Morgunblaðið - 24.12.2003, Side 52

Morgunblaðið - 24.12.2003, Side 52
DAGBÓK 52 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sylvia kemur í dag Sel- foss fer í dag. Dettifoss og Keilir fara á morgun Hafnarfjarðarhöfn: Michiganborg fer í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. Skrif- stofa s. 551 4349, fax. 552 5277, mataraðstoð kl. 14–17. Fjölskylduhjálpin Eskihlíð 2-4, Fjósinu við Miklatorg. Út- hlutun: fimmtud. kl. 14- 17. Móttaka: miðvikud. kl. 13–15. S. 551 3360, gsm. 897 1016, netfang dalros@islandia.is. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fatamóttaka og fata- úthlutun þriðjudaga kl. 13–18 og fimmtudaga kl. 15–18 sími. 867 7251. Bókatíðindi 2003. Númer miðvikudagsins 24. desember er 017351. Dregin hafa verið eftirtalin númer í Happdrætti Bókatíð- inda 2003: 1. des. 044851, 2. des. 106499. 3. des. 024036, 4. des. 080291, 5. des. 046388, 6. des. 097614, 7. des. 065041, 8. des. 086508, 9. des. 087844, 10. des. 054913, 11. des. 079379, 12. des. 076565, 13. des. 004703, 14. des. 041705, 15. des. 096290, 16. des. 000481, 17. des. 047557, 18. des. 097206, 19. des. 096242, 20. des. 006791, 21. des. 086992, 22. des. 059633, 23. des. 086579, 24. des. 017351. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Þriðjudaginn 30. des. verður farið í jóla- guðþjónustu í boði Elli- málaráðs Reykjavíkur- prófastadæma og Grafarvogskirkju. Lagt af stað kl. 13.10. Greiða þarf fyrir akstur. Skráning í síma 568 5052. Gerðuberg, félags- starf. Opið mánudaginn 29. des. kl. 10–16.30, og þriðjudaginn 30. des. frá 9–16.30, m.a. spila- salur opinn og heitt á könnunni. Óskum öll- um þáttakendum og samstarfsaðilum um land allt, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hvassaleiti 56–58. Fé- lagsstarfið hefst aftur eftir hátíðar föstudag- inn 7. janúar. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Óskum öllum okkar góðu gestum og félögum gleðilegrar jólahátíðar. Norðurbrún 1. Starfs- fólk Norðurbrúnar ósk- ar íbúum og gestum gleðilegrar hátíðar. Vesturgata 7. Starfs- fólk félags- og þjón- ustumiðstöðvarinnar óska gestum og velunn- urum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs, með þökk fyrir árið sem er að líða. Eldri borgarar í Há- teigskirkju. Gleðileg jól og gott nýtt ár, þakka það sem er að líða. Þór- dís þjónustufulltrúi. Minningarkort Minningarkort Minn- ingarsjóðs Maríu Jóns- dóttur flugfreyju eru fáanleg á eftirfarandi stöðum: Á skrifstofu Flugfreyjufélags Ís- lands, s. 561 4307/fax 561 4306, hjá Halldóru Filippusdóttur, s. 557 3333 og Sigurlaugu Halldórsdóttur, s. 552 2526. Minningarkort Minn- ingarsjóðs hjónanna Sigríðar Jakobsdóttur og Jóns Jónssonar á Giljum í Mýrdal við Byggðasafnið í Skóg- um fást á eftirtöldum stöðum: Í Byggðasafn- inu hjá Þórði Tómas- syni, s. 487 8842, í Mýr- dal hjá Eyþóri Ólafs- syni, Skeiðflöt, s. 487 1299, í Reykjavík hjá Frímerkjahúsinu, Laufásvegi 2, s. 551 1814 og hjá Jóni Aðalsteini Jónssyni, Geitastekk 9, s. 557 4977. Minningarkort Félags eldri borgara Selfossi. eru afgreidd á skrif- stofunni Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, s. 482 1134, og verslun- inni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangar- hyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarnafelagid- @landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562 1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551 7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561 5622. Minningakort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555 0383 eða 899 1161. Í dag er miðvikudagur 24. des- ember, 358. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og mig hólpinn leiða inn í sitt himneska ríki. Hon- um sé dýrð um aldir alda! Amen. (Tím. 4, 18.)     Davíð Oddsson for-sætisráðherra líkir reglum á markaðnum við reglur sem gilda í knatt- spyrnu í jólahefti Vís- bendingar. „Ég er áhuga- maður um knattspyrnu þótt ég hafi aldrei verið sérstaklega góður leik- maður sjálfur,“ segir Davíð. „Ég hef séð það þegar ég er að horfa á fótbolta að þar ríkir oft sannkallaður íþróttaandi. En ef þar væri ekki kall með gult og rautt spjald þá myndu þessir gæjar haga sér þannig á vell- inum að það yrði hreint blóðbað, slitnar sinar, brotin hné og hvaðeina. Leikurinn á að fá að fljóta eins eðlilega og mögulegt er.“     Dómarinn gegnir samtveigamiklu hlut- verki. „Ef menn byrja að þjösnast þá er dómarinn með gula og rauða spjaldið kominn, og hvað gerist þá, við sitjum heima að horfa á sjón- varpið og leikurinn er hundleiðinlegur af því að það eru komin tíu gul spjöld og fimm rauð spjöld,“ segir forsætis- ráðherra. „Meira að segja þeir menn sem hafa mest- an áhuga á að horfa á eða spila með verða afhuga leiknum. Nákvæmlega sama reglan á við um markaðinn. Þar þarf að vera dómari með gult og rautt spjald en því minna sem hann þarf að nota þau, af því að menn haga sér betur, því skemmti- legri verður leikurinn og því meiri afrakstur verð- ur af honum okkur öllum til handa.“     Seinna í viðtalinu segirDavíð það rangt, sem haldið hafi verið fram, að hér á landi séu afskipti af fyrirtækjum óvenjumikil. Gætt sé mjög hófs í þeim efnum. „Yfirvöld hafa rannsakað mál nokkurra fyrirtækja og kannski gert það í sumum tilvik- um of gassalega, það má vel vera, en það er miklu oftar og harðar á þessu tekið annars staðar í ver- öldinni. Í Bandaríkjunum eru menn leiddir út í handjárnum ef svo ber undir og dómar eru oft stórir og þungir. Þegar hið nýja mál Kaupþings- Búnaðarbanka kom upp þá var það fyrsta sem menn sögðu að enginn annar forsætisráðherra myndi skipta sér af slík- um málum með þeim hætti sem ég gerði. Þremur dögum seinna kom Göran Persson fram með alveg sömu sjónar- miðin í Svíþjóð og ég hafði haldið fram hér.“     Davíð segist vera þeirr-ar skoðunar að ríkis- valdið eigi ekki að vera að vasast í mörgum hlut- um. „En þar sem það þarf að beita sér þá á það að vera sterkt og kraftmikið og sjá um sína hluti af skörungsskap. Ríkisvald sem er hikstandi og hik- andi er öllum til bölvun- ar. Sama á við um ríkis- vald sem telur sig vera allt til alls.“ STAKSTEINAR Hikandi ríkisvald er öllum til bölvunar Víkverji skrifar... Víkverja barst í hendur eftirfar-andi jólasaga á aðventunni sem sögð var úr ritgerð grunnskólanem- anda: „Sá sem hefur orðið frægastur úr Biblíunni er Jesús. Hann var frá Nazaret í Egyptalandi. Hann fædd- ist á jólanótt í fjósi, vegna þess að öll hótel voru full. Mamma hans hét María og stjúppabbi hans Jósef. Hann var ekki raunverulegur pabbi Jesú, því María var áður gift ein- hverjum Gabríel, en hann var flog- inn í burtu. Þegar Jesús var nýfædd- ur áttu þrír jólaveinar leið fram hjá fjósinu og þegar þeir sáu litla barnið, náðu þeir í nokkrar jólagjafir og reykelsi handa hjónunum, en það veitti sannarlega ekki af þar sem þau höfðu ferðast allan daginn á asna, af því að það átti að telja þau. Jesús var ekki skírður fyrr en seinna, því í þá daga voru börnin ekki skírð fyrr en þau voru orðin fullorðin og höfðu lært að synda, því þau voru nefnilega alveg færð í kaf. Þegar Jesús varð átta ára gaf pabbi hans honum Biblíu, og þegar hann var tólf ára kunni hann hana utan að, og það var vel af sér vikið, því í þá daga var Biblían svo stór að það varð að vefja hana upp á kefli. Hann var líka duglegur að læra sálma. Hann gat galdrað þegar hann var bara smá strákur. Hann var reyndar mesti galdramaður sem uppi hefur verið. Jesús var mjög sérstakur. Hann gekk um og lagði gátur fyrir fólk sem það átti að reyna að leysa, en það tókst sjaldan. Hann gat líka gengið í gegnum vatn og eld, án þess að það kæmi við hann. Hann gat líka gengið á vatninu. Það var á Genez- aretvatni, þar sem hann gekk út að fiskibáti til að kaupa fisk. Pabbi minn segir að það hafi verið ís á vatninu, en hann trúir heldur ekki á Guð og Jesú. Jesús gerði líka mikið fyrir umferðina. Einu sinni þegar hann var á gangi í Jerúsalem, mætti hann lömuðum manni sem lá í rúm- inu sínu úti á miðri götu, Jesús sagði: Tak sæng þína og gakk. Mað- urinn gerði það og þá gátu bílarnir aftur komist leiðar sinnar. Svo var það ekkja sem átti son, en ég bara skil ekki hvernig hún gat átt hann fyrst hún var ekkja. Jesús tók son ekkjunnar í kraftaverkameðferð og við það varð hann vitur, sagði fólk. Eitt af því merkilegasta sem Jes- ús gerði var að stjórna borðhaldinu í eyðimörkinni. Það var þegar þessar 5 þúsund manneskjur stóðu aleinar úti í eyðimörkinni án þess að eiga vott né þurrt. Þá gerði Jesús krafta- verk og allir fóru saddir í rúmið. Jes- ús gat ekki alltaf komið fram í eigin persónu. Stundum var hann dulbú- inn sem hirðir, og einu sinni kom hann fram undir fölsku nafni.“ Víkverji vonar að þessi hugljúfa saga veki okkur til umhugsunar um hátíðarboðskapinn og óskar um leið lesendum sínum gleðilegra jóla. Nú fögnum við fæðingu frelsarans og höldum gleðileg jól. Sporin í sandinum MÉR finnst ég verða að vekja athygli á bókinni hennar Kristínar Snæfells, „Sporin í sandinum“. Krist- ín er ein af Gospelsystrun- um hennar Margrétar Pálmadóttur og kvöld eitt eftir kóræfingu var Kristín með kynningu á bókinni. Þetta var svo áhugaverð kynning að ég endaði með að kaupa bókina og ætlaði að lesa hana um jólin. Kíkti samt aðeins á myndirnar sem ég sá af okkur kór- systrunum. Vissi ekki fyrr en ég var búin að lesa bók- ina alla, svo spennandi var hún. Hún er svo skemmti- lega skrifuð og húmorinn og hlýjan skín í gegnum alla bókina þrátt fyrir allt sem á undan var gengið. Svo er bókin ekki dýr og er það til að sem flestir eigi kost á að eignast hana, en ágóðinn fer til að byggja upp þá sem hafa lent í vanda. Til hamingju með bók- ina, Stína. Sigrún 2. alt. Tapað/fundið Kvenúr týndist LAURA Bi Gotti kvenúr týndist. Úrið er með vín- rauðri skífu og ól. Skilvís finnandi hafi samband í síma 551 2267. Dýrahald Hefur einhver séð Freyju? FREYJA hefur ennþá ekki fundist. Hún týndist frá heimili sínu á Kristnibraut í Grafarholti 17 des. sl. Freyja er innikisa og var ómerkt þegar hún týndist. Hún ratar því ekki um hverfið og þarf hjálp til að komast heim til sín. Freyja er bröndótt og fíngerð læða. Hún er vör um sig innan um ókunnuga en er mjög blíð. Freyja gæti hafa leitað skjóls í geymslum einhvers staðar og er fólk beðið um að svipast um eft- ir henni. Ef einhver hefur séð Freyju þá vinsamlegast hafið samband í síma 567 0733 eða 823 8629. Týndur köttur SKJÖLDUR er búinn að vera týndur í vesturbæ síð- an sl. miðvikudag. Hann er svartur og hvítur, loðinn norskur skógarköttur. Hann er eyrnamerktur og með gula ól. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar hann er vinsamlega hafi samband í síma 660 8793 eða 661 4186. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Velvakandi óskar lands- mönnum gleðilegra jóla. LÁRÉTT 1 flysjung, 8 góna, 9 sjaldgæf, 10 skortur á festu, 11 snjódyngja, 13 ákveð, 15 háðsglósur, 18 vangi, 21 spil, 22 héldu, 23 þvaðra, 24 liggur í makindum. LÓÐRÉTT 2 drepsótt, 3 dögg, 4 hegna, 5 félagar, 6 ótta, 7 hugarfarið, 12 mjó, 14 ill- menni, 15 spilkomma, 16 mannsnafn, 17 lág vexti, 18 strengjahljóðfæri, 19 fiskinn, 20 svelgurinn. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 sveia, 4 borða, 7 rifja, 8 rófan, 9 léð, 11 kort, 13 ónar, 14 ýring, 15 fjör, 17 nafn, 20 ung, 22 liðin, 23 logið, 24 signa, 25 súrar. Lóðrétt: 1 strák, 2 elfur, 3 aðal, 4 borð, 5 rifan, 6 arnar, 10 étinn, 12 Týr, 13 ógn, 15 felds, 16 örðug, 18 argur, 19 náðir, 20 unna, 21 glys. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.