Morgunblaðið - 06.02.2004, Síða 57
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 57
Almennur hluti 1a
Þ
já
lf
ar
an
ám
sk
ei
ð
ÍS
Í
Þjálfaranámskeið ÍSÍ
www.isisport.is
Aðrir viðburðir á næstunni
Stjórnendanámskeið Egilsstaðir 12. feb.
Þjálfari 1a – Almennur hluti Akureyri 20. feb.
Ráðstefna um Konur og íþróttir Rvk. 21. feb.
Þjálfari 1b – Almennur hluti Sauðárkrókur 27. feb.
Þjálfari 1b – Almennur hluti Ísafjörður 27. feb.
Þjálfari 1b – Almennur hluti Rvk. 5. mars
Þjálfari 1a – Almennur hluti Patreksfjörður 5. mars
Þjálfari 1c – Almennur hluti Ísafjörður 12. mars
Þjálfari 2a – Almennur hluti Rvk. 12. mars
Þjálfari 1b – Almennur hluti Akureyri 12. mars
Þjálfari 1b – Almennur hluti Egilsstaðir 26. mars
Helgina 13. – 15. febrúar verður Þjálfari 1a – almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
og á Egilsstöðum. Lágmarksaldur þátttakenda er 16 ár Námskeiðið er undanfari annara námskeiða sem
síðar verður boðið uppá og þannig fyrsta námskeiðið í samræmdu kerfi íþróttahreyfingarinnar.
Námskeiðið er 20 kennslustundir, að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum.
Nemandi sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta þjálfarastigs 1a hlýtur réttindi
sem aðstoðarmaður eða leiðbeinandi hjá íþróttaskóla eða yngstu flokkum.
Verð á námskeiðið er kr. 12.000,- Skráningar þurfa að berast á netfangið andri@isisport.is
eða í síma 514-4000 í síðasta lagi miðvikudaginn 11. febrúar.
Þeir sem hafa lokið Grunnstigi ÍSÍ eru
gjaldgengir á Almennan hluta 1b.
Þeir sem hafa lokið ÍÞF102, ÍÞG1x2 í
framhaldsskóla og Skyndihjálpar-
námskeiði eru gjaldgengir á Almennan
hluta 2a.
Þjálfaramenntun íþróttahreyfingarinnar
fæst metin til eininga í
framhaldsskólum samkvæmt
aðalnámskrá framhaldsskóla.
Frekari upplýsingar má finna á
www.isisport.is
GUNNAR Gíslason, stjórnarformaður enska knattspyrnufélags-
ins Stoke City, vill fá norður-írska varnarmanninn Gerry Taggart
í sínar raðir. Taggart hefur verið í láni hjá Stoke frá Leicester síð-
an í desember en var kallaður snögglega til baka í síðustu viku,
enda á Leicester í miklum vandræðum við botn úrvalsdeild-
arinnar.
Staða Stoke gjörbreyttist við það að fá Taggart í sínar raðir.
Liðið var í hópi neðstu liða þegar hann kom en tapaði engum leik
með hann innanborðs, vann sjö leiki og gerði eitt jafntefli. Stoke
er nú í tólfta sæti, ellefu stigum frá fallsæti en aðeins fimm stigum
frá sjötta sætinu sem gefur rétt til að leika um að fara upp í úr-
valsdeildina.
„Hann hafði geysilega góð áhrif á okkar lið og við munum fylgj-
ast mjög grannt með þróun mála hjá honum í Leicester, með það í
huga að fá hann alfarið í okkar raðir. Við höfum ekki úr miklum
fjármunum að moða en þetta byggist á hvernig við getum samið
við Leicester og hann sjálfan. Ef möguleiki verður, og við höfum
efni á því, munum við svo sannarlega reyna að fá hann aftur,“
sagði Gunnar við staðarblaðið í Stoke, The Sentinel, í gær.
Gunnar vill fá Gerry
Taggart aftur til Stoke
LANDSLIÐSÞJÁLFARI Nígeríu sem tekur
þátt í Afríkukeppninni í knattspyrnu í Túnis
hefur beðið þá leikmenn sem sendir voru úr
herbúðum liðsins á dögunum vegna aga-
brots um að snúa aftur frá sínum fé-
lagsliðum og taka þátt í leik liðsins gegn Ka-
merún í átta liða úrslitum mótsins.
Celestine Babayaro varnarmaður
Chelsea, framherji Portsmouth, Yakubu
Aiyegbeni, og Victor Agali, leikmaður
Schalke 04 í Þýskalandi voru sendir frá
bækistöðvum liðsins s.l. föstudag vegna aga-
brots. Þeir höfðu ekki virt útivistarreglur liðsins og höfðu leigt hót-
elherbergi á hóteli liðsins fyrir stúlkur sem voru þar á þeirra vegum.
Musa Mohammed ráðherra íþróttamála Nígeríu sagði á föstudag-
inn að ekki kæmi til greina að endurskoða ákvörðunina um að senda
leikmennina úr landsliðshópnum en fyrirliðinn Jay Jay Okocha leik-
maður Bolton á Englandi gekk hart á eftir því að málið yrði leyst með
öðrum hætti.
Þjálfari Nígeríu vill fá
„syndaselina“ aftur
Babayaro
TRYGGVI Guðmundsson landsliðsmaður í knatt-
spyrnu er með undir höndum tilboð frá sænska úrvals-
deildarliðinu Örgryte en Tryggvi er sem kunnugt er
laus allra mála hjá norska úrvalsdeildarliðinu Stabæk.
„Ég er búinn að fá tvö tilboð frá Örgryte en ég á eft-
ir að gera upp hug minn. Það kemur vel til greina að
fara til Svíþjóðar en það eru líka fleiri mál sem ég er
að skoða,“ sagði Tryggvi við Morgunblaðið í gær.
Örgryte, sem sigraði á Iceland Express mótinu sem
haldið var hér á landi um síðustu helgi, kann greini-
lega vel við íslenska knattspyrnumenn því Tryggvi
gæti orðið þriðji Íslendingurinn í þeirra herbúðum.
Fyrir eru Atli Sveinn Þórarinsson, sem leikið hefur
með Örgryte undanfarin fjögur ár, og Jóhann B. Guð-
mundsson, sem nýlega gerði samning við félagið. Rún-
ar Kristinsson og Brynjar Björn Gunnarsson hafa báð-
ir leikið með Örgryte og þegar lengra er litið til baka
spiluðu Örn Óskarsson og Sigurður Björgvinsson með
Örgryte sem er elsta knattspyrnulið Svíþjóðar.
Örgryte vill fá
Tryggva til sín
FÓLK
JACOB Burns, sem enska 2.
deildarliðið Barnsley hefur haft í
láni frá Leeds síðan í október, verð-
ur hjá liðinu út keppnistímabilið.
Burns hefur verið í byrjunarliði
Guðjóns Þórðarsonar, knattspyrnu-
stjóra Barnsley, leikið 20 leiki og
skorað eitt mark.
FRAKKINN Claude Makelele,
miðvallarleikmaður Chelsea, hefur
hvatt landa sinn, Thierry Henry, til
að ganga til liðs við Real Madrid en
Makelele var í herbúðum spænska
liðsins áður en hann fór til Chelsea.
REAL Madrid hefur lengi haft
augastað á hinum magnaða Henry
og oftar en ekki hafa forráðamenn
liðsins fengið þær stjörnur sem þeir
hafa óskað eftir, til að mynda David
Beckham, Luis Figo og Ronaldo.
„Ég hef sagt Thierry að hann eigi
að fara til Real Madrid enda frá-
bært að leika fyrir þetta félag,“ seg-
ir Makelele.
HENRY hefur oft sagt að hann
sé orðinn þreyttur á fréttum um sig
og Real Madrid. „Ég er miklu
meira en ánægður að leika fyrir
Arsenal – og hjá liðinu vil ég og
ætla mér að vera næstu árin – þar
til ég legg skóna á hilluna.“
16-LIÐA úrslitin í ensku bikar-
keppninni verða um aðra helgi.
Grannaslagur Manchester United
og Manchester City verður laug-
ardaginn 14. febrúar klukkan 12.30
og hinn stórleikurinn í 5. umferð-
inni, leikur Arsenal og Chelsea,
verður á Highbury sunnudaginn 15.
febrúar klukkan 12.30.
Að lokinni tvöfaldri umferð í báð-um deildum tekur við úrslita-
keppni eins og undanfarin ár. Í henni
taka þátt a.m.k. sex
efstu lið úrvalsdeild-
ar, efsta lið 1. deildar
og síðan hefur það lið
sem hafnar í öðru
sæti 1. deildar möguleika á vinna sig
inn í úrslitakeppnina takist því að
hafa betur í a.m.k. tveimur kapp-
leikjum við það lið sem hafnar í sjö-
unda sæti úrvalsdeildar. Lánist lið-
inu í 2. sæti 1. deildar að komast í
úrslitakeppnina tekur það sjöunda
sætið í röðinni, en sigurliðið í 1. deild
það áttunda og mætir þar með deild-
armeisturum úrvalsdeildar í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar.
„Það eru sjálfsagt einhverjir gall-
ar á þessu fyrirkomulagi, en ég held
að þeir komi ekki í ljós fyrr en keppt
hefur verið samkvæmt því einu
sinni,“ segir Bjarki Sigurðsson, leik-
maður Víkings og fyrrverandi þjálf-
ari og leikmaður Aftureldingar.
„Í fljótu bragði sýnist mér stærsti
gallinn vera sá að liðið í öðru sæti 1.
deildar getur staðið betur að vígi en
sigurliðið í 1. deild, takist næstefsta
liði 1. deildar að komast í úrslita-
keppnina. Þá tekur það sjöunda sæt-
ið í röðinni og gæti fengið auðveldari
andstæðing í fyrstu umferð úrslita-
keppninnar en sigurlið 1. deildar
sem mætir örugglega deildarmeist-
urum úrvalsdeildar. Mér finnst þetta
ekki rökrétt,“ segir Bjarki.
Bjarki segir þessu nýja fyrir-
komulagi á Íslandsmótinu svipa
mjög til sænsku úrvalsdeildarinnar
en þar í landi hafi fyrirkomulagið
gefist vel. Því vilji hann sýna þessu
þolinmæði og sjá til hvort þetta geti
verið til bóta frá því keppnisfyrir-
komulagi sem verið hefur síðustu ár.
Valur og KA mæta
sterk til leiks
Um hvaða lið berjist um efstu sæt-
in í úrvalsdeildinni segir Bjarki „Öll
liðin í úrvalsdeildinni eru sterk.
Innst inni tel ég að Íslandsmeistarar
Hauka verði í baráttu fjögurra efstu
liða en nái ekki mikið lengra. Ég
reikna með að Valsliðið verði sterkt,
því hefur tekist að halda öllum sínum
leikmönnum auk þess sem þeir eru
að fá Bjarka Sigurðsson inn á nýjan
leik eftir meiðsli. Sama má segja um
KA-liðið, það á eftir að sýna tenn-
urnar nú í úrvalsdeildinni. Það virð-
ist alveg vera sama hvað KA-menn
missa marga leikmenn frá sér, það
koma alltaf nýir í staðinn. Bæði KA
og Valur hafa geta æft truflunar-
laust síðustu vikur og búið sig vel
undir þá keppni sem framundan er.
Ég set spurningamerki við HK og
þá einkum hvernig útlendingarnir
þeirra koma til baka eftir að hafa
leikið með landsliðum sínum í und-
ankeppni HM. HK-liðið hefur ekki
náð að sýna stöðugleika, geta unnið
sterkari liðin en tapað fyrir þeim
veikari. Ég tel að ójafnvægið geti
áfram orðið Akkilesarhæll HK-liðs-
ins,“ segir Bjarki sem heldur að ÍR-
liðið, sem margir hafa veðjað á að
standi uppi sem Íslandsmeistarar,
komist ekki eins langt og í fyrra þeg-
ar það lék til úrslita um Íslands-
meistaratitilinn við Hauka.
„ÍR-liðið er efnilegt en því miður
þá virðist breiddin í leikmannahópn-
um ekki vera eins mikil og í fyrra. Þá
veit ég að meiðsli hafa verið að herja
á leikmenn liðsins. Þar af leiðandi tel
ég ÍR-inga ekki ná eins langt og í
fyrra og að þeir verði um miðja
deild.“
Fram-liðið er vanmetið
Bjarki segir Fram-liðið vera van-
metið af mörgum, Fram gæti verið
liðið sem kæmist hvað lengst og
komið á óvart. „Það er mikil seigla í
Fram-liðinu, margir segja að það sé
skipað miðlungsleikmönnum en ég
tel svo ekki vera. Framarar hafa á að
skipa jöfnum og góðum hópi leik-
manna sem hafa sýnt að þeir eru til
alls vísir, gefast aldrei upp og hafa
oftar en ekki sýnt að þeir geta snúið
töpuðum leikjum upp í sigur. Sú
staðreynd segir meira en mörg orð
um seigluna og baráttuandann innan
Fram-liðsins,“ segir Bjarki.
Um neðri hluta úrvalsdeildarinnar
segir Bjarki að hann telji að Grótta/
KR og Stjarnan muni eiga á bratt-
ann að sækja. „Leikmannahópur
Gróttu/KR er fámennur og þegar við
bætast meiðsli hjá sterkum leik-
mönnum eins og Savukynas Gint-
aras þá bætir það ekki úr skák.
Grótta/KR er að mínu mati ekki með
nógu stóran hóp sterkra leikmanna
til þess að vera með í baráttunni að
þessu sinni. “
Brotthvarf Viggós
veikir Hauka
Hvaða áhrif heldur þú að brott-
hvarf Viggós Sigurðssonar frá
Haukum hafi á liðið?
„Viggó er ákveðinn og fær þjálfari
enda hefur hann sýnt það á síðustu
árum með Haukana. Hann hefur
haldið úti toppliði hjá Haukum í
nærri fjögur ár. Liðið hefur í vetur
leikið fleiri leiki en önnur vegna þátt-
töku sinnar í Evrópukeppninni.
Leikjafjöldinn og álagið hefur ekki
komið í veg fyrir að Hauka-liðið haldi
sínu striki í fremstu röð hér á landi.
Framhaldið hjá Haukunum veltur
mikið á því hver tekur við starfi Vig-
gós og hvaða stefnu eftirmaðurinn
tekur, hvort hann haldi áfram á
þeirri línu sem Viggó hafði mótað
eða snúi inn á aðra braut. Metnaður
leikmanna er að sjálfsögðu enn fyrir
hendi, en ég held að það sé enginn
vafi á því að brotthvarf Viggós veiki
Haukana. Þetta er sálfræðilega
slæmt fyrir leikmannahópinn og
kemur vafalaust niður á leik liðsins,
það kæmi mér að minnsta kosti ekki
á óvart.“
Um keppnina í 1. deildinni segir
Bjarki telja að baráttan um tvö efstu
sætin standi á milli FH, Víkings og
ÍBV. „Ég ætla ekki að gera lítið úr
öðrum liðum en ég tel að þessi þrjú
lið séu sterkust og hafi í raun alla
burði til þess að standa jafnfætis lið-
unum í úrvalsdeildinni. Hins vegar
verða menn að hafa í huga að það
verður ekkert sjálfgefið hjá þessum
liðum þremur, þau verða að fara í
hvern leik á fullu gasi til að vinna,
þau fá ekkert gefins,“ segir Bjarki
Sigurðsson, leikmaður Víkings.
Bjarki Sigurðsson, leikmaður Víkings, spáir í spilin í úrvalsdeildinni
Brotthvarf Viggós
veikir efalaust Hauka
Bjarki Sigurðsson
KEPPNI í úrvalsdeild karla á Íslandsmótinu í handknattleik hefst í
kvöld með heilli umferð, fjórum leikjum. Stjarnan tekur á móti KA,
Fram leikur heima við ÍR, Íslandsmeistarar Hauka glíma við HK á
Ásvöllum og loks sækir Grótta/KR liðsmenn Vals heim á Hlíð-
arenda. Þar með hefst annar hluti Íslandsmótsins í efri hlutanum
en keppni í 1. deild hófst í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem
þetta fyrirkomulag er reynt á Íslandsmótinu, þ.e. að skipta því upp í
tvær deildir að lokinni forkeppni sem stóð yfir í haust og fram að
áramótum.
Eftir
Ívar
Benediktsson