Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 35
Leikrit Önnu Rósu Sigurð-ardóttur Plómur í NewYork verður frumsýnt íTheatre Row-leikhúsinu í
New York-borg síðsumars. Að
sögn Önnu Rósu stóð upphaflega
til að frumsýna verkið nú á vor-
mánuðum en sökum seinagangs
upphaflega framleiðandans ákvað
hún að finna annan framleiðanda
og gerast jafnframt sjálf meðfram-
leiðandi. Það hafði í för með sér að
fyrirhugaðri frumsýningu var
frestað fram á sumar. Að sögn
Önnu Rósu hefur hana lengi
dreymt um að setja upp sýningu í
New York eða alveg síðan hún var
í leiklistarnámi í Bandaríkjunum
fyrir nokkrum árum. Uppsetningin
á Plómum í New York í Theatre
Row á sér nokkuð langan aðdrag-
anda, allt frá því að Anna Rósa
skrifaði handritið og setti upp
míníútgáfu af verkinu í Seattle fyr-
ir nokkrum árum. „Ég hélt áfram
að vinna með handritið og fékk síð-
an gott fólk til að vinna að upp-
setningu verksins í fyrra,“ segir
Anna Rósa sem fer með eina hlut-
verkið í verkinu, en í samvinnu við
Heru Ólafsdóttur leikstjóra, Rósu
Guðmundsdóttur sem sá um tón-
listina og Móeiði Helgadóttur og
Egil Ingibergsson sem sáu um
leikmynda-, ljósa og búningahönn-
un settu þau upp Plómur í Tjarn-
arbíói síðasta vor.
Í haust var sýningin síðan end-
urfrumsýnd í Gamla bíói undir
heitinu Plómur í New York en þá
var Anna Rósa búin að endurskrifa
hluta handritsins auk þess að þýða
verkið yfir á ensku, enda stóð til að
fara með sýninguna út og sýna í
New York-borg strax upp úr ára-
mótum. Að sögn Önnu Rósu hafði
Susan Burdian, umboðsmaður
verksins úti, aðstoðað við að finna
aðila til að framleiða sýninguna og
sýningarhúsnæði, en sýna átti í
Theatre Row-leikhúsinu sem stað-
sett er við 42. stræti. Þegar til
kastanna kom reyndist framleið-
andinn hins vegar vinna mun hæg-
ar en þau höfðu gert ráð fyrir. „Á
endanum ákváðum við því að slíta
samstarfinu og tókum að okkur að
finna nýjan meðframleiðanda. Ég
hugsaði með mér að ég gæti alveg
eins farið í svörtu fötin, mætt með
skjalatöskuna undir arminn og
selt fólki þessa hugmynd.“ Anna
Rósa segist fljótlega hafa sigtað
út ákveðið fyrirtæki og farið á
fund forstjóra þess. „Ég mætti
því í svörtu fötunum og nið-
urstaðan var sú að við fengum
fjármagn til að setja upp sýn-
inguna,“ segir Anna Rósa og
bætir við: „Það var sannarlega
frábært að finna að forsvars-
menn fyrirtækisins hafi slíka trú
á manni.“ Spurð hvaða fyrirtæki
þetta sé segist Anna Rósa ekki
mega láta nafn þess getið þar
sem þeir vilji njóta nafnleyndar,
en tekur þó fram að þetta sé
stórt viðskiptafyrirtæki.
Nauðsynlegt að búa yfir
fáránlega miklu jákvæði
Þegar fjármagnið loks var í
höfn var hins vegar búið að ráð-
stafa upphaflega sýningartím-
anum í Theatre Row-leikhúsinu
og þess vegna var frumsýning-
unni frestað fram á sumar. Að
sögn Önnu Rósu er fyrirhugað
að frumsýna Plómur í New York
6. ágúst nk. og sýna 5–7 sinnum
í viku fram í septembermánuð í
stærsta sal leikhússins, The
Acorn, en leikhúsið býr yfir sex
sölum sem taka frá tæplega 90 til
200 manns í sæti. „Ég er mjög
spennt að fara að sýna í Theatre
Row, enda er þetta leikhús þar
sem mörg af mínum uppáhalds
leikskáldum vinna, fólk á borð við
John Patrick Shanley, Wallace
Shawn og Neil Labute. Ég hef
einu sinni áður unnið í þessu leik-
húsi, en það var fyrir nokkrum ár-
um og þá var það í mikilli nið-
urníðslu. Þegar ég skoðaði það
núna með Plómur í huga átti ég
satt að segja ekki orð yfir þeim
miklu endurbótum sem gerðar hafa
verið á leikhúsinu í millitíðinni.“
Aðspurð segist Anna Rósa alltaf
hafa dreymt um að sýna eigið
handrit í New York. „Ég á einfald-
lega í nokkurs konar ástarsam-
bandi við þessa borg. Allt frá því
ég heimsótti hana fyrst 18 ára
gömul og bjó þar um tíma hef ég
verið með annan fótinn þarna og
stefni að því að fara í frekara nám
í skrifum í New York, vonandi
haustið 2005. Einhverra hluta
vegna líður mér best í New York,
þar finnst mér ég einhvern veginn
vera mest ég sjálf, auk þess sem
mér finns fólk fatta
mig þar, þ.e. hver ég
er. Kannski má segja
að það sé ákveðinn
samhljómur milli mín
og þessarar borgar,“
segir Anna Rósa og
brosir.
En það er ekki lítið
mál að flytja heila sýn-
ingu milli landa og fá
það fjármagn og stuðn-
ing sem til þarf og því
liggur beint við að
spyrja Önnu Rósu
hvort hún hafi aldrei
haft efasemdir um að
þetta myndi hafast.
Anna Rósa svarar
spurningunni um hæl
neitandi, hugsar sig
síðan aðeins um og
bætir við: „Mér fannst
ekkert eðlilegra en að
þetta myndi ganga
upp. Ég trúi því nefni-
lega að ef maður ætlar
sér eitthvað þá tekst
manni það á endanum,
þó það gæti jafnvel
tekið lengri tíma en
maður hafði upp-
haflega gert ráð fyrir.
Þetta krefst bara mikillar þol-
inmæði, auk þess sem nauðsynlegt
er að búa yfir fáránlega miklu já-
kvæði,“ segir Anna Rósa að lokum.
Plómur á leið til New York
Plómur í New York verður frumsýnt í sal Theatre
Row-leikhússins sem nefnist The Acorn í ágúst.
Anna Rósa Sigurðardóttir leikur á móti klippimyndaskuggum í einleik sínum.
Líflæknirinn eftir
Per Olov Enquist
er komin út í kilju.
Þýðandi er Halla
Kjartansdóttir.
Líflæknirinn er
söguleg skáld-
saga og hefur sóp-
aði að sér verð-
launum á
Norðurlöndum. Hún var valin besta er-
lenda skáldsaga ársins 2001 í Frakk-
landi og er metsölubók í Þýskalandi.
Líflæknirinn fjallar um eitt merkileg-
asta skeið norrænnar sögu, sem
stundum er kallað Struensee-tíminn.
Þýski læknirinn og hugsjónamaðurinn
Struensee vann fullan trúnað hins
geðsjúka Kristjáns 7. Danakonungs,
sem þá var líka konungur yfir Íslandi,
en jafnframt hjarta Karólínu Matt-
hildar, drottningarinnar ungu. Á valda-
tíma sínum innleiddi hann ýmsar rót-
tækar breytingar á stjórn danska
ríkisins í anda frönsku byltingarinnar
– en tuttugu árum fyrr. Danski aðall-
inn brást hins vegar ókvæða við
skyndilegum völdum Struensees og
harðvítug barátta fór fram við hirðina.
Útgefandi er Mál og menning. Kilj-
an er 314 bls., prentuð í Danmörku.
Bergdís Sigurðardóttir gerði kápu.
Verð 1.799 kr.
Kilja
Svo fögur bein eftir Alice Sebold er
komin út í kilju. Þýðandi er Helga Þór-
arinsdóttir. Bókin kom út í innbund-
inni útgáfu fyrir jól.
Á leið heim úr skóla mætir Susie
Salmon, fjórtán ára gömul stúlka,
morðingja sínum. Hún fer til himna og
þar fær hún allar óskir sínar uppfylltar
– nema það sem hún þráir heitast, að
hverfa aftur til ástvina sinna á jörðu
niðri.
Úr fjarska fylgist Susie með for-
eldrum sínum, systkinum og vinum
takast á við reiði, sorg og söknuð. Öll
reyna þau á sinn hátt að afbera hina
skelfilegu martröð og smám saman
leggur tíminn græðandi hönd á harm-
inn.
Bókin hlaut ABBY-verðlaunin 2003
sem eru verðlaun breskra bóksala.
Bókin er frumraun höfundar og hefur
hún selst í yfir tveimur milljónum ein-
taka og setið í efstu sætum met-
sölulista vestra í 68 vikur samfleytt
og þar af langtímum saman í 1. sæti.
Útgefandi er JPV útgáfa. Bókin er
prentuð í Danmörku. Verð: 1.590 kr.
Kilja
PÁLL Sigurðsson, pró-
fessor í lögfræði við Há-
skóla Íslands, hefur verið
mikilvirkur á ritvellinum.
Samkvæmt ritaskrá aftast
í þessari bók hefur hann
ritað 33 bækur. Flestar
eru þær að sjálfsögðu um
lögfræði, en hann hefur
líka látið sig sitthvað fleira
varða. T.a.m. ritaði hann stórt
tveggja binda ritverk um sögu hús-
næðis- og byggingamála Háskóla Ís-
lands. Þá hefur hann margt ritað um
ferðamál og umhverfismál.
Greinasafnið, sem hér birtist í
einni bók, ber fjölþættum áhugamál-
um höfundar vitni. Eftir efni skiptist
það í sex svið. Fyrst koma sextán
greinar um Laganám og lögvísi. Þá
eru tólf greinar undir samheitinu Al-
menn háskólamálefni. Í þriðja lagi
eru sautján greinar um lög og sam-
félag. – Og víkur nú að öðrum efnum.
Tólf greinar bera yfirtitilinn Um-
hverfisvernd og skyld efni. Sex
greinar eru Af vettvangi Ferða-
félags Íslands. Og loks eru fjórar
greinar, sem nefnast Í ljósgráu
gamni og alvöru.
Eins og í Inngangi segir hafa flest-
ar greinanna birst áður, einkum í
Morgunblaðinu, en fjórtán þeirra (af
67) koma hér á prent í fyrsta sinn.
Allt eru þetta nýlegar greinar. Sú
elsta er frá árinu 1995, en nokkrar
eru alveg nýjar af nálinni. Þeir sem á
annað borð lesa slíkar
greinar í dagblöðum, kann-
ast því sjálfsagt við mikið af
efni bókarinnar.
Ekki er þetta fræðirit,
sem varla er heldur við að
búast um dagblaðsgreinar.
Í mörgum þeirra er bent á
aðkallandi verkefni eða
æskilegar breytingar eða
almenningi er greint frá
ýmsu sem varðar málefni
Háskólans. Hér eru hvatningarorð
og ávörp til stúdenta, afmælisgrein-
ar til samkennara, hvassar ádeilu-
greinar (Hveravallamálið), ferða-
þættir og ótalmargt fleira eins og
nærri má geta um nærri sjö tugi
greina.
Allar eru þessar greinar stuttar og
margar hverjar bundnar við tiltekn-
ar aðstæður, sem vafalaust fennir
fljótlega yfir.
Höfundur skrifar þægilegan stíl
og kemur boðskap sínum skilmerki-
lega á framfæri, enda er hann enginn
viðvaningur með stílvopnið eins og
fram hefur komið hér á undan. Bók-
arheitið Skæðadrífa er vel til fundið,
því að skæðadrífa er þetta safn svo
sannarlega.
Lög og samfélag
BÆKUR
Greinasafn
Páll Sigurðsson. Safn stuttra greina um
lög og samfélag. Háskólaútgáfan, 2003,
334 bls.
SKÆÐADRÍFA
Páll Sigurðsson
Sigurjón Björnsson
Launajöfnuður kynja í atvinnustefnu
Evrópusambandsins, „Equal pay and
gender mainstreaming in the Europ-
ean Employment Strategy“ er nýlega
komin út í Evrópu. Ritstjórar eru Lars
Magnusson, prófessor við Uppsala-
háskóla, Lilja Mósesdóttir, prófessor
við Viðskiptaháskólann á Bifröst og
Amparo Serrano Pascual, fræðimað-
ur við Rannsóknarstofnun evrópsku
verkalýðshreyfingarinnar (ETUI). Í bók-
inni leggja fjölmargir sérfræðingar á
sviði vinnumarkaðsmála mat á að-
gerðir stjórnvalda og aðila vinnumark-
aðarins til að draga úr kynbundnum
launamun í Evrópu. Ásamt því að rit-
stýra bókinni skrifar Lilja kafla um
fræðilegar skýringar á launamun
karla og kvenna.
Gerð er grein fyrir helstu kostum og
hindrunum við að beita áætlunum
eins og atvinnustefnu Evrópusam-
bandsins til að draga úr kynbundnum
launamun. Meginniðurstaða bók-
arinnar er að stjórnvöld og aðilar
vinnumarkaðarins eigi að hætta að
einblína einungis á óskýrðan kyn-
bundinn launamun og taka upp heild-
ræna stefnu sem tekur á flóknu sam-
spili fjölmargra þátta eins og
staðalmyndum um t.d. karlfyrirvinn-
una, kynskiptingu vinnumarkaðarins
og kerfisbundnu vanmati á störfum
kvenna.
Nánari upplýsingar um bókina er að
finna á vefsvæðinu http://
www.etuc.org/ETUI/New/
Equalpay.cfm
Bókin er gefin út af ETUI og sam-
starfsnefnd sænskrar verkalýðshreyf-
ingar um Evrópumál (SALTSA).
Launamunur