Morgunblaðið - 06.02.2004, Qupperneq 22
SUÐURNES
22 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sandgerði | Framkvæmdir hefjast í
dag við byggingu húss sem Búmenn
byggja fyrir íbúðir, skrifstofur
Sandgerðisbæjar og þjónustu-
starfsemi við Miðnestorg í miðbæ
Sandgerðis. Nýir samningar við Bú-
menn voru samþykktir í bæjarstjórn
í fyrradag með atkvæðum meirihlut-
ans en fulltrúar minnihlutans voru á
móti.
Sandgerðisbær og Búmenn náðu
á síðasta ári samkomulagi um að Bú-
menn byggðu umrætt hús í miðbæ
Sandgerðis. Í húsinu eiga að vera
íbúðir, meðal annars á vegum Bú-
manna, skrifstofur bæjarins, bóka-
safn og aðstaða fyrir ýmsa þjónustu-
starfsemi. Búmenn tóku að sér að
byggja húsið en Sandgerðisbær
skuldbatt sit til að taka verulegan
hluta þess á leigu.
Minna hús og lægri leiga
Samkomulagið hefur verið til end-
urskoðunar á undanförnum vikum
og á fundi bæjarstjórnar í fyrradag
var nýtt samkomulag samþykkt. Í
samþykktinni, sem meirihluti K-
lista Samfylkingar og óháðra og
Sjálfstæðisflokkur standa að, er gert
ráð fyrir að húsið verði 7% minna en
áður var áformað. Bærinn kaupir
strax þriðjung hússins og fær heim-
ild til að kaupa eignina alla. Fyr-
irhugað er að selja eignir á móti og
eru vatnsveita og íbúðir þar sér-
staklega tilgreindar. Þá hefur ýms-
um ákvæðum samninga verið breytt
sem leiðir til lækkunar leigugjalds,
að því er fram kemur í samþykkt
meirihlutans.
Rammasamningurinn við Búmenn
um byggingu hússins og samningur
um leigu húsnæðis Sandgerðisbæjar
var samþykktur með fjórum at-
kvæðum meirihlutans en þrír
fulltrúar minnihluta Framsókn-
arflokks og Sandgerðislistans
greiddu atkvæði á móti.
Í bókun fulltrúa Framsókn-
arflokksins eru ítrekaðar kröfur um
að framkvæmdum verði frestað um
að minnsta kosti tvö ár og sagt að
skuldastaða bæjarins sé það slæm
að ekki sé á hana bætandi. Jafn-
framt er það átalið að ekki skuli vera
lögð fram umsögn sérfróðs aðila um
áhrif samninganna á fjárhags-
afkomu sveitarsjóðs, áður en fram-
kvæmdirnar eru staðfestar.
Framkvæmdir við
ráðhús hefjast í dag
Keflavík | Stór hópur nemenda tí-
unda bekkjar í Holtaskóla í Kefla-
vík hefur myndað námsklúbb til að
undirbúa sig fyrir samræmdu próf-
in í vor. Hittast þau í litlum hópum í
skólanum og á heimilunum og koma
öll saman tvisvar í viku undir hand-
leiðslu foreldra sem styðja þetta
framtak ungmennanna af heilum
hug.
Hugmyndin að námsklúbbnum
varð til í spjalli Gísla Arnar Gísla-
sonar og Bjarna Þorsteinssonar og
vina þeirra í tíunda bekk Holta-
skóla. „Við vorum farnir að hugsa
um hvað það væri stutt í sam-
ræmdu prófin og að skemmtilegt
væri að vinna að þessu saman og
hækka einkunnirnar,“ segir Gísli
Örn. Bjarni segir að upphaflega
hafi verið hugmyndin að búa til
námsklúbb með nokkrum samnem-
endum en síðan hafi þessi hugmynd
borist til foreldranna og þau útvíkk-
að hana. „Ég sagði mömmu frá
þessu og hún fór að segja öðrum frá
og var að lokum búin að tala við
nærri alla foreldrana í tíunda
bekk,“ segir Gísli Örn.
Sigríður Jóna Jóhannesdóttir,
móðir Gísla Arnar, vinnur á bæj-
arskrifstofunum ásamt mæðrum
þriggja annarra nemenda í tíunda
bekk Holtaskóla og það var þar sem
hugmyndin komst á flug. Í árgang-
inum eru 37 börn og hafa 20 skráð
sig í námsklúbbinn. Bjarni segir að
eftir að foreldrarnir komu inn í mál-
ið og hópurinn stækkaði hafi þessi
vinna orðið mun markvissari en áð-
ur. „Þetta hefði frekar runnið út í
sandinn hjá okkur,“ segir hann.
Foreldrarnir gengu í að skipu-
leggja starfið og að útvega vinnuað-
stöðu og verkefni. Fengu þau inni
fyrir hópstarfið í K-húsinu við
Hringbraut þar sem allur hópurinn
hittist tvisvar í viku og foreldrarnir
skipast á að vera á staðnum.
Nemendurnir drógu sig saman í
litla hópa sem hver hefur sinn hóp-
stjóra og hittast þau í skólanum eða
í heimahúsum til að ræða um nám-
ið, sumir hóparnir nánast á hverjum
degi. Gísli Örn og Bjarni gegna
báðir því ábyrgðarmikla hlutverki
að vera hópstjórar. Í upphafi er
lögð áhersla á að fara yfir gömul
samræmd próf í stærðfræði, síðan
verður íslenskan tekin fyrir og síð-
an hin samræmdu prófin hvert af
öðru.
Foreldrarnir aðstoða
Helga Margrét Guðmundsdóttir
sem var á foreldravaktinni í K-
húsinu síðastliðinn þriðjudag segir
skemmtilegt að þessi hugmynd
skuli hafa komið upp meðal krakk-
anna sjálfra. Í upphafi hefði það
þótt heldur hallærislegt að vera að
tala saman um námið en það hefði
breyst. Hún segir að krakkarnir
fari sjálf yfir verkefnin, án afskipta
foreldranna. En þeir séu til staðar
ef eitthvað sé hægt að hjálpa. Þá sé
haft samráð við námsráðgjafann í
skólanum og leitað til kennara í við-
komandi fögum.
Helga Margrét segir að erfiðast
hafi verið að finna tíma til að sinna
þessu verkefni. Margir nemend-
anna séu á kafi í íþróttum og öðrum
áhugamálum og mikill tími fari í
það hjá þeim að spjalla saman á
Netinu. Þetta hafi þó tekist.
Gísli Örn segist hafa lært heil-
mikið af því að vera í náms-
klúbbnum og sér ekki eftir því að
hafa skráð sig í hann. Samræmdu
prófin eru ekki fyrr en í maíen þeir
félaga telja að ekki veiti af tímanum
til undirbúnings. „Þetta er töluverð-
ur tími en með fríum og tíma sem
fer í próf í skólanum passar þessi
tími alveg til að fara yfir sam-
ræmdu fögin,“ segir Bjarni.
Hópur nemenda tíunda bekkjar Holtaskóla myndar
námsklúbb til undirbúnings samræmdra prófa
Gaman að vinna saman
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Liðsforingjar og foreldrar: Gísli Örn Gíslason og Bjarni Þorsteinsson eru meðal hópstjóra í námsklúbbnum. Ásdís
Óskarsdóttir og Helga Margrét Guðmundsdóttir voru til taks, fyrir hönd foreldranna, þennan daginn.
Kosið í bæjarráð | Kosið var í
bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs á
fyrsta fundi nýbakaðrar bæj-
arstjórnar í fyrrakvöld. Á fundinum
var lögð fram staðfesting félags-
málaráðuneytisins á breytingu á
nafni sveitarfélagsins.
Ingimundur Þ. Guðnason og Ein-
ar Jón Pálsson voru kosnir í bæj-
arráð fyrir hönd F-listans og Arnar
Sigurjónsson fyrir I-listann. Fyr-
irhugað er að Ingimundur, sem
jafnframt er forseti bæjarstjórnar,
verði formaður bæjarráðs. Felld
var tillaga H-listans um að eiga
áheyrnarfulltrúa á fundum bæj-
arráðs.
Einnig var kosin jafnréttisnefnd
en hana skipa Einar Jón Pálsson og
Guðrún S. Alfreðsdóttir, fulltrúar
F-listans, og Agnes Ásta Woodhead
fyrir I-listann.
Selja hlutabréf | Bæjarstjórn-
irnar í Garði og Sandgerði hafa
ákveðið að selja hlutabréf sín í SBK
hf. til stjórnar félagsins.
Garður hefur átt um 400 þúsund
kr. hlutafé í SBK hf. sem er tæplega
1% hlutur og Sandgerðisbær á 200
þúsund kr. hlut. Stjórn fyrirtækisins
bauðst til að kaupa hlutina á genginu
1,6 þannig að Garður fær 640 þús-
und fyrir sín bréf og Sandgerðisbær
320 þúsund kr. Báðar bæjarstjórn-
irnar ákváðu að taka tilboði fyr-
irtækisins.
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is