Morgunblaðið - 22.04.2004, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.04.2004, Qupperneq 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 21 Hólmavík | Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir í dag, sumardaginn fyrsta, Frænku Charleys eftir Brandon Thomas. Um er að ræða einn vin- sælasta farsa allra tíma. Verkið er skrifað árið 1892, en hefur staðist tímans tönn gríðarlega vel og er raunar eina verk höfundarins sem hef- ur ekki fallið í gleymskunnar dá, að sögn leik- stjórans, Arnars S. Jónssonar. Ættmóðir leikfélagsins Frænkan hefur einu sinni áður, svo vitað sé, lagt leið sínar á Strandir. Árið 1984 sýndi Ung- mennafélagið Elding í Kollafirði þetta verk í Broddanesskóla. Þeirri uppfærslu leikstýrði Signý Sigmundsdóttir, amma Arnars. Þrátt fyrir að Arnar væri þá aðeins sjö ára segist hann muna mjög vel eftir þessari sýningu: „Hún er greypt í minni mitt,“ segir hann og er greinilegt að leiklistaráhugi hans hefur kviknað snemma. Það má líka með sanni segja að fjölskylda Arnars sé haldin ættgengri leiklistarbakteríu, enda er hann þriðji úr átta systkina hópi til að leikstýra hjá Leikfélagi Hólmavíkur. Þá hafa móðir hans, sem gárungar kalla ættmóður Leikfélagsins, og fleiri af systkinum hans og systkinabörnum tekið þátt í starfi Leikfélags- ins á einn eða annan hátt. Sjálfur á Arnar að baki flestar uppfærslur allra leikara í Leikfélaginu, þrátt fyrir að vera aðeins 27 ára. Þetta er þrettánda uppfærslan sem hann tekur þátt í, en hann fer með lítið hlutverk auk leikstjórnarinnar. Tíu leikarar taka þátt í sýningunni og eru all- ir frá Hólmavík og nágrenni. Auk þeirra vinnur annar eins fjöldi aðstoðarfólks að sýningunni á einn eða annan hátt. Að sögn Arnars gekk þokkalega að manna öll hlutverk að þessu sinni. Í Hólmavíkurhreppi búa aðeins um 500 manns en þrátt fyrir það hefur starfsemi Leikfélagsins verið gríðarlega öflug síðan það var vakið af dvala seint á níunda áratugnum. Þessi upp- færsla er sú 24. fyrir utan ýmsar uppákomur, þátttöku í þorrablótum, góugleðum, bæj- arhátíðum og menningarviðburðum, eins og segir í leikskrá. Leikfélag Hólmavíkur hefur jafnan verið þekkt fyrir að vera eitt ferðaglaðasta leikfélag landsins og sjaldnast er látið duga að sýna nokkrar sýningar á heimavelli. Til að mynda fór leikfélagið hringferð um landið með Djúpa- víkurævintýrið fyrir nokkrum árum. Að þessu sinni er áformað að sýna á Hólma- vík, á Drangsnesi, Árnesi, Króksfjarðarnesi, Ketilási í Fljótum og á höfuðborgarsvæðinu. Sýningarnar verða alls níu og þeim lýkur laust fyrir miðjan júní. Frumsýningin verður í Bragganum á Hólmavík og hefst klukkan 20.30. Þriðji úr systkina- hópnum til að leikstýra Frænka Charleys á fjalirnar á Hólmavík Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Leikhópurinn sem tekur þátt í Frænkunni á Hólmavík: Efri röð frá vinstri: Arnar S. Jónsson, Jón Gústi Jónsson, Ester Sigfúsdóttir, Svanhildur Jónsdóttir, Jórunn Helena Jónsdóttir, Úlfar Örn Hjartarson og Matthías Lýðsson. Neðri röð frá vinstri: Sigríður Einarsdóttir, Einar Indriðason og Ingibjörg Birna Sigurðardóttir. Fremst er Alda Guðmundsdóttir hvíslari. Ólafsfjörður | Björgunarsveitin Tindur í Ólafsfirði fékk á dögunum afhenta veglega gjöf frá Slysavarnadeild kvenna og Kven- félaginu í Ólafsfirði. Raunar voru það tvær gjafir, samtals að verðmæti 778.000 krónur, sem renna beint í bíla- og tækjakaup björg- unarsveitarinnar. Annars vegar er það sameiginleg gjöf Slysavarnafélagsins og Kvenfélagsins upp á 278.000 krónur, en það er ágóði af sameig- inlegri árshátíð félaganna og þorrablóti. Hins vegar er það peningagjöf Slysavarnafélagsins upp á 500.000 krónur, gagngert til að styðja björgunarsveitina við kaupin á „nýja“ jeppan- um í vetur. Georg Kristinsson, formaður Björgunar- sveitarinnar, veitti gjöfunum viðtöku og vildi koma á framfæri kæru þakklæti til beggja fé- laganna. Einnig vildi hann þakka öðrum sem hafa styrkt björgunarsveitina að undanförnu, t.d. þeim sem hjálpuðu við að kaupa 15 snjó- flóðaýlur í vetur. Morgunblaðið/Helgi Jónsson Við nýja jeppann: Í höfuðstöðvum björg- unarsveitarinnar Tinds sem hefur fengið nafnið Tindasel. Frá vinstri: Ásta Andreas- sen og Georg Kristinsson sem tekur við pen- ingunum úr hendi Jónu Arnórsdóttur. Hægra megin eru Ásdís Pálmadóttir og Anna María Elíasdóttir. Veglegar gjafir Átt flú Íslandsvini? Í vinning er fer› fyrir tvo til Reykjavíkur* frá einhverjum af fjölmörgum áfanga- stö›um Icelandair og gisting í flrjár nætur á Nordica Hotel. Innifali› er dekurdagur í Laugum – Spa, glæsilegur kvöldver›ur fyrir tvo í Sjávarkjallaranum og Gestakort Reykjavíkur í flrjá daga, sem veitir frían a›gang a› helstu söfnum borgarinnar, öllum sundlaugum og strætó. Auk fless veitir korti› frábær afsláttarkjör af ‡mis konar afflreyingu, vörum og veitingum. Far›u á www.visitreykjavik.is og flú gætir or›i› gestgjafi ársins flér a› kostna›arlausu. Sendu erlendum vinum og vi›skiptafélögum póstkort í gegnum www.visitreykjavik.is og bjóddu fleim til höfu›borgar Íslands me› persónulegri kve›ju frá flér. fiar me› lenda fleir í sérstökum happdrættispotti sem dregi› ver›ur úr fyrir 15. maí. * Fer›in gildir ef bóka› er me› lágmark flriggja vikna fyrirvara á tímabilinu 15. maí 2004 – 15. maí 2005 a› undanskildu tímabilinu 15. júní – 15. ágúst. Vinningshafi grei›ir flugvallarskatta. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H BS 2 43 79 04 /2 00 4 Ferðamálaráð Íslands www.icetourist.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.