Morgunblaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 39
NÝAFSTAÐIÐ togararall gaf
25% hækkun á stofnvísitölu
þorsks. Varlega áætlað stækkaði
stofninn því um 150 þúsund tonn
frá síðustu mælingu. Engin
áhætta getur talist að auka þorsk-
veiðar um helming af stækkuninni,
75 þúsund tonn. Eftirfarandi rök-
semdir styðja þetta sjónarmið:
1. Veiðiálag síðasta árs, að við-
bættum 75 þúsund tonnum, er
minni „áhætta“
2. Síðasta tilraun, 1994–1999,
um að „lagera“ þorsk í hafið í stað
aukinnar veiði mistókst. Það týnd-
ust 600 þúsund tonn.
3. Skilgreiningin „ofmat“ á
týndum 600 þúsund tonnum stenst
ekki. Árgangurinn 1993 mældist
til sem seiði 1993 og sem sterkur
þorskárgangur í stofnvísitölum öll
árin 1994–1998. Þessi árgangur
virðist hafa hrygnt – og drepist að
mestu eftir hrygningu árin 1997–
1998 og mældist því eðlilega ekki
til í stofnmælingum frá árinu
2000. Að fullyrða svo árið 2000 og
2001 að þessi þorskur, aðallega
árg. 1993 hafi aldrei verið til (of-
mat um 600 þúsund tonn) tel ég
tilraunir til að falsa fyrri stofn-
mælingar árin 1994–1978.
4. Frekari sannanir eru að kyn-
þroski þorsks hér við land hefur
farið fallandi við aukna friðun, í
stað meiri veiði, eins og áður gafst
betur. Þorskur sem hrygnir hor-
aður 4–6 ára (2–3,5 kg) þolir ekki
álagið – og drepst. Þessi skýring
er langtum sterkari rökfræðilega
en að þorskurinn hafi aldrei verið
til.
5. Frekari sannanir eru að þeg-
ar reynt er að þvinga upp stofn-
stærð í stað meiri veiði fellur
vaxtarhraði. Lélegasta holdafar
þorsks var 1993 (eftir tilraunina
þá til að „byggja upp stofninn“ í
stað meiri veiði) og svo árið 2003
og nú í rallinu 2004 (sjá frétta-
tilkynnningu Hafrannsóknastofn-
unar 6. apríl 2004). Lélegt holda-
far er vísbending um of lágt
veiðiálag! Afleiðingar verða aukið
sjálfát, hækkuð dánartíðni, fall-
andi kynþroski og meiri þorsk-
dauði eftir hrygningu – þetta er
fyrri reynsla, 1997–1999.
6. Sterkar seiðavísitölur und-
anfarin ár koma ekki fram sem
sterkir árgangar. Eðlilegt er að
álykta sem svo að of lágt veiðiálag
hafi leitt af sér mikið sjálfát
þorsks á þorskseiðum. Auka á því
veiðiálag.
7. Reynsla af hæsta veiðiálagi á
þorski hérlendis – 1972–1976 þeg-
ar veiðiálag var 45% – var að
stofninn tvöfaldaði stofnstærð á
fimm árum, – þegar veiðiálag var
120 þúsund tonn umfram ráðgjöf í
„svörtu skýrslu“ 1975.
8. Reynsla 1973, 1983, 1984 og
1993, þegar stofnstærð var lítil og
veiðiálag hátt, var að sterkustu ár-
gangar síðri tíma urðu til við hátt
veiðiálag þessi ár. Þessir árgangar
skiluð svo mestri veiði, þrátt fyrir
hrakspár og aðvörunarorð Haf-
rannsóknastofnunar í öllum sömu
tilvikum. Niðurstaðan er rangt
áhættumat Hafrannsóknastofn-
unar í þessum tilfellum. Þetta
reyndust kjöraðstæður. Raunvís-
indi er = sönnuð reynsla. Tilgáta
sem mistekst endurtekið (byggja
upp stofninn) er ekki vísindi, frek-
ar sjúkleg þráhyggja.
9. Vaxandi hringormur í þorski
er staðreynd þrátt fyrir fækkun
útsels um helming. Skýring er að
öllum líkindum ofverndun þorsks
á grunnslóð. Hungraður þorskur
leitar í botndýr sem lifa á selskít,
eða þorskur étur selskít. Fleiri
þorskar með miklu meiri hring-
ormi, máttlausir af ormasýkingu,
eru auðveld veiðibráð fyrir sel,
aðra þorska og smáhveli. Út-
breiðsla hringorms magnast, sem
afleiðing af friðunarstefnunni get-
ur af sér ónýta, ógeðslega og úr-
kynjaða þorska á grunnslóð, sem
enginn vill helst kaupa eins og nú
t.d. þorsk úr í Húnaflóa.
10. Markaðsaðstæður eru nú
vaxandi erfiðar. Afurðaverð hefur
lækkað og eru enn að lækka. Ódýr
„kínafiskur“ veldur harðnandi
samkeppni og verð fellur á mörk-
uðum. Engin önnur leið er til fyrir
íslensk fyrirtæki til að takast á við
þetta nema þorskkvóti verði auk-
inn um a.m.k. 75 þúsund tonn.
Einungis þannig er unnt að lækka
meira hráefnisverð og afurðaverð
fái fyrirtækin meira magn til að
spila úr. Aðrir kostir eru að loka
fyrirtækjum eða taka upp rík-
isstyrki.
Hafrannsóknastofnun hefur ver-
ið undirokuð af ICES (Alþjóða
hafrannsóknaráðinu) í mörg ár
sem krefst þess að beitt sé töl-
fræðilegri veiðiráðgjöf með svo-
kallaðri „stærðfræðilegri fiski-
fræði“ sem alls staðar hefur
mistekist. Ekkert tillit er þá tekið
til fallandi vaxtarhraða – hækk-
andi dánarstuðuls við hungur. Töl-
fræðin reiknar þá sjálfvirkt „of-
mat“ – áður mældur fiskur sem
drepst úr hungri var þá aldrei til!
Það er löngu komið nóg af þessum
fáránlega tölvuleik ICES. Nú tök-
um við höndum saman – hrindum
af okkur alþjóðlegri klíku græn-
friðunga í ICES – og aukum
þorskveiðar um a.m.k 75 þúsund
tonn. Annars týnum við þorsk-
inum aftur með sömu líkum og
2x2=4.
Týnum við þorskinum aftur?
Kristinn Pétursson
skrifar um þorskveiðar ’Hafrannsókna-stofnun hefur verið
undirokuð af ICES
(Alþjóða haf-
rannsóknaráðinu) í
mörg ár… ‘
Kristinn Pétursson
Höfundur er fiskverkandi
á Bakkafirði.
HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR
Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800 • Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540 6850 • Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881
Hjá Steypustöðinni færðu faglega ráðgjöf hjá landslagsarkitekt-
unum Birni Jóhannsyni, Einari Birgissyni eða Stanislas Bohic um
allt sem lýtur að því að skipuleggja nýjan garð eða betrumbæta
þann gamla.
Pantaðu tíma í síma 540 6800 og
fáðu faglega ráðgjöf um skipulag
garðsins.
Hellur
steinar
Ráðgjöf landslagsarkitekta
Nú er rétti árstíminn til að
huga að lóðarframkvæmdum
og garðvinnu sem fram-
undan eru í sumar.
Fáðu sendan nýjan bækling
okkar um hellur og steina
eða kynntu þér úrvalið á
steypustodin.is
Söludeildin er opin
alla virka daga
frá kl. 9-18
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
1
1
9
3
7
/
si
a.
is