Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 24

Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 24
LANDIÐ 24 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hvammstangi | Unglist 2003 í Húnaþingi vestra fékk nýlega hvatningarviðurkenningu fyrir samnefnda héraðshátíð sem haldin var sl. sumar. Var verkefnisstjórn- inni afhent viðurkenningin 30. jan- úar í Þinghúsinu á Hvammstanga. Það var fjölmiðlahópur sem starfar í Húnaþingi vestra sem ákvað að veita viðurkenningu fyrir gott framtak á liðnu ári en fjölmiðla- hópurinn samanstendur af Birni Traustasyni, Elínu R. Líndal og Karli Sigurgeirssyni. Verkefninu „Ungt fólk og at- vinna“ var hrundið af stað í janúar 2003. Tilgangur þess var að skapa umræðugrundvöll fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á að setjast að og búa í Húnaþingi vestra, um at- vinnumál og önnur mál sem tengj- ast búsetu fólks á svæðinu. Ein hugmynda var að standa fyr- ir unglistahátíð; að virkja ungt fólk til að skipuleggja og annast á allan hátt, hátíð sem stæði í nokkra daga og gæti farið fram á nokkrum stöð- um í sveitarfélaginu. Skipuð var verkefnisstjórn en ásamt henni tók fjöldi annarra ungmenna virkan þátt í verkefninu. Í lok júlímánaðar var síðan há- tíðin haldin á Hvammstanga, og einnig í Borgarvirki. Stóð hún í þrjá sólarhringa. Sköpunargáfa ungs fólks var virkjuð og útrás fengin í myndlist, tónlist, kveð- skap, dans og gleði. Kaffihús var rekið á staðnum. Karnivalstemning var þegar stór skrúðganga fór um bæinn og lauk henni með úti- tónleikum. Fánasamkeppni var haldin og bestu ,,gleði-fánarnir“ valdir og þeim flaggað hátíðisdag- ana. Lauk Unglist 2003 með stór- dansleik hljómsveitarinnar Í svört- um fötum. Elín R. Líndal hafði orð fyrir fjölmiðlahópnum og sagði m.a: „Með þeirri viðurkenningu sem hér er afhent til Unglistar 2003 viljum við sýna þakklæti okkar til þeirra fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við að auðga mannlíf og vekja at- hygli á Húnaþingi vestra með já- kvæðum hætti. Viðurkenningin á jafnframt að vera hvatning til þeirra sem hana hljóta til áfram- haldandi starfa og öðrum til eft- irbreytni.“ Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Verkefnisstjórn Unglistar 2003, f.v. Elísa Ýr Sverrisdóttir, Arnar Birgir Ólafsson, Sigurvald Ívar Helgason, Kjartan Óli Ólafsson, Kristín Guð- mundsdóttir og Þorvaldur Björnsson. Á myndina vantar Þorbjörgu Valdi- marsdóttur, Erling Viðar Eggertsson og Jóhönnu B. Guðmundsdóttur. Viðurkenning fyrir frumkvæði HLYNUR E. Bæringsson, körfu- knattleiksmaður úr liði Snæfells, var kjörinn íþróttamaður ársins 2003 í Stykkishólmi, en kjörinu var lýst fyrir leik liðsins gegn Íslands- meistaraliði Kefla- víkur sl. sunnu- dag. Að mati þeirra sem standa að kjörinu er Hlynur vel að þessum titli kominn. Hann hef- ur verið máttarstólpi úrvalsdeildarliðs Snæfells í körfuknattleik síðastliðið ár, sem hefur verið að gera mjög góða hluti, og átt stóran þátt í því að lið Snæfells trónir nú á toppi Int- ersportdeildarinnar þessa dagana. Hlynur er í hópi bestu körfuknatt- leiksmanna landsins, hann er þekktur fyrir að vera mikill dugnaðarforkur, baráttumaður sem aldrei gefst upp og er öðrum til fyrirmyndar í íþróttinni. Hlynur íþrótta- maður ársins í Stykkishólmi Hlynur E. Bæringsson Hornafjörður | Í undirbúningi er stofnun skautafélags á Hornafirði og mun félagið verða deild innan Sindra. Fjölmennur fundur á sunnudaginn var skipaði Ara Þorsteinsson, Huldu Laxdal og Sindra Ragnarsson í und- irbúningshóp að stofnun skautafélags- ins. „Við vildum komast að því hvort það væri bara ég og pollarnir sem höf- um áhuga á þessu sporti,“ segir Ari en fjörutíu manns mættu á fundinn, sem boðaður var til að kanna áhugann á skautaíþróttinni. „Það kom í ljós að það eru ekki bara pollarnir sem hafa áhuga á skauta- íþróttinni, þarna voru líka efnilegar skautadrottningar en skautaíþróttin er líka fyrir alla fjölskylduna,“ segir Ari Þorsteinsson. Næstu skref eru að undirbúa stofnun félagsins, semja um æfingatíma í íþróttahúsinu og finna hentugt svæði fyrir svell. Stofnfundur verður síðan auglýstur þegar þar að kemur. „Bæjaryfirvöld hafa sýnt okkur mikinn velvilja og bjóðast til að að- stoða okkur, m.a. með því að lána tankbíl slökkviliðsins til að sprauta vatni til að búa til svell.“ Ari segir mikil viðbrögð hafa verið við fréttum af íshokkíæfingum á Höfn. Fréttir birtust í staðarfjölmiðlunum og bárust fljótlega til forsvarsmanna Skautafélags Reykjavíkur, Skauta- félags Akureyrar, Bjarnarins og Jak- anna í Vestmannaeyjum. „Það hafa allir mikinn áhuga á því sem við erum að gera. Vest- mannaeyingarnir eru í svipuðum spor- um og við, þeir eiga ekkert svell og eru að æfa innanhúss á línuskautum,“ seg- ir Ari. Hann segir Vestmannaeyinga vera að kanna möguleikana á að koma upp vélfrystu svelli í Eyjum. Framtíðarmúsík Vélfryst svell er draumur allra skautaáhugamanna en Ari segir það framtíðarmúsik enda kostar slíkt svell u.þ.b. 20 milljónir króna. Það er sann- arlega dýrt mannvirki en venjulegur knattspyrnuvöllur kostar álíka mikið og skautasvell er ólíkt fjölskyldu- vænna en knattspyrnuvöllur. „Menn þekkja skautasvellið í Rockefeller Center úr bíómyndunum. Þar eru allir aldurshópar að skemmta sér saman á skautum,“ segir Ari Þor- steinsson, frumkvöðull í skautaíþrótt- inni á Hornafirði. Hornfirðingar á hálum ís Skautafélag stofnað á næstunni Morgunblaðið/Sigurður Mar Hornfirskir hokkíspilarar á Óslandstjörninni í nágrenni Hafnar. Skagafjörður | Í byrjun desember beindi stjórn Landssamtaka sauð- fjárbænda þeirri spurningu til aðild- arfélaga sinna hvort þau teldu að óska ætti eftir viðræðum við ríkið um breytingar á núverandi sauðfjársamn- ingi milli bændasamtakanna og rík- isins. Sá samningur gildir út árið 2007 en báðir aðilar geta óskað eftir við- ræðum um breytingar ef þeim þykir ástæða til. Málið hefur verið kynnt skagfirskum sauðfjárbændum og haldnir fundir á fjórum stöðum í hér- aðinu. Niðurstaða fundanna er sú að almennur vilji er fyrir að Landsam- tökin hafi sem fyrst forgöngu um stofnun starfshóps með það að mark- miði að undirbúa og marka stefnu fyr- ir næsta sauðfjársamning. Mjög skiptar skoðanir hafa verið meðal sauðfjárbænda í Skagafirði um ágæti þess samnings sem nú er í gildi. Þó reyndust ekki háværar raddir um að óska eftir endurskoðun á honum enda ljóst að hugsanlegar breytingar tækju vart gildi fyrr en fyrir árið 2005. Helst var að bændum þætti koma til greina að tilfærsla af greiðslumarki yfir í álagsgreiðslur yrðu stöðvaðar í 15% en tilfærslan á að vera komin í 22,5% í lok samningstímans. Vilja að vinna við nýjan sauðfjársamn- ing hefjist sem fyrst   

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.