Morgunblaðið - 06.02.2004, Page 20

Morgunblaðið - 06.02.2004, Page 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Laugardalur | Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í Húsdýragarðinum að bjóða upp á sérstaka vinnu- morgna fyrir sjöttu bekkinga grunnskóla. Fræðsludeild Fjöl- skyldu- og húsdýragarðsins hefur meðal annars það hlutverk að taka á móti skólahópum og fræða krakk- ana um dýrin í garðinum. Bæði er boðið upp á leiðsögn og einnig sér- stök námskeið þar sem farið er ofan í kjölinn á ákveðnum þáttum sem varða dýrin. Vinnumorgnarnir eru lang- vinsælasta námskeiðið á vegum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Fullbókað er á námskeiðið þetta skólaár og ekki verður byrjað að taka á móti skráningum fyrir næsta skólaár fyrr en í ágúst. Þátttakendur í Vinnumorgni þurfa að vera mættir í garðinn stundvíslega klukkan 07:45 að morgni. Einn bekkur mætir í senn og er honum skipt í þrjá hópa. Einn hópurinn sér um umhirðu dýranna í fjár- og hesthúsi, annar hópurinn um dýrin í fjósinu, kýrnar og svínin og sá þriðji um villtu dýrin, hrein- dýr, minka og refi. Ekki er um ná- kvæmlega sömu verkin að ræða í öllum húsunum því það þarf að kemba hestunum og mjólka kýrnar, en ekki er mögulegt að eiga slíka snertingu við villtu dýrin. Viðvarandi fróðleikur Allir hóparnir fá viðamikla fræðslu um þau dýr sem þeir sjá um. Þegar verkum er að mestu lok- ið fara krakkarnir inn í hlýjuna og fá sér í svanginn og taka þau þá vel til matar síns. Síðan miðla hóparnir þekkingu sinni til hinna með ör- stuttum fyrirlestrum um dýrin sem þau höfðu umsjón með, segja frá skemmtilegum atvikum og því sem kom þeim mest á óvart við vinnuna. Námskeiðinu lýkur svo við sela- laugina við það að selunum er gefið og þau fá síðan með sér fræðslu- pakka til að taka með í skólann svo hægt sé að halda áfram að nýta fróðleikinn sem þau tileinkuðu sér. Í gær fengu nemendur í sjötta bekk AH í Lindaskóla að vinna sveitastörfin. Þeim fannst afar gaman að því að fá að vinna með dýrunum og spurðu margra spurn- inga. Unnur Sigurþórsdóttir fræðslufulltrúi í Húsdýragarðinum segir reynsluna af þessu starfi mjög góða. „Krakkarnir vita oft ekki mjög mikið þegar þau koma en þau vita mun meira þegar þau fara. Þeim finnst þetta allt mjög spenn- andi og þetta höfðar til þeirra, sér- staklega af því að við erum með þennan aldur,“ segir Unnur. „Þetta eru mest börn úr Reykjavík og ná- grenni, sem fá ekki að skoða dýrin með þessum hætti nema í mesta lagi einu sinni á ári eða svo og upp- lifunin þeirra er alveg stórkostleg. Þau átta sig á því að þetta eru ekki bara dýr sem hægt er að slökkva á á kvöldin, heldur þarf að huga að þeim allan daginn alla daga.“ Önnur námskeið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum eru skynfæra- námskeið fyrir nemendur í 3. bekk grunnskóla og námskeið um villt dýr fyrir nemendur á gagnfræði- skólastigi. Einnig var haldið síðast- liðið sumar vel heppnað dýranám- skeið fyrir 10–12 ára krakka sem einnig verður á komandi sumri. Vinnumorgnar fyrir börn í Húsdýragarðinum Stórkostleg upplifun Morgunblaðið/Ásdís Puð og púl í morgunsárið: Hvort sem um er að ræða sparnaðaraðgerð af hálfu Húsdýragarðsins eða góðan valkost í fræðslu barna hefur þessi nýbreyttni mælst afar vel fyrir og börnin skemmtu sér konunglega við sveitastörfin. Miðbær | Dagarnir eru misjafnir hjá fólki, sumir gefa sér tíma til að setjast niður yfir kaffibolla og skeggræða málin á meðan aðrir þurfa að hlaupa bæjarenda á milli í hvers kyns erindagjörðum. Í mið- bænum kristallast þessar ólíku þarfir fólks í skörpum andstæðum sem myndast þar sem gangstéttin heilsar gluggum húsanna. Í Banka- strætinu leið heimurinn hjá á tvö- földum hraða á meðan gestirnir sátu í mestu makindum og ræddu sín hjartans mál. Morgunblaðið/Heiðar Þór Ólíkur takt- ur dagsins AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Brunndælur Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900 poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is Óskum eftir 4ra herbergja íbúð í hverfi 101 Heimili fyrir þig - alhliða eignaumsýsla sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 fyrir ákveðinn kaupanda. Allar nánari upplýsingar veitir Bogi Pétursson löggiltur fasteignasali á skrifstofu Heimilis eða í síma 699 3444.Bogi Pétursson, lögg. fasteignasali. HREPPSNEFND Arnarneshrepps hefur samþykkt að óska eftir fundi með stjórn Sorpeyðingar Eyjafjarð- ar, til að ræða hugsanlega staðsetn- ingu á sorpurðunarstað í sveitarfé- laginu. Áður hafði Sorpeyðing Eyjafjarðar sent erindi til hrepps- nefndar, þar sem leitað var eftir samvinnu um málið. Stjórn Sorpeyð- ingar nefndi tvo staði í hreppnum í erindi sínu, annars vegar við Bjarn- arhól og hins vegar við Dysnes. Hjördís Sigursteinsdóttir, oddviti Arnarneshrepps, sagði að ekki væri búið að útiloka að þessi starfsemi yrði í hreppnum. Hins vegar væri ekki mikill áhugi fyrir því innan hreppsnefndar að slík starfsemi yrði við Bjarnarhól eða á Dysnesi. Svæð- ið við Bjarnarhól hefði ekki komið vel út í rannsóknum sem þar voru gerðar, auk þess sem andstaða væri meðal íbúa í nágrenni jarðarinnar og þá hefði verið horft til þess að Dysnes væri álitlegasti staðurinn undir stóriðju í firðinum. Hjördís sagði að hreppsnefndin hefði áhuga á að heyra hvaða hug- myndir væru uppi innan stjórnar Sorpeyðingar. „Við viljum ræða málin og útilokum ekki neitt. Á fundi fyrir ári óskuðum við eftir því að fá að vita hvað væri verið að biðja um og hvernig starfsemi þetta yrði. Við höfum ekki enn fengið svar við því en þeir töluðu um að útfæra hug- myndina þegar staðsetningin lægi fyrir.“ Hjördís sagði að sorpurðun varð- aði alla íbúa í Eyjafirði og því mættu fleiri taka sig saman í andlitinu varðandi þetta mál. Hreppsnefnd Arnarneshrepps Útilokar ekki sorpurð- un í sveitarfélaginu KOSTNAÐUR við snjómokstur og hálkuvarnir á Akureyri í síðasta mánuði nam um 15 milljónum króna. Þetta er jafnframt dýrasti mánuður í snjómokstri og hálku- vörnum frá árinu 1994, samkvæmt yfirliti frá framkvæmdadeild bæj- arins. Kostnaður við snjómokstur og hálkuvarnir í febrúar árið 2002 nam 12,5 milljónum króna og í mars árið 2000 var kostnaðurinn 10,5 milljónir króna. Heildarkostnaður við snjómokst- ur og hálkuvarnir nam um 41,5 milljónum króna á árinu 2003 og hefur ekki verið hærri á áð- urnefndum tíma árs frá 1994. Kostnaðurinn árið 2002 nam rúm- um 37 milljónum króna, árið 1999 tæpum 35 milljónum króna og rúm- um 31 milljón króna árin 2000 og 1995. Þegar mest var voru um 30 snjó- ruðningstæki á ferðinni á Akureyri í síðasta mánuði. Heldur hefur dregið í snjókomunni nú í febrúar en gríðarmiklir snjóruðningar eru um allan bæ. Unnið er að því keyra burtu snjó þessa dagana og þá helst frá gatnamótum, gangbrautum og öðrum svæðum þar sem slysahætta getur skapast. Morgunblaðið/Kristján Snjóruðningar um allan bæ. Unnið er að því að keyra burtu snjó víða á Ak- ureyri og af nógu er að taka. Snjómokstur og hálkuvarnir Kostnaðurinn í janúar 15 milljónir króna Kristín sýnir í Gallerí+ | Kristín Reynisdóttir opnar myndlistarsýn- ingu í Gallerí+, Brekkugötu 35 á morgun, laugard. 7. febrúar kl. 16. Kristín nam skúlptúr í MHÍ og stundaði framhaldsnám í Düsseldorf og hefur verið starfandi myndlist- arkona síðan og sýnt oft hér og er- lendis. Á síðasta ári hlaut hún 6 mán- aða starfslaun listamanna og ferðaðist m.a. til suður Evrópu. „Sýn- ingin fjallar um þá upplifun að vera bæði áhorfandi og þátttakandi á tím- um átaka um siðmenningu þar sem togast á öfl sem eiga rætur að rekja til rótgróinna hefða. Einnig hvernig formbirting trúarbragða setur merki sitt á hið kven- og karllæga sem ísl- ömsk trú býður upp á og end- urspeglun þess í samfélaginu,“ segir í frétt um sýninguna. Hún er opin um helgar frá kl. 13.-17 og aðra daga eftir samkomulagi í síma 462 7818. Sýn- ingin stendur til og með 22.febrúar. Hádegistónleikar | Björn Steinar Sólbergsson organisti heldur hádeg- istónleika í Akureyrarkirkju á morg- un, laugardaginn 7. febrúar kl. 12. Á efnisskránni eru verk eftir Dietrich Buxtehude og Johann Sebastian Bach. Lesari er sr. Svavar A. Jóns- son. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. VG 5 ára | Haldið verður upp á 5 ára afmæli Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Café Amour, (efri hæð) í kvöld, föstudagskvöldið 6. febrúar, kl. 20.30. Steingrímur J. Sigfússon ávarpar gesti, Skúli og Þórhildur spila, hljómsveitin Hrafnaspark leikur og þá verður upplestur, fjöldasöngur og gam- anmál á dagskránni. Fundur um sjávarútvegsmál verður svo haldinn á laugardag, 7. febrúar, kl. 11 til 13 í gömlu Gróðarstöðinni við Krókeyri. Árni Steinar Jóhannsson, Stein- grímur J. Sigfússon og Þuríður Bachmann flytja stutt erindi. Þau yngri tefla | Akureyrarmót barna og unglinga í skák, 15 ára og yngri, hefst á morgun, laugardaginn 7. febrúar kl. 13:30. Teflt verður tvo laugardaga, á morgun og svo 23. febrúar. Þátttökugjald er 300 kr. og verða veitt verðlaun í 4 flokkum, 9 ára og yngri, 10-12 ára, 13-15 ára og stúlknaflokki. Að venju er teflt í hús- næði Skákfélags Akureyrar í Íþróttahöllinni og eru allir krakkar á þessum aldri boðnir velkomnir.         

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.