Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 21
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
10
www.islandia.is/~heilsuhorn
PÓSTSENDUM
Glerártorgi,
Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í
Árnesapóteki, Selfossi,
Lífsins lind í Hagkaupum
og , Kárastíg 1.
10
áraGott fyrir heilsuna
Spektro
Multivitamín, steinefnablanda
ásamt spirulínu, Lecthini, Aloe
vera o.fl. fæðubótarefnum.
Salmon oil
Gegn stirðleika
í liðamótum
Calcium Citrat
Veldu kalk sem gerir gagn.
Einnig hægt að fá
með D vítamíni
Barnamulti
Tyggjanlegt
fjölvítamín
fyrir börn
FULLRTÚAR í viðræðunefnd Ak-
ureyrarbæjar og Hríseyjarhrepps,
um hugsanlega sameiningu sveitar-
félaganna, komu saman til fyrsta
fundar í ráðhúsinu á Akureyri í
gær. Fulltrúar Akureyrarbæjar eru
þeir Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri og bæjarfulltrúarnir Jakob
Björnsson og Oddur Helgi Hall-
dórsson en fulltrúar Hríseyj-
arhrepps þeir Ragnar Jörundsson
sveitarstjóri, Kristinn Árnason odd-
viti og Þröstur Jóhannsson vara-
oddviti.
Kristinn sagði að Hríseyingar
horfðu til þess að Eyjafjörður yrði
eitt sveitarfélag og það væri því
táknrænt að litli og stóri hæfu við-
ræður um sameiningu. Kristinn
sagði að hugsanleg sameining við
Akureryri hefði ekki verið kynnt
formlega í eynni en sagði að þótt
skiptar skoðanir væru um ýmsa
hluti, væru menn jákvæðir fyrir
málinu. „Við förum í þessar við-
ræður með bjartsýni og munum
bera hag Hríseyinga fyrir brjósti.“
Kristján Þór Júlíusson, bæj-
arstjóri á Akureyri, sagði að farið
hefði verið vítt og breitt um sviðið á
þessum fyrsta fundi og að ágætlega
hefði farið á með mönnum. „Við
vorum að reyna að skýra línur og
setja niður fyrir okkur á hvern hátt
best er að vinna að framgangi máls-
ins,“ sagði Kristján Þór. „Menn
hallast mjög að því að vinna það til-
tölulega hratt.“ Hann sagði að farið
hefði verið yfir stöðuna og á hvern
hátt sameiginlegt sveitarfélag, Ak-
ureyri og Hrísey, gæti gengið upp.
Bæjarstjóri sagði að horft væri til
þess að hugsanlega yrði hægt að
kjósa um sameiningu sveitarfélag-
anna samhliða forsetakosningum í
sumar, þ.e. ef af slíkum kosningum
yrði.
Viðræðunefnd Akureyrarbæjar og Hríseyjarhrepps
Stefnt að því að vinna
tiltölulega hratt
Morgunblaðið/Kristján
Glaðbeittir við samningaborðið. Fulltrúar Akureyrarbæjar og Hríseyj-
arhrepps við upphaf fundar um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna.
F.v. Oddur Helgi Halldórsson, Jakob Björnsson, Kristján Þór Júlíusson,
Ragnar Jörundsson, Kristinn Árnason og Þröstur Jóhannsson.
HJÚKRUNARRÝMUM mun fjölga
um 15 frá og með 1. apríl næstkom-
andi, en nýlega veitti heilbrigðisráðu-
neytið samþykki sitt þar um. Fram
kemur á vef Akureyrarbæjar að þar
sem fyrirsjánlegt er að viðbyggingin
við Hlíð verður ekki tilbúin til notk-
unar fyrr en fyrri hluta árs 2006 hafi
bæjaryfirvöld verið í viðræðum við
heilbrigðisráðuneytið nokkurn tíma
til þess að leita lausna á vanda sjúkra
aldraðra í heimahúsum. Nýverið sam-
þykkti heilbrigðisráðuneytið að leyfa
fjölgun hjúkrunarrýma um 15 á Öldr-
unarstofnun Akureyrarbæjar frá 1.
apríl n.k. með þeim fyrirvara að Ak-
ureyrarbær útvegaði húsnæði fyrir
starfsemina.
Hentugasti hluti hússins, hluti af
fyrstu hæð þess verður tekin undir
starfsemina og eru endurbætur þegar
hafnar. Hjúkrunarrýmin verða svo
flutt á Hlíð þegar nýja viðbygginging
verður tilbúin. Jakob Björnsson for-
maður bæjarráðs sagði að kostnaður
við breytingarnar væru áætlaðar um
20 milljónir króna ogþá væri gert ráð
fyrir 10 milljónum króna til kaupa á
búnaði, en hann myndi nýtast áfram
annars staðar og síðar. Á vefnum er
þess getið að réttlætanlegt hafi þótt
að verja töluverðum fjármunum í
endurbætur á húsnæðinu svo mæta
megi brýnasta vanda sjúkra aldraðra,
sem ella hefðu þurft að bíða í tvö ár
eftir úrlausn.
Endurbætur hafnar á
Skjaldarvík
Ráðuneytið
samþykkti
ÁSDÍS Bragadóttir framkvæmda-
stjóri Skáksambands Íslands
sagði að það mundi ekki bitna á
þeim skákmönnum frá Akureyri,
sem valdir voru til þátttöku á
Norðurlandamótinu í skólaskák
síðar í þessum mánuði, þótt bæj-
arfélagið vildi ekki taka þátt í að
greiða ferðakostnað þeirra á mót-
ið. Alls fara tólf skákmenn frá Ís-
landi á mótið og þar af þrír frá
Akureyri. Skáksambandið sendi
erindi til bæjarins, þar sem m.a.
var leitað eftir fjárstuðningi en
íþrótta- og tómstundaráð Akur-
eyrar hafnaði því.
Í bókun ráðsins kemur fram að
ráðið hafi ekki tekið þátt í kostn-
aði í æfinga- og keppnisferðum á
vegum sérsambanda og geti því
ekki orðið við erindinu. Ráðið
harmar það jafnframt að gefið sé
í skyn að skákmönnum frá Ak-
ureyri verði ekki gefinn kostur á
að taka þátt í verkefnum sam-
bandsins nema með fjárstuðningi
sveitarfélagsins.
Ásdís sagði að óskað hefði verið
svars við erindinu sem fyrst, svo
hægt yrði að taka afstöðu til þess
en að svar hefði ekki borist Skák-
sambandinu í gær. Hún sagði að
Akureyri væri eina sveitarfélagið
sem ætti þátttakendur á mótinu
en ekki styddi sína krakka. Bær-
inn hefði þó stutt verkefnið til
skamms tíma en ekki undanfarin
tvö til þrjú ár. „Þegar neitun kom
frá Akureyrarbæ í fyrra sendum
við bréf, þar sem lýstum því að sú
afgreiðsla kæmi okkur í slæma
stöðu. Við höfum ekki fjármagn í
þetta nema með aðstoð sveitarfé-
laga og það er varla hægt að ætl-
ast til þess að hin sveitarfélögin
greiði fyrir krakkana frá Akur-
eyri.“
Ásdís sagði að það að eiga þrjá
krakka í þessum hópi sem fer til
Svíþjóðar sýndi að Akureyringar
ættu góða skákmenn. Skákfélag
Akureyrar stæði sig vel en hefði
enga burði til að styðja fjárhags-
lega við bakið á sínu fólki. „Það er
alveg ljóst að þessir krakkar fara
til Svíþjóðar. En þetta kemur sér
mjög illa og við verðum bara að
leita annarra leiða við fjármögn-
um, t.d. að leita til fyrirtækja,“
sagði Ásdís.
ÍTA tekur ekki þátt í ferðakostnaði á Norðurlandamótið
Mun ekki bitna á krökk-
unum frá Akureyri
HÖLDUR ehf. sem um árabil hef-
ur annast akstur Morgunblaðsins á
milli Akureyrar og Reykjavíkur
hefur tekið í notkun nýjan bíl
vegna flutninganna á blaðinu
norður. Sagt er frá bílaskiptunum
á veg Hölds og þar kemur fram að
um sé að ræða mikinn akstur eða
u.þ.b 800 km á sólarhring allt ár-
ið. „Fyrirtækið hefur notast við
Dodge Ram 2500 h/d með sér-
smíðuðum kassa frá MT bílum í
Ólafsfirði.
Þessi útgerð hefur reynst vel og
má til gamans nefna að sá bíll sem
nýi bíllinn leysir af hólmi var bú-
inn að rúlla nálægt því 800.000
kílómetra án teljandi viðhalds. Nýi
bíllinn er af gerðinni Dodge Ram
Sport 2500 h/d með tæplega 300
hestafla Cummings Diesel vél og
6. gíra handskiptingu,“ segir í
fréttinni.
Nú um helgina stefnir í met-
flutning, því á laugardag má gera
ráð fyrir að flutt verði norður yfir
heiðar um 9 tonn en þau skiptast
þannig að um morguninn, þegar
laugardagsblaðið kemur er þyngd-
in um 4 tonn og svo rétt um 5
tonn um kvöldið þegar sunnudags-
blaði verður ekið norður.
Á myndinni má sjá bílstjórana
Árna Bjarnason og Hallgrím Æv-
arsson glaðbeitta við nýja bílinn
við upphaf jómfrúarferðarinnar.
Nýr Moggabíll: Bílstjórarnir Hall-
grímur Ævarsson og Árni Bjarna-
son.
Nýr bíll
í notkun
ROBIN Nolan Trio er í vetr-
arheimsókn á Íslandi og leikur
bæði á Akureyri og Reykjavík.
Fyrsta heimsókn tríósins til lands-
ins var haustið 1998 og varð hún
upphafið að árlegum sum-
arheimsóknum og síðar alþjóðlegri
Django-djasshátíð og námskeiðum
á Akureyri.
Tríóið leikur á tvennum tón-
leikum syðra en á Akureyri verða
tónleikar í Deiglunni á laugardags-
kvöld, 7. febrúar og hefjast þeir kl.
21.30.
Í tríóinu eru auk Robin Nolans
þeir Kevin Nolan og Simon Plant-
ing sem leikur á kontrabassa en
bræðurnir leika á gítara.
Robin Nolan
Trio með tónleika