Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 26

Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 26
Sandgerðisbær | Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sand- gerðisbæjar, segir það aðeins tímaspursmál hvenær stórslys verða á fólki við ratsjárstöðina Rockville á Miðnesheiði en börn og ungmenni hafa gert sér að leik að fara inn á svæðið sem að mati bæjarstjórans er stórvarasamt. Bæjaryfirvöld áttu fund með full- trúa frá varnarmálaskrifstofu ut- anríkisráðuneytisins í fyrradag vegna málsins og hyggjast rita Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli bréf þar sem krafist er úrbóta. Íslensk stjórnvöld hafa ítrekað óskað eftir því við Varnarliðið að mannvirki yfirgefnu ratsjárstöðv- arinnar Rockville verði rifin en Varnarliðið hefur lýst því yfir að það hafi ekki fjármagn til að ráð- ast í verkið. Nánast hver einasta rúða brotin „Það er ekkert launungarmál að ég hef verulegar áhyggjur af stöðu þessara mála. Nú er að vora og krakkanir hafa meiri tíma eftir að skóla lýkur og fara mikið þang- að upp eftir í eggjaleit og berja- leit. Þó að gömul girðing sé þarna í kring er svæðið opið og búið að brjóta þarna nánast hverja ein- ustu rúðu. Þarna er laust drasl fjúkandi um og menn hafa talað um að þarna sé asbestmengun og þar af leiðandi er þetta enginn staður fyrir börn að vera á.“ Að sögn Sigurðar eru í einu húsinu stórvarasöm gólf, sk. „kerfisgólf“ þar sem börn geta hæglega fallið niður og stórslas- ast. „Það sem ég hef hins vegar einna mestar áhyggjur af eru dísilrafstöðvar sem voru notaðar til að framleiða rafmagn fyrir svæðið þegar rafmagn féll út. Þarna eru olíutankar og sýru- geymar til að búa til rafmagn ef dísilrafstöðvarnar duttu út. Þetta hús er núna opið og er stór- hættulegt ef börn komast að þessu, og þau komast að þessu.“ Sigurður segir að Varnarliðið hljóti að eiga sjóði til að grípa til þegar um öryggismál er að ræða sem varði almannaheill á svæðinu. „Það er ekki líðandi að það skulu vera skilin eftir mannvirki sem geta orðið fólki að fjörtjóni hér í nágrenni við þrjá byggð- arkjarna.“ Bæjaryfirvöld hyggjast senda Varnarliðinu bréf þar sem krafist verður úrbóta. Sorglegur endir á góðu samstarfi „Það má hins vegar ekki gleyma því að samskipti Varnarliðsins og bæjarfélaganna í kring, einkum Sandgerðisbæjar og flughersins hvað varðar Rockville, hafa alla tíð verið mjög góð. Það væri sorgleg- ur endir á góðu samstarfi ef þetta myndi enda með einhverri skelf- ingu,“ segir Sigurður. Að sögn hans er með öllu óljóst hver bæri ábyrgðina ef fólk slas- aðist inni á svæðinu. Varnarliðið hafi lýst því yfir að svæðið sé bannsvæði og ábyrgðin sé þeirra sem fari í leyfisleysi inn á svæðið. „Það er hins vegar þannig, eink- um þegar börn eiga í hlut, að það er erfitt að standast freisting- arnar,“ segir Sigurður og ítrekar að mikilvægt sé að lausn verði fundin á málum. Sýrugeymar og olíu- tankar í opnu rými „Stórhættulegt“ og aðeins tímaspursmál hvernær slys verða á fólki, að mati bæjarstjórans í Sandgerði sem krefst úrbóta af hálfu Varnarliðsins Börn og ungmenni hafa gert sér að leik að fara inn á svæðið þar sem Rockville-ratsjárstöðin á Miðnesheiði var áður til húsa. SUÐURNES 26 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Reykjanesbær | Húsfyllir var á tónleikum „Bassanna þriggja frá Keflavík“ í Lista- safni Reykjanesbæjar sl. sunnudag. Er þetta í fyrsta sinn sem bassasöngvararnir Jóhann Smári Sævarsson, Davíð Ólafsson og Bjarni Thor Kristinsson syngja allir saman og greinilegt var að Keflvíkingar og nærsveitamenn höfðu beðið eftir þess- um tónleikum lengi, slík voru fagnaðar- ópin. Fyrir hlé samanstóð efnisskráin af ís- lenskum og erlendum einsöngslögum en eftir hlé voru fluttar aríur úr vinsælum óp- erum. Meðfylgjandi mynd var tekin við flutning Heljargöngunnar, sem er loka- atriði óperunnar Don Giovanni eftir Moz- art. Kurt Kopecky lék undir á flygil. Það var Tónlistarfélag Reykjanesbæjar sem stóð fyrir tónleikunum.    Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Húsfyllir á tónleika „Bassanna þriggja“ Reykjanesbær | Þroskahjálp á Suður- nesjum fékk í fyrradag eina milljón króna að gjöf frá Bónus en fyrirtækið gaf 15 millj- ónir króna til ýmissa góðgerðamála og var Þroskahjálp þeirra á meðal. Jóhannes Jóns- son, stofnandi Bónuss, afhenti peningana en forsvarsmenn fyrirtækisins afhentu styrkina í tilefni af 15 ára afmæli Bónuss. Garðar Garðarsson, gjaldkeri Þroska- hjálpar á Suðurnesjum, tók á móti styrkn- um fyrir hönd félagsins. Þroskahjálp á Suður- nesjum fékk 1 milljón Reykjanesbær | Stjórn og vara- stjórn Starfsmannafélags Suð- urnesja var endurkjörin á aðal- fundi félagsins sem haldinn á Flughóteli í fyrrakvöld. For- maður er Ragnar Örn Péturs- son og varaformaður Sæmundur Pétursson. Að loknum aðalfundi var fundur haldinn með hóp- ferðabílstjórum hjá SBK þar sem nýr kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins var kynntur. Samningurinn var að því loknu borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða. Að sögn Ragnars Arnar felur samningurinn í sér töluverða hækkun lægstu launa og að öðru leyti svipaðar launahækk- anir og Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið sömdu um við Samtök atvinnulífsins fyrir skemmstu. „Það eru ýmsar lag- færingar í þessu eins og orlofs- uppbót og desemberuppbót sem eru lagfærðar verulega.“ Samningurinn nær til hóp- ferðabílstjóra SBK og starfa tæplega tuttugu manns eftir samningnum. Starfsmannafélag Suðurnesja Stjórnin endurkjörin FROST ACTIVITY Ólafur Elíasson Björgólfi Thor Björgólfssyni og Samson Eignarhaldsfélag, er sannur hei›ur a› veita s‡ningunni brautargengi. Opi› daglega 10-17. Sí›asta s‡ningarhelgi Hús Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhús, Kjarvalssta›ir og Ásmundarsafn eru öll opin sumardaginn fyrsta. Veri› velkomin!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.