Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 18

Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍKJASTJÓRN hefur ekki enn tekið ákvörðun um að fækka bandarískum hermönnum í Evrópu, að sögn bandarísks emb- ættismanns sem neitaði frétt í Fin- ancial Times um að stjórnin í Washington væri að búa sig undir að fækka hermönnunum í Evrópu um allt að þriðjung. Bandaríski embættismaðurinn sagði í gær að stjórnin héldi áfram viðræðum við ráðamenn í Evrópu. „Hvers konar fréttir sem gefa til kynna að við séum í þann veginn að taka ákvörðun í þessu máli eru ein- faldlega ekki nákvæmar,“ sagði hann. Financial Times sagði í frétt á miðvikudaginn var að Bandaríkja- stjórn væri að „búa sig undir að fækka hermönnum í Evrópu um allt að þriðjung“ og það yrði ein mesta fækkun bandarískra her- manna í álfunni eftir síðari heims- styrjöldina. Blaðið hafði eftir stjórnarerind- rekum að stjórnin í Washington hygðist ekki koma upp nýjum og varanlegum herstöðvum í Austur- Evrópu. Óttast hafði verið að það yrði gert til að refsa nokkrum ríkj- um Vestur-Evrópu fyrir að leggj- ast gegn innrásinni í Írak. Viðræðum haldið áfram „Ef eitthvað er, verða hermenn- irnir, sem teknir verða frá Evrópu, sendir heim,“ hafði Financial Tim- es eftir stjórnarerindreka eins af aðildarríkjum Atlantshafsbanda- lagsins, NATO. „Þaðan verða þeir sendir á heræfingar eða í þjálfun- arferðir til lítilla herstöðva sem komið verður upp til bráðabirgða í Póllandi, Rúmeníu eða Búlgaríu.“ Bandarískur heimildarmaður fréttastofunnar AFP lagði áherslu á að viðræðum Bandaríkjastjórnar við NATO-ríki væri ekki lokið og engar tillögur í þessum efnum hefðu verið lagðar fyrir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Rumsfeld hyggst sitja óformlegan fund varnarmála- ráðherra NATO-ríkja í München á föstudag, fyrir árlegan fund um ör- yggismál sem haldinn verður í borginni. „Mikið er í veði“ Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í lok janúar að endurskipulagning bandaríska heraflans leiddi til þess að her- mönnum í Evrópu yrði fækkað, en nefndi engar tölur í því sambandi. Powell sagði ennfremur Vladím- ír Pútín Rússlandsforseta á fundi þeirra í Moskvu í vikunni sem leið að Bandaríkjastjórn hefði ekki í hyggju að koma upp herstöð nær Rússlandi. Financial Times hafði eftir stjórnarerindrekum að varnar- málaráðuneytið í Washington hygðist stofna litlar og mjög hreyf- anlegar sveitir sem hægt yrði að flytja fljótt í herstöðvar sem not- aðar yrðu til bráðabirgða. „Bandaríkjastjórn hefur enn mikið samráð við bandamenn sína. Hún hefur ekki enn tekið loka- ákvörðun um hvaða stöðvum verð- ur lokað,“ hafði Financial Times eftir þýskum stjórnarerindreka. „Mikið er í veði. Framtíð heilu þorpanna byggist á herstöðvunum, einkum í Þýskalandi. Menn geta bara ekki eyðilagt þessi 60 ára gömlu tengsl.“ Um 119.000 bandarískir her- menn eru nú í Evrópu, þar af 80.000 í Þýskalandi. Þegar kalda stríðið var í hámarki voru yfir 300.000 bandarískir hermenn í Vestur-Evrópu. Segjast ekki hafa ákveð- ið að fækka hermönnum Brussel. AFP. Bandaríkjamenn neita því að þeir hafi ákveðið að fækka hermönnum sínum í Evrópu um allt að þriðjung TVÍBURABRÆÐUR sem fóru fyrir hópi lúxusbílaþjófa í Malasíu hafa verið rausn- arlegir í framlögum sínum til mun- aðarleysingjahæla og annarra góðgerð- arstofnana, að því er The Daily Star greinir frá. Þessir nútíma Hróar hettir, sem stela frá hinum ríku og gefa að minnsta kosti hluta þýfisins til hinna fá- tæku, eru taldir hafa gefið matvæli fyrir sem svarar hundruðum þúsunda króna til nokkurra munaðarleysingjahæla. Bræð- urnir eru 25 ára. Þjófagengið sem þeir veita forstöðu sérhæfir sig í að stela Mercedes Benz og BMW, og eru taldir hafa komið höndum yfir um 20 slíka undanfarið ár. Lögregla komst á snoðir um góð- mennsku þjófanna þegar fjórir ungir menn voru handteknir nýlega og reyndust hafa í fórum sínum kvittanir fyrir fram- lögum til góðgerðarstofnana. Þeir kasta slátrinu … SKIPULEGGJENDUR hálandahátíðar í Ástralíu hafa kallað yfir sig reiði sannra Skota með því að ætla að nota „sláturlíki“ í stað alvöru sláturkeppa, eða „haggis“, í slát- urkastskeppni sem er liður í leikunum. Slát- urlíkið, að líkindum haframjöl og sag í poka, átti að nota til að komast hjá „sóðaskap“ á Berwick-hálandaleikunum, sem fram fara í Melbourne nú um helgina. En slátrarinn Rob Boyle, sem sérhæfir sig í hefðbundnum skoskum, írskum og enskum kjötréttum, telur skipuleggjendur leikanna vera að gera mikil mistök, og hefur boðist til að láta þá hafa ekta sláturkeppi, pakkaða í lofttæmdar umbúðir svo að enginn verði nú sóðaskap- urinn. Sláturkastsmeistari Ástralíu, Eddie Harman, segir alvöru sláturkeppi hafa verið notaða á meistaramótinu í Skotlandi, og svo ætti einnig að vera í Ástralíu. Háloftagóðgæti FARÞEGAR með vélum flugfélagsins Cathay Pacific, sem staðsett er í Hong Kong, geta átt von á kræsingum. Til þess að bæta þjónustuna við farþega sína fór flugfélagið þess á leit við starfsfólk sitt að það legði til uppskriftir að góðum, kín- verskum mat handa farþegum. Eftir að matreiðslukeppni hafði farið fram voru valdir 12 sigurvegarar og í lok apríl verð- ur farið að bera rétti þeirra fram á fyrsta og viðskiptafarrými í flugi félagsins á milli Hong Kong og Vancouver í Kanada. Meðal þess sem þar verður boðið upp á er rétt- urinn sem sigraði í keppninni, mjólkurbúð- ingur með engifersafa, sem búinn verður til um borð í vélinni af höfundunum sjálf- um, Steven Sim og Yvonne Lam. Einnig verða á þessum „úrvalsmatseðli“ hörpu- skel- og rækjubollur með svartbaunasósu, og humar með spínati í hörpuskelsósu. Idjót! SVO FÓR, að í bræði sinni drap Li Yong páfagaukinn sinn, sem aldrei gat lært að segja einfaldlega halló, en var óspar á sví- virðingar. Li, sem er Kínverji og býr í Hen- an-héraði, tjáði þarlendum fjölmiðlum að hann hefði keypt fuglinn fyrir átta mán- uðum og árangurslaust reynt að kenna hon- um að segja „halló“ og „bless“. Li fékk sig að lokum fullsaddan og í bræði sinni æpti hann að páfagauknum: „Idjót!“ Fuglinn svaraði fullum hálsi í sömu mynt og bætti fáeinum fúkyrðum við. Það var þá sem Li lógaði páfagauknum. Ekki er útlit fyrir að ótti við fuglaflensu hafi ráðið þarna nokkru um. ÞETTA GERÐIST LÍKA Hrói höttur í Malasíu Reuters Þrívíddarpúsluspil af jarðkringlunni, sem kynnt var á leikfangasýningu sem nú stendur í Nürnberg. Sýningin er sú viðamesta í heiminum. Margbrotið verk SILVIO Berlusconi, forsætis- ráðherra Ítalíu, lýsti í gær yfir stuðningi sínum við Alain Juppe, fyrrverandi forsætis- ráðherra Frakklands, en hann hefur verið dæmdur í 18 mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyr- ir spillingu. „Kommúnisminn á sér aðra birtingarmynd. Það er komm- únismi án kommúnisma,“ sagði Berlusconi, sem sjálfur á yfir höfði sér spillingarákærur, í ræðu, sem hann flutti á fundi hægriflokka í Brussel. „Það er hættulegasta myndin vegna þess, að hún er svo ógreinileg. Fulltrúar hennar segjast ekk- ert eiga skylt við kommúnisma en beita samt aðferðum hans. Ég leyfi mér að lýsa yfir stuðn- ingi við Juppe, sem ég þekki og met mikils.“ Klöppuðu nokkrir fyrir ræð- unni en annars voru viðbrögðin heldur vandræðaleg. Berlusconi styður Juppe Brussel. AFP. BANDARÍSKI flugherinn birti nýlega þessa ljós- mynd sem sýnir flugmann skjóta sér út úr stjórn- klefa herþotu innan við sekúndu áður en hún skall til jarðar á flugsýningu við herstöð í Bandaríkj- unum í september í fyrra. Í tilkynningu flughersins segir, að flugmaðurinn, sem slapp ómeiddur, hafi stýrt þotunni frá um 60 þúsund manna áhorf- endahópi og fullvissað sig um að hann gæti ekki bjargað henni áður en hann skaut sér úr henni. Þot- an var af gerðinni F-16 Falcon og tilheyrði sýning- arhópi slíkra véla, svokölluðum Thunderbirds, sem flugherinn hefur haft á sínum snærum frá 1982. Reuters Skaut sér út sekúndu fyrir hrap GEORGE W. Bush Banda- ríkjaforseti gagnrýndi í gær nýjan úrskurð hæstaréttar Massachusetts-ríkis sem heim- ilar hjónabönd samkyn- hneigðra. Rétturinn úrskurðaði í nóv- ember að bann ríkisins við hjónaböndum samkynhneigðra stangaðist á við stjórnarskrána og þing ríkisins fékk hálfs árs frest til að breyta hjúskapar- lögunum. Þingmenn báðu dóm- stólinn að útskýra úrskurðinn frekar og spurðu hvort nóg væri að heimila staðfesta sam- búð samkynhneigðra til að full- nægja úrskurðinum. Dómstóll- inn komst að þeirri niðurstöðu í fyrradag að svo væri ekki og að sögn The Washington Post þurfa yfirvöld í Massachusetts að heimila hjónabönd samkyn- hneigðra frá og með 16. maí. Bush sagði úrskurðinn „mik- ið áhyggjuefni“ og kvaðst ætla að gera það sem væri „lagalega nauðsynlegt til að vernda helgi hjónabandsins“. Forsetinn gaf til kynna að til greina kæmi að breyta stjórn- arskránni til að hindra hjóna- bönd samkynhneigðra, sem hafa hvergi verið leyfð í Banda- ríkjunum. Stjórnarskrárbreyt- ingar taka þó langan tíma. Hjónabönd samkynhneigðra Bush gagnrýn- ir nýjan úrskurð Boston. AFP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.