Morgunblaðið - 22.04.2004, Page 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 55
laugardaginn 24. apríl
Keppnisfyrirkomulag:
Höggleikur með og án forgjafar
Skráning á www.golf/gsg.is
Upplýsingar í símum
421 2791 og 898 6942
Ræst út frá kl. 9.00-11.10
og frá kl. 13.00-15.10
Afmælismót GSG
Golfklúbbur
Sandgerðis
RON Artest, varnarmaður ársins í
NBA-deildinni í körfuknattleik, hef-
ur verið úrskurðaður í eins leiks
bann þar sem hann fór inn á keppn-
isvöllinn í leyfisleysi í leik Indiana
Pacers gegn Boston Celtic í úrslita-
keppni NBA. Artest var á vara-
mannabekk liðsins og fór inn á þegar
allt stefndi í áflog milli leikmanna.
ANTOINE Walker, leikmaður
NBA-liðsins Dallas Mavericks, segir
við fréttavef CBS að hann vilji meiri
hraða í leik liðsins gegn Sacramento
Kings, en liðin skoruðu samtals 221
stig í fyrsta leik liðanna í úrslita-
keppninni, þar sem Kings hafði bet-
ur. „Ekkert lið getur stöðvað okkur
þegar við leikum eins hratt og við
getum. Við þurfum að skora úr fleiri
hraðaupphlaupum, stytta sóknirnar
enn frekar og missa ekki boltann frá
okkur. Ef það tekst mun ekkert
stöðva okkur,“ sagði Walker.
DIKEMBE Mutombo, miðherji
NBA-liðsins New York Knicks, seg-
ir að hann vilji fá stærra hlutverk í
leik liðsins í úrslitakeppninni gegn
New Jersey Nets, en Mutombo lék
aðeins í 14 mínútur í fyrsta leik lið-
anna sem Nets vann. Nazr Mo-
hammed hefur verið í byrjunarliðinu
undanfarna mánuði og eftir að Vin
Baker kom til liðsins hefur Mutombo
mátt sætta sig við enn minna hlut-
verk hjá þjálfara Knicks, Lenny
Wilkens.
BANDARÍSKI kylfingurinn Stew-
art Cink er í 22. sæti á heimslist-
anum í golfi en hinn þrítugi Cink hef-
ur aldrei náð svo hátt á
heimslistanum áður. Hann sigraði á
PGA-mótinu MCI Heritage sl.
sunnudag og fer upp um 21. sæti.
Tiger Woods er sem fyrr í efsta sæti
en hann hefur verið samfellt í 245
vikur í efsta sæti og 315 vikur alls á
ferlinum. Hann er 16 vikum frá meti
Greg Norman frá Ástralíu sem var
samfellt í 331 viku í efsta sæti.
FÓLK
DIDIER Deschamps, þjálfari
franska knattspyrnuliðsins Mónakó,
fær mikið hrós fyrir stjórnun sína á
liðinu í leiknum gegn Chelsea í
Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld.
Vassilis Zakis, leikmaður Mónakó,
var rekinn af velli á 53. mínútu þegar
staðan var 1:1 en samt náði franska
liðið að knýja fram sigur, 3:1.
Það vakti athygli að lið Mónakó
lagðist ekki í vörn þrátt fyrir að vera
manni færri og Deschamps tefldi
áfram fram tveimur sóknarmönnum,
í stað þess að taka annan af velli og
freista þess að halda fengum hlut.
„Ég ákvað að leggjast ekki í vörn
þar sem mínir menn eru miklir sókn-
armenn í eðli sínu. Við fengum líka
meira pláss til að sækja eftir að
Chelsea bætti við þriðja sóknar-
manninum hjá sér. Ég valdi að leika
áfram með tvo menn í framlínunni
því ég vildi að við myndum nýta okk-
ur auðu svæðin og skapa okkur
marktækifæri.
Lið Mónakó hefur skorað mikið af
mörkum í Meistaradeild Evrópu í
vetur og á tvo markahæstu leikmenn
keppninnar. Þeir skoruðu báðir
gegn Chelsea, Fernando Morientes
skoraði sitt áttunda mark og Dado
Prso sitt sjöunda.
Claudio Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, var seinheppnari í
sínum ákvörðunum en þrjár inná-
skiptingar hans skiluðu ekki ár-
angri. Deschamps kom kollega sín-
um til varnar: „Þetta er alltaf eins,
þjálfarinn á 10 prósent í sigurleikj-
unum en ber 95 prósent ábyrgð á
tapleikjunum. Ég tók réttar ákvarð-
anir að þessu sinni, hann rangar, en
þetta er líka alltaf spurning um
heppni,“ sagði Deschamps, fyrrum
leikmaður Chelsea og fyrirliði
frönsku heimsmeistaranna árið
1998.
Vildi ekki
leggjast
í vörn
LANDSLIÐSMAÐURINN Þórður
Guðjónsson á við meiðsli að stríða
og óvíst er hvort hann getur tekið
þátt í landsleiknum gegn Lettum í
Ríga í næstu viku. Þórður meidd-
ist á nára á æfingu Bochum-liðsins
á föstudaginn og var þar af leið-
andi ekki í leikmannahópi liðsins í
leiknum gegn Köln á sunnudaginn
og ekki lítur út fyrir að hann geti
verið með í æfingaleiknum gegn
gömlu félögunum í ÍA sem fram
fer í kvöld.
„Ég þurfti að hætta á æfingunni
í dag svo það lítur ekki út fyrir að
ég get spilað á móti ÍA miðað við
hvernig þetta var í dag,“ sagði
Þórður við Morgunblaðið í gær.
Var fyrirliði í Albaníu
„Ég er að vonast til að þessi
nárameiðsli séu minni háttar og
að ég verði kominn á fullt aftur
fyrir landsleikinn þannig að ég
geti tekið þátt í honum,“ sagði
Þórður, en hann var fyrirliði í sín-
um 50. landsleik – tapleiknum
gegn Albaníu í Tirana á dögunum
og skoraði eina mark íslenska liðs-
ins, 2:1.
Óvíst hvort Þórður
fer til Lettlands
Claudio Ranieri, knattspyrnu-stjóri Chelsea, tók strax á sig
sökina eftir leikinn en lið hans fékk
á sig tvö mörk, manni fleiri, í Món-
akó og tapaði fyrri leik liðanna í
undanúrslitum Meistaradeildarinn-
ar, 3:1. Eiður Smári sagði hins veg-
ar að leikmennirnir hefðu ekki stað-
ið sig sem skyldi og frammistaða
liðsins í síðari hálfleik væri óásætt-
anleg.
„Þetta eru okkur mikil vonbrigði
vegna þess að við héldum ekki takti
þegar við vorum orðnir manni fleiri.
Það er reyndar ekki hægt að gagn-
rýna okkur fyrir að leggja ekki
nægilega hart að okkur, en við spil-
uðum sem einstaklingar en ekki
sem lið í síðari hálfleiknum. Þegar
liðið missir taktinn, geta menn hald-
ið áfram að hlaupa og berjast en
það kemur ekkert út úr því. Við
settum Mónakó undir pressu þegar
við vorum manni fleiri en skoruðum
ekki, og annað mark þeirra var okk-
ur mikið áfall. Síðasta hálftímann
lékum við langt undir getu. Það eru
mikil vonbrigði að hafa tapað því
þegar flautað var til leikhlés vorum
við mjög bjartsýnir þar sem við
höfðum góð tök á leiknum. Ekki síst
þar sem við tókum vel við okkur
þegar við lentum undir í fyrri hálf-
leiknum.“
Eiður sagði ennfremur að það
yrði afar erfitt verkefni að vinna
upp tveggja marka forskot Mónakó
í síðari leiknum á Stamford Bridge.
„Það verður ekki erfitt að lyfta leik
liðsins en verkefnið er stórt. Við
komum okkur sjálfir í þessa stöðu
og þurfum að sýna styrk til að
vinna okkur út úr henni,“ sagði Eið-
ur Smári Guðjohnsen.
Reuters
Frank Lampard, Eiður Smári Guðjohnsen og Claudio Ranieri
slá á létta strengi á æfingu fyrir leikinn gegn Mónakó.
„Komum okkur
í þessa stöðu“
„ÞAÐ erum við leikmennirnir sem eigum sök á hvernig fór, við urð-
um of værukærir þegar einn leikmanna Mónakó var rekinn af leik-
velli,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knatt-
spyrnu, við enska blaðið Evening Standard í gær.
EIÐUR Smári Guðjohnsen þótti
einn af betri leikmönnum
Chelsea í viðureigninni við
Mónakó í undanúrslitum Meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu
í fyrrakvöld á Stade Louis-
leikvellinum í Mónakó. Evening
Standard gefur honum 6 í ein-
kunn af 10 mögulegum og að-
eins Frank Lampard fær betri
einkunn af leikmönnum Chelsea,
eða 7. Auk Eiðs fá markvörð-
urinn Marco Ambrosio og
vinstri bakvörðurinn Wayne
Bridge einkunnina 6 en aðrir fá
5 eða 4. Þeir Marcel Desailly og
Claude Makelele eru lægstir
með 4 og sömu einkunn fær
knattspyrnustjórinn Claudio
Ranieri fyrir misheppnaðar
breytingar á liðinu.
Sverðið ristir dýpra
„Sverð Romans Abramovichs
ristir nú enn dýpra og er í þann
veginn að stingast í hjarta
hans,“ segir í umsögn um Ran-
ieri.
Um Eið segir blaðið: „Tók
virkan þátt í spilinu og komst í
úrvals marktækifæri en nýtti
þau ekki sem skyldi.“
Eiður Smári metinn
einn af þeim bestu
EIÐUR Smári Guðjohnsen, lands-
liðsfyrirliði Íslands í knattspyrnu,
er í hópi ellefu bestu leikmannanna
í sögu Chelsea. Það er allavega mat
markvarðarins reynda, Dave Beas-
ant, sem valdi besta lið Chelsea frá
upphafi í leikskrá félagsins fyrir
heimaleik gegn Middlesbrough í
ensku úrvalsdeildinni fyrr í þessum
mánuði. Beasant, 45 ára, lék með
Chelsea frá 1988 til 1993. Hann seg-
ir að Eiður Smári sé vanmetnasti
sóknarmaðurinn í ensku knatt-
spyrnunni. „Hver einasti knatt-
spyrnustjóri myndi vilja hafa hann í
sínu liði. Eiður er fæddur marka-
skorari. Sjáið bara markið sem
hann skoraði í fyrri leiknum gegn
Arsenal í Meistaradeildinni. Hann
bjó til marktækifæri úr engu, og
þegar hann náði boltanum var hann
eldsnöggur að senda hann í netið.
Og þegar hann lék með Franco
[Gianfranco Zola] fékk hann nóg af
sendingum.“ Þannig hljóðar um-
sögn Beasants, sem velur fimm af
núverandi leikmönnum, en auk
Eiðs Smára eru það Carlo Cudicini,
John Terry, Frank Lampard og
Damien Duff. Hinir sex í liðinu eru
varnarmennirnir Steve Clarke,
Graham Roberts og Graeme Le
Saux, miðjumennirnir Dennis Wise
og Andy Townsend og sóknarmað-
urinn Zola. Allt leikmenn sem hafa
spilað síðustu 15 árin.
„Er vanmetnasti sóknar-
maðurinn í Englandi“
ENSKA knattspyrnusambandið
hefur staðfest með formlegum
hætti að áhugamaðurinn Marc
Burrows skoraði mark fyrir lið sitt
Cowes eftir aðeins 2 ½ sekúndu
gegn Eastleigh Reserves. Þar með
er hinn 25 ára gamli Burrows búinn
að skrá nafn sitt í metabækurnar
því að aldrei áður hefur liðið svo
skammur tími frá því að knötturinn
hefur verið settur í leik þar til mark
hefur verið skorað. Hávaðarok var
á meðan leikurinn fór fram og nýtti
Burrows sér að lið hans lék undan
vindi í upphafi leiks.
Fyrra metið var 2,8 sekúndur en
það var í eigu Ricardo Olivera frá
Argentínu, sett árið 1998.
Skoraði eftir
2,5 sek.
Eiður Smári Guðjohnsen um leik Chelsea í Mónakó