Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 55

Morgunblaðið - 24.12.2003, Síða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 2003 55 CÉSAR Argilés, landsliðsþjálfari Spánverja í handknattleik hefur valið sextán manna hóp fyrir Evr- ópumótið sem hefst í Slóveníu í næsta mánuði. Eins og alltaf þá tefla Spánverjar að mestu fram leikmönnum sem leika á Spáni. 13 af leikmönnum 16 leika með spænskum félagsliðum og koma flestir frá Barcelona, fimm talsins, fjórir frá Ciudad Real, liði Ólafs Stefánssonar, og Ademar Leon á þrjá fulltrúa í hópnum. At- hylgi vekur að Talant Dushjabaev, félagi Ólafs hjá Ciudad Real, sem hefur um árabil verið í hópi bestu handboltamanna heims er ekki í hópnum. Spánverjar eru í B-riðli á Evrópumótinu sem þykir mjög sterkur en ásamt Spánverjum leika í riðlinum, Portúgalir, Danir og heimsmeistarar Króata. Spænski hópurinn er skipaður David Barru- fet (Barcelona) og Jose Javier Hombrados (Ciudad Real), mark- verðir. Aðrir leikmenn eru: Jesus Fernández (Minden), Rául Entrer- íos (Ademar Leon), Ion Belaustegui (Hamborg), Mariano Ortega (Ciu- dad Real), Demetrio Lozano (Kiel), Alberto Entrerríos (Ciudad Real), Iker Romero (Barcelona), Juanín García (Ademar Leon), Carlos Prieto (Ciudad Real), Xavier O’Callaghan (Barcelona), Fernando Hernández (Barcelona), Rúben Garabaya (Valladolid), Manuel Col- ón (Ademar Leon), Antonio Ortega (Barcelona). Fimm Börsungar í EM hópi Spánverja SIGFÚS Sigurðsson fór á kostum í liði Magdeburg þegar það lagði Nordhorn, 35:32, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld, en leikið var á heimavelli Nord- horn. Staðan í hálfleik var 18:17, Magdeburg í vil. Sig- fús skoraði sjö mörk af lín- unni og var að vanda fastur fyrir í vörn Magdeburg sem vann þarna sinn fyrsta sigur í Nordhorn í deildarkeppni og komst um leið upp í ann- að sæti deildarinnar. Magde- burg hefur nú 27 stig eftir 17 leiki og er þremur stigum á eftir Flensburg sem er efst. Meistarar Lemgo, Kiel og Hamborg eru einu stigi á eftir Magdeburg í þriðja til fimmta sæti en þessi fimm lið skera sig nokkuð úr í kapphlaupinu um þýska meistaratitilinn. Nordhorn hefur nokkuð misst flugið upp á síðkasti eftir að hafa byrjað vel í haust, er nú í 9. sæti. Stór- leikur Sigfúsar  ÞORVALDUR Már Guðmunds- son, knattspyrnumaður úr Aftur- eldingu, er genginn til liðs við úr- valsdeildarlið Víkings. Þorvaldur er 26 ára sóknarmaður og varð marka- kóngur 1. deildar 2002 með 12 mörk. Síðasta sumar gerði hann þrjú mörk fyrir Mosfellinga í deildinni og var annar markahæsti leikmaður þeirra.  SAMKVÆMT vikingur.net gerðu Víkingar þriggja mánaða reynslu- samning við Þorvald og hann fær tækifæri til að sanna sig með liðinu í deildabikarnum.  JAKOB Sigurðsson, körfuknatt- leiksmaður, gerði 13 stig og lék mest allra leikmanna Birmingham- Southern háskólans í Bandaríkjun- um þegar lið skólans vann Sav- annah State 81:76 á útivelli.  DRAGAN Skrbic línumaðurinn öflugi í liði Barcelona fingurbrotn- aði í leik Börsunga gegn ungverska liðinu Fotex Vesprém um nýliðna helgi í Meistaradeildinni í hand- knattleik. Skrbic, sem af mörgum er talinn fremsti línumaður heims, verður frá æfingum og keppni næstu sex vikurnar og þar með þyk- ir nokkuð ljóst að hann leikur ekki með Serbíu/Svartfjallandi á Evr- ópumeistaramótinu í Slóveníu sem hefst 22. janúar.  KJETIL Strand, norskur lands- liðsmaður í handknattleik, gengur til liðs við þýska liðið Flensburg fyr- ir næstu leiktíð frá norska liðinu Viking Stavanger. Strand er 24 ára gamall leikmaður sem á dögunum var valinn handboltamaður ársins í Noregi í ár  DJIBRIL Cisse, framherji Aux- erre og franska landsliðsins, hefur lýst yfir eindregnum áhuga á að ganga til liðs við Liverpool í næsta mánuði þegar opnað verður fyrir kaup og sölu á knattspyrnumönnum í Evrópu.  HOLLENSKI knattspyrnumaður- inn Marc Overmars, sem er í her- búðum Barcelona, er efstur á óska- lista Gerard Houlliers knattspyrnu- stjóra Liverpool. Börsungar hafa ljáð máls á því að láta Overmars fara til Liverpool en hafa sett skil- yrði að fá norska lansdsliðsmanninn John Arne Riise í staðinn.  RADOSTIN Kishishev, félagi Hermanns Hreiðarssonar hjá Charlton, hefur gefið kost á sér á ný í landslið Búlgaríu í knattspyrnu, hálfu ári eftir að hann tilkynnti að hann hefði spilað sinn síðasta lands- leik. Kishishev, sem er 29 ára og á 49 ára landsleiki að baki, er spennt- ur fyrir því að leika með Búlgörum í lokakeppni Evrópumótsins í Portú- gal. Búlgarar eru síðan með Íslend- ingum í riðli í undankeppni HM og þar gæti hann mætt Hermanni, samherja sínum. FÓLK leikmenn í sínum röðum), liðin áttu að bjóða áhorfendum upp á skemmtiatriði fyrir leik, í leikhléum og þegar færi gafst á slíku, fjárhag- ur liðanna varða að vera skotheldur og aðeins þau lið sem náðu að fá lág- marksfjölda áhorfenda á leiki sína máttu eiga von á því að fá inni í deildinni að ári. Ekkert lið féll með formlegum hætti og að lokinni deildakeppni tók við úrslitakeppni efstu liðanna. Sá sem þetta ritar bjó í Noregi á þessum tíma og í fyrstu var mikið um dýrðir og áhorfendur flykktust á leikina. Frá þeim tíma hefur „bólan“ aðeins hjaðnað en körfuknattleiks- íþróttina er komin úr kjallaranum í Noregi og upp á yfirborðið sem spennandi valmöguleiki fyrir þá sem hafa áhuga á slíku. Hins vegar voru þeir aðilar sem sáu um framgang norska körfu- knattleikslandsliðsins ekki eins sátt- ir við að norskir leikmenn væru að mestu í aukahlutverki hjá flestum liðum landsins. Tveir Bandaríkja- menn voru í röðum flestra liða og að auki voru leikmenn frá Svíþjóð, fyrrum Júgóslavíu, Eystrarsalts- löndunum og víðar að finna í leik- mannahópum norsku liðanna. Eftir nokkuð þref var sú regla tekin upp í „ofurdeildinni“ að ávallt yrðu tveir alnorskir leikmenn að vera inni á á sama tíma í leikjunum. En þessi regla var tekin fyrir hjá Evrópu- sambandinu og á þeim bænum var úrskurðað að ekki væri leyfilegt að hafa slíkar reglur í gangi hjá norsk- um körfuknattleiksliðum. Ef sami háttur verður á næstu misseri í úrvalsdeild karla er fyr- irséð að erlendir leikmenn munu leika stærstu hlutverkin hjá sínum liðum. Kannski verður það sama uppá teningnum og hinn 4. desem- ber sl. er Tindastóll lagði ÍR á úti- velli í framlengdum leik, 102:96. En þrír Bandaríkjamenn í liði Tindastól skoruðu 83,2 % stiga liðsins í þeim leik, þrír leikmenn liðsins skiptu hinum 18 stigum leiksins á milli sín. Jón Arnór Stefánsson hjá Dallas Mavericks, Logi Gunnarsson hjá Giessen 46’ers eru fremstir í flokki íslenskra atvinnumanna á erlendri grund. Fjölmargir íslenskir leik- menn eru í skólum vestanhafs, og má þar nefna Jakob Sigurðarson, Fannar Ólafsson og Helga Magn- ússon. Óðinn Ásgeirsson leikur í efstu deild í Noregi og hinn 16 ára gamli bakvörður Pavel Ermolinskij er samningsbundinn franska úrvals- deildarliðinu Vichy. En það má velta þeirri spurningu upp hvort slíkir leikmenn verði til staðar á Íslandi í framtíðinni ef erlendir leikmenn verða allsráðandi í flestum liðum deildarinnar. Verður uppistaðan í ís- lenska landsliðinu baráttuglaðir „ruslakallar“ sem hafa ekki átt öðru að venjast en að hirða „afgangs- mola“ sem hrökkva af borðum þeirra erlendu í leikjum liðsins. Að- eins örfáir íslenskir leikmenn eru fyrsti valkostur er kemur að sókn- arleiknum. Pál Axel Vilbergsson og Helga Jónas Guðfinnsson úr Grindavík að auki má nefna þá Eirík Önundarson ÍR, Svavar Birgisson fyrrum leikmann Þórs frá Þorláks- höfn, Pálma Frey Sigurgeirsson Breiðablik, Friðrik Stefánsson Njarðvík og Kristin Friðriksson úr liði Tindastóls. Af 60 byrjunarliðsstöðum hjá lið- unum 12 þarf að að koma að 32 er- lendum leikmönnum, aðeins 28 ís- lenskir leikmenn eru því í byrjunarliði að öllu jöfnu og hefur þeim farið fækkandi undanfarin misseri. Á að banna erlenda leikmenn? Valur Ingimundarson, þjálfari körfuknattleiksliðs Skallagríms úr Borgarnesi, er einn leikreyndasti leikmaður og þjálfari sem Íslend- ingar hafa átt. Í viðtali við Morg- unblaðið hinn 17. febrúar sl. sagði Valur að hans mati væri ábyrgð ís- lenskra leikmanna undanfarin miss- eri ekki mikil hjá sínum liðum. „Mér finnst að íslenskir leikmenn þurfi að taka meiri ábyrgð í sínum liðum. Ég naut góðs af því sjálfur að spila í úr- valsdeildinni í sjö ár þar sem útlend- ingar voru bannaðir. Á þeim tíma þurfti maður að taka af skarið og taka afleiðingunum, Teitur Örlygs- son, Guðjón Skúlason og Jón Kr. Gíslason nutu einnig góðs af þessu banni á sínum tíma,“ sagði Valur í því viðtali. Þeir sem mæla með erlendum leikmönnum segja margir að þeir lyfti gæðum íslenskra leikmanna á æfingum í keppni. Það má vel vera en aðrir segja að þeir séu of margir og haldi íslenskum leikmönnum fyr- ir utan liðið og hefti eðlilegar fram- farir leikmanna sem annars væru að leika mikið með liðum sínum. Kvennalið landsins hafa farið var- lega í þessum efnum enda hafa kvennalið ekki haft eins greiðan að- gang að fjármagni til þess að fá til sín erlenda leikmenn. Sex lið skipa efstu deild kvenna og aðeins þrjú þeirra hafa erlenda leikmenn í sín- um röðum, ÍR, Njarðvík og KR. ÍS er þar í efsta sæti og Keflavík fylgir þar fast á eftir, en bæði liðin eru án erlends leikmanns. Sem stendur en oftar en ekki hafa liðin fengið liðsstyrk fyrir lokaátökin í úrslitakeppninni. Neðsta liðið Grindavík er ekki með erlendan leikmann á sínum snærum og í víðu samhengi er sú ákvörðun liðsins að mínu mati skynsamleg. Ungir leik- menn fá að axla ábyrgð, mótlætið er mikið en reynslan ómetanleg. Eins og áður segir er áhorfenda- fjöldi á leikjum í efstu deild karla í engu samræmi við þann kostnað sem liðin leggja út í á hverju ári. Vissulega eru margir af þeim er- lendu leikmönnum sem hér leika mjög spennandi en fólk flykkist ekki á leikina til þess að sjá tilþrif þeirra. Hvað sem því veldur. Keppnisfyr- irkomulið hefur verið umdeilt og má þar nefna að ellefu leikja sigur- ganga Grindvíkinga á leiktíðinni skilar liðinu aðeins heimaleikjarétti í úrslitakeppni haldi þeir áfram á sömu braut. Deildarmeistaratitill er beiskur á bragðið ef Íslandsmeist- aratitill fylgir ekki í kjölfarið. Morgunblaðið/Sverrir Guðmundur Jónsson er einn af framtíðarmönnum Njarðvíkurliðsins og hér skorar hann gegn Haukum fyrr í vetur. seth@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.