Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
HÆKKANDI sól og hlýnandi veður eru fastir fylgifiskar
vorsins. Og með góða veðrinu fjölgar þeim líka sem njóta
þess að vera úti við, hvort sem er til að teiga að sér súrefni
á gönguferðum, skeggræða menn og málefni í skjóli fyrir
vornepjunni, eða til að sinna árvissri vorhreingerningu sem ekki eru síður
nauðsynleg á strætóskýlum en á venjulegum heimilum. Sólin dregur þá
ekki síður út börnin eftir langa inniveru á vetrardögum. Hjólin eru þá
gjarnan dregin fram, langar vegalengdir lagðar að baki og nærsveitir
kannaðar af nýjum eldmóð. Rykið er líka dustað af fótboltanum sem sem
brúað getur bekkja- og jafnvel aldursbil á skólavellinum í frímínútunum
þar sem allt fyllist af lífi á ný. Náttúran býður líka upp á fjölda for-
vitnilegra fyrirbæra sem gaman er að skoða. Þeir skemmtu sér líka
einkar vel í fjörugarði Stykkishólms á dögunum, félagarnir Arnar, Eiður
Smári og Hafsteinn. Fjaran er líka skemmtilegur leikstaður, ríkulega
skreytt bæði skeljum og kuðungum sem gaman er að nota í skapandi leik
þar sem einu takmarkanirnar liggja hjá endimörkum ímyndunaraflsins.
Rispur
Morgunblaðið/Sverrir
Morgunblaðið/Eggert
Arnar, Hafsteinn og Eiður Smári í fjörunni í Stykkishólmi.
Morgunblaðið/RAX
Lífsins notið í sól og sumaryl í Hallargarðinum.
Morgunblaðið/RAX
Skugga ber við eitt af bárujárnshúsunum á Njálsgötu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Strætóskýli við Eiðsgranda spúlað fyrir sumarkomuna.
Hressilegar stúlkur á hjólum við Langholtsskóla bruna niður Holtaveg.