Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 57
DAGSKRÁ Á JÓLADAG MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 57 ANIMAL PLANET 10.00 The Natural World 11.00 Animal X 11.30 Animal X 12.00 Twisted Tales 12.30 Supernatural 13.00 Young and Wild 13.30 Young and Wild 14.00 Emergency Vets 14.30 Animal Doctor 15.00 Pet Rescue 15.30 Pet Rescue 16.00 Breed All About It 16.30 Breed All About It 17.00 Kee- pers 17.30 Wild on the Set 18.00 The Planet’s Funniest Animals 18.30 The Planet’s Funniest Ani- mals 19.00 Animal X BBC PRIME 10.00 Christmas Morning Service 11.00 Tamzin Outhwaite Goes Wild With Dolphins 12.00 Eas- tenders 12.30 Parkinson Special 13.30 Trading Up 14.00 Teletubbies 14.25 Tikkabilla 14.55 Fri- ends International 15.00 The Queen’s Christmas Message 15.10 Top of the Pops 16.15 Robbie the Reindeer: Hooves of Fire 16.45 Lorna Doone 18.00 What Not to Wear On the Red Carpet 19.00 Eastenders 19.30 Only Fools and Horses 20.45 Dickens 21.45 Alistair Mcgowan’s Big Impression 22.15 Alistair Mcgowan’s Big Impressions 22.30 The Passion 0.00 Secrets of the Paranormal 0.30 Secrets of the Paranormal 1.00 The Lives of Jesus 2.00 Contact 3.00 Disaster 3.30 Bindi Milli- onaires 4.00 Rough Science 4.30 Elements of Healing DISCOVERY CHANNEL 10.00 Top Ten Venice 11.00 Hot Art 12.00 Great Battles 12.30 Great Battles 13.00 First World War 14.00 Fast Ships 15.00 Extreme Machines 16.00 Fishing on the Edge 16.30 Rex Hunt Fishing Ad- ventures 17.00 Scrapheap Challenge 18.00 Ne- fertiti Revealed 20.00 Forensic Detectives 21.00 FBI Files 22.00 The Prosecutors 23.00 Extreme Machines 0.00 Nazis, A Warning from History 1.00 People’s Century 2.00 Fishing on the Edge 2.30 Rex Hunt Fishing Adventures 3.00 Nefertiti Revea- led 5.00 Bilbo and Beyond 6.00 Great Battles 6.30 Conspiracies 7.00 End of Extinction EUROSPORT 10.00 Dancing 11.00 Football 13.00 Ski Jumping 14.30 All sports 15.00 Football20.00 Snooker 22.00 All sports 23.00 Sumo 0.00 All sports HALLMARK 10.00 Mr. St. Nick 11.30 Alice in Wonderland 13.45 A Christmas Visitor 15.15 Mrs. Santa Claus 17.00 One Christmas 18.30 Mr. St. Nick 20.00 Fallen Angel 21.45 Stealing Sinatra 23.30 A Nero Wolfe Mystery 0.15 A Nero Wolfe Mystery 1.00 Stealing Sinatra 2.45 The Moonstone 5.00 Time at the Top NATIONAL GEOGRAPHIC 10.00 Seconds from Death: the Last Flight of Twa 800 10.30 Extinct: the Great Auk 11.00 Superc- roc 12.00 Wolves of the Sea 13.00 Dogs with Jobs 13.30 Animal Nightmares: Dogs 14.00 The Greatest Shoal on Earth 15.00 Seconds from Death: the Last Flight of Twa 800 15.30 Extinct: the Great Auk 16.00 Mars: Dead Or Alive 17.00 Wolves of the Sea 18.00 Seconds from Death: the Last Flight of Twa 800 18.30 Extinct: the Great Auk 19.00 Dogs with Jobs 19.30 Animal Nig- htmares: Alligators 20.00 Owls: Silent Hunters 21.00 The Dinosaur Dig: Finding Elliot 22.00 Mars: Dead Or Alive 23.00 Lost Army in the Sand 0.00 The Dinosaur Dig: Finding Elliot 1.00 Egypt Eternal: Quest for the Lost Tombs TCM 20.00 Doctor Zhivago 23.05 Marie Antoinette 1.35 Made in Paris 3.15 Captain Nemo and the Underwater City 16.00 Kapphlaupið mikla Rowan Atk- inson og Whoopi Goldberg fara á kostum í stjörnum prýddri gamanmynd fyrir alla fjöl- skylduna. DR1 10.30 DR-Dokumentar - Grevinden på tredje 11.30 Nissernes Ø (24:24) 12.00 Koncert med Helmut Lotti 13.00 Juledagsgudstjeneste 14.05 Før helligdagen 14.15 Den sidste Gåse- holder 15.15 Ivanhoe (kv - 1952) 17.00 Julef- andango 17.30 TV-avisen med Sport og Vejret 18.00 Disney sjov 19.00 aHa 19.55 Rejsehol- det (31:32) 21.10 Patrioten - The Patriot (kv - 1998) 22.35 Møllen ved Floss - The Mill On the Floss (kv - 1997) 00.25 Dommervagten - 100 Centre Street (8) 01.10 Godnat DR2 12.10 Ude i naturen: Saltholm (2) 12.40 Mik Schacks Hjemmeservice 13.10 Arsenik og gamle kniplinger 15.10 Grænseland - At miste og genvinde livsmodet (8:10) 15.40 Gyldne Ti- mer 17.00 Nordisk Julekoncert 2003 18.00 Jul på Vesterbro (24:24) 18.30 Mellem him- mel og jord (10:10) 19.00 Gintberg - var det det julespecial 20.00 Når julemænd er værst 20.45 Når mænd er værst 21.30 Deadline 21.50 Når mænd er værst - Christmas Men Behaving Badly 22.30 Når mænd er værst - Men Behaving Badly 23.15 Kolde fødder - Cold Feet(11) 00.05 Quicksilver Crossing i Eu- ropa 00.30 Mik Schacks Hjemmeservice 01.00 Godnat NRK1 10.00 Høymesse fra Elverhøy kirke i Tromsø 11.00 Perspektiv: Fra ateist til katolsk biskop 11.30 Tower i London: Skattkammeret (3:8) 12.20 Fire årstider 12.30 Trollmannen fra Oz - The Wizard of Oz (kv - 1939) 14.10 Faktor: Når det blir vår ... 14.40 Sissel i Spektrum 15.35 Nøtteknekkeren 16.30 De hellige tre narrer 16.55 Barne-tv 16.55 Folk og røvere i Kardemomme by 18.00 Dagsrevyen 18.30 Julenøtter 18.45 Været i Norge 2003 19.15 Året med kongefamilien 20.15 Det største i verden 22.05 Løsning julenøtter 22.10 Kveld- snytt 22.25 Countrymusikkens Oscar - CMA Awards 2003 23.55 Den tredje vakten - Third Watch (14:23) NRK2 13.05 Svisj: Musikkvideoer og chat 17.00 Norske filmminner: Den grønne heisen 18.30 Lydverket live: Coldplay 19.00 Siste nytt 19.10 Vår felles venn - Our mutual friend (1:6) 20.00 Niern: Man On The Moon (kv - 1999) 21.55 Siste nytt 22.00 David Letterman-show 22.45 God morgen, Miami - Good morning, Miami (15:22) 23.05 Nattønsket 01.00 Svisj: Musikkvideoer og chat SVT1 09.25 Matiné: Babe - en gris kommer till stan 11.00 Nordisk julkonsert 12.00 Matiné: Det ligger i blodet 13.35 Hildasholm 14.05 Köks- mästare Hullman-Bing 14.15 Diggiloo 15.15 Drottning Silvia 60 år 16.00 Vänern - det gömda havet 16.55 Så såg vi julen då 17.00 Bolibompa 17.01 En liten julsaga 18.00 Rob- bie Ren i knipa 18.30 Rapport 18.50 Besjälad tradition 19.00 Swedenhielms 20.40 Monicas allra bästa 21.10 Garva här - julsmack 21.35 Seriestart: Sängdags 22.05 Rapport 22.10 Las Vegas - syndens oas 23.05 Rat Pack (kv - 1998) SVT2 10.00 Landet runt 10.45 Spelet om Tyskland 12.15 Känsligt läge 12.45 75 år av skratt 13.35 Matiné: Pelle Erövraren 16.00 Minnenas television 17.00 Aktuellt 17.15 Tystare än vattnet, lägre än gräset 18.15 Grinchen - julen är stulen 20.00 Aktuellt 20.15 Semesterplaner 20.30 Hemligstämplat 21.00 Debutanten 21.40 Studio pop 22.10 K Special: George Or- well 23.10 Mediemagasinet 23.40 Plus ekonomi AKSJÓN M agnús Eiríksson guð- fræðingur, sem menntaði sig og starfaði í Danmörku á 19. öld, var einna fyrstur manna á Norðurlöndum til að rökstyðja rétt kvenna til sömu réttinda í þjóðfélaginu og karlar höfðu. Þetta segir Friðrik Eiríksson bryti, en faðir hans, Eiríkur Alberts- son, sem lengi var prestur í Borg- arfirði, skrifaði doktorsritgerð um Magnús og guðfræði hans og trúar- líf, sem út kom árið 1938. Segir Friðrik fulla ástæðu til að rifja upp hvaða Íslendingur það hafi verið sem vakti fyrstur athygli í víðu sam- hengi á þeirri kúgun sem konur máttu sæta. Friðrik Eiríksson segist hafa fengið áhuga á réttindum kvenna og mannréttindamálum yfirleitt á heim- ili foreldra sinna að Hesti þar sem slík mál hafi mikið verið til umræðu. „Í kvenréttindamálum var ávallt samstaða hjá foreldrum mínum svo smám saman síaðist það inn í kollinn á mér að líta á kvenréttindi sem grundvallarmannréttindi,“ segir Friðrik. Hann segir rétt kvenna hafa öldum saman verið skammarlega rýran og það hafi ekki byrjað að rofa til í þeim efnum fyrr en á 19. öld. „Þá tóku nokkrar öndvegiskonur og -karlar að láta sig þessi mál ein- hverju varða en það er fyrst á 20. öldinni sem hægt er að tala um að einhver réttarbót falli þeim í skaut. Kosningarétturinn er þar mikilvæg- astur og launamisréttið minnkar hægt og bítandi. Það er gott og blessað en það hryggir mig og skelf- ir að ennþá ríkir tilhneiging til að lít- illækka konuna og jafnvel auðmýkja hana eins og menn geta séð í fjöl- miðlum,“ segir Friðrik enn fremur. Stundaði vísindastörf í Kaupmannahöfn Ferill Magnúsar Eiríkssonar var í stuttu máli sá að árið 1831 siglir hann til náms í Kaupmannahöfn eft- ir nám í Bessastaðaskóla. Hafði hann útskrifast þaðan 23 ára 1829 með hæstu einkunn. Árið 1837 lýkur hann guðfræðiprófi og stendur hon- um þá til boða eitt besta prestakall á Íslandi en hugur hans stóð til frekari vísindastarfa í Kaupmannahöfn. „Magnús lét mikið til sín taka í Dan- mörku,“ heldur Friðrik áfram er hann stiklar á stóru í ferli Magn- úsar. „Honum var fátt óviðkomandi í kirkjustefnum á fyrri hluta nítjándu aldar og ritar um frelsi kvenna með frumlegu innsæi, skarpskyggni og ríkri mannúð. Hann gerðist til dæm- is drengilegur málsvari Mathilde Fiebieger, sem fyrst kvenna ræddi kvenfrelsismál í Danmörku og var umdeild fyrir. Hún skrifaði bók und- ir nafninu Clara Rafael og skrifar þar 12 bréf til vinkonu sinnar þar sem hún ræðir ýmis mál. Magnús skrifaði 12 bréf til Clöru Rafael und- ir nafninu Theodor Immanuel. Magnús kemur víða við í skrifum sínum um kvenfrelsismál og ræðir meðal annars um hina almennu hæfileika manna, vitsmuni, tilfinn- ingu og vilja. Hann segir að enginn vafi geti leikið á því að konan hafi þessa eiginleika til að bera eins og karlmaðurinn og ógerningur sé að sanna að hún standi honum að baki að þessu leyti. Séu gáfur karls og konu athugaðar á barnsaldri sjáist venjulega enginn munur, stúlku- barnið geti lært það sama og pilt- urinn fái hún sömu kennslu. En þar skortir mjög á og sökum þess að piltar hljóti margvíslega kennslu sem ungum konum sé ekki látin í té þroskist vitsmunalíf karla umfram það sem eigi sér stað með konurnar. Af þessum ástæðum skapist sá mun- ur er menn þykist sjá. Og Magnús er þess fullviss að kvenþjóðin sé fær um að gegna hinum ýmsu embætt- isstörfum, guðfræði, læknisfræði og lögfræði og hefur sannarlega mikið af þessu ræst sem hann hélt fram þótt margt megi betur fara í kven- réttindamálum.“ Friðrik segir að Magnús hafi í bréfum sínum til Clöru Rafael notað ýmis sömu rök fyrir frelsi kvenna sem John Stuart Mill notaði um 18 árum síðar í riti sínu um stöðu kvenna. Foreldrar Friðriks létu sig félagsmál miklu skipta og var faðir hans einn af for- göngumönnum í þágu starfs meðal berkla- sjúklinga og vakti einna fyrstur máls á því að SÍBS yrði að stofna vinnuheimili fyrir brautskráða berklasjúklinga. Segist Friðrik eiga prentað útvarpserindi föður síns sem hann flutti í tilefni berklavarnadagsins ár- ið 1940 þar sem hann hvetur lands- menn til að styðja málið. Móðir Frið- riks var Sigríður Björnsdóttir rithöfundur og hún starfaði mikið að málum kvenna í Kvenréttindafélag- inu, Kvenfélagasambandinu, Mæðra- styrksnefnd og var varamaður í borgarstjórn í tíð Auðar Auðuns borgarstjóra. Söng messur með Pólýfónkórnum Og rétt eins og viðhorfin til mannréttinda síuðust inn hjá Friðriki hafa félagsmál einnig átt sín ítök í honum því hann var um árabil formaður Pólýfónkórsins, svo dæmi sé nefnt. Kvaðst hann eiga Ingólfi Guðbrandssyni, stjórnanda kórsins, mikið að þakka fyrir að fá að vera með í því starfi öllu. Þar söng hann ýmsa kirkjulega tónlist og flutti messur á þann hátt þótt ekki hafi hann orðið prestur eins og hugur foreldra hans stóð til. „Það var mjög gefandi að vera með á mörgum tónleikum kórsins, ekki síst í flutningi á kirkjutónlist í nokkrum löndum Evrópu. Mér finnst ég hafa komist einna næst almættinu í kirkju heilags Frans frá Assísí. Og úr því að ég er kominn í þessar hugleiðingar langar mig að nefna að það hefur lengi verið barist við og fyrir allt mögulegt, meira að segja er barist fyrir friði hvernig sem það nú hljómar. En ég er viss um að ef þær stöllur, ágirnd og öfund, hefðu minna vægi í samskiptum manna en kærleikurinn þess meira þá verður engin ástæða til að óttast framtíð mannkynsins,“ segir Friðrik og nefnir að lokum að þegar hann var í Bandaríkjunum við nám í veitingarekstri hafi hann getað kom- ið doktorsritgerðinni áðurnefndu, áritaðri af föður sínum, til Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar með þökkum fyrir vináttu og frændsemi. Og þar sem komið er svo nærri jólum segir hann að lokum. Vakti einna fyrstur Íslend- inga athygli á kúgun kvenna Magnús Eiríksson guðfræðingur, sem stundaði vísindastörf í Kaupmannahöfn á 19. öld, var ötull tals- maður kvenréttinda og skrifaði gegn kúg- un kvenna. Magnús Eiríksson guðfræðingur Friðrik Eiríksson FRÉTTIR LANDSBANKI Íslands hf. mun framvegis bjóða hraðsendingar- þjónustu Western Union í nokkr- um af stærstu útibúum sínum um allt land. Hingað til hefur þjón- ustan fyrst og fremst verið veitt í afgreiðslu The Change Group í Aðalstræti, Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar og í afgreiðslu Lands- bankans á svæði varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Nú verður einnig hægt að fá þjónustu Wes- tern Union í útibúum bankans í Mjódd í Breiðholti, Laugavegi 77, Hafnarfirði, Selfossi, Akranesi, Akureyri og Egilsstöðum. Þjónusta Western Union hent- ar einstaklingum og fyrirtækjum til að senda peninga milli landa. Hún er mikið notuð af einstak- lingum sem búsettir eru utan síns heimalands til að senda peninga til ættingja eða vina í heimaland- inu. Einnig er unnt að nýta þessa þjónustu í neyðartilvikum t.d. ef fjármunir eða kreditkort tapast á ferðalagi. Umboðsmannanet Western Union er víðtækt og eru afgreiðslustaðir fyrirtækisins yf- ir 150 þúsund talsins í 190 lönd- um. Allar sendingar frá Íslandi eru greiddar í íslenskum krónum, en greiddar út í gjaldmiðli viðtöku- lands. Umboðsaðilar í nokkrum löndum greiða að auki út send- ingar í dollurum eða evrum. Á nokkrum stöðum er hægt að láta hringja í viðtakanda þegar færslan er komin eða jafnvel óska eftir heimsendingarþjónustu. Þá er hægt að senda skilaboð með færslum t.d. afmæliskveðjur gegn vægu gjaldi. Upplýsingar um afgreiðslustaði og afgreiðslu- tíma þeirra um allan heim er að finna á heimasíðu Western Union: www.westernunion.com. Útibú Landsbank- ans bjóða hrað- sendingaþjónustu Á FÖSTUDAG opnaði Jón Krist- jánsson heilbrigðisráðherra nýja við- byggingu við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki. Hér er um að ræða nýtt anddyri og aðkomu fyrir sjúkra- bíla ásamt breytingum á eldra hús- næði, en þar er um að ræða nýja slysastofu, breytingar á móttöku, símavakt og lyftu. Þessi nýja aðstaða mun gjör- breyta og bæta allt aðgengi að stofn- uninni. Verkið var boðið út síðastlið- inn vetur, en framkvæmdir hófust í maí síðastliðnum og skilaði verktaki verkinu af sér hinn 15. desember síð- astliðinn. Arkitekt að húsinu er Árni Ragn- arsson, en Verkfræðistofan Stoð annaðist hönnun burðarþols, vatns og frárennslislagna. Verkfræðistofa Norðurlands annaðist hönnun loft- ræstikerfa en Rafrás annaðist raf- lagnir. Heildarkostnaður við verkið var um 55 milljónir. Samhliða vígslu hússins undirritaði heilbrigðisráð- herra, Jón Kristjánsson, ásamt Birgi Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunarinnar, nýjan ár- angursstjórnunarsamning milli ráðuneytis og stofnunarinnar, sem er til þriggja ára og kveður á um hlutverk og starfssvið Heilbrigðis- stofnunarinnar og gagnkvæmar skyldur aðila. Séra Guðbjörg Jó- hannesdóttir sóknarprestur blessaði hið nýja húsnæði, en að lokum þáðu gestir léttar veitingar. Fjárveiting til rekstrar Heilbrigð- isstofnunarinnar á árinu 2004 er um 600 milljónir króna. Ný bygging við Heil- brigðisstofnunina Heilbrigðisráðherra, Jón Krist- jánsson, undirritar nýjan árangurs- stjórnunarsamning ásamt Birgi Gunnarssyni, framkvæmdarstjóra Heilbrigðisstofnunarinnar. Sauðárkróki. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.