Morgunblaðið - 31.12.2003, Síða 24
SUÐURNES
24 MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Siglufjörður | Skömmu fyrir jól
varð svokölluð Bátaskemma, sem
verið er að byggja í Siglufirði, fok-
held. Bátaskemman er 1.050 fer-
metrar að grunnfleti og mesta hæð
um 14 metrar. Hún mun í framtíð-
inni hýsa nokkra báta sem eru sýn-
ingargripir Síldarminjasafnsins í
Siglufirði. Burðarvirki hússins er
límtrésgrind og það rís á svæði
Síldarminjasafnsins undir bökkun-
um í bænum. Grunnur undir þetta
mikla hús var byggður sumarið
2001 en árið 2002 var komið fyrir á
grunninum tveimur stærstu bátun-
um sem í húsinu verða. Í sumar var
svo ráðist í byggingu á sjálfu hús-
inu og náðist að loka því um miðjan
desember. Talsverð vinna er þó eft-
ir utanhúss, m.a. að setja járn á
þakið og klæða allt húsið utan. Því
á samkvæmt áætlun að skila fullfrá-
gengnu utandyra 20 maí nk. Það er
Byggingafélagið Berg hf. í Siglu-
firði sem er verktaki við byggingu
Bátaskemmunnar.
Að sögn Örlygs Kristfinnssonar,
safnstjóra Síldarminjasafnsins, er í
rauninni allt tilbúið til að hefjast
handa við vinnu inni í húsinu eftir
áramótin nema hvað fjármagn til
þess, um 15 milljónir króna, vantar.
Sú vinna felst í smíði bryggjupalla
umhverfis bátana, uppsetningu raf-
búnaðar og margskonar aðstöðu
fyrir sýningargesti því þarna er
stefnt á að hafa fjölbreyttar sýn-
ingar. Sú umfangsmesta verður
sjálf hafnarsýningin þar sem marg-
ir bátar liggja við bryggjur, brygg-
juskúrar verða á svæðinu og hafn-
arstemmningin frá síldarárunum
verður endursköpuð eins og kostur
er.
Örlygur sagði að stjórnendur
safnsins hefðu vissulega vonast til
að hægt yrði að ljúka við Báta-
skemmuna fyrir síldarhátíðina sem
halda á næsta sumar í tilefni þess
að árið 2004 verða hundrað ár liðin
frá því Norðmenn byrjuðu síldveið-
ar hér við land. Það væri ekkert
útilokað enn í því efni. „Oft hafa
gerst óvæntir og skemmtilegir hlut-
ir hvað fjármuni til uppbyggingar
safnsins á liðnum árum varðar og
við höfum notið mikils velvilja svo
margra manna og svo víða í þjóð-
félaginu og vissulega vonumst við
til að svo verði áfram,“ sagði Örlyg-
ur safnstjóri. Þess má að lokum
geta að alls verða átta bátar í Báta-
skemmunni. Sá stærsti, Týr, var 38
tonna reknetabátur á sínum tíma
en tveir þeir minnstu eru aðeins
smájullur.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Bátaskemman er mikið hús og mun setja svip á svæði Síldarminjasafnsins.
Bátaskemman fokheld
Vestmannaeyjar | Sparisjóður
Vestmannaeyja afhenti sinn árlega
styrk úr styrktar- og menning-
arsjóði sínum á Þorláksmessu.
Sjóðurinn var stofnaður til minn-
ingar um Þorstein Þ. Víglundsson,
fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Í ár
fengu fimm félög styrk, Leik-
fangasafn Vestmannaeyja var
styrkt en það varð tíu ára á árinu
og flutti í nýtt húsnæði. Athvarfið
er til húsa á sama stað og Leik-
fangasafnið í Þórsheimilinu og
hlaut einnig styrk. Skjalasafn Vest-
mannaeayja fékk styrk sem ætl-
aður er til skráningar, frágangs og
flokkunar á skjalsafni Þorsteins Þ.
Víglundssonar, eins af stofnendum
Sparisjóðsins. Þá hlaut Fræðslu- og
símenntunarmiðstöð Vest-
mannaeyja, VISKA, sem var komið
á laggirnar í upphafi árs, styrk. Að
lokum fengu Gísli Helgason og
Ingi Gunnar Jóhannsson styrk en
þeir áforma að safna saman og
gefa út efni eftir Ástgeir Ólafsson
sem ætíð var nefndur Ási í Bæ. Er
það gert í tilefni þess að hinn 27.
febrúar nk. eru liðin 90 ár frá fæð-
ingu hans.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Þór Vilhjálmsson stjórnarformaður Sparisjóðsins, Páll Helgason sem tók
við styrknum fyrir hönd bróður síns, Gísla, Bergþóra Þórhallsdóttir for-
stöðukona VISKU, Jóna Björg Guðmundsdóttir safnvörður Héraðs-
skjalasafnsins, Jóna Ólafsdóttir forstöðukona Athvarfsins, Guðbjörg Guð-
mundsdóttir frá Leikfangasafninu og Ólafur Elísson sparisjóðsstjóri.
Sparisjóður Vestmanna-
eyja afhendir styrk
Sandgerði | Níu stærri fiskiskip
voru í Sandgerðishöfn um hátíð-
irnar. Voru þau öll fagurlega
skreytt og þótt ekki sé mikill kvóti
eftir í bænum telja Sandgerðingar
að þar hafi verið einna fallegustu
skipaskreytingarnar að þessu sinni.
Var því jólastemmning yfir höfn-
inni.
Skip Nesfisks hf. í Garði eru gerð
út frá Sandgerði og voru þau öll vel
skreytt, eins og venjulega um jól.
Að þessu sinni voru einnig skreyt-
ingar á skipum annarra útgerða
auk þess sem einstaka smábátur
skartaði jólaljósum. Skipin eru flest
enn inni og verða væntanlega fram
yfir áramót.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Jólastemmning í höfninni
Garður | Gert er ráð fyrir því í
drögum að fjárhagsáætlun Gerða-
hrepps fyrir komandi ár að samn-
ingar takist um sölu á vatnsveitu
hreppsins til Hitaveitu Suðurnesja
á næsta ári og fyrir hana fáist 50
milljónir kr. Hitaveitan hefur lýst
sig reiðubúna til viðræðna um
kaup á vatnsveitum sveitarfélag-
anna en viðræður eru ekki hafnar.
Fjárhagsáætlun Gerðahrepps
fyrir næsta ár var lögð fram á
fundi hreppsnefndar í fyrrakvöld
og vísað til síðari umræðu sem fyr-
irhuguð er 7. janúar næstkomandi.
Fram kom í greinargerð Sigurðar
Jónssonar sveitarstjóra að full
samstaða væri í hreppsnefndinni
um álagningarreglur. Útsvar er
áfram 12,7% og Gerðahreppur
hækkar ekki fasteignagjöld, eins
og mörg önnur sveitarfélög, nema
sorpgjöld sem ákvörðuð eru sam-
eiginlega af sveitarfélögunum
vegna nýrrar sorpbrennslustöðvar
í Helguvík.
Haldið verður áfram átaki í
lagningu gangstétta og malbikun.
Hafist verður handa við stækkun
Byggðasafnsins á Garðskaga og
lagningu gervigrasvallar á lóð
Gerðaskóla. Þá er gert ráð fyrir
upphafsframkvæmdum við skrúð-
garð á opnu svæði við Garðbraut,
samkvæmt tillögum sem ligga fyr-
ir. Gerðahreppur mun taka tæp-
lega 60 milljóna króna lán, gangi
þessi áætlun eftir og er þá miðað
við að 50 milljónir fáist vegna
eignasölu eins og fram kemur hér
að framan. Með því móti haldast
skuldir í horfinu.
Hyggjast selja vatnsveitu
Reykjanesbær | Sautján ára stúlka
leitaði til lögreglunnar í Keflavík
um klukkan þrjú í fyrrinótt til að
kæra nítján ára pilt fyrir nauðgun
sem hafði átt sér stað í heimahúsi í
Reykjanesbæ skömmu áður.
Kemur þetta fram á vef lögregl-
unnar í Keflavík. Pilturinn var
handtekinn og vistaður í fanga-
klefa.
Nauðgun kærð
til lögreglu
Mikið byggt | Á árinu sem nú er að
ljúka voru teknar í notkun fjórtán
íbúðir í Garði, samkvæmt upplýs-
ingum skrifstofu Gerðahrepps. Í
byggingu eru fimmtán íbúðir og fyr-
ir liggja tólf umsóknir um lóðir fyrir
íbúðarhús. Samkvæmt þessu er útlit
fyrir áframhaldandi fjölgun íbúa í
Garðinum.
Njarðvík| Íþróttamaður Reykjanes-
bæjar verður útnefndur í hófi sem að
venju verður efnt til í Íþróttahúsi
Njarðvíkur í dag, gamlársdag, klukk-
an 13.
Verðlaun verða veitt þremur efstu í
kjöri Íþróttamanns Reykjanesbæjar
2003 og útnefndir íþróttamenn hverr-
ar íþróttagreinar fyrir sig. Þá verða
allir íþróttamenn úr Reykjanesbæ
sem hlotið hafa Íslandsmeistaratitil á
árinu heiðraðir sérstaklega.
Örn Arnarson var útnefndur Íþrótta-
maður Reykjanesbæjar 2002 og Örn
Ævar Hjartarson á árinu 2001.
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
vekur athygli á því að athöfnin er op-
in öllum bæjarbúum.
Íþróttamaður
Reykjanesbæjar
útnefndur
Sandgerði | Síðustu karftöflurnar
frá sumrinu voru teknar upp úr
garðinum hjá Birni Maronssyni og
Lydíu Egilsdóttur í Sandgerði á
aðfangadag. Voru það sannkallað-
ar jólakartöflur og komu sér vel í
uppstúfið með hangikjötinu á jóla-
dag.
Björn og Lydía hafa ræktað
kartöflur í garðinum í áraraðir og
segir Björn að þetta sé í fyrsta
sinn sem hann taki upp svo seint.
Frostið hafi aðeins náð að skemma
efstu kartöflurnar en þær sem
hann tók upp á aðfangadag hafi
verið stórar og fallegar.
Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Kartöflur með hangikjötinu: Björn
með fallegar jólakartöflur.
Teknar upp
kartöflur
á jólum
Sandgerði | Framkvæmdir við ráð-
hús og íbúðir Búmanna á miðbæj-
arsvæði Sandgerðis hefjast í janúar,
samkvæmt ákvörðun meirihluta
bæjarstjórnar. Verið er að leggja
lokahönd á nýja hönnun hússins eftir
að það var minnkað.
Áður hafði verið ákveðið að byggt
yrði hús við Miðnestorg í miðbæ
Sandgerðis og bygging hússins boð-
in út. Búmenn tóku að sér að byggja
húsið en Sandgerðisbær hugðist
leigja húsnæði fyrir skrifstofur bæj-
arins, bókasafn og þjónusturými.
Ákveðið var að taka þessar áætlanir
til endurskoðunar og á síðasta bæj-
arstjórnarfundi samþykkti meiri-
hluti bæjarstjórnar nýjar áætlanir.
Nú er gert ráð fyrir að húsið verði
heldur minna, það verður einni íbúð
færra og skrifstofur og annað rými
minnkar samsvarandi. Þá hefur bæj-
arstjórn ákveðið að festa kaup á
þjónusturými sem nemur um einum
þriðja eignarinnar og taka á leigu
húsnæði fyrir bæjarskrifstofur og
það nemur einnig einum þriðja hluta
hússins. Búmenn munu eiga og reka
níu íbúðir sem verða leigðar út í Bú-
mannakerfinu.
Búmenn, sem munu annast bygg-
ingu hússins, eru nú að ganga frá
lokahönnun byggingarinnar til að
leggja fyrir viðkomandi fagnefnd
Sandgerðisbæjar og semja að nýju
við verktaka.
Áætlað er að fyrsta skóflustungan
verði tekin föstudaginn 23. janúar
næstkomandi klukkan 16 og að
framkvæmdir hefjist þann dag.
Framkvæmdir við ráð-
hús hefjast í janúar