Morgunblaðið - 22.04.2004, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 45
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Atvinna í Bretlandi
Kona, búsett í miðborg Lundúna (Central Lond-
on), óskar eftir starfi hjá íslensku fyrirtæki með
starfsemi í Bretlandi. Hefur mikla reynslu af sölu
og markaðsstörfum á Bretlandi og Íslandi. Full-
komið vald á íslensku og ensku, góð tölvukunn-
átta og góð reynsla af skrifstofu- og fyrirtækja-
rekstri. Góð yfirsýn yfir enskt viðskiptaumhverfi.
Vinsamlegast sendið mér línu á netfang og ég
hef samband.
atvinna2000@yahoo.com
!
"
% #
!'
()*
+, #
-(.//+0.//
--.//+0.//
1!
2
#
,/
#
3
+4 5
3
! 6#
7 3
888# !
.
Ísafjarðarbær
Fulltrúi á
fjármálasviði
Óskum að ráða á bæjarskrifstofu í starf fulltrúa
á fjármálasviði.
Starfssvið:
Fjárumsýsla.
Rekstrarverkefni.
Tölvu- og hagræðingarverkefni.
Innheimtustörf.
Afgreiðsla og upplýsingagjöf.
Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Stúdentspróf að lágmarki.
Góð almenn tölvukunnátta (s.s. Excel, Word
og Windows).
Bókhaldskunnátta.
Nákvæmni, frumkvæði og sjálftstæði
í vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Ísafjarðarbæj-
ar á slóðinni www.isafjordur.is/storf.php og
í síma 450 8000.
Fjármálastjóri.
Tónmenntaskóli
Reykjavíkur
Tónlistarkennarar
Tónmenntaskólinn óskar eftir að ráða tón-
menntakennara (tónlistarkennara) frá 1. sept-
ember nk. fyrir skólaárið 2004-2005.
Um er að ræða eina hlutastöðu. Kennslusvið
nær frá forskólakennslu 6 og 7 ára barna til
hópkennslu nemenda á aldrinum 8—15 ára,
en þar er um að ræða samþætta kennslu í
tónfræði, tónheyrn, hlustun, sköpun o.fl.
Einnig er auglýst eftir tveimur píanókennur-
um í hlutastöður.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur er einn af elstu
tónlistarskólum landsins, stofnaður 1952, og
er til húsa við Lindargötu. Kennsluaðstaða er
góð og tækjakostur mjög góður.
Þeir, sem áhuga hafa á þessu starfi, vinsam-
lega sendi skriflega umsókn, þar sem fram
koma persónulegar upplýsingar og upplýs-
ingar um menntun og kennsluferil.
Meðmæli óskast.
Umsóknir sendist augldeild Mbl. fyrir 30. apríl,
merktar: „Tónlistarkennsla — 101.“
Starfsmenn óskast
Garðyrkjuverktaki óskar eftir vönum mönnum
til starfa. Reynsla af vélum æskileg.
Umsóknir sendist til augldeildar Mbl. eða í
box@mbl.is merktar: „G — 15244“. Leiðbeinandi
— kennari
Slysavarnaskóli sjómanna leitar eftir leiðbein-
anda/kennara til starfa við skólann. Slysavarna-
skólinn er í eigu Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og er staðsettur um borð í skólaskipinu
Sæbjörgu. Tilgangur starfsins er að vinna að
markmiðum Slysavarnaskóla sjómanna, sem
eru að efla öryggisfræðslu sjómanna með
öflugum skóla, sem uppfyllir íslenskar og
alþjóðlegar kröfur um þjálfun sjómanna og
auka þjónustu við sjómenn og aðra aðila með
fræðslu um slysavarnir við sjó og vötn.
Starfið felur í sér m.a.:
Leiðbeinendastörf á námskeiðum skólans
í Reykjavík og á landsbyggðinni.
Þróun og undirbúning námskeiða, æfinga
og námsefnis um öryggismál sjómanna.
Viðhald námstækja og námsgagna skólans.
Að starfa í áhöfn skólaskipsins Sæbjargar
á siglingum þess.
Viðhald skips og búnaðar skólaskipsins Sæ-
bjargar.
Leitað er eftir einstaklingi með a.m.k. 5 ára víð-
tæka reynslu til sjós, með góða tölvuþekkingu
og þekkingu og reynslu í öryggismálum sjó-
manna. Æskilegt er að viðkomandi hafi kennslu-
réttindi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst. Unnið er samkvæmt gæðastjórnunar-
kerfi ISO 9001:2000.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun og
starfsferil, ásamt mynd, berist Slysavarnafélag-
inu Landsbjörgu, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík,
merktar: „Leiðbeinandi“, fyrir 26. apríl nk.
ATVINNA ÓSKAST
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is