Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 18
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Sameining könnuð | Á fundi Héraðsráðs
Austur-Húnavatnssýslu á þriðjudag var
tekið fyrir erindi framkvæmdastjórnar
Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi þar
sem þess er farið á leit að kannað verði með
hugsanlega sameiningu heilbrigðisstofnana
í Austur Húnavatnssýslu. Er þar um að
ræða Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi,
dvalar- og hjúkrunarheimilið Sæborgu á
Skagaströnd og dvalardeild HSB. Var
framkvæmdastjóra og oddvita falið að ræða
nánar við fulltrúa HSB um málið, að því er
fram kemur á blonduos.is.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Reglur um hundahald | Umhverfisráðu-
neytið hefur staðfest samþykkt um hunda-
hald í Þingeyjarsveit og hefur samþykktin
verið auglýst í Stjórnartíð-
indum. Hún hefur því hlotið
formlegt gildi og eru á vef-
síðu sveitarfélagsins birt
eindregin tilmæli til hunda-
eigenda um að hundar eigi
ekki að ganga lausir á al-
mannafæri. Í fyrstu grein
samþykktarinnar segir m.a. að alla hunda í
Þingeyjarsveit sé skylt að skrá. Ein-
staklingum búsettum í sveitarfélaginu, öðr-
um en ábúendum lögbýla, er óheimilt að
halda hunda nema með sérstöku leyfi sveit-
arstjórnar og að uppfylltum þeim skil-
yrðum sem tilgreind eru í samþykktinni.
Eigendur þarfahunda eru undanþegnir
gjaldtöku, nema vegna hundahreinsunar …
Þarfahundar eru t.d. smalahundar á lögbýl-
um, veiðihundar fyrir mink og ref, hundar
haldnir vegna fötlunar eiganda og björg-
unarhundar.
Bæjarstjórar keppa | Efnt verður til
Bryggjudaga í Súðavík í annað sinn dag-
ana 17.–19. júní og meðal atriða er svo-
kölluð bæjarstjórakeppni.
Þar keppa bæjar- og sveit-
arstjórar á Vestfjörðum
um titilinn „sveitarstjórn-
andi Vestfjarða“. Und-
irtektir þeirra hafa verið
góðar er haft eftir Vil-
borgu Arnarsdóttur, eins
skipuleggjanda Bryggju-
daganna, á vef Súðavíkurhepps. Starfs-
mannafélag Hraðfrystihússins-Gunn-
varar hf. og Súðavíkurhreppur standa að
bryggjudögunum.
Grímsey | Í hugum margra er
grásleppan einn af vorboðunum.
Ekki var að sama skapi vorlegt
um að litast á fyrstu dögum ver-
tíðarinnar og örugglega kulda-
legt fyrir grásleppukarlana og
grásleppukerlinguna einu, hér í
eyju, að halda út á sjóinn í bítið.
Með Sæmundi Ólasyni, útgerð-
armanni á Kristínu EA 37, eru í
áhöfn Steinar sonur hans og
ung kona úr Aðaldal, Kristbjörg
Vala Kistjánsdóttir. Hún er ekki
alveg ókunnug sjómennsku því
hún hefur verið á handfærum á
bát frá Húsavík. Sæmundur
sagði að nú myndu fjórir bátar
verða gerðir út á grásleppu frá
Grímsey. Hann sagðist ekki
vera svartsýnn, þó einum báti
væri fleira en í fyrra. „Ég er
glaður, sagði Sæmundur, ef
maður heldur 70.000 krónum
fyrir tunnuna en tíðin mætti
vera skemmtilegri.“ Vertíðina
sagði hann vera fram í miðjan
maí og reiknaði með því að
þurfa, þegar á vorið liði, að færa
eitthvað af netunum austur að
Melrakkasléttu.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Á grásleppu: Steinar Sæmundsson, Kristbjörg Vala Kristjánsdóttir og Sæmundur Ólason skipstjóri.
Með körlunum á grásleppu
Vorverk
„VIÐ erum spennt að sjá hvernig þessu
verður tekið,“ segir Stefán Gunnlaugsson,
einn eigenda veitingastaðarins Bautans á
Akureyri, en á þriðjudag voru reykingar
bannaðar með öllu á staðnum. Um eitt ár er
liðið frá því bannað var að reykja á staðn-
um á kvöldin, en nú ganga Bautamenn alla
leið og gera staðinn algjörlega reyklausan.
„Við höldum að fleiri í hópi okkar gesta
verði ánægðir með þetta framtak okkar en
óánægðir,“ segir Stefán. Hann telur að
þróunin verði sú að innan fárra ára verði
reykingar ekki leyfðar á veitingastöðum.
Bautinn er einn elsti veitingastaður lands-
ins í eigu sömu manna, nýlega orðinn 33
ára gamall, „og það hefur alltaf á þessum
tíma mátt reykja einhvers staðar í húsinu
þar til nú,“ segir Stefán.
Hann gat þess jafnframt að 95% starfs-
manna Bautans væru reyklaus.
Reyklaus
Bauti
Morgunblaðið/Kristján
Veitingastaðurinn Bautinn á Akureyri.
SALA nautgripakjöti í marsmánuði jókst
um 4,4% miðað við sama mánuð í fyrra. Frá
september í fyrra hefur söluaukning því
orðið í hverjum einasta mánuði, ef janúar
2004 er undanskilinn. Síðustu 12 mánuði
var sala nautgripakjöts alls 3.557,7 tonn,
miðað við 3.845,1 tonn sama tímabil árið
áður. Sala hefur dregist saman frá árinu
áður, og er þar um að kenna lélegri sölu
fyrri hluta árs 2003, segir á vef kúabænda.
Framleiðslan sl. 12 mánuði var heldur
minni en árið áður eða 3.655,8 tonn miðað
við 3.887,1 tonn sama tímabil árið áður.
Sala nautgripakjöts í mars var heldur
meiri í ár en á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir
töluverðan samdrátt í slátrun kvíga og kúa,
en í mars í ár var salan 300,1 tonn miðað við
287,4 tonn árið áður. Framleiðslan var
einnig töluvert meiri í mars í ár en á sama
tíma í fyrra eða 318,6 tonn en 292,7 tonn í
sama mánuði í fyrra. Breytingin á milli ára
felst í aukningu á slátrun ungnauta.
Aukning í sölu
á nautakjöti
♦♦♦
Mínstund frett@mbl.is
Laugardaginn 24.apríl fer fram íFæreyjum leikur
Íslandsmeistara KR og
Færeyjameistara HB í
Atlantic Cup keppninni.
Útvarp KR verður á
staðnum og byrjar
Þröstur Emilsson út-
sendingu frá Færeyjum
klukkan 14. Kristinn
Kjærnested lýsir leikn-
um sem hefst klukkan
15. Tæknimaður í KR-
heimilinu verður Sig-
urður Pétur Harðarson.
Útvarp KR fagnar í ár 5
ára afmæli en það var
stofnað í maí 1999. Út-
sendingin frá Færeyjum
á laugardaginn verður
126. útsending KR-
útvarpsins, segir í frétt
frá KR-ingum.
Útvarp KR
Hólmavík | Jóhannes Helgi
Alfreðsson, nemandi í tí-
unda bekk í Grunnskól-
anum á Hólmavík, sigraði
á skákmóti skólans þriðja
árið í röð og hlaut þar með
farandbikar til eignar. Jó-
hannes varð fyrstur til að
vinna bikarinn oftar en
einu sinni. Á skólaskák-
mótinu keppa allir nem-
endur saman, en sá sem
efstur er í flokki nemenda
í 1.–7. bekk hlýtur þó tit-
ilinn skólaskákmeistari í
yngri flokki. Það var Jón
Arnar Ólafsson, nemandi í
6. bekk, sem varð efstur í
yngri flokki að þessu
sinni, en hann var jafn-
framt í öðru sæti á mótinu.
Í þriðja sæti var Hrafnkell
Fjölnisson sem einnig er í
6. bekk.
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Verðlaunahafarnir, frá vinstri: Jón Arnar Ólafsson, Jó-
hannes Helgi Alfreðsson og Hrafnkell Fjölnisson.
Vann skákbikarinn til eignar
Ellý Helga Gunn-arsdóttir seturupp kirkjulega
dagskrá Morgunblaðsins.
Séra Hjálmar Jónsson
var seinn fyrir og eig-
inlega búið að loka síð-
unni.
Hjálmar sagðist yrkja
um hana lofkvæði ef hún
bjargaði honum. Hún
sagði ekki amalegt að
vera gerð ódauðleg í
kveðskap og kvaðst
myndu gera sitt besta:
Mogganum ábyrgist
elegant brag
og annast um kirkjur
og presta.
Ódauðleg verður hún
Ellý í dag
ef hún nú gerir sitt besta.
Þegar hann sá að hún
hafði sett inn tilkynn-
ingar Dómkirkjunnar
um messur um bæna-
daga og páska orti
Hjálmar:
Komplimentin kynni ég
af kæruleysi og gáska:
Ellý hún er yndisleg,
einkum fyrir páska.
Ódauðleg kona
pebl@mbl.is