Morgunblaðið - 18.04.2004, Side 66

Morgunblaðið - 18.04.2004, Side 66
NÝ KVIKMYND í fullri lengd eftir íslenska kvikmyndagerðarmanninn Börk Gunnarsson verður frumsýnd vítt og breitt um Tékkland 29. apríl. Myndin heitir á íslensku Sterkt kaffi en Silný kafe á tékknesku. Myndin var tekin með stafrænni myndbandstækni og tékkneskum at- vinnuleikurum í aðalhlutverkum. Íslendingar sem koma við sögu fyrir utan leikstjórann og handrits- höfundinn Börk Gunnarsson eru Stefanía Thors aðstoðarleikstjóri, sem fer einnig með aukahlutverk í myndinni ásamt Thor Thors. Kostn- aður við myndina hljóðaði uppá um 30 milljónir íslenskra króna og er framleiðandinn Vratislav Slajer fyrir Bionaut, auk þess sem Börkur á hlut í myndinni og íslenska fyrirtækið Ilj- ar hf. Afbrýðisemi, framhjáhald, rifrildi og bátsferðalag Börkur varð líka fyrsti útlending- urinn í heil 8 ár til að fá styrk úr Tékkneska kvikmyndasjóðnum, 3 milljónir til lokafrágangs á myndinni, ráðstöfun sem vakti nokkra athygli í fyrrasumar. Þessi fyrsta kvikmynd Barkar í fullri lengd – hann hefur áður gert sjö stuttmyndir – segir frá tveimur vinkonum sem fyrir tilviljun hittast í Prag og fara í örlagaríkt sumarfrí til æskuslóða sinna úti í sveit. Eða eins og Börkur lýsti sjálfur efni mynd- arinnar í samtali við Morgunblaðið í apríl í fyrra þegar tökum á henni var lokið: „Myndin er um vináttu, ást og það sem því fylgir – afbrýðisemi, framhjáhald, rifrildi og bátsferðalag á tékkneskri á. Grunnsetning mynd- arinnar kemur frá Herakleitosi: „Þú stígur ekki tvisvar í sömu ána.“ End- urkoma er ekki möguleg. Ekki til. Þú snýrð aldrei aftur. Tvær vinkonur sem hafa ekki sést í tíu ár hittast fyr- ir tilviljun í Prag og ákveða að fara í sumarfríinu út á land til bæjarins sem þær ólust upp í. Ferðin hefur margar alvarlegar afleiðingar fyrir þær tvær og sambönd þeirra.“ Börkur hafði áður getið sér gott orð sem rithöfundur hér á Íslandi, sent frá sér ljóðabók, skáldsögu, smásagnasafn, tvö leikverk á sviði Möguleikhússins og samið handrit að einni sjónvarpsmynd. Áður en hann hélt til Prag í kvikmyndanám lauk hann námi í heimspeki við Háskóla Íslands. Í samtali við Morgunblaðið fyrir helgi segir Börkur myndina þegar hafa fengið mikla umfjöllun í Tékk- landi. Þá sé búið að gera samning um sýningar á myndinni í Póllandi, Ung- verjalandi og Slóvakíu og að þar verði hún frumsýnd í vor og í lok sumars. Hann vonar að myndin verði svo sýnd á Íslandi með haustinu. „Dreifingaraðilar myndarinnar í Tékklandi hafa greinilega trú á henni því þeir hafa látið gera 16 eintök af henni,“ segir Börkur greinilega fremur undrandi yfir öllum áhug- anum. Baráttuglaður og óttalaus Í tékknesku tímariti á dögunum birtist skemmtileg grein um Börk þar sem mikið var gert úr þjóðerni hans og brugðið á leik með því að bera saman Tékka og Íslendinga. Þar var mikið gert úr „baráttuanda“ Barkar og því „óttaleysi“ að ráðast út í gerð heillrar kvikmyndar án þess að eiga bót fyrir rassinn á sér. Þetta þótti tékkneskum blaðamanni að landar sínir gætu tekið sér til fyr- irmyndar því þeir væru gjarnan svo uppfullir af komplexum sem héldi aftur af framtakssemi þeirra og sköpunargleði. „Auðvitað var fullt af vitleysum í greininni enda hún gerð án minnar vitundar,“ segir Börkur. „Ég spila fótbolta með fólki sem ég var með í skólanum hér en þar er einnig blanda af fólki sem kemur úr öðrum skólum, m.a. blaðamaður sá er skrifaði grein- ina fyrir tímaritið sem er stórt hér í landi og kemur út á tveggja vikna fresti í 70 þúsund eintökum.“ Auk þessarar greinar hefur birst fjöldinn allur af viðtölum við leikara í myndinni og við Börk sjálfan. Vonlaust nafn Hann segist ekki hafa hugmynd um hvaða þýðingu öll athyglin muni hafa fyrir myndina og hann sjálfan sem kvikmyndagerðarmann. „Þetta er einhvernveginn að gerast of hratt, ég held að ég viti betur hvar ég stend þegar vika er liðin frá frumsýning- unni. Kannski er þetta bara eitthvert venjulegt fjör í fjölmiðlum og svo bú- ið.“ Spurður hvort hann sé að verða þekkt nafn í Tékklandi neitar hann því alfarið og segist trúlega aldrei verða það. „Það mun festast seint í huga Tékka, þarsem þeir geta engan veginn skilið það né borið það rétt fram.“ Börkur segist lítið vera farinn að planleggja frekari dreifingu á mynd- inni, kvikmyndahátíðir og slíkt, allir séu með hugann við heimamarkað eins og stendur. „En ég veit að stefn- an var ekki sett á Cannes, fremur aðrar A-hátíðir sem lengra er í, eins og Karlovy Vary, Berlinale, Moskvu og Rotterdam. Annars gengur allt stressið út á Tékkland.“ Sæt plön Börkur hefur nú búið í Tékklandi í nokkur ár og leikur því blaðamanni forvitni að vita hvort hann sé þar til að vera, eða farinn að hugsa heim? „Ef myndin gengur vel þá verð ég örugglega sem lengst hér. Ef hún gengur illa þá kem ég með skottið á milli lappanna aftur til Íslands á stundinni, strax í vikunni á eftir frumsýningu. Eða fer eitthvað ann- að. Ég er ekki mikið að hugsa lengra fram í tímann en til byrjunar maí- mánaðar. Þó segist hann vissulega vera far- inn að huga að fleiri verkefnum, sem plönuð eru hér, í Þýskalandi og á Ís- landi. „En þótt plön séu voða sæt þá þarf ansi margt að koma til, til að þau verði að veruleika.“ Fyrsta íslensk-tékkneska myndin vekur athygli Börkur býr til Sterkt kaffi skarpi@mbl.is Börkur við tökur á myndinni sem fóru að mestu fram síðla árs 2002. Fer í almennar sýningar í fjórum löndum í vor og sumar 66 SUNNUDAGUR 18. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.00 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 3 og 8. Með ensku tali Sýnd kl. 2 og 4.30. Með íslensku tali Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! (Píslarsaga Krists) HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40. B.i. 16. Sýnd kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40. B.i. 16. Sýnd kl. 1.30, 3.40, 5.50, 8 og 10.15.Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. Sýnd kl. 10.15. FRUMSÝNING Til að tryggja réttan dóm réðu þeir utanaðkomandi sérfræðing En það var einn sem sá við þeim... Eftir metsölubók John Grisham Með stórleikurunum John Cusack, Gene Hackman, Dustin Hoffman og Rachel Weisz Frábær gamanmynd frá leikstjóra There´s Something About Mary og Shallow Hal r r fr l i stj r r ´s t i t r ll l Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 8 og 10.10. Fyndnasta mynd ársins! 2 vikur á toppnum í USA! Upplifðu fyrsta stefnumótið...endalaust! Jimmy the Tulip er mættur aftur í hættulega fyndinni grínmynd! Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 3.40. B.i. 16. Vinsælasta myndin á Íslandi! HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk (Píslarsaga Krists) Sýnd kl. 3.40 og 5.50. Með ísl. tali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.