Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 61 Harmonikufélag Reykjavíkur óskar landsmönnum öllum gleðilegrar jólahátíðar og farsæls nýárs. Næsti dansleikur félagsins verður í Ásgarði nk. laugardagskvöld á þriðja í jólum. Fjölmennum og dönsum dátt. Stjórnin. HARMONIKUBALL Í ÁSGARÐI Harmonikufélag Reykjavíkur PAUL Lydon hefur dvaliðhér á landi í allmörg ár ogsent frá sér nokkuð af tón-list. Fyrir skemmstu gaf hann út plötuna Vitlaust hús sem fékk meðal annars þá umsögn í Morgunblaðinu að hann væri „einkar áhugaverður tónlistar- maður, einstakur í sinni röð hér á Íslandi“. Vitlaust hús er frábrugðin fyrri plötum Pauls að því leyti að lögin á henni eru öll á íslensku og að mestu leikin á píanó, en hann segir að hann sé að gera fleira nýtt á skíf- unni: „Ég hætti líka að nota gamla fjögurra rása upptökutækið, fékk mér loksins Cubase og tók plötuna upp stafrænt.“ Paul keypti sér pí- anó í fyrra og samdi lögin á það. Hann segist hafa lagt mikla vinnu í uppbyggingu laganna ólíkt því þegar hann samdi á gítar því þá byrjaði hann oftast að spila og samdi lögin þannig og fann svo bygginguna í þeim eftirá. „Núna langaði mig til að vinna aðeins skipulegar.“ Hann fór þá að spá í hvernig hann vildi hafa lögin. „Ég byrjaði svo að vinna í þeim í lok síð- asta árs og var þá meðal annars með það í huga að þau yrðu þannig að ég gæti spilað þau á tónleikum,“ segir hann en hann hafði aldrei leik- ið á píanó á tónleikum fram að þessu og segir að sér hafi þótt það spennandi viðfangsefni. „Ég vildi líka vinna lögin tiltölulega hratt og kýldi því á það, eyddi ekki of mikl- um tíma í hvert lag til þess að þau myndu hljóma frekar hrá og lif- andi.“ Þegar menn eru farnir aðvinna í stafrænu umhverfigefur það mikla mögu-leika á að vinna meira með hljóð og hljóma, eyða meiri tíma í hvert lag. Aðspurður hvort hann sjái fyrir sér að hann eigi eftir að snúa sér að flóknari útsetningum segist Paul ekki geta sagt fyrir um það með nokkurri vissu. „Ég spái stundum í það hvers vegna lög hafi áhrif á mig, og er að reyna að læra betur hvernig á að semja þau. Það gæti endað með því að ég geri lög sem eru meira unnin, en það er kannski ekki aðalmálið.“ Paul Lyd- on kom hingað með konu sinni Lauru Valentino fyrir fimmtán ár- um og ætlaði þá að vera skamma hríð. Þau Laura störfuðu saman sem tónlistarmenn um hríð en eru skilin fyrir nokkru. Paul segir að íslenskt tónlistarlíf hafi breyst talsvert síðan þau komu hingað, ekki síst fyrir það að nú hafi menn beinan aðgang að öllu því helsta sem er að gerast í tónlist í heiminum yfir Netið og einnig hafi tæknin gert kleift að vinna mun meira í tónlist sjálfur en áður var hægt. „Mér finnst mjög mikið að gerast í íslenskri tónlist og ég hef kynnst miklu af frábæru fólki í gegnum tónlistina.“ Tónlistin sem Paul leikur erá stundum blíð, lág-stemmd og aðgengileg ensvo getur hún líka verið erfiðari áheyrnar. Hann segir að hann sé ævinlega að semja tónlist sem hann langi til að heyra, sem hann kunni við „og maður vonar alltaf að aðrir kunni að meta það líka“. Paul Lydon er afskaplega ró- lyndur maður, liggur lágt rómur og veltir fyrir sér hverju orði til að það sem hann segir komist sem best til skila. Þegar hann spilar á tónleikum kemur þó fyrir að harka læðist í textana, þeir geta verið beittir og beinskeyttir, reiðilegir jafnvel sem kemur þeim sem þekkja til hans á óvart enda sést hann aldrei skipta skapi. Spurður um þetta atriði horf- ir Paul drykklanga stund þegjandi á blaðamann og svarar svo: „Ég legg mikla vinnu í textana, vanda mig mikið við þá og vil líka að þeir feli í sér einhvern kjarna, eitthvað sem mér finnst ég geta sungið án þess að finnast það vera falskt. En ég held að nýja platan í heild sinni sé mjög bjartsýn og full vonar, að það sé fegurð í heiminum þó að hann sé stundum harður, að við get- um lært af mistökum okkar. Það er það sem ég vildi skila.“ Paul hélt útgáfutónleika íNorræna húsinu fyrirstuttu, en hyggst ekkihalda tónleika í bráð, hugsanlega snemma á næsta ári. Hann ætlar að halda sig við píanóið enn um stund. Aðspurður hvort hann sé orðinn góður píanóleikari kímir hann og svarar svo: „Ég kann það sem ég kann.“ Hrátt og lifandi Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Ítölsk undirföt undirfataverslun Síðumúla 3 Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16 Föt fyrir allar konur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.