrjað að panta eintök af jeppanum og hafa nokkrir nú þegar verið lofaðir góðum viðskiptavinum á Íslandi. Meðal margra tækninýjunga í X3 verður nýtt aldrif sem BMW hefur þróað og kýs að kalla „xDrive.“ Þetta nýja sítengda læsta al- drif gerir kleift að dreifa átaki milli fram- og afturöxulsins mun betur en áður og nemur þörfina fyrir afl til hjólanna löngu áður en dekkið missir grip. Þetta ný- þróaða kerfi er væntanlegt í fleiri bíla BMW en það eykur mikið öryggi, t.d. þegar ekið er hratt í beygjum og dregur mjög úr undir- og yfirstýringu. Það er ekki enn komin endanleg dag- setning á komu X3 til landsins né ákvörðun um verð. Það er vitað að X3 verður töluvert ódýrari en X5. X3 verður fáanlegur í fyrstu með 3.0 lítra bensín- og dísilvélum. BMW X3 í íslenskri náttúru Samkvæmt þessari mynd á X3 ekki eingöngu að vera fyrir malbikið. Á fullri ferð í Hvalfirðinum. Ein af kynningarmyndum BMW.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.