Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.12.2003, Blaðsíða 24
LANDIÐ 24 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Eyrarbakki | Kvenfélag Eyrar- bakka færði á dögunum leikskól- anum Brimveri 200 þúsund krónur að gjöf til hljóðfærakaupa. Keypt verða ýmis smáhljóðfæri sem notuð verða til tónmenntakennslu í skól- anum. Leikskólinn Brimver starfar í tveim deildum. Í yngri deildinni eru börn frá eins árs aldri til þriggja ára, en í eldri deildinni eru þriggja til sex ára, þetta er þó ekki án und- antekninga. Börnin fá eina stund vikulega til tónlistariðkunar og er þá skipt í hæfilega stóra hópa. Í leikskólanum eru nú 46 börn og 16 starfsmenn í ýmsum stöðu- hlutföllum. Skólastjóri er Kristín Eiríksdóttir. Kvenfélagið á Eyrarbakka er elsta starfandi kvenfélag landsins, stofnað 24. apríl árið 1888 og er enn í fullu fjöri. Fyrr á árinu færðu félagskonur Björgunarsveitinni Björgu 500 þúsund krónur að gjöf til tækjakaupa. Félagskonur eru nú milli 50 og 60, sumar hafa flust burt en eru þó enn virkar í félaginu. Helstu fjáröflunarleiðirnar eru bas- ar og bingó, auk þess sem kven- félagskonurnar sjá um allar erfis- drykkjur. Gáfu leikskólanum 200 þúsund til hljóðfærakaupa Morgunblaðið/Óskar Magnússon Leikskólabörn ásamt starfsfólki og stjórn kvenfélagsins. Yst til hægri er Herborg Pálsdóttir, formaður Kvenfélags Eyrarbakka, en Kristín Eiríksdóttir leikskólastjóri er önnur frá vinstri. Borgarfjörður | Á Vesturlandi eru þrír skólar þátttakendur í verk- efninu Lesið í skóginn með skól- um; Andakílsskóli, Kleppjárns- reykjaskóli og Varmalandsskóli, en sá síðastnefndi á einn eftir að staðfesta samkomulagið. Mikil hátíð var á Kleppjárns- reykjum þar sem fulltrúar eft- irtalinna félaga og félagasamtaka voru mættir: Skógræktar ríkisins, Skógræktarfélags Vesturlands, Vesturlandsskóga, Kvenfélags Reykdæla, Sparisjóðs Mýrasýslu sem er styrktaraðliði verkefn- isins, skólastjórar og verkefnis- stjórar Andakíls- og Varmlands- skóla, skólanefnd Kleppjárnsreykjahverfis, stjórn SSBNS og sveitarstjórn Borgar- fjarðarsveitar, auk nemenda og kennara skólans. Að lokinni danssýningu í íþróttahúsinu, sem var nemendum til sóma, var safnast saman í skólaportinu við jólatré sem var á þeim stað sem fyrirhugað er að gróðursetja gjafatré frá Spari- sjóði Mýrasýslu á komandi vori. Með staðsetningu trésins verði sá staður helgaður sem fyrsta skref- ið í landnámi skólans í grenndar- skógi á skólalóðinni. Við sérsmíðað skrifpúlt var síð- an undirritaðir samningar á milli Kleppjárnsreykjaskóla og sam- starfsaðliðanna að skólaþróun- arverkefninu, þ.e. Skógræktar ríkisins, Kennaraháskóla Íslands, Kennarasambands Íslands og Námsgagnastofnunar, og síðan á milli Kvenfélags Reykdæla og Kleppjárnsreykjaskóla um að- gang skólans að skógarreit kven- félagsins, sem yrði þar með grenndarskógur skólans. Eignast læknabústaðinn Þá tilkynnti oddviti Borgar- fjarðarsveitar að Kleppjárns- reykjalæknishérað sem nú heyrir sögunni til hefði gefið skólahverf- inu húseign sína á Kleppjárns- reykjum ásamt 3 ha. landspildu. Skólinn hefði því hér með umráð yfir þessum eignum og gæti því hafið grenndarskógrækt á eigin landi. Eftir að samkomugestir höfðu sungið nokkur lög við undirleik Þorvaldar Jónssonar í Brekku- koti, var öllum boðið að þiggja veitingar, sjóðheitt súkkulaði með rjóma útí, ásamt meðlæti. Ljósmynd/Pétur Davíðsson Guðlaugur Óskarsson, skólastjóri Kleppjárnsreykjaskóla, og Sveinbjörn Eyjólfsson, oddviti Borgarfjarðarsveitar, skrifa undir samninginn. Kleppjárnsreykjaskóli staðfestir þátttöku Lesið í skóginn með skólum í Borgarfirði Vestmannaeyjar | Sautján stúdentar voru útskrifaðir frá Framhaldsskól- anum í Vestmannaeyjum á laugar- daginn. Undanfarin ár hefur skólinn haldið sína útskrift í sal bæjar- leikhússins en nú þótti við hæfi að færa hátíðarhöldin í sal skólans sem er vel til þess fundinn að hýsa slíka samkomu. Ásamt stúdentunum sautján útskrifaði FÍV ellefu nem- endur með fyrsta stig vélstjórnar og einn nemanda af grunndeild rafiðna. Stúdentar: Elva Dögg Grímsdótt- ir, Erna Dögg Sigurjónsdóttir, Guð- rún Ósk Sigurjónsdóttir, Gyða Sig- urðardóttir, Hanna Guðný Guð- mundsdóttir, Helga Hrund Guð- mundsdóttir, Herdís Hermanns- dóttir, Íris Elíasdóttir, Jóna Gréta Grétarsdóttir, Kristjana Ingibergs- dóttir, María Sif Ingimarsdóttir, Sig- rún Ágústa Erlingsdóttir, Snorri Páll Snorrason, Sverrir Marinó Jónsson, Víkingur Másson, Þórey Jóhanns- dóttir, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir. Útskriftarnemar af 1. stigi vél- stjórnarbrautar: Ágúst Halldórsson, Árni Gunnars- son, Bjarni Sighvatsson, Davíð Smári Hlynsson, Guðmundur Gísli Gíslason, Gunnar Bergur Runólfsson, Halldór Jón Andersen, Sigurður Sigurðsson, Símon Halldórsson, Sævald Pálsson, Þórarinn Elí Helgason. Auk þeirra útskrifaðist Sverrir Marinó Jónsson úr grunndeild rafiðna. Morgunblaðið / Sigursveinn Þórðarson Útskrift frá Fram- haldsskólanum í Vestmannaeyjum Fljót | Nú viku fyrir jól var unnið við að plægja niður vatnsleiðslu í Fljótum í nánast auðri og klaka- lausri jörð. Þetta er einsdæmi hér á þessum árstíma. Verið var að leggja heitavatnslögn frá Sólgörð- um að jörðinni Fyrir-Barði liðlega 700 metra vegalengd. Það var Steypustöð Skagafjarðar sem fram- kvæmdi verkið sem tók rúmlega einn dag. Steypustöðin hefur verið mikið í að plægja niður jarðstrengi einkum rafmagn og ljósleiðara og farið víða um land á undanförnum árum vegna slíkra verkefna. Friðrik Pálmason framkvæmda- stjóri Steypustöðvarinnar sagði í samtali við fréttamann að tíðin hafi verið þeim afar hagstæð í haust þannig að þeir muni ná að ljúka flestum sínum verkefnum fyrir ára- mót. Mikið hafi verið að gera á þessu ári m.a. voru þeir með nokk- uð stórt verk sem var að plægja niður jarðstreng frá Egilsstöðum upp að Kárahnjúkum. Friðrik sagði ennfremur að fyrirtækið væri búið að selja helmingi meiri steypu í ár en árið 2002. Þar munaði mestu um þrjú nokkuð stór verk sem eru í gangi. Bygging nemendaíbúða á Hólum í Hjaltadal, bygging fjöl- býlishúss fyrir eldri borgara á Sauðárkóki og smíði nýrrar brúar á Laxá í Refasveit. Sú brú er í tengslum við nýja veginn um Þver- árfjall og var brúargólfið steypt snemma í desember og fóru í það um 250 rúmmetrar af steypu. Þeir unnu við að plægja niður vatnslögnina. Frá vinstri: Gústav Bentsson, Steingrímur Óskarsson, Árni Ragnarsson og Rúnar Marteinsson. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Vinnuvélin að plægja yfir einn skurðinn sem var á leiðinni. Veðráttan sérlega hag- stæð fyrir verktaka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.