Morgunblaðið - 22.04.2004, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 22.04.2004, Blaðsíða 68
AGNES Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, fékk blaða- mannaverðlaun ársins, sem veitt voru í fyrsta skipti á pressuballi á Hótel Borg í gærkvöldi. Agnes fékk verðlaunin fyrir greinaflokk í Morgunblaðinu, sem fjallaði um baráttuna um Íslandsbanka, og fyrir sinn hlut í umfjöllun blaðsins um skattamál Jóns Ólafssonar. Börn Agnesar, Sunna og Sindri Viðarsbörn, tóku við verðlaun- unum og fluttu þakkarræðu Agnesar sem er við friðargæslu- störf á Sri Lanka. Í rökstuðningi dómnefndar sagði að greinaflokkurinn samein- aði flest það sem einkenndi vand- aða blaðamennsku, fréttnæmi, dýpt, hlutlægni og samsetningu. Agnes hefði dregið upp heild- stæða mynd af veruleika sem flestum landsmönnum hefði verið hulinn áður og gert það að verk- um að skilningur almennings á hinum nýja og gjörbreytta veru- leika íslensks viðskiptalífs væri nú allur annar en áður. Brynhildur og Reynir verðlaunuð Þá fékk Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir öfluga umfjöllun um varnarmál og boðaða brottför hersins. Reynir Traustason, blaðamaður á Fréttablaðinu, fékk verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins, fyrir frumkvæði og heild- stæða umfjöllun um rannsókn Samkeppnisstofnunar á samráði olíufélaganna. Morgunblaðið/Golli Agnes Bragadóttir fékk blaðamannaverðlaun ársins  Blaðamannaverðlaun/4 Börn Agnesar Bragadóttur, Sunna og Sindri Viðarsbörn, tóku við verð- laununum fyrir hönd móður sinnar á pressuballinu í gærkvöldi. MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Opið 13.00 - 17.00 Gleðilegt sumar! Sumarhátíð í dag GAMLA ÍR-húsið var í gærkvöldi fært upp á Árbæjar- safn frá hafnarbakkanum við Ægisgarð, þar sem það hafði verið geymt frá árinu 2001. Ragnar Árnason, varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík, sagði húsið með þeim stærri sem flutt hefðu verið með þessum hætti innan borgarinnar. Beina þurfti allri um- ferð frá og keyra með húsið á öfugum vegarhelmingi alla leiðina, um Sæbraut og upp Ártúnshöfðann, á Ár- bæjarsafn. Ferðin sóttist vel þó aðeins væri keyrt á um 5 km/klst. Voru lögreglumenn á fimm vélhjólum og einum bíl og lokuðu þeir stuttum götuköflum í einu til að valda sem minnstri röskun á umferð. Pallur flutningabílsins var þannig útbúinn að hægt var að láta húsið standa sem réttast í beygjum með því að tjakka upp hliðarnar. Flutningarnir voru afar um- fangsmiklir, enda húsið um 90 tonn að þyngd og nokk- uð stórt. Færa þurfti umferðarljós og skilti til að koma húsinu eftir götum borgarinnar. Áætlað var að flutn- ingurinn tæki um 5–6 klukkustundir en Ragnar bjóst við að hann tæki jafnvel skemmri tíma. ÍR-húsið var reist árið 1897 sem kirkja á Landakots- túni. Það var gefið Íþróttafélagi Reykjavíkur þegar Kristskirkja var risin á Landakotstúni árið 1929 og þá flutt til, vestur fyrir gamla prestssetrið. Þá var kirkju- turninn tekinn af húsinu og því breytt í íþróttahús á steyptum kjallara. Morgunblaðið/Júlíus Færa þurfti umferðarljós og skilti til að koma húsinu um göturnar. Lífsreynt hús á langferð LÆGSTU laun félaga í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur (VR) og Landssambandi íslenskra verzlunar- manna hækka á bilinu 17,5% til 31% samkvæmt nýjum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins (SA) sem und- irritaður var í gærkvöld. Ein meginbreytingin í samningn- um er að afgreiðslufólk í hlutastarfi fær greitt 40% álag á vinnu utan hefðbundins dagvinnutíma þótt það hafi ekki náð að fylla dagvinnutíma, þ.e. 160-170 tíma á mánuði, en greitt er liðlega 1% af föstum mánaðar- launum fyrir yfirvinnu umfram dag- vinnu eins og víðast tíðkast. Að öðru leyti eru almennar launabreytingar, lífeyrissjóðsframlög og önnur al- menn atriði í samningnum í takt við það sem önnur stéttarfélög hafa þeg- ar samið um. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segist vera þokkalega sáttur við samninginn á heildina litið. „Þetta er búið að vera langt og strangt og samningarnir sem Starfsgreinasam- bandið og Flóinn skrifuðu undir settu ansi djúp hjólför fyrir okkur.“ Gunnar Páll segir viðræður að undanförnu að miklu leyti hafa snú- ist um breytingar á töxtum og breyt- ingar á meðferð yfirvinnu. „Við tök- um aftur inn orðið eftirvinna þegar menn eru vinna utan dagvinnutíma án þess að vera búnir að klára skil- greindan dagvinnutíma yfir mánuð- inn, þ.e. 160 til 170 stundir. Þannig að það má segja að við séum að taka upp ígildi vaktafyrirkomulags í verslun og fáum þá innspýtingu í lág- markslaunin á móti,“ segir Gunnar. „Þetta er búið að vera þó nokkur törn og menn hafa setið nánast við- stöðulaust við síðan í síðustu viku,“ segir Ari Edwald, framkvæmda- stjóri SA. Hann segir samningagerð- ina annars vegar hafa snúið að mark- aðslaunaumhverfi skrifstofufólksins en hins vegar að afgreiðslufólki þar sem sé meira taxtaumhverfi. „Það var erfitt að koma því heim og sam- an. Lykillinn að niðurstöðunni fólst í miklum breytingum á uppbyggingu samningsins. Það er ljóst að þarna eru verulegar taxtahækkanir til starfsfólks í afgreiðslu,“ segir Ari. Samningar náðust milli VR og SA 17–31% hækkun lægstu launa afgreiðslufólks AÐALEIGANDI Eignarhalds- félagsins Stofns, móðurfélags P. Samúelssonar, umboðsaðila Toyota hér á landi, mun auka við hlut sinn í fyrirtækinu í kjölfar sölu Sjóvár-Al- mennra trygginga á hlut sínum í því. Sjóvá-Almennar eignuðust fjórðungshlut í fyrirtækinu í janúar fyrir rúmu ári þegar Bogi Pálsson, þáverandi forstjóri P. Samúelsson- ar, seldi hlut sinn. Kaupverð hlut- arins er ekki gefið upp. Aðaleigandi Stofns er Páll Sam- úelsson, en hann og eiginkona hans, Elín S. Jóhannesdóttir, eiga nú um 60% í félaginu. Eftir kaupin af Sjóvá-Almennum verður eignarhlut- ur þeirra samanlagt um 85%. Aðrir hluthafar eru Anna Stella, dóttir þeirra, sem á tæp 8%, Emil Gríms- son, forstjóri félagsins, sem á 5%, og félagið sjálft, sem á rúm 2%. Reksturinn gengur vel Í fyrra seldust rúmlega 2.700 Toyota-bílar hér á landi og hafa þeir mörg undanfarin ár verið með hæstu markaðshlutdeildina. Í fyrra jókst sala þeirra um tæp 44%, sem er heldur meiri aukning en á mark- aðnum í heild. Á fyrstu þremur mánuðum þesssa árs seldust 619 Toyota-bílar, sem er 25% aukning frá sama tímabili í fyrra. Að sögn forstjóra P. Samúelssonar gekk rekstur fyrirtækisins mjög vel í fyrra. Sjóvá út úr Toyota  Sjóvá-Almennar/C1 LANDHELGISGÆSLAN ætti að bjóða út varðskip í einka- framkvæmd, að mati Sigfúsar Jónssonar, framkvæmdastjóra Nýsis hf. „Það vantar varðskip og þeir þurfa með þessu móti ekki að smíða það, heldur leigja það bara af viðkomandi í tiltek- inn árafjölda,“ segir Sigfús. Sama segir hann eiga við um Hafrannsóknastofnun en Nýsir rak í tíu ár þrjú hafrannsókna- skip í Namibíu í einkafram- kvæmd fyrir ríkisstjórnina. Gæslan leigi varðskip  Heilsugæsla/C8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.