Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 53 DAGBÓK Afmælisþakkir Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig á 80 ára afmæli mínu laugardag- inn 20. september sl. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og gott og farsælt komandi ár. Kær kveðja, Guðrún Bjargey Jónsdóttir, Garðbæ, Vesturgötu 105, Akranesi. Jólaball Siglfirðingafélagsins verður haldið í sal KFUM og KFUK við Holtaveg, laugardaginn 27. desember kl. 14.00. Siglfirðingafélagið í Reykjavík og nágrenni. Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla Starfsfólk Eignamiðlunar Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða. Starfsfólk Fasteignasölu Íslands. STJÖRNUSPÁ Afmælisbörn dagsins: Þú ert harðdugleg/ur, já- kvæð/ur og úrræðagóð/ur og hefur oft mikil áhrif á aðra. Það verður mikið að gerast í félagslífinu hjá þér á kom- andi ári. Þú gætir einnig haf- ið nýtt ástarsamband. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Dagurinn hentar sérstaklega vel til hvers konar félags- starfs. Þú munt einnig eiga líflegar og kraftmiklar sam- ræður við vini þína. Naut (20. apríl - 20. maí)  Notaðu daginn til að koma hugmyndum þínum á fram- færi við áhrifamikið fólk. Þú nýtur virðingar en það er þó hætt við að öfund í þinn garð geri einnig vart við sig. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Áætlanir sem tengjast öðrum löndum, langferðum, útgáfu- málum, fjölmiðlun, lögfræði og framhaldsmenntun líta sérlega vel út. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Taktu við því sem aðrir gefa eða bjóða þér með virðingu. Þér verða að öllum líkindum gefnar góðar gjafir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Nú er rétti tíminn til að leysa deilur við nána ættingja og vini. Þú ert heillandi og sam- starfsfús. Þér mun örugglega takast að koma sjónarmiðum þínum á framfæri. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú átt auðvelt með að fá þá samvinnu sem þú sækist eftir í dag. Jákvæðni þín og heillandi framkoma gera það að verkum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þetta er dásamlegur dagur til að verða ástfangin/n. Þú ættir að minnsta kosti að daðra við einhvern. Það er létt yfir þér og þig langar til að stríða og leika þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þetta er góður dagur til að fegra heimilið. Kauptu eitt- hvað fallegt fyrir fjölskyld- una og heimilið. Þú ættir einnig að kaupa gjöf handa einhverjum sérstökum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert minnt/ur á það í dag hvað það er mikil ást í lífinu. Hún er allt í kring um þig. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú munt hafa ánægju af því að kaupa eitthvað fallegt í dag. Það þarf ekki að vera stórt til að gleðja. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það eru þrjár plánetur í stjörnumerkinu þínu. Venus er ein þeirra og það gerir þig óvenju heillandi og félags- lynda/n. Þú nýtur vaxandi vinsælda. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert óvenju félagslynd/ur þessa dagana en ættir þó að finna þér stund til að vera ein/n með sjálfri/sjálfum þér í dag. Þú þarft á því að halda þó ekki sé nema í augnablik. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Frances Drake STEINGEIT OG ÁRIÐ KOM OG ÁRIÐ LEIÐ Og árið kom og árið leið með eina stund, með eina gjöf um óttuskeið: vorn eina fund. Og aðeins þessi eina gjöf, sú eina mynd, er ofar harmi, ofar gröf og ofar synd. Halldór Laxness. LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Í dag,24. desember, að- fangadag, er áttræður Kol- beinn Þorgeirsson, múrari, Hlíðartúni 8, Hornafirði. Hann er að heiman. 80 ÁRA afmæli. 26. des-ember nk. verður áttræð Guðrún Jónsdóttir, Stóra-Lambhaga. Guðrún er að heiman en sendir vin- um og vandamönnum bestu jóla- og nýáróskir. SPILAGYÐJAN er dynt- ótt vera, sem útdeilir hin- um takmörkuðu gæðum stokksins af fullkomnu skeytingarleysi um mann- legar tilfinningar. Og að því er virðist – algerlega án réttlætis. Norður ♠ DG10 ♥ Á432 ♦ Á432 ♣92 Vestur Austur ♠ Á5 ♠ 876 ♥ DG10 ♥ 8765 ♦ DG10 ♦ 8765 ♣ÁKDG10 ♣87 Suður ♠ K9432 ♥ K9 ♦ K9 ♣6543 Hér hefur hún gert vest- ur að ríkum manni í há- spilum talið, en austur að öreiga. Hinir tveir eiga til hnífs og skeiðar, en þurfa að fara vel með sitt. Vestur Norður Austur Suður 1 lauf Dobl Pass 2 spaðar 3 lauf Pass Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Allir pass Norður er líklega að steypa sér í of miklar skuldir með því að lyfta þremur spöðum í fjóra, en það er alltaf einhver sem vinnur í lottóinu. Vestur sýnir hógværð með því að dobla ekki og leggur af stað með laufás. En skiptir svo snarlega yfir í spaðaás og spaða. Blindur á slag- inn og sagnhafi spilar laufi um hæl, sem vestur verður að taka. Hann er tromp- laus og spilar hjarta- drottningu. Suður tekur með kóngnum heima og trompar lauf: Norður ♠ -- ♥ Á43 ♦ Á432 ♣ -- Vestur Austur ♠ -- ♠ 8 ♥ G10 ♥ 876 ♦ DG10 ♦ 8765 ♣KD ♣ -- Suður ♠ K94 ♥ 9 ♦ K9 ♣6 Austur á eftir að henda af sér í þessari stöðu. Í byrjun leit ekki út fyrir að hann ætti nein þau verð- mæti sem eftirsjá væri í, en annað kemur á daginn. Öll rauðu spilin eru virk og eina vörnin er að undir- trompa blindan – HENDA spaðaáttunni. Við því á sagnhafi ekkert svar. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 75 ÁRA afmæli. Ámorgun, 25. desem- ber, verður 75 ára Indriði Ingimundarson frá Hvoli í Saurbæ, Laufengi 56, Rvík. Hann verður að heiman. 80 ÁRA afmæli. 28. des-ember verður áttræð Jóhanna D. Jónsdóttir frá Hnausakoti. Þann dag tek- ur hún á móti ættingjum og vinum kl. 16 í Félagsmið- stöðinni Árskógum 4, Rvík. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. c3 Rf6 5. Dxd4 Rc6 6. Bb5 Bd7 7. Dd3 g6 8. O-O Bg7 9. Bg5 O-O 10. Ra3 Hc8 11. Had1 a6 12. Bc4 Ra5 13. Bd5 h6 14. Bxf6 Bxf6 Staðan kom upp á minn- ingarmóti Carlosar Torres sem lauk fyrir skömmu í Mexíkó. Hrannar Baldurs- son (2126) hafði hvítt gegn þarlenda alþjóðlega meist- aranum Roberto Martin Del Campo (2407). 15. e5! Bf5 nauðsynlegt þar sem eftir 15... dxe5 16. Dxg6+ Bg7 17. Rxe5 stendur hvítur til vinnings. Eftir textaleikinn nær hvítur einnig frum- kvæðinu sem hann náði að nýta sér til sigurs. 16. De3 Bg7 17. e6 fxe6 18. Bxe6+ Bxe6 19. Dxe6+ Kh7 20. Hfe1 Bf6 21. Rd4 Hc5 22. Rac2 He5 23. Dh3 Db6 24. Hxe5 Bxe5 25. b3 Rc6 26. Dd7 Dc5 27. Re3 Bxd4 28. cxd4 Dg5 29. Dxb7 Dh4 30. Hd2 Rxd4 31. Dxa6 Df4 32. Dc4 e5 33. Dc7+ Kh8 34. Dc3 Dg5 35. Kf1 Df4 36. Kg1 Rf5 37. Rc4 Rd4 38. Db2 De4 39. h3 Hf6 40. Kf1 Hf5 41. Rxd6 Df4 42. Rxf5 gxf5 43. Dc3 De4 44. Dd3 Dc6 45. Hd1 f4 46. Dc4 Dd6 47. b4 f3 48. gxf3 Dd7 49. Hxd4 exd4 50. Ke2 Dxh3 51. Dxd4+ Kh7 52. De4+ Kh8 53. b5 Dd7 54. a4 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. GULLBRÚÐKAUP. Á morgun, jóladag 25. desem- ber, eiga gullbrúðkaup hjón- in Bjarney Jóhanna Krist- jánsdóttir og Sævar Guðmundsson, Traðarstíg 14 í Bolungarvík. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, 24. desember, eiga 50 ára hjú- skaparafmæli hjónin Ása Lúðvíksdóttir og Einar H. Guð- mundsson, Reykjanesvegi 10, Reykjanesbæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.