Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 56

Morgunblaðið - 22.04.2004, Side 56
ÍÞRÓTTIR 56 FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu Undanúrslit, fyrri leikur: Porto – Deportivo La Coruna ................ 0:0 Rautt spjald: Jorge Andrade (87.) Depor- tivo. - 50.818. England 1. deild: Crystal Palace – Sunderland................... 3:0 Staðan: Norwich 42 25 10 7 71:34 85 WBA 42 24 11 7 61:35 83 Sunderland 42 20 11 11 58:43 71 Ipswich 43 21 8 14 81:68 71 Wigan 43 18 15 10 59:43 69 West Ham 43 17 16 10 61:44 67 Cr. Palace 43 19 10 14 67:57 67 Millwall 43 17 15 11 54:45 66 Sheff. Utd 43 19 9 15 60:52 66 Reading 43 18 10 15 53:56 64 Cardiff 43 17 11 15 64:54 62 Stoke City 42 16 11 15 52:52 59 Coventry 43 15 13 15 59:50 58 Preston 43 15 12 16 62:63 57 Watford 43 14 12 17 52:62 54 Crewe 43 14 10 19 53:59 52 Nottingham F. 43 12 15 16 56:57 51 Rotherham 43 12 14 17 47:57 50 Burnley 43 12 14 17 58:72 50 Derby 43 12 13 18 51:65 49 Walsall 43 12 12 19 42:61 48 Gillingham 43 13 8 22 44:62 47 Bradford 43 10 6 27 38:64 36 Wimbledon 43 7 4 32 38:86 25  Norwich er öruggt með sæti í úrvalsdeild að ári. Bradford og Wimbledon eru fallin í 2. deild. Ítalía Lazio – Roma............................................ 1:1 Bernardo Corradi 39., - Francesco Totti 61. (víti). Rautt spjald: Fabio Liverani 80. (La- zio). - 51.590. Staða efstu liða: AC Milan 30 23 6 1 59:20 75 Roma 30 20 7 3 64:15 67 Juventus 30 19 6 5 59:36 63 Inter 30 15 7 8 54:33 52 Lazio 30 15 6 9 48:34 51 Parma 30 14 9 7 49:40 51 Udinese 30 12 9 9 37:34 45 Sampdoria 30 11 11 8 39:37 44 Bologna 30 9 8 13 40:47 35 Chievo 30 8 10 12 29:35 34  Ancona er fallið í 2. deild. Skotland Celtic – Aberdeen..................................... 1:2 Danmörk Bikarkeppnin, undanúrslit: Bröndby – AaB ......................................... 0:0 FC Kaupmannahöfn – OB....................... 3:1 Austurríki Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Rapid Vín – Grazer AK............................ 1:3 Deildabikar karla Neðri deild, C-riðill: Huginn – Afturelding............................... 1:2 Staðan: HK 4 4 0 0 12:5 12 Víkingur Ó 4 2 1 1 11:6 7 Afturelding 3 2 0 1 3:2 6 Skallagr. 4 1 1 2 4:14 4 Huginn 4 1 0 3 15:13 3 KS 3 0 0 3 3:8 0 BLAK Karlar, fyrsti úrslitaleikur: Stjarnan – HK .......................................... 3:1 (Stjarnan vann fjórðu hrinuna 25:23) KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin 16-liða úrslit, leikir númer tvö: Austurdeild: New Jersey – New York...................... 99:81  New Jersey er yfir, 2:0. Indiana – Boston ................................ 103:90  Indiana er yfir, 2:0. Vesturdeild: Sacramento – Dallas ............................ 83:79  Sacramento er yfir, 2:0. HANDKNATTLEIKUR Úrslitakeppni kvenna, undanúrslit, annar leikur: Ásgarður: Stjarnan – Valur..................19.35 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppnin Efri deild karla, B-riðill: Egilshöll: Valur – Fram.............................14 Laugardalur: Þróttur R. - FH ..................14 Efri deild karla, A-riðill: Njarðvík: Njarðvík – KA ...........................16 Egilshöll: Fylkir – Þór A. ..........................16 Egilshöll: Víkingur R. – Haukar...............18 Efri deild kvenna: Fífan: FH – KR ..........................................12 VÍÐAVANGSHLAUP Víðavangshlaup ÍR fer fram í 89. sinn í dag kl. 13. Hlaupnir verða 5 km, um göturnar kringum Reykjavíkurtjörn og í Hljóm- skálagarðinum. Skráning verður í Tjarn- arsal Ráðhússins frá kl. 11. Í DAG TVEIR tékkneskir knatt- spyrnumenn eru komnir til Breiðabliks og miklar líkur eru á að þeir leiki með Kópavogsliðinu í 1. deildinni í sumar. Þeir heita Petr Podzemsky, 29 ára varn- armaður, og Michal Nehoda, 27 ára sóknarmaður. „Þeir eru hjá okkur til reynslu en þetta eru leikmenn sem hafa spilað mikið í efstu deild í Tékk- landi og ættu því að geta orðið okkur góður liðsauki, ef samn- ingar takast,“ sagði Bjarni Jó- hannsson, þjálfari Breiðabliks, við Morgunblaðið í gær. Báðir leikmennirnir hafa spilað í efstu deild í Tékklandi í vetur, Nehoda með Zlin, sem er í 6. sæti, og Podzemsky með Plzen, sem sit- ur á botni deildarinnar. Podzemsky hefur leikið í efstu deild frá 1997, samtals ríflega 100 leiki. Hann hefur lengst af spilað með Pribram, sem áður hét Dukla Prag, en hann hefur verið í röðum Plzen í tvö ár. Nehoda hefur spilað í efstu deildinni frá 1995 og á einnig ríf- lega 100 leiki þar að baki. Hann lék með Pribram, Budejovice, Petra Donovice og Viktoria Zizkov í Tékklandi áður en hann fór til Zlin árið 2002 og hefur einnig verið hjá Ethnikos í Grikk- landi, Strasbourg og Grenoble í Frakklandi og De Graafschap í Hollandi. Tveir Tékkar til reynslu hjá Breiðabliki SIGURÐUR Bjarnason heldur ekki áfram þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í handknattleik á næstu leiktíð. Þetta hefur Morgunblaðið sam- kvæmt heimildum en hvorki Sig- urður né Halldór Sigurðsson, for- maður meistaraflokks karla hjá Stjörnunni, vildu staðfesta fréttina í samtali við Morgunblaðið í gær. Sig- urður sagði að tilkynningar væri að vænta á mánudaginn, a.m.k. þangað til yrði engin breyting á samstarfi hans og Stjörnunnar. Sigurður tók við þjálfun liðsins á síðasta sumri þegar hann flutti heim eftir hartnær tíu ára veru í Þýska- landi sem atvinnumaður í hand- knattleik við góðan orðstír, en hann lék með Stjörnunni áður en hann hélt út. Eftir því sem næst verður komist hefur ekki verið ráðinn þjálf- ari í stað Sigurðar enda mun það ekki hafa legið fyrir fyrr en í gær að hann hætti. Undir stjórn Sigurðar náði Stjarn- an að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni eftir áramótin eftir mikla baráttu við FH í suðurriðli Íslandsmótsins fyrir áramótin. Stjörnumenn byrj- uðu ágætlega í úrvalsdeildinni en m.a. vegna meiðsla nokkurra leik- manna, þar á meðal Sigurðar, datt botninn úr leik liðsins þegar á leið og það rak lestina þegar upp var staðið í úrvalsdeildinni. Gústaf Bjarnason, sem var aðstoð- arþjálfari og leikmaður með Sig- urði, hætti í mars. Sigurður Bjarnason hættur með Stjörnuna FÓLK  ALEXANDER Petersson, fyrr- verandi handknattleiksmaður hjá Gróttu/KR, glímir enn við meiðsl í olnboga og getur ekki leikið með samherjum sínum í HSG Düsseldorf á sunnudaginn gegn MSG Melsung- en. Alexander lék heldur ekki með gegn Aue um síðustu helgi þegar Düsseldorf tryggði sér sæti í 1. deild þýska handknattleiksins á næstu leiktíð.  GRZEGORZ Tkaczyk, lærisveinn Alfreð Gíslasonar, þjálfara þýska handknattleiksliðsins Magdeburg, leikur ekki meira með liðinu á þess- ari leiktíð. Þetta er talsvert áfall fyr- ir Magdeburg því Tkaczyk er næst- markahæsti leikmaður liðsins á leiktíðinni. Magdeburg á í harðri keppni um að tryggja sér sæti í meistaradeild Evrópu í handknatt- leik á næstu leiktíð.  MAGNUS Andersson tekur ekki við þjálfun spænska handknattleiks- liðsins Barcelona, en hann hefur átt í viðræðum við félagið um að taka við af Valero Rivera þegar hann hættir í vor eftir 20 ár í brúnni. Upp úr samn- ingaviðræðum slitnaði í gær og hyggst Andersson halda áfram að þjálfa sænska liðið Halmstad.  GIOVANNI Trapattoni, landsliðs- þjálfari Ítala í knattspyrnu, hefur farið fram á það við varnarmanninn reynda hjá AC Milan, Paolo Maldini, að hann gefi kost á sér í ítalska landsliðið í knattspyrnu sem tekur þátt í Evrópumeistaramótinu í Portúgal í sumar. Maldini hætti að leika með landsliðinu eftir HM í Jap- an og Suður-Kóreu fyrir tveimur ár- um. Maldini er 35 ára og á ítalska landsleikjameið, 125 leiki.  NILS Arne Eggen, fyrrum þjálf- ari norska meistaraliðsins Rosen- borg, hafnaði í gær boði frá Viking um að taka við þjálfun liðsins í stað Kjell Inge Olsens sem ákvað að segja starfi sínu lausu fyrr í vikunni.  AÐSÓKN á leiki í tveimur fyrstu umferðunum í norsku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu hefur aldrei verið meiri en nú en alls hafa tæplega 114.000 manns mætt á leikina sem er aukning um 12% frá því á síðustu leiktíð. Að meðtali voru 6.540 áhorf- endur á leikjum úrvalsdeildarinnar í fyrra en miðað við aðsóknina í upp- hafi leiktíðarinnar má reikna með að yfir 7.000 mæti að meðaltali á hvern leik en hingað til eru þeir 7.837.  SEX íslenskir kylfingar eru farnir til Þýskalands, þar sem þeir munu taka þátt í opna þýska áhugamanna- mótinu í golfi sem fram fer á Elfrather Mühle-golfvellinum. Þetta eru þau Helena Árnadóttir, Helga Rut Svanbergsdóttir, Birgir Már Vigfússon, Gunnar Þór Gunnars- son, Magnús Lárusson og Örn Ævar Hjartarson. Í fyrra tóku nokkrir ís- lenskir kylfingar þátt í þessu móti og þar náði Heiðar Bragason 7.–10. sæti. Ellert B. Schram gefur kost ásér sem forseti Íþrótta- og ól- ympíusambands Íslands í síðasta skipti á íþróttaþingi ÍSÍ sem haldið verður á Grand Hóteli í Reykjavík á laugardaginn. Kosið er til tveggja ára og Ellert hyggst því láta af embættinu árið 2006. „Eftir tvö ár hef ég verið forseti í fimmtán ár, svo framarlega sem ég verð endurkjörinn á þessu þingi, og það verður orðinn ágætur tími í þessu embætti,“ sagði Ellert í gær. Um þingið í ár sagði hann að ekki væri reiknað með miklum átökum. „Við vitum ekki til þess að nein stór ágreiningsmál liggi fyrir og íþróttalífið í landinu er með miklum blóma,“ sagði Ellert sem tók við sem forseti af Sveini Björnssyni árið 1991. Friðjón Friðjónsson, gjaldkeri ÍSÍ, hefur ákveðið að draga sig í hlé og gefur ekki kost á sér til end- urkjörs. Friðjón var gjaldkeri Knattspyrnusambands Íslands frá 1971 til 1984 og hefur verið gjald- keri ÍSÍ frá þeim tíma. Samkvæmt reikningum ÍSÍ, sem lagðir hafa verið fram, var velta sambandsins á síðasta ári um 344 milljónir króna. Rekstrarhagnaður ársins 2003 var um 2,7 milljónir króna og óráðstafað eigið fé ÍSÍ um síðustu áramót nam 310 milljónum króna. Ellert hyggst hætta sem forseti ÍSÍ 2006 Morgunblaðið/Sverrir Ellert B. Schram ÞRÓTTUR Reykjavík fagnar Ís- landsmeistaratitlinum í blaki kvenna, en það er fyrsti titill kvennaliðs Þróttar frá Reykjavík í blaki í sextán ár. Þar með varð Þróttur Neskaupstað að eftirláta Íslandsmeistaratitilinn sem liðið hafði haldið síðastliðin fjögur ár. Petrún Jónsdóttir, fyrrverandi liðsmaður og þjálfari Þróttar Nes- kaupstað til margra ára en þjálfar nú Þrótt Reykjavík, fagnar Íslands- meistaratitlinum fimmta árið í röð, en með henni í Þrótti Reykjavík spila nú fjórir fyrrverandi liðsmenn Þróttar frá Neskaupstað. Petrún var ánægð og þakkaði þennan ár- angur einfaldlega góðum mann- skap. „Við erum með rosafínan mannskap, breiðan og góðan hóp. Við byrjuðum bara með sex liðs- menn í haust en það tíndist vel inn í hópinn í vetur og með æfingum fjórum sinnum í viku höfum við náð þessum árangri,“ sagði Petrún. Spurð um hvernig henni líkaði að spila á móti gömlu félögunum sín- um í Þrótti Neskaupstað sagði Pet- rún það bara vera yndislegt að sjá alla þessa ungu og efnilegu leik- menn sem hún hefði þjálfað í Nes- kaupstað vera að skila sér inn í meistaraflokkinn. Um Íslandsmeistaramótið í heild sinni sagði Petrún að þar væri ekki nægjanleg breidd og það vantaði meiri samkeppni, enda liðin í mótinu bara fjögur. „Það var meiri barátta meðal þessara fjögurra liða í vetur en árin á undan, þegar Þróttur Nes hafði algera yfirburði, en það vantar fleiri lið.“ Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir Meistararnir – aftasta röð frá vinstri: Petrún Bj. Jónsdóttir, Nína B. Oddsdóttir, Natalía Ravva, Anna Pavliouk og Sunna Þrastardóttir. Miðröð: Birna Björk Þorkelsdóttir og María Indriðadóttir. Fremsta röð: Elsa Sæný Valgeirsdóttir, Berta Hreinsdóttir, Lilja Jónsdóttir og Ása Birna Björnsdóttir. Fyrsti titill Þróttar R. í sextán ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.