Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 18
ERLENT 18 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Munið að slökkva á kertunum          Njótið hátíð ljóss og friðar, munið eftir að slökkva á kertaskreytingum. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins                      ! " !        !# !!                ! %! &! ' ( !  )  *# &!                Það verður ekki þverfótað fyrir jólasveinum þessi misserin. Ert þú raunverulega hinn eini sanni jólasveinn? Ég býð þig vinsamlegast velkom- inn í heimsókn til Lapplands þannig að þú getir kynnst mér af eigin raun. Gott er að koma í heimsókn t.d. fjórða maí eða tólfta september. Aðrar dagsetningar gætu þó gengið líka. Eftir að þú ert búinn að koma í heimsókn geturðu tekið undir orð- takið sjón er sögu ríkari. En ef við segjum nú sem svo að þú sért hinn eini sanni jólasveinn: er ekkert svekkjandi að það skuli vera svona margir á ferli sem villa á sér heimildir og þykjast vera þú? Það er nú ekki auðvelt að svekkja mig. Ef það ríkir samkeppni um það að gera börnin glöð þá er það auðvit- að bara hið besta mál. Ég held raun- ar ekki að þessir menn séu að villa á sér heimildir, ég held að þeir séu bara að leita að sjálfum sér, leita að barninu innra með sér. Þekkirðu til íslensku jólasveinanna, ungu mannanna níu sem eru svo allt öðruvísi í útliti en þú? Kannski þekkirðu foreldra þeirra, Grýlu og Leppalúða? Níu? Ég hélt þeir væru fjórtán. Kannski eru fimm þeirra týndir eða uppteknir við einhver strákapör. Jújú, sumir íslensku jólasveinanna koma í bæinn fyr- ir jól fyrst og fremst til að fremja óknytti. Hvaða skilaboð myndirðu senda þeim? Ertu viss um að það séu jólasveinarnir íslensku sem fremja þessi óknytti? Kannski er það þannig að einhver er að villa á sér heimildir og þykjast vera þeir? Hvernig er venjulegur vinnudagur hjá þér? Ertu sí- fellt á ferðinni á sleðanum þínum eða hefurðu gerst latur eftir því sem árin hafa færst yfir þig? Hvað er svo sem venjulegt? Hvað er vinna? Þú spyrð undarlegra spurninga sem hljóta þar af leiðandi að kalla á undarleg svör. Hver sagði eiginlega að ég þyrfti sífellt að vera á ferðinni? Og hvers vegna hlýt ég að vera bæði gamall og latur ef ég er það ekki? Hversu mikil eru umsvif þín, þ.e. hversu marga aðstoðarmenn hef- urðu í vinnu, hversu mörg bréf færðu og hvers konar óskir færðu frá börnunum? Mér berast margar beiðnir. Til dæmis er ég oft beðinn um að taka þátt í skrýtnum viðtölum. Sumir biðja um nýtt leikfang, aðrir um frið í heimi hér. Og svo allt þar á milli. Mér berast rétt undir einni millj- ón bréfa á ári hverju og þau koma úr öllum heimshornum. Mér til að- stoðar er stór hópur álfa, mjög stór hópur álfa. Hvernig laun hefurðu í þessari vinnu? Færðu greiddan stóran aukabónus, er jafnvel hugsanlega gerður samningur við þig um kaup á hlutabréfum í fyrirtækinu eins og tíðkast nú um stundir hjá „toppunum“? Hvað er vinna? Hvað er stór aukabónus? Hvað er lítill aukabón- us? Hvaða fyrirtæki ertu eiginlega að tala um? Ert þú kannski „topp- ur“? Og þýðir það þá að undir þér starfa „botnar“ og „mitt á milli“? Í alvöru talað: það er enginn jólasveinn til, er það nokkuð? Hvers vegna ertu með þessi látalæti? Það er gaman að eiga samskipti við einhvern jafn al- varlegan og þig. Það veldur því að samskiptin verða mjög alvarleg og í alvöru talað þá eru alvarleg sam- skipti og alvarleg viðtöl afskaplega alvarlegur hlutur. Ég er alvarlega ánægður með að fá tækifæri til að svara spurningum þínum og að þú skulir taka við mig viðtal. Allt í lagi, þú ert jólasveinninn. Hvernig hefurðu hugsað þér að verja aðfangadegi jóla? Ég hef nú kannski ekki gert nákvæma áætlun um það en tel hreint ekki útilokað að ég taki hús á fólki og komi færandi hendi með nokkrar jólagjafir handa börn- unum. Þar sem þú virðist líta svo á að ég sé bara í þykj- ustuleik þá held ég að ég verði að þykjast ætla að koma við heima hjá þér, í þykjustuhúsinu þínu það er að segja. Spurt og svarað | Jólasveinninn Fær margar beiðnir um skrýtin viðtöl Nálægt Rovaniemi í Finnlandi, í þeim hluta sem heitir Lappland, býr sjálfur Jólasveinninn í Jólasveinaþorpinu svonefnda. Ár hvert leggur um hálf milljón manna leið sína til Jólasveinaþorps, sem stendur á Norð- urheimskautsbaugnum, til að hitta þennan undarlega mann. Margir skoða líka heimasíðu Jólasveinsins, www.santaclauslive.com. Morgun- blaðið lagði nokkrar spurningar fyrir kauða í tilefni hátíðanna. Finnski jólasveinninn. ’ Ef það ríkir sam-keppni um það að gera börnin glöð þá er það auðvitað bara hið besta mál. ‘ Davíð Logi Sigurðsson | david@mbl.is FJÖLSKYLDA í Zagreb, höfuðborg Króatíu, fékk nýlega jólakort sem sent var fyrir tíu árum frá bænum Sesvete sem er aðeins 10 kílómetra frá Zagreb. „Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á árinu 1994. Megi komast á friður á svæðinu!“ stóð á kortinu sem var sent í desember 1993 þegar stríð geisaði í fyrrver- andi lýðveldum Júgóslavíu. Fjölskyldan varð agndofa þegar hún fékk jólakortið og hélt í fyrstu að þetta væri ljótur grikkur þar sem sendandinn dó fyrir nokkrum árum. Þegar hún skoðaði frímerkið kom í ljós að kortið var stimplað 21. desember 1993. Króatíska póstþjónustan út- skýrði ekki hvers vegna kortið var afhent svona seint. Jólakortið fór 10 km á 10 árum Zagreb. AFP. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.