Morgunblaðið - 06.02.2004, Qupperneq 64
64 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
STEVE Beckett er annar stofnenda
og ennfremur eigandi bresku plötu-
útgáfunnar Warp Records. Hann
spilar á skemmtistaðnum Kapital í
kvöld ásamt vel völdum íslenskum
hljómsveitum og plötusnúðum.
Útgáfufyrirtækið varð til í
plötubúð í Sheffield árið
1989 en Steve stofnaði
Warp ásamt félaga sínum
Rob Mitchell, sem nú er
látinn. Fimmta platan sem þeir
gáfu út var El Ef Oh með LFO, sem
komst á topp 20 og seldist í 130.000
eintökum. Síðan hefur fyrirtækið
vaxið stöðugt og hefur marga virta
listamenn á sínum snærum.
– Hvert er leyndarmálið varðandi
velgengni Warp?
Steve tekur spurninguna alvarlega
og tekur góðan tíma til að hugleiða
svarið. „Ég held að það sé eins og hjá
öllum listamönnum, þetta snýst um
að geta endurskapað sjálfan sig og
passa upp á að vera ekki um of að
halda í fortíðina, frekar ýta sjálfum
sér fram á ný og ókönnuð svæði.
Þegar við byrjuðum þá vor-
um við bara dansútgáfufyr-
irtæki. Við vildum bara
gera klúbbaplötur sem fólk
gæti dansað við. Eftir að við
vorum búnir að gera það fórum
við að leita fyrir okkur á öðrum mið-
um. Þá fórum við inn í raftónlistar-
geirann. Að geta endurskapað sjálf-
an sig er það mikilvægasta.“
– Já, það er víst allt alltaf að breyt-
ast og klúbbarnir með.
„Já, nákvæmlega. Heimurinn er
alltaf að verða hraðari og hraðari.
Netið breytir miklu, það sem áður
tók kannski nokkur ár að breiðast út
getur fólk frétt um á nokkrum
klukkustundum.“
– Þú ert með mikið af listamönnum
á þínum snærum, sem njóta vel-
gengni, eins og Autechre, Boards of
Canada og Squarepusher til að nefna
nokkra. Er eitthvað ákveðið sem
skilgreinir Warp-listamann, eiga
þeir eitthvað sameiginlegt?
„Ekki endilega tónlistarlega séð,
frekar það að listamennirnir hugsa á
fagurfræðilegan hátt um heiminn.
Það eiga þeir sameiginlegt. Hugsun-
arháttinn að fara sínar eigin leiðir
eiga þeir líka sameiginlegan. Eru
skapandi og hugsa meira um að láta
list frá sér í heiminn heldur en að
njóta velgengni og græða helling af
peningum. Peningarnir eru ekki for-
gangsatriði hjá flestum tónlistar-
mönnunum hjá útgáfunni. Því mið-
ur.“
– Hvernig virkar það fyrir þig?
„Ekki mjög vel. Þetta þýðir að ég
er alltaf biðjast afsökunar fyrir hönd
listamannanna fyrir að mæta ekki í
viðtöl og þannig.“
– Eru einhverjir nýir og enn
óþekktir Warp-listamenn að koma
fram sem þú getur bent Íslendingum
á?
„Einn af þeim nýju sem hefur vak-
ið nokkra athygli hér er Jimmy Edg-
ar. 19 ára snillingur frá Detroit.
Hann er að gera ótrúlega nýja tón-
list, einhvers staðar á milli Prefuse
73 og upphaflega Detroit-sándsins.
Svo er !!! sem er spennandi hljóm-
sveit frá New York og ótrúleg á tón-
leikum. Minnir svolítið á Happy
Mondays. Við erum að bíða eftir
plötu frá þeim innan tíðar og bindum
vonir við það.“
Fyrir þá sem vilja kynna sér þetta
nánar gaf Jimmy Edgar út plötuna
Access Rhythm núna á þessu ári. !!!
kom með smáskífuna Me and Giuli-
ani Down by the School Yard (A
True Story) á síðasta ári, sem hlaut
góða dóma, og á þessu ári kom út
EP-platan Split.
– Hvernig kemstu í kynni við nýja
listamenn? Ferðastu mikið sjálfur?
„Við erum alltaf að leita að ein-
hverju nýju þegar við ferðumst. Og
svo erum við líka með tengslanet af
fólki sem við treystum og bendir okk-
ur á nýja tónlist. Stundum þegar ég
spila þá fæ ég gefins spólur og slíkt.“
– Hvað finnst þér um íslenska tón-
list?
„Það er mikið af góðri tónlist sem
kemur frá Íslandi þessa stundina. Ég
vona að ég rekist á eitthvað skemmti-
legt,“ segir hann og hefur heyrt „fyr-
ir utan Björk auðvitað“ í hljómsveit-
unum Sigur Rós „sem er orðin
ótrúlega stór“ og múm, sem hann
býst við enn meiri velgengni hjá.
„Hljómsveitir frá Íslandi þykja kúl
um þessar mundir. Það er eitthvað
sem er dularfullt og töfrandi við
þær.“
– Hvað ætlið þið og N.E.D. frændi
þinn [plötusnúður hjá Warp] að spila
hérna?
„Það verður mikið af nýrri tónlist,
sem er ekki komin út, tónlist sem er
glóðvolg úr plötupressuninni. En við
ætlum ekkert bara að spila Warp-
dót, heldur alls konar mismunandi
dót sem okkur finnst skemmtilegt.“
Steve segir að þeir frændur hafi
lengi haft áhuga á að koma til Íslands
og því verið mjög spenntir þegar
Beatkamp hafði samband. „Okkur
langaði svo mikið að koma til lands-
ins. Við erum að gera þetta til að hafa
gaman af. Og líka skoða þetta ótrú-
lega landslag, sem mig hefur dreymt
um. Við verðum líka vonandi í nokk-
urra daga í fríi,“ segir hann og bætir
við aðspurður að það sé aldrei að vita
nema þetta verði upphafið að frekara
samstarfi milli Warp og Íslands.
Dansveisla Warp Records og Beatkamp á Kapital í kvöld
Endursköpunin
mikilvægust
„Peningarnir eru ekki forgangs-
atriði hjá tónlistarmönnunum held-
ur hjá útgáfunni. Því miður,“ segir
Steve Beckett í viðtalinu.
Steve Beckett (eigandi Warp),
N.E.D. (Warp DJ), MidiJokers,
(Beatkamp), Delphi (Beatkamp)
Anonymous, DJ Mezzias (Grænir
fingur), DJ Bangsi og DJ Gunni
Ewok (Breakbeat.is) á Kapital í
kvöld á milli 22 og 6.
www.warprecords.com
ingarun@mbl.is
Warp Records er eitt þekktasta útgáfufyr-
irtæki í heiminum á sviði raftónlistar. Inga
Rún Sigurðardóttir ræddi við Steve Bec-
kett, stofnanda og eiganda útgáfunnar.
Ómissandi Warp-titlar
1. Aphex Twin – Selected Ambient
Works II (’94, WARP21)
2. Jimi Tenor – Intervision (’97, WARP48)
3. Autechre – Chiastic Slide (’97, WARP49)
4. Boards of Canada – Music has the Right to
Children (’98, WARP55)
5. Anti-Pop Consortium – Arrhythmia (’02, WARP94)
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 6. Íslenskt tal
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Roger Ebert
HJ MBL
ÓHT Rás2
Erótísk og örgrandi.
Leikur Óskarsverðlaunahafanna er magnþrungin.
Byggð á verðlaunaskáldsögu eftir Philip Roth.
í i
i l f i .
l l f i ili .
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Kvikmyndir.is
DV
4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna
„Le peuple migrateur“ /-
Heimur farfuglanna
Sýnd kl. 6 og 8
„l´auberge espagnole“-
Evrópugrautur
Sýnd kl. 8
„l´adversaire“ -
Óvinurinn
Sýnd kl. 10,20
„S21 la machine de
mort Khmer“/
Drápsvél Rauðu
Khmeranna
Sýnd kl. 6
FRUMSÝNING
FRUMSÝNING
Frábær teiknimynd frá Disney fyrir
alla fjölskylduna
með tónlist eftir Phil Collins!
Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri
Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“.
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Kvikmyndir.com
Diane Keaton tilnefnd til Óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í myndinni
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.30.
FRUMSÝNING
Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri
Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“.
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Kvikmyndir.com
Diane Keaton tilnefnd til Óskarsverðlauna
fyrir leik sinn í myndinni
Ein vinsælasta myndin á Íslandi 9 vikur í röð!
Grensásvegi 7, sími 517 3535
Frítt inn til kl. 24.00
Opið 9.00-01.00 virka daga og 9.00-05.30 um helgar