Morgunblaðið - 18.04.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mikið úrval - Gott verð
10% afsláttur m.v. staðgreiðslu
RAÐGREIÐSLUR
á handhnýttum, austurlenskum gæðateppum
á Grand Hóteli, Sigtúni, Reykjavík
Sölusýning
Í dag, sunnudag
18. apríl, kl. 13-19
Sími 861 4883
Töfrateppið
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segir vilja til þess innan rík-
isstjórnar að gera góðan samning
við kúabændur í 6 til 8 ár, en hann
kom m.a. inn á gerð nýs mjólkur-
samnings í ræðu sinni á aðalfundi
Landssambands kúabænda sem fór
fram á Akureyri. Hvað samninginn
varðar sagði ráðherra mikilvægt að
horfa til framtíðar og menn þyrftu
að skoða vandlega hvort gera þyrfti
einhverjar breytingar á stuðnings-
fyrirkomulagi við mjólkurfram-
leiðslu, þó svo að grunnurinn yrði
hinn sami. „Við verðum að gefa okk-
ur tíma til að skoða hugsanlegar
breytingar á samningnum,“ sagði
Guðni en nefndi í því sambandi
spurningu um stuðning við jarðrækt
á kúabúum.
„Ég hef aldrei leynt því að kvóta-
verð er alltof hátt, óeðlilega hátt,“
sagði landbúnaðarráðherra og taldi
ekki víst að það yrði með þeim hætti
til framtíðar. Nefndi hann í þessu
sambandi þau áföll sem orðið hefðu á
svínabúum og framleiðslan ekki allt-
af verið því fólki sem stundaði svína-
rækt farsæl. Þar hefðu bankar kom-
ið inn og miklir erfiðleikar steðjuðu
að greininni. Guðni sagði verð á
mjólkurkvóta nú vera 265 krónur á
lítrann og það væri alltof hátt. Þetta
verð væru bændur að greiða jafnvel
þótt ekki væri búið að ganga frá nýj-
um samningi. Ráðherra sagði mik-
ilvægt að leita leiða til að lækka verð
mjólkurkvóta. Eins og staðan væri
nú væri alls ekki sjálfgefið að stóru
og glæsilegu fjölskyldubúin kæmust
með sama áframhaldi til næstu kyn-
slóðar. Nefndi Guðni að bændur
væru að greiða 25–35 krónur í vexti
og afborganir vegna kvótakaupa á
hvert kíló mjólkur, en þeir fengju 38
krónur í stuðning á hvert kíló frá
ríkinu.
Nýr samningur
skammt undan
Þórólfur Sveinsson, formaður
Landssambands kúabænda, gerði
nýjan samning einnig að umtalsefni
og sagði innihald hans skipta mestu.
Kvaðst hann bjartsýnn á að nýr
samningur væri skammt undan, „og
við erum ekkert að gefast upp,“
sagði hann. Nú færu fram umræður
um leiðir til að ná markmiðum nýs
samnings, en þau eru m.a. að stuðn-
ingur ríkisins við greinina stuðli að
áframhaldandi hagræðingu, betri
samkeppnishæfni og lægra vöru-
verði. Þórólfur nefndi einnig í ræðu
sinni að verð á mjólk hefði hækkað
um 2,4% til framleiðenda um síðast-
liðin áramót án þess að verð til neyt-
enda hefði hækkað. „Það er fagn-
aðarefni að afkoma mjólkur-
iðnaðarins gerði þetta mögulegt og
vissulega góður árangur ef hægt
verður að halda verðinu óbreyttu til
neytenda út þetta ár,“ sagði Þórólf-
ur.
Megum ekki gefast upp,
verðum að halda áfram
Þórarinn E. Sveinsson, fulltrúi hjá
Bændasamtökum Íslands, fjallaði á
fundinum um útflutning mjólkur-
vara og nefndi m.a. að Íslendingar
ættu 620 tonna
ostakvóta inn til
Bandaríkjanna,
sem því miður
hefði ekki verið
notaður á liðnum
árum. Mjólkur-
samlag KEA hefði
á sínum tíma flutt
tvær gerðir osta
til Bandaríkjanna,
en ekki hefði
náðst samstaða um að halda þeim út-
flutningi áfram. Við það að útflutn-
ingi var hætt sagði Þórarinn að gæði
hefðu dottið niður, greinin hefði ekki
lengur haft það aðhald sem hún áður
hafði. „Þetta var farið að virka vel og
við höfðum náð fram hækkun þegar
útflutningurinn lagðist af,“ sagði
Þórarinn, en hann benti á að kvótinn
væri enn til, en það þyrfti innlenda
aðila til að sækja um hann. „Við
megum ekki gefast upp, við verðum
að halda áfram,“ sagði Þórarinn og
taldi alla möguleika á að hægt væri
að ná árangri á þessu sviði. Það sem
þar skipti máli væri að finna sér-
hæfða markaði fyrir vöruna, en skyr
taldi hann hvað helst koma til greina
í þeim efnum.
Landbúnaðarráðherra á fundi Landssambands kúabænda
Verð á mjólkur-
kvóta er allt of hátt
Morgunblaðið/Kristján
Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Helgi
Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norðurmjólkur, og Birgir Guðmundsson,
mjólkurbússtjóri Mjólkurbús Flóamanna, glugga í ársskýrsluna.
Guðni
Ágústsson
Þórarinn E.
Sveinsson
Þórólfur
Sveinsson
Akureyri. Morgunblaðið.
Áneðanjarðarlestarstöðinni Tottenham Court Road byrjarbyltingin; þetta er síðasta athvarf frjálsrar hugsunar. Kon-urnar eru í korselettum og karlarnir í hauskúpubolum, allirlitir í hári og hörundi. Þarna er frelsarinn sjalfur, – draum-
óramaður í svörtum leðurjakka. Einkenni manlífsins kynlíf, stíll, upp-
reisn og felsi. Sem sagt rokk og ról á sýningunni We Will Rock You í
Dominion-leikhúsinu við Tottenham Court Road.
Við miðasölustandinn er verið að selja leikskrár.
– Hvað kostar svona leikskrá, hugsar blaðamaður upphátt.
Maðurinn á undan honum í röðinni svarar:
– Hún kostar 250 krónur.
Þetta er ekki hefðbundið leikhús; meira versl-
unarmiðstöð þar sem listin er neysluvara, áhorfendur
maula poppkorn og eru með ólesnar leikskrár í kjölt-
unni. Í aðalhlutverki er höfundur skáldsögunnar Fak-
ing It, sem ugglaust er seld í bókaverslunum á Totten-
ham Court Road. Þar er bókabúð eftir bókabúð og
jafnvel betlararnir að lesa bækur; fólkið skáldsagna-
persónur. Uppáklædd kona í rauðum skrifstofustól á hjólum, sem
stendur á miðri gangstétt, virðir fyrir sér mannlífið.
Í neðanjarðarlestarstöðinni Tottenham Court Road gengur blaða-
maður á stúlku, sem lítur á hann og segir:
– Sorry.
Vörðurinn veit betur og skipar blaðamanni að fara upp að veggnum.
Annars teppir hann umferðina í neðanjarðarlestarkerfi Lund-
únaborgar. Sem fellur eins og fljót niður rúllustigana.
Það er stórmerkilegt að fylgjast með þeim farvegi sem straumurinn
hefur myndað. Þeir sem ekki eru að flýta sér standa hægra megin í
rúllustiganum. Þannig að hinir komist niður vinstra megin. Enginn fer
inn í lestirnar fyrr en allir hafa komist út sem ætla sér út. Ef þetta væri
lítið samfélag eins og Ísland væri þetta ekki svo merkilegt, en í London
búa milljónir af öllu þjóðerni.
Þetta er framandi fyrir íslenskum blaðamanni. Litla samfélagið Ís-
land er nefnilega ekki svona skipulagt. Þar geta tveir menn ekki mæst á
leið inn og út úr lyftu án þess að lenda í troðningi. Ef tveir menn hittast
í London, þá fara þeir í röð. Það liggur við að hér sé það regla að banka
á öxlina á næsta manni og spyrja:
– Excuse me, are you in a queue?
En ansi er nú mikið af fólki í London. Þegar lestin er orðin full treður
blaðamaður sér samt inn. Hann fær að upplifa það hvernig er að vera
síld í tunnu. Næsti maður andvarpar.
– Þessi borg er of stór.
Hann er líka Íslendingur.
Veitingastaðurinn Sarastro er í „leikhúslandi“ á Drury Lane og inn-
réttingarnar eftir því. Það er leikur í þjónustufólkinu, grímur á veggj-
um, sem eru eins og hliðar á feneyskum gondólum, og Rolls Royce fyrir
utan. Einkabílstjóri á vappi, sem vindur sér upp að konu og segir:
– Þú ert eins og grísk gyðja.
Síðan gerir hann undarleg kossahljóð sem ætluð eru henni og eru
væntanlega ættuð frá Grikklandi. Ekki veit blaðamaður hvaðan rak-
spírinn er sem hann fær á sig þegar hann fer á karlaklósettið. Það er
ósköp venjulegt að því leyti að þar eru klósett og vaskar. En myndirnar
eru afskaplega inspírerandi og pínulítið dónalegar. Þar horfa menn á
uppruna sinn og alls mannkyns – á meðan þeir pissa.
– Af hverju eru þessar myndir á klósettinu? spyr stúlka og reynir að
koma þjóninum í vandræði. – Af því þær eru svo rómantískar, svarar
matargestur á næsta borði. Ef til vill er hann líka frá Grikklandi.
– Varst þú á karlaklósettinu, spyr þjónninn.
Á neðanjarðarlestarstöðinni Baker Street eru flísar með mynd af
Sherlock Holmes, sem bjó í 23 ár í 221b Baker Street. Þar er safn til
minningar um hann og seldar skoðunarferðir um vistarverur hans á
þremur hæðum, sem verður að teljast nokkuð rúmgott fyrir mann sem
aldrei var til. Á annarri hæð mætir blaðamaður dr. Watson, sem tekur
hlýlega á móti honum og reynist kunna skil á tveim stöðum á Íslandi,
Keflavík og Reykjavík. Á öðrum hæðum er ýmist verið að fremja morð
eða fólk að vakna upp frá dauðum.
Í búðinni á jarðhæð eru seldir ólíklegustu hlutir sem tengjast Sher-
lock Holmes, frá spilum til babúska. Taflmönnum hefur verið raðað á
skákborðið. Sherlock Holmes er hvíti kóngurinn og Moriarty fer fyrir
þeim svörtu. Í dag væri Sherlock Holmes líklega vel launaður rann-
sóknarblaðamaður á Daily Mirror, að rannsaka meint framhjáhald Dav-
ids Beckhams. Og Moriarty ritstjórinn.
Reuters
Líf neðanjarðar
í Lundúnum
SKISSA
Pétur Blön-
dal skoðaði
mannlífið í
London.