Morgunblaðið - 22.04.2004, Síða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SNEKKJAN Svarti haukurinn
sökk í höfninni í Gimli í Kanada í
fyrradag. Þegar var hafist handa
við að reyna að dæla vatni úr
henni. Það gekk illa þar sem
snekkjan hallaði það mikið og
ómögulegt reyndist að rétta hana
af en kafari var fenginn til að-
stoðar. Um síðir tókst þó að rétta
snekkjuna við og ljúka dælingu.
Eftir er að kanna skemmdir en
ljóst er að snekkjan verður ekki
notuð í sumar.
Dr. Irvin Olafson í Gimli á
snekkjuna. Hann er vel þekktur í
,,íslenska“ samfélaginu í Manitoba
og var ásamt Larry Ragnari Krist-
janson helsti hvatamaðurinn að
byggingu Menningarmiðstöðv-
arinnar í Gimli, The Waterfront
Centre, en Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og Eric Stefanson, fyrr-
verandi fjármálaráðherra Mani-
toba, eru verndarar miðstöðvar-
innar og opnuðu hana formlega 21.
október 2000.
Ísinn á Winnipegvatni er að
þiðna og er ótraustur í höfninni í
Gimli, en það er lán í óláni að
grunnt er niður á botn þar sem
snekkjan er og því ætti að vera
auðveldara að koma henni á réttan
kjöl en ella. Undanfarin ár hefur
Irvin einkum notað snekkjuna fyrir
ýmsar móttökur og meðal annars
hafa margir íslenskir ráðamenn
komið um borð. ,,Þetta er mikið
áfall en eftir er að kanna hvað
gerðist og hvert framhaldið verð-
ur,“ sagði Irvin við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinþór
Svarti haukurinn marar í hálfu kafi í höfninni í Gimli í Kanada.
„Íslensk“ snekkja
sökk í höfninni í Gimli
Gimli. Morgunblaðið.
FERÐALANGUR 2004 verður
haldinn í fyrsta skipti í dag, sumar-
daginn fyrsta, en um er að ræða nýj-
an ferðaviðburð sem ætlað er að efla
ásýnd ferðaþjónustunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. Höfuðborgarstofa, í
samstarfi við Ferðamálaráð, Ferða-
málasamtök höfuðborgarsvæðisins
og Samtök ferðaþjónustunnar, hefur
virkjað á sjötta tug ferðaþjónustuað-
ila til þátttöku í fjölskylduvænni dag-
skrá víðsvegar á höfuðborgarsvæð-
inu og í nágrenni þess.
Í frétt frá aðstandendum Ferða-
langs segir að markmiðið með sýn-
ingunni sé að freista þess að gera
íbúa höfuðborgarsvæðisins að enn
betri gestgjöfum fyrir ferðamenn,
innlenda sem erlenda með því að
þeir kynnist því betur hvað ferða-
þjónustan hefur upp á að bjóða á
heimaslóð.
Hópbílafyrirtækin bjóða upp á
„Skemmtiferðir á heimaslóð“, boðið
er upp á ákveðið þema í hverri ferð,
svo sem ágrip af Kjalnesingasögu,
sögu rafvæðingar, upphaf byggðar í
Reykjavík, Heiðmörk og hella, Hafn-
arfjörð og Bláfjallahring. Að auki er
ýmiskonar afþreying og/eða safna-
heimsókn í hverri skemmtiferð. Í af-
þreyingarhluta dagskrár Ferða-
langs stendur margt til boða, svo
sem álfa-, garða-, miðbæjar- og
ljóðaganga, útsýnisflug, bílaleigur
bjóða upp á ratleik og ökuleiknipróf
fyrir börn á rafmagnsbílum, fjalla-
trukkur ekur upp á Úlfarsfell, hesta-
ferðir verða í boði auk hvalaskoðun-
ar og sjóstangaveiði. Söfn eru með
fjölþætta dagskrá á Ferðalangi 2004
og að auki bjóða hótel, upplýsinga-
miðstöðvar og félagsmiðstöðvar á
vegum ÍTR ferðalöngum að ganga í
bæinn.
Þeim, sem taka þátt í Ferðalangi
2004, gefst kostur á að taka þátt í
vinningsleik með því að safna fimm
límmiðum hjá ferðaþjónustuaðilum
meðan á Ferðalangi 2004 stendur og
skila til Upplýsingastöðvar ferða-
manna í Aðalstræti 2 fyrir 30. apríl.
Á sjötta tug fyrirtækja
tekur þátt í Ferðalangi
BÆJARSTJÓRN Blönduósbæjar
samþykkti á fundi sínum í gær að
gera Jón Ísberg,
fyrrverandi
sýslumann, að
heiðursborgara
Blönduóss. Til-
nefningin er til
komin vegna
óeigingjarns
starfs Jóns fyrir
samfélagið. Jóni
verður afhent heiðursskjal þessu til
staðfestu í tengslum við 80 ára af-
mæli hans hinn 24. apríl nk.
Jón Ísberg
gerður að heið-
ursborgara
Blönduósi. Morgunblaðið.
SVONEFND Vísindavika á norður-
slóðum hófst í Reykjavík í gær, en
hún stendur til 28. apríl. Hátt í tvö
hundruð innlendir og erlendir vís-
indamenn, sem fást við rannsóknir á
loftslagi, lífríki, umhverfi og mannlífi
norðurslóða, taka þátt í ráðstefn-
unni, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Vísindavikan er haldin í tengslum
við formennsku Íslands í Norður-
skautsráðinu. Dagskráin hófst með
vinnufundum en á laugardag setur
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra ráðstefnuna með ávarpi.
Vísindavika
á norður-
slóðum
AÐ minnsta kosti sextíu og átta
manns biðu bana í samræmdum
sprengjutilræðum í borginni Basra
og nágrenni hennar í suðurhluta
Íraks í gær. Um það bil tvö hundruð
manns til viðbótar særðust í þessum
ódæðisverkum sem þykja til marks
um að ógnaröldinni í Írak sé engan
veginn lokið. Meðal látinna var hóp-
ur barna sem átti leið framhjá einu
skotmarka ódæðismannanna á leið
sinni í skólann.
Tiltölulega rólegt hefur verið um
að litast í Basra, ef borið er saman
við önnur svæði í Írak, á þessu ári
sem liðið er síðan Bandaríkjamenn
gerðu innrás í landið. Í gærmorgun
sprungu hins vegar bílsprengjur fyr-
ir framan þrjár lögreglustöðvar í
Basra, eða kl. 7.15 að staðartíma, kl.
3.15 að nóttu til að íslenskum tíma.
Létust að minnsta kosti sextíu og sex
í þessum sprengjutilræðum. Enginn
vafi virðist leika á því að um sam-
ræmdar aðgerðir var að ræða.
Tvær bílsprengjur til viðbótar
sprungu svo um tveimur klukku-
stundum síðar við æfingabúðir ír-
askra lögreglumanna í bænum
Zubair, skammt frá Basra. Þar dóu
tveir Írakar. Fjórir hinna særðu þar
voru breskir hermenn en Bretar
ráða ríkjum í suðurhluta Íraks sem
hluti af bandalagi viljugra þjóða, sem
Bandaríkin fara fyrir. Tveir Bret-
anna voru sagðir alvarlega særðir.
Breskir hermenn grýttir
„Flest fórnarlambanna voru lög-
reglumenn og skólabörn,“ sagði
Wael Abdel Latif, héraðsstjóri í
Basra, um hryðjuverkin í gær en
hann sagði hættu á að tala látinna
ætti eftir að hækka enn, margir
særðra hefðu verið þungt haldnir.
Latif kenndi al-Qaeda-hryðju-
verkasamtökunum um ódæðin.
„Þessar árásir minna á árásir al-
Qaeda,“ sagði hann. Samir Shaker
Mahmoud al-Sumeidi, innanríkis-
ráðherra í íraska framkvæmda-
ráðinu, tók í sama streng. „Það er
ljóst að fingraför þeirra sem stóðu að
ódæðisverkunum í Erbil og Karbala
[í febrúar] sjást vel á árásum dags-
ins,“ sagði hann.
Síðdegis í gær var staðfest að um
sjálfmorðsárásir hefði verið að ræða.
Munu tilræðismennirnir hafa verið
fimm en tveir til viðbótar voru hand-
teknir áður en þeir gátu framkvæmt
ætlunarverk sitt. Mennirnir óku bíl-
um að lögreglustöðvunum í Basra,
sem um ræðir, og sprengdu þá í loft
upp á tilteknum tíma.
Margir Írakar voru á ferli þegar
sprengjurnar sprungu en Saudia-
lögreglustöðin, þar sem ein bíl-
sprengja sprakk, er í nágrenni helsta
útimarkaðssvæðis Basra. Tvær rút-
ur, sem voru á leið fram hjá Saudia-
stöðinni, eyðilögðust í sprenging-
unni: önnur þeirra hafði innanborðs
hóp grunnskólabarna en hin ungar
skólastúlkur. Mátti sjá illa brennd
lík barnanna liggja á götunni eftir
ódæðið.
Tölur um hversu mörg börn biðu
bana voru þó mjög á reiki, Lati sagði
að sextán börn hefðu látist en aðrir
sögðu þá tölu of háa.
Stór gígur var fyrir framan
Saudia-lögreglustöðina, um tveir
metrar á dýpt og um 3 metrar á
breidd. Sagði Mohammed Kadhim
al-Ali, lögreglustjóri í Basra, að bíl-
arnir, sem sprengdir voru í loft upp,
hefðu verið hlaðnir sprengiefni.
Breskir hermenn sem komu aðvíf-
andi eftir sprengjutilræðin til að
hjálpa til við björgunarstarf fengu
óblíðar móttökur, að sögn AP, hjá
reiðum heimamönnum sem kenndu
Bretunum um að hafa ekki tryggt
öryggi í borginni nægilega vel. Var
grjóti kastað í bresku hermennina,
að sögn fréttavefjar BBC.
Hörð átök í
nágrenni Fallujah
Bardagar brutust út norður af
borginni Fallujah, vestur af Bagdad,
í gær milli bandarískra hermanna og
andspyrnumanna, þrátt fyrir að
samkomulag hefði verið gert tveim-
ur dögum áður um að átökum skyldi
hætt. Sögðu talsmenn Bandaríkja-
hers að um fjörutíu andspyrnumenn
hefðu gert árás á bandaríska her-
sveit. Talsmaður hersins sagði að níu
Írakar hefðu verið drepnir og að þrír
Bandaríkjamenn hefðu særst en
bandarískir landgönguliðar á staðn-
um sögðu að 36 Írakar hefðu verið
drepnir í átökunum.
Skv. samantekt AP hafa a.m.k. ell-
efu hundruð Írakar fallið í átökum í
landinu í aprílmánuði.
Tugir manna biðu
bana í árásum í Basra
Írösk skólabörn
í hópi þeirra
sem féllu
Basra. AFP, AP.
Reuters
Mikið öngþveiti ríkti á vettvangi sprengjutilræðanna í Basra í gær.
!"
#!
$ %&
'()* +,
-"".
/ 0 &2
/
345"
$ SLÖKKVILIÐSMENN rannsaka flak tveggja lesta
sem lentu í árekstri í Süssen, suðaustur af Stuttgart
í Þýskalandi í gærmorgun. Einn lést og sex slös-
uðust. Áreksturinn varð rétt fyrir klukkan níu að
staðartíma á brautarteinunum á milli Stuttgart og
München.
AP
Lestarslys í Þýskalandi