Morgunblaðið - 22.04.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.04.2004, Blaðsíða 31
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 31 Á ÞESSUM tíma voru næturgjafir orðnar fastmótaðar, þú vaknaðir um klukkan 6 og aftur um klukkan 9. Reyndar er varla hægt að segja að þú hafir vaknað, enda ertu stein- sofandi þegar ég gef þér. Þó ég sofi með þér frameftir, er ég enn fegin því hvernig meðgangan var búin að búa mig undir að vakna nokkrum sinnum yfir nóttina. Á meðgöng- unni vaknaði maður nefnilega ekki bara út af bumb- unni, heldur var maður líka alltaf á klósettinu! „Ég þarf að pissa á 10 mínútna fresti,“ sagði ólétt vinkona mín á síðustu vikunum sínum og var greinilega orðin frekar þreytt á þessu næturbrölti. „Ég veit það,“ svaraði ég hlæjandi og rifjaði þetta upp. Strax á fyrstu vikum ólétt- unnar eru tíðar klósettferðir eitt af einkennunum. Sjálf vandist ég þessu svo fljótt að ég held að stund- um hafi ég bara hreinlega gengið í svefni fram á klósett. Undir það síðasta er samt margt annað sem truflar svefninn. Barnið er orðið stórt og fyrirferðarmikið, líkaminn þunglamalegur og þreyttur. „Það er náttúrulega allt farið að þrýsta svo á,“ hélt ólétta vinkona mín áfram og andvarpaði. Ég vissi af reynslu að nú væri hún verulega farin að þrá að hvílast betur. Viku eftir þetta samtal eignaðist hún síðan 16 marka dóttur, tveimur vikum fyrir tímann.  DAGBÓK MÓÐUR Svefnleysi Meira á föstudag. DR. JOHN Harcup er breskur lyf- læknir sem staddur var hér á landi fyrir skömmu í tengslum við mark- aðssetningu á Reykjavík sem heilsu- borg (SPA city Reykjavík). John þessi hefur áður komið til Íslands og er einn af fjölmörg- um sem fallið hafa flatir fyrir landi elda og ísa hér í norðrinu. Íslenska vatnið heillar John þó hvað mest og segir hann það vera gull okkar Ís- lendinga. Glöggt er jú gests augað og við sem búum hér og lítum á hreint drykkjarvatn og heitt baðvatn sem sjálfsagðan hlut, höfum auðvitað gott af því að láta benda okkur á forrétt- indi þau sem við búum við. John hefur undanfarin tíu ár verið ötull talsmaður heilsulinda og þrátt fyrir að hann sé lærður lyflæknir þá er hann á þeirri skoðun að fólk eigi fyrst að leita annarra leiða en lyfja eða leggjast undir skurðarhníf, þegar krankleikar sækja á. „Heilsa er víð- tækt hugtak og ótalmargt sem hefur áhrif á hana. Ef við einföldum þetta þá getum við sagt að oft vill gleymast að líkamleg og andleg heilsa haldast í hendur, eða hafa mikil áhrif í báðar áttir. Þess vegna getum við bætt heilsu okkar á svo margan annan hátt en með lyfjum eða skurðaðgerðum og eins skiptir miklu máli að stunda fyr- irbyggjandi aðgerðir til heilsubótar. Ein þeirra leiða er að nýta sér heilsu- lindir og þar leikur vatn stærsta hlut- verkið. Vatn er ótrúlega magnað fyr- irbæri í einfaldleika sínum og getur gert okkur svo margt gott, því slökun og vellíðan skipta miklu máli þegar heilsa er annars vegar. Ef við gleym- um að sinna slökunarþættinum, þá endum við í hnút,“ segir John og bæt- ir við að fólk sé almennt orðið meðvit- aðra um að allt vinni þetta saman og því sé vaxandi áhugi fyrir heilsulind- um víða í veröldinni. „Snerting vatns við líkamann veitir mikla slökun og hana er hægt að nálgast á ýmsan hátt, til dæmis með því að láta líða úr sér í heitum potti, sitja eða liggja í gufu- baði, synda í sundlaug, svo ekki sé tal- að um staði eins og Bláa lónið sem er alveg frábært og einn af mínum uppá- halds baðstöðum og hef ég þó farið víða.“ John segir misjafnt hvað hverj- um einstaklingi henti þegar leitað er slökunar í vatni og því gott að geta valið um ólíkt hitastig í pottum eða gufuböðum, farið í nudd eða annað slökunardekur á sama stað og jafnvel lagt sig í hvíldarherbergjum með ró- andi náttúruhljóðum. „Við sem erum talsmenn heilsu- linda og berjumst fyrir uppbyggingu þeirra, erum ekki að finna upp hjólið, því til eru heimildir um heilsulindir í Róm til forna og víða annars staðar, tyrknesku böðin þekkja allir og svo mætti lengi telja. En við erum að vekja þetta upp að nýju og það hefur verið unnið í því undanfarin fjörutíu ár. Við finnum góðan byr núna og ef- laust hefur það eitthvað með vaxandi umhverfisvitund fólks að gera og áhuga á náttúrulegum leiðum til að bæta heilsu sína.“ Morgunblaðið/Jim Smart Hollusta: Vatn er ótrúlega magnað fyrirbæri í einfaldleika sínum og getur gert okkur gott því snerting vatns við líkamann veitir mikla slökun.  HEILSA Vatn er lífsins lind khk@mbl.is NORSKI landbún- aðarháskólinn og Ósló- arháskóli hafa hrint af stað verkefni sem miðar að því að kanna hvort sveitastörf og nálægð við húsdýr geti haft jákvæð áhrif á líðan fólks sem á við sálræn vandamál að etja. Um 60 sjúklingar, sem þjást til dæmis af kvíða og þunglyndi, taka þátt í verkefninu. Þeim er ætl- að að heimsækja sveita- býli, þar sem meðal ann- ars eru haldnar mjólkurkýr og sauðfé, tvisvar í viku og sinna þar húsdýrum í þrjár klukkustundir í senn, um þriggja mánaða skeið. Að sögn Bjarne Braastad, sérfræðings hjá Norska landbúnaðarháskólanum, hefur til- raunin farið vel af stað og segir hann meðferðir á borð við þessa hugs- anlega geta sparað heilbrigðiskerf- inu háar fjárhæðir.  HEILSA Húsdýr í hlutverk sálfræðings? Morgunblaðið/Golli Tilraun: Sjúklingar sem þjást af þunglyndi og kvíða fara tvisvar í viku á bóndabæ og verja þremur klukkustundum með húsdýrunum. hefst laugardaginn 24. apríl og stendur til 3. maí. - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 Þýskaland og Austurríki með Terra Nova í sumar frá 19.990.- Terra Nova kynnir nú sölu á ódýru fargjöldunum til Þýskalands í sumar á hreint ótrúlegum kjörum. Beint flug til vinsælustu borga Þýskalands: Berlínar, Dusseldorf, Munchen, Frankfurt og Hamborgar. Þú getur um leið valið um úrvals hótel í hverri borg og leigt bílaleigubíl á einstaklega hagstæðum kjörum. Munchen Fimmtudaga Kr. 29.910 Flugsæti til Munchen, 27. maí með sköttum. Takmarkað sætaframboð. Hamborg Kr. 28.600 Flugsæti til Hamborgar, 18. júní með sköttum. Takmarkað sætaframboð. Berlín Föstudaga / mánudaga Kr. 19.990 Flugsæti til Berlínar, 10. maí með sköttum. Verð er mismunandi eftir dagsetningum. Dusseldorf Kr. 27.110 Flugsæti til Dusseldorf, 4. júní með sköttum. Takmarkað sætaframboð. Frankfurt Kr. 29.910 Flugsæti til Frankfurt, 3. júní með sköttum. Takmarkað sætaframboð. Vín Kr. 29.990 Flugsæti til Vínar, 17. júní með sköttum. Takmarkað sætaframboð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.