Morgunblaðið - 24.12.2003, Side 23
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 23
AKUREYRI
Grindavík | Það er alltaf gaman að
fara á jólaball og ekki var annað að
sjá á börnum starfsmanna Vísis h/f
í Grindavík að þau kynnu vel að
meta ballið. Boðið var upp á köku-
hlaðborð með heitu kakói. Krakk-
arnir voru duglegir að dansa kring-
um jólatréð og áður en varði voru
mættir tveir jólasveinar sem döns-
uðu og sungu með börnunum. Þeg-
ar þeir höfðu dansað og sungið
töluvert fóru jólasveinarnir að
skoða í pokana sem þeir höfðu með-
ferðis og allir fengu einn pakka
ásamt nammipoka. Eins og jóla-
sveina er siður á þessum árstíma
gátu þeir ekki stoppað lengi og
kvöddu kát börnin.
Morgunblaðið/Garðar
Óskipt athygli: Jólasveinninn átti athygli barnanna alla þegar hann lagði
þeim lífsreglurnar á jólaballinu.
Jólaball í Vísi
Vilja fresta
framkvæmd-
um í tvö ár
Sandgerði | Minnihluti Framsókn-
arflokks í bæjarstjórn lagði til að
framkvæmdum við nýjan miðbæ yrði
frestað í a.m.k. tvö ár vegna slæmrar
skuldastöðu bæjarfélagsins. Tillögu
um frestun var hafnað við aðra um-
ræðu fjárhagsáætlunar í bæjar-
stjórn í síðustu viku.
Í tillögu B-lista Framsóknarflokks
kemur fram að skuldastaða bæjar-
félagsins sé svo slæm að ekki sé á
bætandi, auk þess sem það veki
furðu að ráðist sé í svo miklar fram-
kvæmdir svo stuttu eftir að þing-
menn kjördæmisins voru boðaðir á
fund til að ræða ástandið í bæjar-
félaginu vegna áfalla sem dunið hafa
yfir undanfarin tvö ár. Í tillögunni
kemur fram að rétt sé að ljúka þeim
framkvæmdum sem eru í gangi áður
en ráðist er í nýjar.
Tillaga um frestun var felld með
atkvæðum meirihlutans.
Heitan mat í skóla
Minnihlutinn lagði einnig til að 5
milljónum króna yrði varið til þess
að veita heitan mat í hádeginu í
grunnskólanum. Meirihlutinn hafn-
aði því á þeirri forsendu að mun
metnaðarfyllri tillaga um máltíðir í
allar stofnanir bæjarfélagsins úr
þjónustueldhúsi væri í tillögum að
nýjum miðbæjarkjarna.
Fjögur tilboð
í sorphirðu
Suðurnes | Tilboð í sorphirðu á Suð-
urnesjum voru opnuð á mánudag og
barst lægsta tilboðið frá Gáma- og
tækjaleigunni á
Fáskrúðsfirði.
Tilboð þeirra
hljómaði upp á
84% af kostnað-
aráætlun,
794.040 kr. fyrir
hverja sorp-
hreinsun, en
kostnaðaráætlun Sorpeyðingar-
stöðvar Suðurnesja hljóðaði upp á
950.000 kr.
Sorphreinsun mun fara fram á 10
daga fresti, um 37 sinnum á ári og
því kostnaður miðað við lægsta til-
boð um 29,4 milljónir á ári. Nú verð-
ur óskað eftir gögnum frá Gáma- og
tækjaleigunni og er ákvörðunar um
hver fær verkið að vænta milli jóla
og nýárs.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið,
næstlægsta tilboðið kom frá Suður-
virki, 88% af kostnaðaráætlun.
Þriðja lægsta tilboðið var frá Njarð-
taki og var það 89% af kostnaðar-
áætlun. Að lokum bauð Íslenska
gámafélagið í verkið og hljómaði til-
boð þess upp á 98% af kostnaðar-
áætlun.
♦ ♦ ♦
Suðurnes | Á dögunum styrktu
Samkaup Mæðrastyrksnefnd Suð-
urnesja með því að gefa nefndinni
svínahamborgarhryggi úr Kjötseli,
en hamborgarhryggjunum verður
útdeilt til fjölskyldna á svæðinu.
Mæðrastyrksnefnd Suðurnesja er
byggð upp af kvenfélögum á svæð-
inu og er nefndin mjög þakklát Sam-
kaupum fyrir gjöfina. Skúli Skúla-
son starfsmannastjóri Samkaupa
sagði við þetta tilefni að hann vildi
þakka konunum fyrir þeirra frábæra
framtak og að hann teldi það alveg
sjálfsagt að Samkaup styrktu nefnd-
ina. „Samkaup eru hluti af samfélag-
inu og við metum störf nefndarinnar
mikils, sérstaklega núna fyrir jólin.“
Samkaup styrkja
Mæðrastyrksnefnd
VERKMENNTASKÓLINN á Ak-
ureyri hefur fengið heimild
menntamálaráðherra, Tómasar
Inga Olrich til að annast að fullu
menntun matreiðslu- og fram-
leiðslumanna.
Unnið hefur verið að því að efla
matvælabraut skólans á síðustu
misserum og var nýtt húsnæði
deildarinnar tekið í notkun á liðnu
ári, en það er forsenda þess að
skólinn geti annast fullmenntun
kokka og þjóna. Þetta kom fram í
máli Hjalta Jóns Sveinssonar
skólameistara VMA við braut-
skráningu frá
skólanum. Hann
sagði námsskrá
matvælanámsins
enn í gerjun, „og
höfum við reynt
að máta okkur
sem allra best
inn í hana til
þess að vera
viðbúin að mæta
ströngustu kröf-
um um gæði
námsins í fram-
tíðinni,“ sagði
Hjalti Jón.
Samningsbundið
nám fyrir kokka
og þjóna fór áð-
ur fram í Hótel-
og veitingaskól-
anum í Reykja-
vík og hin síðari
ár í Mennta-
skólanum í
Kópavogi sem
tók við hlutverki fyrrnefnda skól-
ans og varð kjarnaskóli í mat-
vælagreinum. „Fram að þessu hef-
ur því ekki verið um annað að ræða
hér á Akureyri en undirbúnings-
nám á þessu sviði, sem reyndar
hefur lengst af veitt nemendum
okkar réttindi til að halda áfram á
öðru ári syðra hafi þeir haft áhuga
á að fullmennta sig,“ sagði skóla-
meistari, en að nú eftir mikla bar-
áttu hafi menntamálaráðherra veitt
skólanum heimild til að annast um-
rædda menntun að fullu. Áður hafi
hann ráðfært sig við starfsmenn
ráðuneytis sem skoðuðu aðstæður
og lögðu mat á gæði námsins,
skipulag og hagkvæmni þess.
Vænti skólameistari þess að innan
fárra ára yrðu fyrstu fullmenntuðu
matreiðslu- og framreiðslumenn-
irnir brautskráðir frá skólanum.
Taldi hann að ekki myndi koma til
fækkunar nemenda við Mennta-
skólann í Kópavogi, heldur þvert á
móti myndi nemendum fjölga á
landsvísu. Auk nemenda frá Ak-
ureyri og nágrannabyggðum taldi
Hjalti Jón að nemendur víðs vegar
að af landsbyggðinni myndu sækja
í námið, enda væri góð heimavist-
araðstaða fyrir hendi. „Það gerir
deildina tvímælalaust áhugaverðari
en hingað til að hún skuli geta boð-
ið nemendum upp á heildstætt nám
sem gefur
margvísleg rétt-
indi,“ sagði
skólameistari.
Jafnframt
nefndi hann að
fullmenntuðum
kokkum og
þjónum myndi í
kjölfarið fjölga á
svæðinu og
styrkja þar með
blómlegan veit-
ingahúsarekstur
og ferðaþjón-
ustu sem væri
sívaxandi at-
vinnugrein á
svæðinu. Eins
tryggði námið
að þeir sem í
framtíðinni
brautskrást frá
skólanum væru
líklegri til að
setjast að í
heimabyggð. „Það að geta boðið
upp á fullt nám í greinum af þessu
tagi hefur því gríðarlega þýðingu
fyrir svæðið,“ sagði Hjalti Jón.
Í máli hans kom einnig fram að
menntamálaráðherra hefði einnig
veitt skólanum heimild til að ann-
ast á nýjan leik nám í kjötiðn í
samvinnu við fyrirtæki á staðnum,
en um skeið hafði aðeins Mennta-
skólinn í Kópavogi leyfi til þess.
„Stefnan hefur verið sú að und-
anförnu að allt samningsbundið
nám í matvælagreinum skyldi fara
fram þar. Var þetta hugsað í hag-
ræðingarskyni, en í ljós hefur kom-
ið að það fjölgaði ekkert í náminu
syðra þrátt fyrir þetta, heldur
fækkaði fremur í því á landsvísu,“
sagði skólameistari.
VMA fær heimild til að fullnema mat-
reiðslu-, framreiðslu- og kjötiðnaðarmenn
Gríðarlega
mikilvægt
fyrir svæðið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari
Verkmenntaskólans.