Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 47

Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 47 Í kvöld kl. 20.00: Sumarvaka. Umsjón Miriam Óskarsdóttir. Veitingar. Allir velkomnir. Ungliðar bjóða til samkomu í kvöld kl. 20.00 með hinum óvið- jafnanlega KEVIN WHITE. Allir velkomnir. Ath.: Ódýri fatamarkaður ungl- inganna stendur enn yfir. www.krossinn.is Fimmtudagur 22. apríl 2004 Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Prédikun Svanur Magnússon. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Föstudagur 23. apríl 2004 Opinn AA-fundur kl. 20:00. Mánudagur 26. apríl 2004 Biblíulestur í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 19.30. Þriðjudagur 27. apríl 2004 UNGSAM í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 19:00. Uppbyggilegt starf fyrir ungt fólk í bata. www.samhjalp.is Ferðalangur 2004 Sumardagurinn fyrsti 22. apríl kl. 13 og kl. 16: Skemmt- iferð á heimaslóð í rútu frá Hóp- ferðamiðstöðinni - Vestfjarða- leið. Brottför frá Húsgagnahöll- inni, Bíldshöfða 20. Út í bláinn um Bláfjallahring- inn: Rútuferð með góðri leið- sögn og fjölskylduganga. Allir velkomnir. Lengd ferða: 2,5 klst. Verð. 1.000 kr., frítt fyrir börn yngri en 14 ára. www.hopferd.is og www.vesttravel.is . Aðalfundur Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn fimmtu- daginn 29. apríl 2004 kl. 16.15 í húsnæði félags- ins í Mosfellsbæ. Dagskrá: 1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt 15. grein samþykkta félagsins. 2. Heimild aðalfundar til handa félagsstjórn til kaupa á eigin hlutabréfum. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu félagsins í Mosfellsbæ viku fyrir að- alfund, hluthöfum til sýnis. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á skrifstofu félagsins í Mosfellsbæ, á fundar- dag. Mosfellsbæ, 20. apríl 2004. Stjórn ÍSTEX hf. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is SÝNING á innsetningu eftir Krist- ínu Ísleifsdóttur leirlistamann verður opnuð á Garðatorgi á veg- um Hönnunarsafns Íslands kl. 16 í dag, fimmtudag. Innsetningin, sem ber heitið Núna, hérna, sam- anstendur af þremur mannhæð- arháum athvörfum fyrir gesti og gangandi. Innan veggja þeirra geta einstaklingar átt stund með sjálfum sér, ótruflaðir af venjulegu áreiti og hlustað á eigin önd. Verkin eru einhvers konar and- rými, þar sem form, efnisval og áferð vinna með þeim sem láta sig hverfa inn í rýmin og staldra við í núinu. Verkin eru að mestu leyti unnin úr íslenskum hráefnum, m.a. birki, furu, grasi, leir og náttúrulegum litarefnum, og er beitt óhefð- bundnum aðferðum við hagnýt- ingu þeirra. Vistfræði og end- urnýting hlutanna er listakonunni ævinlega ofarlega í huga. Athvörf Kristínar verða uppi- standandi á Garðatorgi til júní- loka. Þau má nálgast á torginu alla daga frá 10 til 21. Þrjú athvörf á Garðatorgi KYNNING á lokaverkefnum í námskeiðinu Tæknileg iðnhönnun við verkfræðideild Háskóla Ís- lands fer fram á morgun, föstu- daginn 23. apríl, kl. 11 í stofu 261 í VR II. Í fyrsta hluta kynningar byrjar Helgi Skúli Friðriksson að fjalla um nýja hönnun á tæki sem er notað við greiningu á flogaveiki. Síðan mun Stefán Sturla Gunn- steinsson kynna tölvukerfi sem gerir lausnarskrár til að greina vinduvandamál. Kerfið er einkum ætlað til að finna spennur við ígræðslu gervilims við bein. Arn- hildur Eyja Sölvadóttir fjallar um nýja hönnun á skynjara fyrir blinda og sjónskerta. Síðasta erindið í þessum hluta fjallar um jarðvarmahönnun á dælu og pípukerfi fyrir litla byggð í Mongólíu. Í öðrum hluta kynnir Fjóla Jó- hannesdóttir nýja útfærslu á göngugrind sem auðvelt er að pakka saman og breyta í staf til að fara upp og niður tröppur. Einar Sigursteinn Bergþórsson fjallar um fjölnota geymslugrind fyrir bíla, geymslur og bílskúra. Ríkey Huld Magnúsdóttir kynnir farangurstrillu fyrir flug- og lest- arfarþega. Sigurður Ari Sigurjónsson mun í síðasta hluta kynningar halda er- indi um nýja tegund af kartöflu- sáningarvél. Jon Gustav Wred- mark fjallar um nýja tegund af bátarampi fyrir árabáta. Magnús Ingi Einarsson fjallar um nýja tegund af opnunarbúnaði fyrir hitaveitutanka. Daníel Scheving Hallgrímsson kynnir nýja tegund af glasahöldum fyrir sjálfvirka dælingu á bjór. Kynning á tækni- legri iðnhönnun Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn TÍSKUVÖRUVERSLUNIN Er var opnuð nýlega á Skólavörðustíg 3a við hliðina á Mokka. Eigandi verslunarinnar er Áslaug Harðar- dóttir. Í versluninni er seldur kven- fatnaður frá merkjunum Luana og nuu sem eru frá Ítalíu og Þýska- landi. Einnig selur verslunin ís- lenska skartgripi. Verslunin Er er opin mánudaga til föstudaga kl. 11–18 og kl. 11–16, á laugardögum. Áslaug Harðardóttir í verslun sinni Er við Skólavörðustíg. Ný verslun við Skóla- vörðustíg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.