Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ „SPARISJÓÐIRNIR hafa ríku hlutverki að gegna og þeir eru ekki á leið út úr íslenskum fjármála- heimi, aðrir sparisjóðir eru ekki á sömu leið og SPRON,“ segir Jón Kr. Sól- nes, formaður Sambands ís- lenskra sparisjóða (SÍSP). Í yfirlýsingu frá SÍSP segir, að áform um að SPRON verði dótturfyrirtæki Kaup- þings Búnaðarbanka feli í sér skýlaust brot á lögum sem Alþingi Íslendinga hafi sett og jafnframt aðför að þeim grunni sem starfsemi sparisjóða á Íslandi hafi hvílt á í hart nær eina öld. Segist sambandið ætla að skora á Alþingi og ríkisstjórn Íslands að sjá til þess að þessari aðför að tilvist íslenskra spari- sjóða verði hrundið. Vísað er til viljayfirlýsingar stjórnar Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, og Kaupþings Búnaðarbanka þar sem fram komi áform um að SPRON verði sjálfstætt starfandi dótturfélag Kaupþings Búnaðarbanka. Í yfirlýsingu SÍSP er vitnað til laga um viðskiptabanka og sparisjóði. „Í 17. grein laga um viðskiptabanka og sparisjóði segir orðrétt: „Stofnfjáreigendur hafa ekki rétt til ágóða- hlutar af rekstrarafgangi sparisjóðs umfram það sem mælt er fyrir um í lögum þessum.“ Einnig: „Stofnfjáreigendur skulu einungis njóta arðs af inn- borguðu stofnfé sínu“.“ SÍSP segir, að frá því lögin voru sett hafi stjórnvöld, m.a. ráðherra bankamála, ítrekað lýst þeirri skoðun sinni að halda beri fast við þann grundvöll sem starfsemi sparisjóðanna byggir á og hefur gert um áratuga skeið. „Samkvæmt mati sem stjórn SPRON fól nýlega óháðum aðila að framkvæma, er verðmæti SPRON um 7,3 milljarðar króna. Hins vegar hefur komið fram að verðið sem Kaupþing Búnaðarbanki er reiðubúinn að greiða fyrir sjóðinn er nokkru hærra, eða andvirði um 9 milljarða króna í formi nýrra hluta í Kaupþingi Búnaðarbanka. Þar af er gert ráð fyrir að um 6 milljarðar króna renni í sérstakan sjóð en stofnfjáreigendum verði greiddur mismunurinn. Alls er því áformað að andvirði um þriggja milljarða króna í formi nýrra hluta í Kaupþingi Búnaðar- banka komi í þeirra hlut. Að mati SÍSP er ljóst að áðurnefnd áform ganga gegn ákvæðum laga um viðskiptabanka og sparisjóði, enda er skýrt í lög- unum að stofnfjáreigendur eiga einungis að njóta arðs af innborguðu stofnfé sínu. Sparisjóðirnir í landinu þjóna á bilinu 60–70.000 viðskiptavinum, sem er um 26% viðskiptavina á einstaklingsmark- aði. Ljóst er að gangi umrædd áform SPRON og Kaupþings Búnaðarbanka fram mun samkeppni á íslenskum fjármálamarkaði minnka og mun það hafa neikvæð áhrif á kjör neytenda í för með sér,“ segir í yfirlýsingu SÍSP. Jón segir að það hafi verið algjör samstaða milli annarra sparisjóða um að viðskipti með stofnfé eigi ekki að fara fram á umræddum grundvelli og það hafi aldrei verið meiningin að hafa sparisjóðina að féþúfu eða stofnféð að gróðalind. „Ef SPRON verður 100% í eignarhaldi viðskipta- banka er eðlilegt að SPRON víki úr samstarfi spari- sjóða,“ segir Jón. Hann bætir við að SÍSP hafi ný- lega lokið stefnumótunarvinnu sem hafi staðið allt árið og nú standi yfir frekari úrvinnsla. Í markaðs- áætlun sambandsins fyrir árið 2004 hafi verið gert ráð fyrir því að SPRON myndi hugsanlega hverfa úr röðum sparisjóða og því megi segja að hinir sparisjóðirnir hafi brugðist við þessu í sínum áætl- unum. Hins vegar sé mjög óvarlegt að staðhæfa að brotthvarf SPRON þýði ákveðna hækkun á verði sameiginlegs kostnaðar annarra sparisjóða því for- sendur breytist, verði brotthvarfið að veruleika, og endurskoða þurfi ýmsa kostnaðarþætti. Kaup á SPRON sögð aðför að starfsgrundvelli sparisjóðanna FJÖLDI stofnfjáreigenda í stærstu sparisjóðum landsins er mjög mis- jafn, allt frá 46 og upp í um 1.100. Stofnfjáreigendur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, SPRON, eru um 1.100 og samkvæmt tilboði Kaupþings Búnaðarbanka fá þeir samtals um 3 milljarða króna fyrir stofnfjárhluti sína. Eigið fé SPRON var um mitt ár tæpir 4 milljarðar króna. Stofnfjáreigendur Sparisjóðs Hafnarfjarðar eru 46 og eigið fé SPH er tæpir 2,7 milljarðar króna. Stofnfjáreigendur Sparisjóðs vél- stjóra eru rúmlega 350 og eigið fé SPV er rúmir 3,7 milljarðar króna. Í Sparisjóði Keflavíkur eru um 550 stofnfjáreigendur og eigið fé sjóðs- ins er tæpir 2,3 milljarðar króna. Stofnfjáreigendur Sparisjóðs Kópa- vogs eru um 590 og eigið fé SPK er tæpar sjö hundruð milljónir króna. Afar misjafnt er hversu stór hluti eigin fjár sparisjóðanna er stofnfé og hversu stór hluti er varasjóður, eða óráðstafað eigið fé. Hlutfall stofnfjár af eigin fé er frá 0,3% hjá SPH upp í 65,5% hjá SPK. Stofnfjáreig- endur stærstu sparisjóð- anna frá 46 uppí 1.100 GÍSLI Kjartansson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu, segir að salan á SPRON til Kaupþings Búnaðar- banka sé áfall. „Þetta er óneitanlega dálítið áfall í samstarfinu, en ég sé ekki að þetta hafi nein úrslitaáhrif svo lengi sem aðrir fylgi ekki í kjölfarið,“ sagði Gísli. Hann segir að eigið fé sparisjóðsins sé um 1.100–1.200 milljónir og sjóð- urinn sé sá fimmti–sjötti stærsti á landinu. Stofnfjáreigendur eru tveir, Borgarbyggð með 97% stofnfjár og Hvítársíðuhreppur með 3%. „Árið 1993 voru lagðar þrjár millj- ónir í stofnfé og meira fé hefur ekki verið lagt inn. Þessar 1.100 milljónir hafa myndast af rekstri sjóðsins.“ Gísli segir að atburðir mánudags- ins hafi ekki verið ræddir sérstaklega ennþá en segir að síðast þegar málið var rætt hafi verið samþykkt að stofn- unin væri ekki til sölu. Aðspurður sagði Gísli að stóru bankarnir væru þegar búnir að setja sig í samband við sparisjóðinn vegna þessa máls. Þjappi sparisjóðunum saman Guðmundur Steinar Björgmunds- son, formaður stjórnar Sparisjóðs Vestfirðinga, telur að mikil umræða eigi eftir að fara fram á næstu vikum um málefni sparisjóðanna. Hann hef- ur áhyggjur af hagsmunum lands- byggðarsparisjóðanna og segir að þetta sé stórpólitískt mál. „Þetta er ekki bara spurning um krónur og aura. Sparisjóðirnir eru byggðir upp með öðrum formerkjum en bankarn- ir. Þeir njóta mikillar velvildar í ein- staklingsþjónustu og það er kannski ástæðan fyrir því af hverju bankarnir eru að ásælast þá.“ Kaupþing Búnaðarbanki er stærsti stofnfjáreigandi Sparisjóðs Vestfirð- inga. Á eftir honum koma sveitarfélög og þá einstaklingar. „Hlutur KB kem- ur til af því Kaupþing, sem sparisjóð- irnir áttu, keypti stofnfé af sparisjóð- unum. Þetta gerðist þegar við sameinuðum fjóra sparisjóði í einn hér um árið.“ Guðmundur telur að SPRON-málið gæti þjappað spari- sjóðunum saman. „Það er gríðarlegt afl í sparisjóðunum.“ Á fréttavef vestfirska blaðsins Bæjarins besta er eftirfarandi haft eftir Guðmundi um málið: „Þetta bull í Pétri Blöndal um fé án hirðis hefur náð eyrum mjög margra því miður. Spurningin er því hvað verði braskað með næst. Verða það bæjarsjóðir eða ríkissjóðurinn sjálfur. Mér sýnist þeir flokkast undir skilgreiningu Péturs um fé án hirðis.“ Á vefnum segir Guðmundur það vera alvarlegast í þessu máli að for- maður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis taki með beinum hætti þátt í þessari græðgisvæðingu þjóðfélags- ins, eins og það er orðað í blaðinu. Þar segir hann einnig að í hans huga sé klárt að þarna sé fólk að selja hluti sem það á ekki og á hann þar við að stofnfjáreigendur geti ekki gert kröfu í annað en sitt framlag til sparisjóð- anna. Skorar á stjórnvöld Jón Björnsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, segir að SPRON-salan hafi engin áhrif á sinn sparisjóð, hvorki eignarlega né rekstrarlega. Hann segir að málið hafi verið rætt á stjórnarfundi á mánudag. „Stofnfjáreigendur hafa ekki minnsta áhuga á að hagnast per- sónulega á þessu og skilja ekki þá hugsun sem liggur að baki því að gera sér sparisjóðinn að féþúfu eins og ver- ið er að reyna. Við munum standa vörð um þessa starfsemi hér eftir sem hingað til. Í raun hefur þörfin fyrir sparisjóði aldrei verið meiri. Þar fyrir utan sjá menn ekki að þetta standist lögin, og ég sé ekki að fjármálaeft- irlitið muni samþykkja þetta. Ég skora á stjórnvöld að grípa í taumana, því þetta er eignaupptaka fárra á kostnað almennings.“ Stofnfjáreigendur sparisjóðs Norð- lendinga eru 80 einstaklingar. Salan á SPRON kallar á mikla umræðu um sparisjóðina Áfall fyrir samstarfið ORKUBÚ Vestfjarða (OV) hefur sótt um leyfi til umhverfisnefndar Ísa- fjarðarbæjar fyrir stöðvarhúsi og fleiri mannvirkjum fyrir botni Tungu- dals vegna virkjunar Tunguár í Skut- ulsfirði. Frá þessu er greint á frétta- vef Bæjarins besta á Ísafirði. Ef tilskilin leyfi fást ráðgerir OV að hefja framkvæmdir þegar á næsta ári. Reiknað er með 670 kw virkjun, sem jafngildir um helmingi afls virkj- unarinnar í botni Engidals. Haft er eftir Kristjáni Haraldssyni, forstjóra OV, að markmið virkjunarinnar í Tungudal sé að auka hlut Orkubúsins í framleiðslu fyrir Vestfirði en tölu- verð raforka er flutt inn í fjórðunginn. Fyrirhugað er að 100 fermetra stöðvarhús verði í botni Tungudals, skammt frá sumarbústað Lands- banka Íslands en sunnan Tunguár. Tækniþjónusta Vestfjarða hefur unn- ið drög að hönnun hússins þar sem gert er ráð fyrir að gangandi vegfar- endur geti skoðað virkjunina í gegn- um glugga og göngustígur liggi að stöðvarhúsinu. Orkubúið hyggst virkja í Tungudal JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, vill ekki á þessu stigi tjá sig um hvort eðlilegt sé að dráttarvextir teljist til tekna og hafi þ.a.l. áhrif á leiðrétta tekju- tryggingu öryrkja í kjölfar dóms Hæstaréttar. Skv. mati Trygginga- stofnunar teljast dráttarvextir til fjármagnstekna í skilningi skatta- laga. „Ég lagði áherslu á að þetta yrði borgað út sem fyrst og samkvæmt gildandi lögum. Þarna er um skatta- lög að ræða þannig að ég ætla ekki að tjá mig á þessu stigi um hvernig með það verður farið, einfaldlega vegna þess að þau heyra ekki undir ráðu- neytið,“ segir Jón. Í Morgunblaðinu í gær sagði formaður Öryrkjabanda- lagsins ekkert réttlæti í því að helm- ingur dráttarvaxta af vangreiddri tekjutryggingu Tryggingastofnunar skerti bætur til öryrkja. Heilbrigðisráðherra um skerðingu bóta Skattalög heyra ekki undir ráðuneytið ♦ ♦ ♦ ELDRI borgarar á Eskifirði glöddu vini og ættingja með því að bjóða þeim í skötu á Þorláksmessu og Einar Finnsson, bílasmiður, og fyrirtækið Húsasmiðurinn höfðu sama hátt á í bifreiðaverkstæðinu við Hyrjarhöfða í Reykjavík. Sigtryggur Hreggviðsson er potturinn og pannan í skötuveisl- unni á Eskifirði. „Það voru rúm- lega sjötíu í mat hér í hádeginu, og ekki hægt að hafa það meira, hús- næðið takmarkar það,“ segir hann. „Skötumeistarinn okkar er Vest- firðingur svo maður skyldi nú halda að hann kynni að verka hana. Lyktin verður svo í salnum eitthvað fram í febrúar, en hjá því verður bara ekki komist.“ Einar hefur verið með skötuveislu á verkstæðinu undanfarin fjögur ár og segir að um 35 til 40 manns hafi mætt árlega. „Komi þeir sem koma vilja og fari þeir sem fara vilja,“ segir hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Einar Finnsson bifvélavirki veiðir skötu úr pottinum á bílaverkstæði sínu uppi á Höfða. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Sigtryggur Hreggviðsson er potturinn og pannan í skötuveislunni á Eskifirði. Ættingjum og vinum boðið til skötuveislu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.