Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 54

Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 54
ÍÞRÓTTIR 54 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVALSDEILDARLIÐ KR í körfu- knattleik karla hefur náð samkomulagi við Bandaríkjamanninn Trevor Dicks um að hann leiki með vesturbæjarliðinu þegar keppni í úrvalsdeildinni hefst á ný 4. janúar. Þetta hefur Morgunblaðið eft- ir heimildum, en frá málinu mun hafa verið gengið í gærkvöldi. Dicks, sem er skotbakvörður, kemur í stað Chris Woods en hann var leystur undan samningi við KR-liðið um síðustu helgi þegar hlé var gert á deildarkeppn- inni vegna jólaleyfa en Woods hafði leik- ið með KR í fyrstu ellefu umferðum úr- valsdeildarinnar og gert að jafnaði 24,5 stig í leik. Standi Dicks undir vonum þá verður fyrsti leikur hans með liðinu gegn Breiðabliki í 12. umferð úrvalsdeild- arinnar í Smáranum. Dicks til KR-inga REIKNAÐ er með að um 17 þúsund áhorfendur mæti í íþróttahöllina Kölnarena í þýsku borginni Köln á laug- ardaginn. Þá leikur Gummersbach þar gegn HSV Hamburg í 1. deildarkeppninni í handknattleik og í gær höfðu þegar verið seldir yfir 16 þúsund miðar á leikinn. Gummersbach hefur af og til leikið heimaleiki sína í Köln og gerir það nú í fyrsta skipti á þessu tímabili. Þetta verður áhorfendamet í þýsku 1. deildinni í vetur en nær þó varla metinu í deildinni. Það var sett í fyrra þegar Gummersbach tók á móti Kiel í þessari sömu höll en þá mættu 18.576 manns á leikinn. Gummersbach mun leika þrjá leiki til viðbótar í Kölnarena í vetur, heimaleiki sína gegn Flensburg, Magdeburg og Göppingen. Gummersbach er frá samnefndum bæ í nágrenni Kölnar og heimavöllur félagsins, Eugen-Haas-höllin, rúmar aðeins 2.100 áhorfendur. Meðalaðsókn á þá 14 leiki sem félagið hefur spilað í Kölnarena er aftur á móti um 14 þúsund. 17 þúsund áhorf- endur í Köln FRAMMISTAÐA bandaríska markvarðarins Tims Howards með Englandsmeisturum Manchester United á leiktíðinni hefur komið mögum á órvart og ekki síst knattspyrnustjóranum Sir Alex Ferguson. Ferguson segir að frammistaða How- ards hafi farið fram úr sínum björtustu vonum og snilli hans á milli stanganna sé helsta ástæða þess að hans menn tróni á toppi ensku úrvalsdeildar- innar. „Howard hefur tekið gríðarlegum fram- förum frá því hann kom til okkar. Hann verður betri og betri með hverjum leiknum og ég á varla til orð til að lýsa yfir ánægju minni með hann,“ segir Ferguson Howard hefur leikið alla 17 leiki Manchester United í úrvalseildinni síðan hann gekk í raðir fé- lagsins frá New York Metrostars í júlí og honum hefur tekist að halda marki sínu hreinu í 13 af þeim 22 leikjum sem hann hefur spilað með Unit- ed á leiktíðinni. Howard hefur fengið fæst mörk á sig sig allra markvarða í deildinni, 11 talins. Howard hefur komið á óvart  ROBERTO Carlos, Brasilíumað- urinn knái í liði Real Madrid, sest niður með forráðamönnum Madrid- arliðsins á næstunni og gengur frá nýjum fjögurra ára samningi við fé- lagið. Carlos er samningsbundinn Real Madrid til ársins 2005 en þrátt fyrir gylliboð frá öðrum félögum segist hann ekki vilja vera hjá neinu öðru liði en Real Madrid.  ÁSTRALINN Harry Kewell kem- ur inn í lið Liverpool á nýjan leik þegar liðið tekur á móti Bolton í ensku úrvalsdeildinni á öðrum degi jóla. Kewell hefur verið frá vegna meiðsla í undanförnum leikjum en Liverpool hefur aðeins nælt sér í tvö sig í síðustu fimm leikjum. Michael Owen er hins vegar enn frá vegna meiðsla svo og Steve Finnan, Jamie Carragher og Milan Baros.  LUCAS Radebe, s-afríski varnar- maðurinn hjá Leeds, verður frá æf- ingum og keppni næstu tvo mánuð- ina en hann tognaði illa aftan í læri í leik Leeds á móti Manchester City í fyrrakvöld.  ÚTLIT er fyrir að Damien Duff, hinn snjalli írski kantmaður hjá enska knattspyrnufélaginu Chelsea, leiki ekki með liðinu næstu sex vik- urnar. Duff fór úr axlarlið í leik gegn Fulham um síðustu helgi og nú blas- ir við að hann þurfi að fara í aðgerð á öxlinni. Þetta er áfall fyrir Chelsea, þrátt fyrir mikla breidd í leikmanna- hópi félagsins, því Duff hefur leikið geysilega vel með liðinu í vetur. FÓLK KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslit í fyrrinótt: Philadelphia - Orlando ......................... 95:73 Denver - Memphis.............................. 106:99 Chicago - Utah...................................... 80:92 Staðan (sigrar/töp): Atlantshafsriðill: New Jersey 13/13, Bost- on 14/14, Philadelphia 13/14, Miami 10/17, New York 10/18, Washington 8/17, Orlando 7/21. Miðriðill: Indiana 20/8, New Orleans 18/10, Detroit 16/11, Toronto 14/13, Milwaukee 13/14, Cleveland 8/19, Chicago 7/18, Atl- anta 7/22. Miðvesturriðill: San Antonio 19/10, Minne- sota 17/9, Denver 16/11, Memphis 15/11, Dallas 15/11, Houston 15/11, Utah 14/13. Kyrrahafsriðill: LA Lakers 20/5, Sacra- mento 19/6, Seattle 12/13, Golden State 12/ 13, Portland 12/13, LA Clippers 11/12, Phoenix 10/18. HANDKNATTLEIKUR Þýskaland Nordhorn - Magdeburg ........................32:35 Staða efstu liða: Flensburg 17 14 2 1 546:447 30 Magdeburg 17 13 1 3 517:437 27 Lemgo 17 12 2 3 557:476 26 Kiel 17 12 2 3 525:450 26 Hamburg 17 13 0 4 480:427 26 Gummersb. 17 10 1 6 471:440 21 ÚRSLIT N ú þegar keppnistímabil- ið í efstu deild karla er hálfnað hafa liðin náð að átta sig betur á þessu nýja kerfi en vissulega vakna margar spurningar um hvort þetta fyrirkomulag sé íslenskum körfuknattleiksmönnum til fram- dráttar. Alls hafa 30 erlendir leikmenn komið við sögu hjá úrvalsdeildarlið- unum 12 það sem af er leiktíð. Tveir Bandaríkjamenn með íslenskt rík- isfang eru fyrir utan þann hóp en vissulega má enn líta á þá sem er- lenda leikmenn enda er um að ræða atvinnumenn í faginu; þá Brenton Birmingham hjá Njarðvík og Kevin Grandberg hjá ÍR. Nýju reglurnar hafa hins vegar ekki fjölgaði erlendum leikmönnum í íslenskum liðum, enn sem komið er, sé miðað við síðasta keppnis- tímabil. Í fyrra komu 32 erlendir leikmenn við sögu hjá íslensku lið- unum. Sum lið notuðu allt að fimm leikmenn á meðan önnur notuðu að- eins einn erlendann leikmann alla leiktíðina. Það sem af er leiktíðinni hafa níu erlendir leikmenn farið frá liðum sínum eftir að samningi þeirra hafði verið rift. Samkvæmt hefðinni var flestum þeirra sagt upp störfum nú í desember, um leið og þeir fóru til síns heima í jólafrí. Skörð þeirra verða án efa fyllt á nýju ári með nýj- um erlendum leikmönnum. Einokun erlendra leikmanna Þegar litið er á tölfræðina það sem af er vetri er aðeins einn ís- lenskur leikmaður sem kemst á lista yfir 20 stigahæstu að meðaltali í leik. Fyrirliði Grindvíkinga, Páll Axel Vilbergsson, er þar í 11. sæti með 23,3 stig að meðaltali í 11 leikjum í Intersport-deildinni. Fimm íslensk- ir leikmenn eru í hópi þeirra sem eru í 20.–30. sæti yfir stigahæstu leikmenn landsins og af 40 stiga- hæstu eru alls 12 íslenskir leikmenn þar á lista. Allt frá því að erlendir leikmenn fóru að leika reglulega með íslensk- um liðum hafa þeir ávallt verið í efstu sætum á lista yfir stigahæstu leikmenn Íslandsmótsins. John Hudson skoraði 30,3 stig að með- atali í 19 leikjum með KR tímabilið 1978–79. Annar KR-ingur, Steward Johnson var stigahæstur tímabilið 1982–1983 með 38,2 stig í leik en í kjölfarið var íslenskum liðum bann- að að hafa erlenda leikmenn á sínum snærum allt fram til ársins 1989. Guðjón Skúlason var í fjórða sæti á lista yfir stigahæstu leikmenn Ís- landsmótsins tímabilið 1989–90, með 25,8 stig að meðaltali í leik og á lista yfir tíu stigahæstu voru þrír ís- lenskir leikmenn, Guðjón í því fjórða, Valur Ingimundarson í því sjötta með 22,8 stig og Guðmundur Bragason með 22,7 stig. Næstu árin þar á var ávallt að finna fjóra til fimm íslenska lands- liðsmenn í hópi tíu stigahæstu leik- manna landsins og tímabilið 1994– 1995 var Kristinn G. Friðriksson í þriðja sæti á þessum lista með 27,1 stig að meðaltali og Herbert Arn- arson í því fjórða með 26,9 stig. Keppnistímabilið 1995–1997 var aðeins einn íslenskur leikmaður á lista yfir tíu stigahæstu leikmenn landsins, tímabilið 1997–1998 voru aðeins erlendir leikmenn í tíu efstu sætunum á þessum lista og sömu sögu er að segja allt fram til tíma- bilsins 2001–2002 er Helgi Jónas Guðfinnsson var í tíunda sæti með 21,4 stig að meðaltali. 6 milljónir á mánuði Ef aðeins er tekið mið af einum tölfræðiþætti, stigaskori, er ljóst að íslenskir leikmenn hafa ekki náð að slá erlendum leikmönnum við á þessu sviði undanfarin ár. Með fjölgun erlendra leikmanna er ljóst að þeir láta mikið að sér kveða á þessu sviði leiksins. Það má velta því fyrir sér hvort fjöldi erlendra leikmanna hefur yfir höfuð jákvæð áhrif á körfuknatt- leiksíþróttina. Áhorfendatölur virðast ekki vera í línulegu samhengi miðað við þá fjár- hagslegu skuldbindingu sem ráðist er í á hverjum vetri. Ef öll liðin 12 eru við efri mörk launaþaksins fara 6 milljónir króna í launatengdar greiðslur frá liðunum í hverjum mánuði eða 42 milljónir alls á meðan keppnistímabilið stendur yfir. Að auki leggst til ferðakostnaður og ýmislegt annað sem tilheyrir slíkum rekstri. Ef litið er yfir leikmannahóp lið- anna 12 í efstu deild er ljóst að flest- ir erlendir leikmenn eru í röðum liða utan af landi. KFÍ er með þrjá, Tindastóll þrjá, Þór Þorlákshöfn var með þrjá í upphafi leiktíðar. Breiða- blik er með þrjá erlenda leikmenn í sínum röðum og ÍR-ingar eru einnig með þrjá erlenda leikmenn ef Kevin Grandberg er talinn með. Önnur lið eru með tvo erlenda leikmenn í sín- um röðum. Þar sem að kostnaðurinn við er- lendu leikmennina er mikill þarf starf þeirra sem stýra körfuknatt- leiksdeildum víða um land að vera öflugt hvað varðar að ná í fjármagn til reksturs deildanna. Það eru göm- ul sannindi og ný að þeir sem taka að sér að sitja í stjórn íþróttafélaga gera lítið annað en að afla fjár til reksturs deildanna. Minni tími gefst til þess að vinna með umgjörð leikj- anna sem oft á tíðum er ekkert ann- að tónlist úr hljóðkerfi fyrir leik, tveir gráklæddir dómarar og tíu leikmenn. Norðmenn í vanda Í Noregi var gerð mikil breyting á efstu deild karla í upphafi tímabils- ins 1999–2000 þar sem að stofnuð var sérstök „ofurdeild“ þar sem að- eins átta liðum var boðið að vera með. Og aðeins þau lið sem stóðust kröfur um ýmsa hluti áttu mögu- leika á því að komast þar inn. Þar má nefna að gerð var sú krafa að tveir leikmenn liðsins yrðu að vera atvinnumenn, (nánast öll liðin völdu þann kostinn að hafa tvo bandaríska Forráðamenn íslenskra körfuknattleiks- félaga tóku þá ákvörðun á ársþingi Körfu- knattleikssambands Íslands, KKÍ, sl. vor að leyfa liðum í efstu deild að fá til sín eins marga erlenda leikmenn og þau vildu. Að því gefnu að kostnaður við komu þeirra rúmaðist undir svokölluðu launaþaki, sem er eins og staðan er í dag 500.000 kr. á mán- uði. Margar spurningar hafa vaknað um hvort þetta fyrirkomulag sé íslenskum körfuknattleiksmönnum til framdráttar og Sigurður Elvar Þórólfsson velti fyrir sér stöðu mála í efstu deild karla. Það má velta því fyrir sér hvort fjöldi erlendra leikmanna hefur yfir höfuð jákvæð áhrif á körfuknattleiksíþróttina? Hlynur Bæringsson úr liði Snæfells – undir körfunni. Skammgóður vermir?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.