Morgunblaðið - 22.04.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 22.04.2004, Síða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ er náttúrulega ekki hlutlaus,“ segir Guðni og bætir við að landsmenn hafa fengið þessa mynd af húsinu í gegnum fjöl- miðla í kjölfar samkeppninnar og þar af leiðandi finnist fólki sjálf- sagt undarlegt að verið sé að leita eftir hönnuðum að húsinu. „Frumskilyrðið er þó að gæði hússins verði tryggð, að þetta verði hágæða hús, auk þess sem æskilegt væri að það tæki mið af tillögu að rammaskipulagi, sem unnið hefur verið með í áfram- haldandi skipulagsvinnu svæð- isins,“ segir Guðni að lokum. Höfnin | Ekki var kveðið á um að fylgja yrði verðlaunatillögu í samkeppni um hönnun ráð- stefnu- og tónlistarhúss og hót- els (RTH) við höfnina í Reykja- vík þegar hugmyndasamkeppni var auglýst um skipulag svæð- isins árið 2001. Nú hefur verið auglýst forval vegna fjármögn- unar, hönnunar og byggingar verkefnisins. Alls tóku yfir 40 aðilar, innlendir og erlendir, þátt í hugmyndasamkeppninni árið 2001 og hlaut Guðni Tyrfingsson, arkitekt í Danmörku, fyrstu verðlaun ásamt félögum sínum, Lotte Elkjær, Mikel Fischer- Rassmussen og Lasse Grosböl. Guðni, sem hefur undanfarinn vetur unnið ásamt Stúdíó Granda að áframhaldandi skipu- lagi svæðisins, segir að skýrt hafi verið kveðið á um að ekki væri um framkvæmdasamkeppni að ræða þegar samkeppnin fór fram á sínum tíma. „Þetta var hugmyndasamkeppni, það kom fram strax í samkeppnisgögn- unum að tillagan væri til viðmið- unar og hægt væri að nota hana sem innlegg í einkaframkvæmd- arútboð.“ Guðni segir að hugmyndirnar frá verðlaunatillögunni verði lík- lega ekki nýttar beint að öðru leyti en til viðmiðunar. „Ég hefði vissulega kosið að byggt hefði verið eftir minni hugmynd, en ég Höfundur verðlaunatillögu að ráðstefnu- og tónlistarhúsi við höfnina „Frumskilyrði að gæði hússins verði tryggð“ Útlitsteikning verðlaunatillögunnar: Nú liggur fyrir að hönnun hússins verður boðin út. Hafnarfjörður | Fulltrúar Og Vodafone af- hentu á dögunum foreldraröltinu í Hafn- arfirði fimm farsíma til afnot a í starfinu. Afhendingin fór fram í Gamla bókasafninu við Mjósund, sem nú gegnir m.a. hlutverki félagsmiðstöðvar ung- linga yfir 16 ára aldri. Foreldraröltið fer fram í 4 skólahverfum, Set- bergsskóla, Hvaleyr- arskóla, Víðistaðaskóla og Öldutúnsskóla. Foreldrar úr Setbergshverfi hafa staðið lengst vaktina og verið öðrum foreldrum og skólum gott fordæmi. Foreldrafélag hvers skóla hefur umsjón með starf- inu og fer sjálft röltið fram á kvöldin um helgar. Að sögn bæjaryfirvalda í Hafn- arfirði hafa rannsóknir sýnt fram á víðtæk áhrif foreldraröltsins Um leið og það efli samstöðu foreldra, veiti það ungu fólki að- hald auk þess sem upplýsingar um ástand- ið í hverfinu berist yfirvöldum fyrr. Til samans hafa þessir þættir jákvæð áhrif á forvarnastarfið í bænum. Að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Hafnarfjarðarbæjar, er mikilvægt að foreldrar í foreldraröltinu geti látið vita þegar eitthvað kemur fyrir, síminn sé því hentugt tæki til að miðla upplýsingum. Þannig geti forvarnafulltrúi komið skilaboðum markvisst til þeirra sem taka þátt í foreldraröltinu og því verður allt upplýsingastreymi milli þeirra sem vinna að forvörnum mun skilvirkara. Foreldraröltið fær farsíma til afnota Seltjarnarnes | Á fjórða hundrað manns lögðu leið sína í Gróttu síð- asta laugardag í tilefni hins árlega fjölskyldudags í Gróttu. Í þetta sinn var umsjón dagsins í höndum kennara í Tónlistarskóla Seltjarn- arness. Gestir og gangandi gátu því auk þess að njóta náttúru og umhverfis Gróttu hlýtt á tónlist- arflutning af ýmsu tagi. Í tjaldi fyrir utan vitann spilaði gömlu- dansasveit og sungu gestirni og tóku snúning. Í Fræðasetrinu lék strengjadúett og í vitanum spilaði hornaflokkur svo undir tók enda hljómburðurinn frábær. Að lokum lék síðan í vitanum dixielandband við góðar undirtektir. Vel heppnaður fjölskyldudagur í Gróttu N ÁM HL IÐ A S T A RF I NÁM S A M H L I Ð A S T A R F I SA H A U S T 2 0 0 4 www.endurmenntun.is/sími 525 4444 EFTIR REKSTRAR- OG VIÐSKIPTANÁMIÐ GETUR ÞÚ HALDIÐ ÁFRAM NÁMI Í VIÐSKIPTA- OG HAG FRÆÐI DEILD HÍ OG LOKIÐ ÞAÐAN BS-GRÁÐU Umsó er til 1. ma

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.