Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 11
M
ikillar óánægju
gætir innan Starfs-
mannafélags
Reykjavíkurborgar
með að ákvæði
kjarasamnings félagsins um
starfsmat og hæfnislaun skuli ekki
vera komin til framkvæmda.
Samningurinn gerði ráð fyrir að
greitt yrði eftir starfsmati 1. des-
ember 2002, en nú er ljóst að það
frestast fram á næsta ár. Nokkrir
félagar í Starfsmannafélaginu ætla
að leita aðstoðar lögmanns og eftir
atvikum til dómstóla ef ekki verð-
ur fljótlega staðið við ákvæði
kjarasamningsins.
Þetta mál á sér talsvert langan
aðdraganda, en vorið 1998 sömdu
Reykjavíkurborg og Starfsmanna-
félag Reykjavíkurborgar um að
endurskoða launakerfi félagsins í
samræmi við ákvæði gildandi
kjarasamnings og „taka upp
starfs-, hæfnis- og árangurslaun í
áföngum“. Þróað var séríslenskt
kerfi, sem kallað var HERA, en
sérfræðihópur samningsaðila sem
hafði það hlutverk að ganga úr
skugga um gæði kerfisins réð frá
því að það yrði notað. Áhugi var
engu að síður hjá samningsaðilum
að halda áfram að þróa starfsmats-
kerfi og í kjarasamningum sem
gerðir voru í ársbyrjun 2001 var
samþykkt að greiða laun á grund-
velli starfsmats og svokallaðra
hæfnislauna. Leitað var fyrir-
myndar í breskt starfsmatskerfi
sem tekið var í notkun fyrir starfs-
menn breskra sveitarfélaga árið
1997.
Undirbúningurinn tók fjögur
ár en átti að taka tvö ár
Samningsaðilar sömdu um að
taka tæplega tvö ár í að ljúka und-
irbúningi starfsmatsins og að það
tæki gildi 1. desember 2002. Jafn-
framt varð samkomulag um að láta
kjarasamninginn gilda til 30. nóv-
ember 2005 og voru þau rök færð
fyrir svo löngum samningstíma að
nauðsynlegt væri að fá reynslu á
nýtt starfsmatskerfi áður en samið
yrði að nýju. Í lok nóvember til-
kynntu samningsaðilar að vinna
við starfsmatið hefði tekið lengri
tíma en vænst var og því tæki það
ekki gildi 1. desember eins og mið-
að hafði verið við. Í bókun sem
fulltrúar borgarinnar og Starfs-
mannafélagsins gerðu 28. nóvem-
ber í fyrra segir að knúið verði á
um verklok á forprófun á nýju
starfsmatskerfi fyrrihluta mars-
mánaðar 2003, en að öðru leyti eru
engar tímasetningar settar um
hvenær farið verði að greiða laun
á grundvelli nýs kerfis.
Um miðjan þennan mánuð til-
kynntu samningsaðilar að ekki
yrði hægt að greiða út laun á
grundvelli starfsmatsins fyrir ára-
mót. Í fundargerð starfsmats-
nefndar frá 17. desember kemur
fram að búið sé að taka um 300
starfsmannaviðtöl við einstaklinga,
en slík viðtöl eru tekin eftir að bú-
ið er að ljúka við gerð sjálfs starfs-
matskerfisins. Á grundvelli viðtal-
anna er starfsmönnum raðað inn í
nýja kerfið. Í fundargerðinni kem-
ur jafnframt fram að starfsmanna-
viðtöl verði tekin upp að nýju eftir
áramót, „og er gert ráð fyrir að
þeim verði ekki endanlega lokið
fyrr en á öðrum ársfjórðungi
2004.“
Miðað við stöðu málsins í dag er
ljóst að vinnu við starfsmatið verð-
ur tæplega endanlega lokið fyrr en
í fyrsta lagi næsta vor. Þá hefur
vinna við undirbúning málsins
staðið í um fjögur ár.
Launin hafa hækkað um
16,4% frá ársbyrjun 2000
Frá ársbyrjun 2000 til maí 2003
hækkuðu laun félagsmanna í
Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
borgar um 16,4%, en á sama tíma
hækkuðu laun allra félagsmanna í
BSRB um 31,4%. Verulegrar ólgu
er því farið að gæta innan félags-
ins með hvað hægt gengur að
koma launabótum til félagsmanna.
Nokkrir félagsmenn í Starfs-
mannafélaginu hafa ritað félaginu
bréf þar sem óskað er eftir grein-
argerð þar sem fram komi skýr-
ingar á því hvers vegna félagið
hafi ekki mótmælt kröftuglega því
að starfsmats- og hæfnislaunakerfi
sé ekki enn komið til fram-
kvæmda. Jafnframt segir að verði
ekki breyting á muni undirritaðir
félagsmenn óska eftir aðstoð lög-
manns við að koma ákvæðum
kjarasamningsins sem enn hafi
ekki komið til framkvæmda í gildi.
Tekið er fram að eftir atvikum
verði leitað til dómstóla með málið.
Jafnframt kemur fram í bréfinu að
það sé sent án samráðs við Starfs-
mannafélagið.
Borgin að skoða tillögur um
að hraða launabótum
Fulltrúaráð Starfsmannafélags-
ins samþykkti 15. desember sl.
ályktun þar sem þess er krafist að
Reykjavíkurborg standi nú þegar
við gerða kjarasamninga varðandi
hæfnislaun.
Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður
Starfsmannafélagsins, sagðist ekki
getað tjáð sig mikið um þetta bréf
félagsmannanna. Það væri félaginu
óviðkomandi. Hún sagðist hins
vegar geta staðfest að mikil og
vaxandi óánægja væri innan fé-
lagsins með að starfsmatskerfið
skyldi ekki vera komið til fram-
kvæmda. Vinna við kerfið hefði
reynst mun tímafrekari en reiknað
hefði verið með. Félagið væri að
sjálfsögðu mjög óánægt með það,
en félagið hefði hins vegar ekki
ástæðu til að ætla annað en að
borgin ætlaði að taka um starfs-
matskerfi eins og lofað hefði verið.
Sjöfn sagði að félagið hefði
ásamt fulltrúum Eflingar og
Tæknifræðingafélagi Íslands, sem
einnig hafa samið um starfsmat,
rætt við stjórnendur borgarinnar
fyrr í þessum mánuði. Lagðar
hefðu verið fram tillögur um
hvernig mætti bregðast við þeirri
töf sem orðið hefði á framkvæmd
samningsins. Hún sagðist ekki
geta rætt tillögurnar efnislega, en
þær gengju út á að koma kjarabót-
um sem fyrst til félagsmanna.
Óánægju gætir innan Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar með tafir við gerð starfsmatskerfis
Félagsmenn hóta
að leita til dómstóla
Ákvæði kjarasamnings
Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar
um starfsmat, sem átti
að taka gildi 1. desem-
ber í fyrra, mun ekki
koma til framkvæmda
fyrr en á næsta ári.
Félagið hefur krafist
þess að borgin bæti fé-
lagsmönnum þessa töf.
Morgunblaðið/Ómar
Starfsmenn Reykjavíkurborgar telja að of langan tíma hafi tekið að koma
ákvæði kjarasamnings Starfsmannafélagsins um starfsmat í framkvæmd.
Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu
á hreint frábærum kjörum með beinu flugi næsta vor.
Allsstaðar nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar sem
eru á heimavelli á söguslóðum, og bjóða spennandi
kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Njóttu lífsins og
kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og
menningu og einstöku
andrúmslofti og upplifðu
ævintýri næsta vor.
Vorið í
fegurstu borgum
Evrópu
frá kr. 25.550
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Kraká
– Pólland
25. mars
4 nætur
Ein fegursta perla Evrópu, stórkostlega
falleg borg og fegursta borg Póllands.
Hér er ótrúlega heillandi mannlíf innan
um aldagamlar byggingar, kirkjur,
kastala og söfn. Einstakt tækifæri í
beinu flugi til Kraká.
Verð kr. 36.950
Budapest
Apríl - maí
22., 25., 29. apríl
3. maí
Borg sem hefur heillað Íslendinga,
sem nú flykkjast til Budapest, enda
er hún fegurst á vorin og einstök
upplifun að sjá hana í blóma þegar
mannlífið er hvað fegurst á þessum
tíma árs. Glæsileg hótel í hjarta
Budapest.
Verð kr. 28.550
Flugsæti til Budapest, 25. apríl.
Gildir frá sunnudegi til fimmtudags.
Prag
Mars - apríl
Fimmtud. og mánud.
3, 4 eða 7 nætur
Vinsælasti áfangastaður Íslendinga
sem hafa tekið ástfóstri við borgina.
Hún á engan sinn líka og auðvelt að
gleyma sér í þröngum götum sem
geyma aldagamla sögu og fegursta
bæjarstæði Evrópu.
Verð kr. 25.550
Flugsæti til Prag. M.v. brottför 15.
mars, með 8.000 kr. afslætti.
Skattar innifaldir. Gildir frá
mánudegi til fimmtudags.
Barcelona
3. apríl - 4 nætur
21. apríl - 4 nætur -
aukaflug
Töfrandi borg og vinsælasta borg
Spánar. Barrio gotico, gamli hlutinn er
einstakur og stórkostlegur tími til að
kynnast fegurð þessarar tískuborgar
Spánar. Úrvalshótel Heimsferða í
hjarta borgarinnar ásamt spennandi
kynnisferðum með fararstjórum
Heimsferða.
Verð kr. 36.550
Flugsæti til Barcelona með sköttum.
Flugsæti fyrir fullorðinn með
sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu
hótel. Ekki innifalið: Forfallagjald,
kr. 1.800, valkvætt. Ferðir til og frá
flugvelli, kr. 1.800.
Sorrento
- Ítalía
12. maí
6 nætur – beint flug
Einn fegursti staður Ítalíu, sem sló í
gegn síðasta haust með beinu flugi
Heimsferða. Hér kynnist þú Napolí,
Sorrento, Amalfi ströndinni og eyjunni
Capri, ótrúlegri náttúrufegurð og
menningu sem unun er að dvelja í.
Kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferða sem gjörþekkja þessar
slóðir.
Verð frá kr.39.950
Flugsæti til Napolí með sköttum.
Beint flug
ÁTTA þingmenn voru fjarstaddir
lokaatkvæðagreiðslu frumvarps-
ins um eftirlaun æðstu embættis-
manna á Alþingi í síðustu viku.
Fimm þeirra voru á fundum í
Sviss á vegum þingmannanefnd-
ar EFTA.
Það eru þingmennirnir: Össur
Skarphéðinsson, Samfylkingu,
Lúðvík Bergvinsson, Samfylk-
ingu, Gunnar Birgisson, Sjálf-
stæðisflokki, Guðlaugur Þór
Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, og
Birkir J. Jónsson, Framsóknar-
flokki.
Þau þrjú sem einnig voru fjar-
stödd eru: Kolbrún Halldórsdótt-
ir, þingmaður Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, sem var
að flytja erindi á ráðstefnu er-
lendis, Drífa Hjartardóttir, Sjálf-
stæðisflokki, sem var erlendis af
persónulegum ástæðum, og Ein-
ar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðis-
flokki, sem ekki gat sótt þing-
fund af óviðráðanlegum
persónulegum ástæðum.
Umrætt frumvarp var sam-
þykkt á mánudaginn í síðustu
viku og daginn eftir var ítarlega
greint frá því í Morgunblaðinu
hvernig atkvæði féllu.
Þeir sem voru fjarstaddir at-
kvæðagreiðsluna voru taldir upp
en ekki kom fram af hvaða
ástæðum þeir voru fjarverandi.
Lokaatkvæðagreiðsla um eftirlaunafrumvarp
Á fundi í Sviss á vegum EFTA