Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 48
MÁNUDAGINN 9. febr-
úar kl. 19.00 hefst í
Grensáskirkju á vegum
Leikmannaskóla kirkj-
unnar sjálfstyrking-
arnámskeið fyrir konur.
Námskeiðið stendur yf-
ir í tvö kvöld, 3 tíma í
senn og leiðbeinandi er
Petrína Mjöll Jóhann-
esdóttir prestur. Á nám-
skeiðinu verða lesnir
Biblíutextar um konur og
þeir nýttir til að skoða
hlutverk kvenna, tengsl
þeirra við annað fólk og
hverjar þær eru í ljósi
Guðs. Fjallað verður um
styrkleika og veikleika til að sjá
hvar hver og ein getur styrkt sig.
Námskeið þetta hefur notið fá-
dæma vinsælda síðustu 13 ár.
Þess má geta að nú á þessu vori
verður boðið upp á sjálfstætt
framhald þessa vinsæla nám-
skeiðs.
Skráning á námskeiðið fer
fram í síma 535 1500 eða á vef
Leikmannskólans, www.kirkj-
an.is/leikmannaskoli
Konur eru konum bestar
Grensáskirkja
Morgunblaðið/Arnaldur
Í kvöld kl. 20.30 fjalla
þeir Halldór Haraldsson og
Birgir Bjarnason um rannsóknir
á endurholdgun í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á morgun laugardag er opið
hús kl. 15-17 með fræðslu og
umræðum, kl. 15.30 í umsjá
Þórunnar Þórarinsdóttur sem
spjallar um kundalini-heilun.
Hugræktarnámskeið Guð-
spekifélagsins verður fram-
haldið fimmtudaginn 12. febrúar
kl. 20.30 í umsjá Sigurðar Boga
Stefánssonar
„Hugleiðing almennt“.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 184268½ 9.0 I.O.O.F. 1 184268 Dd.
ATVINNA
mbl.is
Fundur Parísar, félags þeirra
sem eru einar/einir, verður
haldinn á Kringlukránni 7. febrú-
ar kl. 11.30 f.h. Undirbúningur
fyrir aðalfund og árshátíð.
Stjórnin
www.paris.is
48 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Safnaðarstarf
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN-starf
með sjö til níu ára börnum í Selás-
skóla.
Lindakirkja, Kópavogi. Yngri deildir
KFUM og K í Lindasókn í Safnaðar-
heimilinu, húsinu á sléttunni, kl. 15.
Allir krakkar á aldrinum 8–12 ára vel-
komnir.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund í kirkjunni kl. 22. Bænarefnum
er hægt að koma til prestsins fyrir
stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið
tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra
til að koma saman og eiga skemmti-
lega stund í notalegu umhverfi. Kaffi
og léttar veitingar, spjall, föndur, fyr-
irlestrar, kynningar og fleira.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunn-
ar Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla.
Fríkirkjan Kefas. 13–16 ára starf kl.
19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Allir
13–16 ára velkomnir. Nánari upplýs-
ingar á www.kefas.is.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir
10–12 ára krakka kl. 16.30–18.
Þorlákskirkja. Bænastund kl. 9.30.
Foreldramorgnar kl. 10.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
Akureyrarkirkja. Á morgun, laugar-
dag, hádegistónleikar kl. 12. Björn
Steinar Sólbergsson leikur á orgel.
Lesari: Svavar A. Jónsson. Aðgangur
ókeypis, allir velkomnir.
Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra
og börn kl. 10–12.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl.
17.30 barnagospel fyrir krakka 4–12
ára. Kl. 10–18 er flóamarkaðurinn
opinn.
Hveragerðisprestakall. Kl. 10.30
kirkjuheimsókn fyrsta bekkjar grunn-
skólans.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið eftir
samveru Kirkjuskólans í Mýrdal nk.
laugardag, 7. febrúar 2004, kl.
11.15–12 í Víkurskóla. Rebbi refur
og fleiri brúður koma í heimsókn.
Biblíufræðsla, söngur, sögur og lit-
astund. Krakkar, verið dugleg að
mæta. Sóknarprestur og starfsfólk
kirkjuskólans.
MINNINGAR
KIRKJUSTARF
Við andlát mágs
míns og vinar okkar
Ásmundar Jóhannesar
Jóhannssonar eða Ása
eins og hann var alltaf kallaður
koma upp í huga okkar allar ljúfu
og góðu stundirnar sem við áttum
saman á Barkarstöðum, bæði við
heimsóknir og eins það hversu
hann var dugmikill og atorkusam-
ur við að rækta frændgarð sinn á
Barkarstöðum. Ætíð reiðubúnn að
fara á æskustöðvar konu sinnar,
taka þátt í því sem þurfti að gera
ásamt því að taka þátt í mótun
Barkarstaðarskógar og sinna hon-
um þegar fjölskyldurnar komu
saman.
Ekki skal hér gleymt allri þeirri
ÁSMUNDUR J.
JÓHANNSSON
✝ Ásmundur Jó-hannes Jóhanns-
son fæddist í
Reykjavík 29. októ-
ber 1928. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Eir í Grafar-
vogi 27. janúar síð-
astliðinn og var
útför hans gerð frá
Grafarvogskirkju 5.
febrúar.
aðstoð sem hann
veitti heimilinu við út-
vegun á því sem vant-
aði og ætíð reiðubú-
inn að sinna
málefnum þegar leit-
að var eftir því.
Menntun hans gaf
börnunum til kynna
að menntun væri
máttur.
Réttlætiskennd og
sterkur persónuleiki
var honum ásköpuð,
þéttur á velli og þétt-
ur í lund, þrautgóður
á raunastund, er sú
mynd sem er ríkjandi í hugum
okkar sem minnumst og söknum
hans.
Ekki var langt í glettnina og
mikil hlátrasköll þegar góðir fé-
lagar og vinir komu saman.
Við sem eftir lifum geymum
mynd þína í hugum okkar og
þökkum fyrir fylgdina sem þú áttir
með okkur. Far þú í guðs friði.
Elsku Begga og börn. Guð
styrki og standi með ykkur á þess-
ari erfiðu stundu.
Ragnar og fjölskyldurnar
á Barkarstöðum.
✝ Heiðbjört Jóns-dóttir, hús-
freyja á Hofsá í
Svarfaðardal var
fædd á Mýlaugs-
stöðum í Aðaldal
18. október 1935.
Hún lést á Fjórð-
ungshúsinu á Akur-
eyri 27. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru þau
Laufey Hernitsdótt-
ir, f. 22. febrúar
1906, d. 1984, og
Jón Kristjánsson, f.
2. maí 1895, d.
1949. Heiðbjört átti sex systkini.
Þau eru: Hulda, f. 16. ágúst
1930, býr í Reykjavík; Hlini, f. 5.
janúar 1932, d. 1957; Hilmar, f.
18. ágúst 1933, býr á Akureyri;
Hermann, f. 17. október 1939,
Laufey Björg, f. 8. nóvember
1957. Býr á Akureyri. Hún hefur
eignast fjögur börn. 3) Elín Heið-
dís, f. 11. júlí 1959, gift Benedikt
Ásmundssyni. Þau búa á Akur-
eyri og eiga þau þrjá syni. 4)
Fanney Ósk, f. 21. nóvember
1961. Býr í Hafnarfirði og á eina
dóttur. 5) Steinborg Hlín, f. 14.
febrúar 1966. Býr á Akureyri og
á einn son. 6) Ásdís Erla, f. 10.
september 1969. Maki hennar er
Trausti Þórisson. Þau búa á
Hofsá og eiga tvö börn. 7) Hlini
Jón, f. 26. desember 1971,
kvæntur Guðrúnu Tryggvadótt-
ur. Þau búa í Svartárkoti í Bárð-
ardal og eiga þrjú börn. Þrjú
barnabörn, börn Laufeyjar, ólust
að mestu upp hjá Heiðbjörtu og
Gísla. Þau eru: Heiðbjört Harpa,
f. 13. júní 1978, d. 17. júní 1992;
Hulda Berglind, f. 27. desember
1987; og Erla Björg, f. 26. sept-
ember 1990.
Útför Heiðbjartar verður gerð
frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett
verður í Vallarkirkjugarði.
býr á Akureyri;
Fjóla, f. 23. nóvem-
ber 1940, býr í
Reykjavík; og Frið-
finna, f. 15. febrúar
1942, býr á Akur-
eyri.
Eftirlifandi eigin-
maður Heiðbjartar
er Gísli Þorleifsson,
bóndi á Hofsá, f. 27.
október 1927. For-
eldrar Gísla voru
Þorleifur Bergsson,
f. 5. júní 1900, d. 29.
desember 1995, og
Dóroþea Gísladóttir,
f. 23. október 1896, d. 21. nóv-
ember 1954. Heiðbjört og Gísli
eignuðust sjö börn. Þau eru: 1)
Dórothea, f. 3. maí 1956, gift
Óskari Sveini Jónssyni. Þau búa
á Dalvík og eiga tvö börn. 2)
Heiðbjört var kafteinninn í eld-
húsinu á Hofsá, fylgdist grannt
með öllu sem fram fór í búskapn-
um, hafði mótaðar skoðanir á
landbúnaðarmálunum, sinnti mat-
argerðinni, bauð gestum til kaffi-
spjalls og með því, hugsaði um
barnabörnin af alúð og umhyggju
og lét sér yfirleitt fyrst og fremst
annt um velferð fjölskyldunnar og
þeirra sem í kringum hana voru.
Þannig kom hún mér fyrir sjónir
og ekki minnist ég þess að hún
kvartaði yfir heilsunni síðustu
mánuðina, þótt ekki væru dag-
arnir allir þrautalausir. „Bless-
aður komdu inn í kaffi í smá-
stund, þér liggur ekkert á. Mig
vantar einhvern að spjalla við,“
kallaði hún til mín einn daginn í
haust úr dyragættinni á Hofsá
þegar ég kom sem oftar upp á
hlaðið og var að undirbúa mal-
arkeyrslu í kringum bústaðinn.
Þá settumst við yfir kaffibolla og
hún sagði það versta við veikindin
að hún gæti ekki fylgst með öllu
eins vel og hún vildi. Við spjöll-
uðum góða stund um heima og
geima og ég man að þegar ég hélt
minn veg suður á Skeggstaðahól-
inn í sumarhússbygginguna varð
mér hugsað til þess að þarna
hefði Heiðbjört kennt mér á sinn
hátt að manni hættir til þess að
gleyma þessum litlu stundum í
lífinu sem okkur ber að taka frá í
amstrinu og rækta vináttuna.
Önnur eftirminnileg stund var á
gangnadaginn þegar ég leit inn á
Hofsá og sá risapottana á eldavél-
inni og nokkra tugi lítra af girni-
legri kjötsúpu sem beið gangna-
mannanna. Heiðbjört sagðist ekki
hafa getað hugsað sér annað en
hafa kjötsúpuna klára þegar
gangnamenn kæmu heim og því
réð hún systur sína í matargerð-
ina frekar en láta heilsubrestinn
hafa áhrif á þessa venju á Hofs-
árheimilinu.
Gísli og Heiðbjört voru meðal
fastra gesta á æskuheimili mínu á
Jarðbrú í Svarfaðardal og eftir að
Trausti frændi minn hóf búskap í
félagsbúi með Ásu á móti þeim
hjónum urðu Hofsárheimsóknir
okkar hjóna og barnanna að föst-
um lið. Ég fann oft að Heiðbjörtu
þótti vænt um að geta haldið í
gegnum mig sambandi við
Jarðbrúarfólkið, eins og hún
nefndi okkur. Ég fann að henni
líkaði vel þegar við fjölskyldurnar
frá Jarðbrú komum saman um
verslunarmannahelgar í trjáreitn-
um á Hofsá og nutum þess að vera
aftur saman í Dalnum kæra.
Síðasta árið höfum við félagarn-
ir Stefán Jóhannesson verið mörg-
um stundum í Svarfaðardalnum
við sumarbústaðabygginguna okk-
ar á Skeggstöðum, sem nú eru
orðnir hluti af landi Hofsár. Þau
Gísli og Heiðbjört tóku því strax
ljúflega þegar við föluðumst eftir
landi undir húsin sem ætlunin var
að flytja af grunnum sínum á Ak-
ureyri og á hólinn í Svarfaðardal.
Fylgdust síðan af áhuga með
brasinu í okkur í vor og sumar og
höfðu gaman af. Ég er ekki frá því
að í Heiðbjörtu hafi blundað góður
iðnaðarmaður því hún var vel með
á nótunum hvernig þetta skyldi
allt ganga fyrir sig. Hún notaði
tækifærið þegar hún fór á kjör-
stað hinn 11. maí í vor og renndi á
hólinn til okkar til að kíkja á
fyrsta sökklauppsláttinn og ekki
voru heldur liðnir margir dagar
frá því að húsin voru komin á
staðinn síðsumars þar til hún kom
í heimsókn til að sjá hvernig þetta
tæki sig út. Svona var Heiðbjört,
áhugasöm og fylgin sér.
Fyrir hönd okkar Stefáns, fjöl-
skyldna okkar og fjölskyldu minn-
ar frá Jarðbrú vottum við Gísla,
börnum hans og fjölskyldum inni-
lega hluttekningu okkar. Með
Heiðbjörtu er gengin hjartahlý og
mikil búkona sem kvaddi þetta
jarðlíf of snemma. Minning henn-
ar lifir.
Jóhann Ólafur Halldórsson.
HEIÐBJÖRT
JÓNSDÓTTIR
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og langalangömmu,
ÖNNU KRISTINSDÓTTUR,
Víðilundi 6,
Akureyri.
Haraldur Óli Valdimarsson, Ólína Sigurjónsdóttir,
Edda Líney Valdimarsdóttir, Hallgrímur Baldvinsson,
Viðar Valdimarsson, María Gústafsdóttir,
Valdemar Valdemarsson, Laufey Margrét Pálsdóttir,
ömmu-, langömmu-
og langalangömmubörn.
MINNINGARGREINUM- má
skila í tölvupósti (netfangið er
minning@mbl.is,) eða á disk-
lingi. Ef greinin er á disklingi
þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að tilgreina síma-
númer höfundar og/eða send-
anda (vinnusíma og heimasíma).
Ekki er tekið við handskrifuð-
um greinum.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein aðalgrein af hæfilegri
lengd á útfarardegi, en aðrar
greinar séu um 300 orð eða
1.500 slög (með bilum) en það
eru um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur,
og votta virðingu án þess að það
sé gert með langri grein. Grein-
arhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Minningargreinum þarf að
fylgja formáli með upplýsingum
um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til
að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu
greina, enda þótt þær berist
innan hins tiltekna frests.
Frágangur
minningar-
greina