Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 56

Morgunblaðið - 06.02.2004, Side 56
ÍÞRÓTTIR 56 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ VIGGÓ Sigurðssyni, fyrrverandi þjálfara Ís- landsmeistara Hauka í handknattleik, stóð til boða að fara í viðræður við félag úr þýsku Bun- desligunni en haft var samband við hann í síð- asta mánuði og óskað eftir svari við því hvort hann væri reiðubúinn að gerast þjálfari félagsins fyrir næstu leiktíð. „Ég fékk upphring- ingu í byrjun janúar þar sem ég var spurður hvort ég gæti komið í viðræður. Ég gaf það hins vegar strax frá mér og sagði þeim að ég væri samningsbundinn Haukum til ársins 2005 og ætlaði mér að klára þann samning. Svona stóð hugur minn á þessum tímapunkti,“ sagði Viggó við Morgunblaðið í gær en hann ákvað sem kunnugt er að láta af störfum hjá Haukum í fyrrakvöld eftir að fengið þau skilaboð frá stjórn deildarinnar að slíta ætti samstarfi við hann í lok leiktíð- arinnar. Viggó vildi ekki tilgreina hvaða félag í Þýskalandi þetta var sem setti sig í samband við hann en það hefur nú gengið frá þjálf- aramálum sínum. Viggó neitaði viðræð- um við þýskt félag Viggó Þorramót GLÍ, sunnudagur 1. febrúar í Hagaskóla – stigamót: Karlar 20 ára og eldri: 1. Pétur Eyþórsson, UV............................ 23 2. Ólafur Gunnarsson, UÍA ...................... 18 3. Jón Ólafur Eiðsson, UÍA ........................ 3 4. Magnús Þorri Jónsson, HSÞ.................. 0 Konur 17 ára og eldri: 1. Inga Gerða Pétursdóttir, HSÞ............. 10 2. Elisabeth Patriarca, HSK ...................... 0 3. Hugrún Geirsdóttir, HSK ...................... 0 Unglingaflokkur, 17-20 ára 1. Magnús Þorri Jónsson, HSÞ................ 26 2. Ólafur Gunnarsson, UÍA ...................... 24 3. Jón Ólafur Eiðsson, UÍA ...................... 13 4. Hafsteinn Kristinsson, HSK ................ 10 5. Júlíus Björnsson, HSÞ............................ 0 Piltaflokkur 14-16 ára: 1. Pétur Þórir Gunnarsson, HSÞ ............. 28 2. Þór Kárason, HSÞ................................. 19 3. Rúnar Björn Guðmundsson, HSK....... 15 4. Halldór Óli Kjartansson, KR.................. 9 5. Smári Þorsteinsson, HSK....................... 0 Meyjar 14-16 ára: 1. Elisabeth Patriarca, HSK .................... 18 2. Harpa Bergþórsdóttir, HSK ................ 10 3. Ólöf Sara Garðarsdóttir, HSK ............... 6 4. Hólmfríður Guðmundsdóttir, HSK 0 Heildarúrslit mótsins: 1. Pétur Eyþórsson, UV........................... 7,6 2. Pétur Gunnarsson, HSÞ ......................... 7 3. Magnús Þorri Jónsson, HSÞ............... 6,5 4. Elisabeth Patriarca, HSK ...................... 6 Þetta var í þriðja sinn sem úr-valshópurinn kemur saman. Í honum eru rúmlega þrjátíu ungling- ar víðsvegar af land- inu, til dæmis frá Búðardal, Reyðar- firði, Þingeyjarsýslu, Suðurlandinu og Reykjavíkursvæð- inu. Brottfall var mikið fyrir nokkr- um árum, svo mikið að varla var hægt að halda keppni í unglinga- flokki en nú er reyndin önnur og rúmlega 700 börn og unglingar æfa glímu á Íslandi, mest af þeim yngra en 16 ára. Líklega má þakka það öflugu kynningarstarfi Glímusam- bandsins sem hefur farið í rúmlega 50 skóla vítt og breitt um landið og kynnt þessa þjóðlegu íþrótt fyrir allt að tíu þúsund skólabörnum. Kynningarnar eru einnig til að styrkja stoðirnar sem fyrir eru en helsti vandinn er að það vantar þjálfara – áhugasamir gefi sig fram. Margir bættu sig um helgina og lærðu nokkur brögð enda höfðu for- svarsmenn úrvalshópsins á orði að sumir gætu fljótlega farið að keppa við reyndari glímumenn í fullorð- insflokki. Æfingar voru undir stjórn Ólafs Odds Sigurðssonar og Lár- usar Kjartanssonar auk Ólafs Hauks Ólafssonar, fyrrum glímu- kóngs Íslands en hann hefur verið valinn landsliðsþjálfari fyrir sýning- arferð til Kanada. Það gæti verið gulrótin til að standa sig því um mánaðamótin júlí og ágúst í sumar heldur glímufólk til Montreól í Kan- ada til að taka þátt í hátíð þjóðlegra leikja og íþrótta en þar koma saman rúmlega þúsund þátttakendur frá 70 þjóðum. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Stelpurnar í flokki 16 ára og yngri gæta drengjanna. Frá vinstri Elísabet Patriarca, Ólöf Sara Garð- arsdóttir, Hólmfríður Guðmundsdóttir og Harpa Bergþórsdóttir. Drengirnir, talið frá vinstri, Rúnar B. Guðmundsson, Pétur Gunnarsson, Þór Kárason, Smári Þorsteinsson og Halldór Óli Kjartansson. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Elísabet Patriarca var valin efnilegust glímukvenna. Morgunblaðið/Stefán Stefánsson Glímukonan Hugrún Geirs- dóttir umvafin glímuköpp- um. Í efri röð frá vinstri eru Ólafur Gunnarsson, Jón Ólafur Eiðsson, Hafsteinn Kristinsson og Jón Örn Ingi- leifsson. Við hlið Hugrúnar eru Magnús Þorri Jónson og Júlíus Björnsson. Sóknahugur ÚRVALSHÓPUR Glímusambandsins hafði í nógu að snúast um síð- ustu helgi, þá var hart glímt á æfingavellinum og einnig rýnt ræki- lega í margmiðlunardisk sem Glímusambandið er að gefa út en þar má sjá hvernig skal bera sig að við hin ýmsu brögð og margt fleira. Inn á milli var slegið á léttari strengi, farið í keilu og út að borða. Lokasprettur helgarinnar var síðan Þorramót en það er stigamót þar sem flest stig fást fyrir sigur í upphafi glímu, færri fyrir sigur í lok hennar og engin fyrir jafnglími sem ýtir undir að sóknarglíma verði í hávegum höfð. Stefán Stefánsson skrifar Umvafin glímu- köppum FÓLK  LARS Krogh Jeppesen, stórskytta danska landsliðsins í handknattleik, hefur skrifað undir fimm ára samning við spænska handknattleiksliðið Barcelona sem tekur gildi 1. júlí í sumar. Jeppesen hefur leikið undan- farin fjögur ár með liði Flensburg í þýsku 1. deildinni. Jeppesen verður fyrsti danski handknattleiksmaður- inn til þess að leika með handknatt- leiksliði Barcelona.  LARS Jörgensen, félagi Jeppesens í danska landsliðinu, ætlar líka að söðla um en hann hefur ákveðið að yf- irgefa spænska liðið Altea og ganga í raðir Portland San Antonio, eins af toppliðunum á Spáni.  IAN Bateman, skólastjóri knatt- yspyrnuskóla Bobby Charlton í Eng- landi, er á leið til Íslands til að kynna skólann. Hann kemur hingað á vegum IT-ferða og verður með fund í félags- heimili Þórs á Akureyri á mánudag- inn kl. 18.30 og í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal kl. 20 á þriðjudaginn.  NICOLAS Anelka, framherji Man- chester City, fer í þriggja leikja bann. Aganefnd enska knattspyrnusam- bandsins hafnaði í gær beiðni frá City um að rauða spjaldið, sem hann fékk að líta í leiknum við Arsenal, yrðilátið falla niður. Anelka missir af leikjum gegn Bolton, Chelsea og Manchester United.  ÚRSLITALEIKURINN í Meistara- deild Evrópu í knattspyrnu á næsta ári verður háður á Ataturk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi sem tekur 80.000 áhofendur. Úrslitaleikurinn í UEFA-keppninni 2005 fer fram á Jose Alvalade-vellinum í Lissabon.  JOSE Antonio Reyes, Spánverjinn sem gekk í raðir Arsenal frá Sevilla, hefur beðið stuðningsmenn Arsenal afsökunar á því að hafa skorað sjálfs- mark í tapleiknum við Middles- brough í vikunni. „Ég er mjög leiður yfir því sem gerðist og ég hef átt erfitt með svefn síðustu nætur. Ég bið stuðningsmenn Arsenal um að fyrir- gefa mér,“ segir Reyes.  LES Ferdinand, hinn 37 ára gamli framherji Leicester, ætlar að fresta hnéaðgerð sem hann þarf að gangast undir þar til eftir tímabilið. Ferdin- and segist ætla að harka af sér og leggja sitt af mörkum til að bjarga fé- laginu frá falli. GLÍMA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.